Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1999, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 30. ÁGÚST 1999
11
Kvikmyndir
Svartur köttur, hvítur köttur (Crna macka, bell macor):
Litríkar persónur í vafasömum samböndum
**** Emir Kusturica sannar
enn einu sinni snilld sína í kvik-
myndinni Svartur köttur, hvítur
köttur, einhverjum skemmtilegasta
farsa sem sést hefur í langan tíma.
Myndin sem kemur í kjölfarið á
meistaraverki Kusturica, Und-
erground, er laus við alla pólitík
sem hefur yfirleitt verið að finna í
myndum Kusturica. Hér er hann að-
eins að skemmta sér og öðrum í
bráðskemmtilegri sögu um frændur
og frænkur í smábæ á bökkum
Dónár þar sem hver persónan af
annarri er litríkari.
í byrjun fylgjumst við með Matko
Destanov og syni hans virða fyrir
sér skipaumferðina um Dóná.
Matka skuldar glæpaforingja hér-
aðsins peninga og til að geta borgað
fer hann í heimsókn til foðurbróður
síns sem stýrir annarri voldugri
glæpaklíku, segir fóður sinn látinn
og biður um lán sem hann fær í
virðingarskyni við látinn fóður,
sem er á lífi, en á að vísu stutt eftir
að mati Matko. Foringinn sem á
inneignina hjá Matko hefur samt
annað i huga en peninga til að inn-
heimta skuldin. Hann vill að sonur
Matko giftist systur hans, en það er
honum kappsmál að gifta systur
sínar sem eru ekki beint snoppu-
fríðar, svo ekki sé meira sagt. Hefst
nú lífleg og ærslafull atburðarás
sem nær hápunkti í brúðkaupi sem
fer á annan veg en ætlast var til.
Þrátt fyrir ærslin og hraða at-
burðarás er sem fyrr einhver töfra-
máttur í flestum myndskeiðum Kust-
urica sem oftar en ekki dregur at-
hyglina frá ærslunum að því sem er
baksviðs. í þessum myndskeiðum
gegna lykilhlutverki kettirnir tveir,
annar svartur og hinn hvítur, gæsir,
þar sem ein þeirra fær í lokin nýtt
hlutverk sem gæsir hafa ekki gegnt
áður og svín sem af og til í myndinni
er að fá sér tuggu af ryðguðum bíl.
Þessi tilvitnun Kusturica i dýraríkið
á sér svo hliðstæður í þeim kostu-
legu persónum sem við erum að
fylgjast með alla myndina. Þá er sem
fyrr í myndum Kusturica stórkostleg
tónlist sem bindur
myndina saman,
sígaunatónlist, dansar
og gróf rokktónlist
sem er eins og sniðin
að mannlífinu sem við
fylgjumst með.
Leikarar eru í einu
orð sagt frábærir.
Kusturica hefur í öll-
um sínum myndum
blandað saman at-
vinnuleikurum gegn
leikurum sem hann
hefur fundið á göt-
unni, fólki sem hefur
hingað til enga
reynslu haft af leik,
aðferð sem hefur heppnast og gerir
það enn. Það er nú samt svo að þrátt
fyrir jafnan og skemmtilegan hóp
þá er það einn leikari sem stendur
upp úr, Srdan Todorovic í hlutverki
dópkóngsins Dadan. Það er ótrúleg-
ur kraftur og leikgleði i leik
Todorovic (lék einnig í Und-
erground) og þegar líða fer á mynd-
ina má kannski segja að hann
skyggi um of á aðra, þvílík er út-
geislun hans.
Kusturica sagði eftir Und-
erground að hann ætlaði sér ekki að
gera aðra kvikmynd, sem betur fer
hefur honum snúist hugur og þegar
fylgst er með allri snilldinni sem
hann framkvæmir í Svörtum ketti,
hvítum ketti og hugsað er til fyrri
mynda hans er ekki laust við að upp
í huga manns komi sú hugsun að
hann hafi ekkert fyrir þessu, hann
geti nánast gengið með sínu fólki og
kvikmyndað alþýðuna og töfrað
fram úr einfaldleikanum eitthvað
sem enginn annar getur gert og
slíkt töfraverk er þessi nýjasta kvik-
mynd hans.
Kvikmynda
GAGNRÝNI
Leikstjóri: Emir Kusturica. Handrit:
Emir Kusturica og Gordon Mihic.
Kvikmyndataka: Thierry Arbogast.
Tónlist: Voja Aralika, IMele Karjalic
og Dejo Sparavalo. Aðalleikarar:
Severdzan Bajram, Florijan Ajdini,
Salija Ibraimova og Branka Katic.
Hilmar Karlsson
Kvikmyndahátíð DV í Reykjavík hófst á föstudaginn. Opnunarmynd hátíðarinnar var Svartur köttur, hvítur köttur og
var hún sýnd í Háskólabíói fyrir fullu húsi og var hrifning áhorfenda mikil. Áður en sýning myndarinnar hófst ávarp-
aði leikstjóri myndarinnar, Emir Kusturica, heiðursgestur hátíðarinnar, sýningargesti og sló á létta strengi ásamt höf-
undi tónlistarinnar, Dr. Nele Karjalic, og er myndin af þeim tekin við það tækifæri. Þeir eru báðir í hljómsveitinní No
Smoking Band sem hélt tónleika í Laugardalshöll ásamt Sigur Rós á laugardagskvöld.
Dagskrá mánudaginn 30. ágúst
SNORRABRAUT
16:40 The Big Swap
17:00 Barry Lyndon
18:00 Beloved
18:50 The Big Swap
21:00 Full Hetal Jacket
A Clockwork Orange
The Shining
23:15 Full Metal Jacket
23:30 A Clockwork Orange
The Shining
"wiy
4 Ati i/ /nndlsVJ/hi
erklúbbur hátíðannnar
vefssða ibánððnmar
FLUGLEIDIR
fWr
16:00 Happiness
17:00 Last Days
Three Seasons
18.30 Happiness
19:00 HalfaChange
Children of Heaven
21:00 Happiness
Trick
23:00 Arizona Dream
23:30 Happiness
Bílaleiga
HUGfÉlAG ÍSIANOS
Air tcrlnmni
É
HASK LABÍ
17:00 My Mom is a Gangster
Ratcatcher
19.00 Do You Remember Dolly Bell
18:45 Tea With Mussolini
21:00 Black Cat White Cat
Tango
23:00 Lucky People Center Int.
TVG-ZIMSEN
PRIMAVERA
RISTORANTt