Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1999, Blaðsíða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1999
Útlönd Stuttar fréttir i>v
Ekkert lát á skálmöldinni á Austur-Tímor:
Miöborg Dili
er brunarústir
Schröder lætur
ófarir ekki slá
sig út af laginu
Gerhard Schröder Þýska-
landskanslari ætlar ekki að láta
ófarir jafnaðarmannaflokksins í
fylkiskosningunum í Saarlandi og
Brandenburg slá sig út af laginu
og hét því í gær að hvika hvergi
frá fyrirhuguðum aðhaldsaðgerð-
um í efnahagsmálum.
„Það er engin ástæða til að
víkja af leið,“ sagði Schröder við
fréttamenn. Hann hafði þá sýnt
mátt sinn og megin á fundi flokks-
stjórnarinnar með því að losa sig
við vinstrisinnaðan varaformann
sinn og fá samherja sinn kjörinn
í staðinn.
Hans Eichel fjármálaráðherra
lagði einnig áherslu á að ekki
yrði horfið frá því að skera fjárlög
næsta árs niður um sem svarar
rúmum ellefu hundruðum millj-
arða króna, þrátt fyrir ákafa and-
stöðu vinstrisinna jafnaðar-
mannaflokksins. „Við eigum ekki
annarra kosta völ,“ sagði Eichel.
Búist er við ófórum krata í
kosningum á næstu vikum.
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á eftirfarandi
eign verður háð á henni sjálfri,
_______sem hér segir:_____
Strandgata 23, Eskifirði, þingl. eig. Jór-
unn Valgeirsdóttir, gerðarbeiðendur Al-
menna málflutningsstofan sf. og íslands-
banki hf., höfuðst. 500, föstudaginn 10.
september 1999 kl. 10.
SÝSLUMAÐURINN Á ESKIFIRÐI
Faxafeni 8
Barnapeysur 990
Flísgallar á börn 2490
Barnaúlpur frá 1490
Dömupeysur frá 990
Herraskyrtur frá 690
Flíspeysur frá 1990
Opið
mánudaga-
fimmtudaga 10-18
föstudaga 10-19
laugardaga 10-18
sunnudaga 12-17
Ekkert lát er á skálmöldinni í
Dimi, höfuðborg Austur-Tímor, þar
sem vopnaðar sveitir andstæðinga
sjálfstæðis landsins fóru rænandi og
ruplandi í morgun og kveiktu i hús-
um.
Þá réðust vígasveitirnar á starfs-
menn Sameinuðu þjóðanna og her-
sveitir Indónesíu hunsuðu herlög
sem voru sett í nótt.
Skotið var af byssum yfir bæki-
stöðvar SÞ í Dili, að sögn blaða-
manns á staðnum sem var að búa
sig undir að flýja til borgarinnar
Darwin í Ástralíu.
„Öllu hefur verið stolið steini létt-
ara í Dili. Viðskiptahverfið í mið-
borginni er brunarústir einar. Við
erum þeir einu sem eftir eru og svo
virðist sem þeir (vopnaðir andstæð-
ingar sjálfstæðis) einbeiti sér að
okkur,“ sagði starfsmaður SÞ í
Lífverðir Hosni Mubaraks, for-
seta Egyptalands, skutu í gær til
bana mann sem ráðist hafði á for-
setann með eggvopni. Svo virðist
sem forsetinn hafi sloppið óskadd-
aður eða með litla skrámu.
Mubarak var á ferð í bílalest í
borginni Port Said við Súesskurð-
inn. Veifaði forsetinn út um glugg-
ann til mannfjölda er safnast hafði
saman.
í opinberri yfirlýsingu, sem les-
in var upp í ríkissjónvarpinu í Eg-
yptalandi, sagði að forsetinn hefði
fengið skrámu. Ekki var nánar
greint frá meiðslum hans. Sjónar-
vottar höfðu áður greint frá því að
meintur árásarmaður, El-Sayed
Seliman, hefði haldið á mótmæla-
bréfi en ekki vopni þegar hann
gekk í átt að bifreið forsetans. í op-
inberri yfirlýsingunni var því hald-
símaviðtali við fréttamann Reuters
í morgun.
Indónesar settu herlög á Austur-
Tímor í nótt þar sem vopnaðar
stuðningsmannasveitir stjórnarinn-
ar í Jakarta hafa framið hroðaleg-
ustu grimmdarverk frá því ljóst var
að íbúar landsins kusu sjálfstæði í
þjóðaratkvæðagreiðslu á dögunum.
Indónesar hafa stjórnað Austur-
Tímor með harðri hendi í 23 ár.
Xanana Gusmao, leiðtogi sjálf-
stæðissinna á Austur-Tímor, var
einnig leystur úr haldi í nótt. Hann
hafði þá dúsað í fangelsi og stofu-
fangelsi í Indónesíu í sex ár.
Sameinuðu þjóðirnar veittu
Indónesiu í nótt tveggja sólarhringa
frest til að binda enda á ofbeldisverk-
in á Austur-Timor. Ella muni þjóðir
heims íhuga að grípa til aðgerða.
„Það er ekki hægt að láta stjóm-
Mubarak hélt ræðu skömmu eftir
árásina. Símamynd Reuter
leysið sem nú ríkir á Austur-Tímor
grassera öllu lengur,“ sagði Kofi
Annan, framkvæmdastjóri SÞ, í
New York í gærkvöld.
Madeleine Albright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sagði í gær að
tíminn til að binda enda á ofbeldis-
verkin væri að renna stjómvöldum
í Indónesíu úr greipum.
Reiði þjóða heims hefur farið sí-
vaxandi undanfarna daga, eða frá
því að stuðningsmenn Jakarta-
stjórnarinnar hertu á ofbeldisað-
gerðum sínum gegn sjálfstæðissinn-
um. Þeir nutu stundum beinnar að-
stoðar indónesiskra hermanna við
voðaverkin.
Mannréttindafrömuðurinn og frið-
arverðlaunahafi Nóbels, José Ramos-
Horta, hvatti til þess í morgun að
settur yrði á laggirnar stríðsglæpa-
dómstóll fyrir Austur-Tímor.
ið fram að Seliman hefði þotið að
límúsinu forsetans og sært hann
áður en lífverðirnir skutu hann á
staðnum. Aðallífvörður forsetans
var sagður hafa særst á flngri.
Seliman, sem er götusali, er ekki
talinn bindast neinum samtökum.
Hann hefur hins vegar gerst sekur
um ofbeldisverk og þjófnað, að
sögn yfirvalda.
Atvikið í gær átti sér stað aðeins
einum degi eftir að Mubarak var
viðstaddur undirritun friðarsam-
komulags milli ísraela og Palest-
ínumanna í Sharm el-Sheikh í Eg-
yptalandi. Anwar Sadat, fyrrver-
andi forseti Egyptalands, var myrt-
ur í Kaíró 1981 eftir að hafa undir-
ritað friðarsamkomulag við ísrael.
Hosni Mubarak hefur áður
sloppiö naumlega frá banatilræð-
um.
Heimamenn grunaðir
Lögregluna í ísrael grunar að
tveir ísraelskir arabar hafl verið í
bílunum tveimur sem sprungu í
tætlur i norðurhluta ísraels
skömmu eftir að friðarsamning-
urinn við Palestínumenn var und-
irritaður um helgina.
Mitchell miðlar málum
Bandaríski sáttasemjarinn Ge-
orge Mitchell er aftur kominn til
Norður-írlands
þar sem hann
ætlar að reyna
að koma friðar-
ferlinu aftur
inn á rétta
braut. Hann
sagðist í gær
ekki luma á
neinum töfralausnum en lagði
áherslu á að hægt væri að leysa
ágreininginn sem væri milli
deilenda.
Fjórir drepnir
Atvinnulaus maður um fertugt
skaut fjóra til bana i deilum í
þorpi einu í vesturhluta Frakk-
lands í gær. Fimmti maðurinn
særðist.
Prinsinn kominn heim
Nýjasti prinsinn í Danmörku,
sonur þeirra Alexöndru og
Jóakims, er nú kominn heim í
foreldrahús í Schackenborgarhöll
á Jótlandi. Fyrir brottförina náði
hann þó að heilsa upp á afa
gamla, Henrik drottningarmann
sem var nýkominn úr uppskeru-
störfum á vínbúgarði sínum í
Suður-Frakklandi.
Talsmaðurinn talar
Borís Jeltsin Rússlandsforseti
hefur enn ekkert svarað ásökun-
um um að hann
og fjölskylda
hans hafi þegið
mútur frá sviss-
neskum bygg-
ingaverktaka.
Talsmaður for-
setans sagði
hins vegar i gær
að ásakanir á hendur stjórnar-
herrunum í Kreml væru nútíma-
útgáfa af spænska rannsóknar-
réttinum. Þá sagði hann þær vera
brot á réttindum þeirra sem fyrir
þeim yrðu.
Ást bónnuð í Ríkinu
Samkvæmt reglum í áfengisút-
sölu rikisins í Svíþjóö skaðar það
andrúmsloftið á vinnustaðnum
verði starfmaður ástfanginn af
vinnufélaga. Þykir þá ástæða til
að færa viðkomandi til í starfi.
Aðstoðaði Wennerström
Háttsettur sænskur liðsforingi
er í væntanlegri bók sagður vera
mögulegur aðstoðarmaður njósn-
arans Stigs Wennerströms.
Aukið fylgi hægri
Hinn hægrisinnaði Frelsis-
flokkúr Jörg Haiders í Austurríki
er nú næststærsti flokkur lands-
ins, með 27 prósent atkvæða, sam-
kvæmt fylgiskönnunum. Stærstur
er Jafnaðarmannaflokkurinn með
35 prósent.
Vill sættir við Víetnam
Madeleine Albright, utanrikis-
ráðherra Bandaríkjanna, hvatti í
gær til sam-
vinnu og sátta í
heimsókn sinni
í ' Víetnam.
Sagði Albright
Bandarikin og
Víetnam að ei-
lifu tengd af
sögunni. Með
áframhaldandi samvinnu gætu
bjartari kaflar og gagnkvæmur
ávinningur tekið við.
12 ára móðir í Bretlandi
Breska lögreglan hefur yfir-
heyrt 23 ára mann vegna gruns
um að hann hafi barnað 12 ára
stúlku sem ól son í síðasta mán-
uði í bænum Rotherham. Hvorki
stúlkan né móðir hennar, sem er
aðeins 26 ára, höfðu hugmynd um
að bam væri á leiðinni.
íbúar Dili, höfuðborgar Austur-Tímor, flýja heimili sfn unnvörpum vegna ofbeldisverka andstæðinga sjálfstæðis
landsins. Yfirgnæfandi meirihluti íbúa landsins kaus sjálfstæði í þjóðaratkvæðagreiðslu á dögunum og það var
meira en vígasveitir á bandi Indónesíustjórnar gátu þolað. Þær hafa því farið rænandi og myrðandi um bæi og sveit-
Ir Austur-Tímor frá því úrslitin lágu fyrir um helgina.
Skotinn til bana við
árás á Hosni Mubarak