Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1999, Síða 9
ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1999
9
DV
Hillary ósammála
eiginmanninum
Það er ekki alltaf auðvelt að vera
bæði forsetafrú og sjálfstæður
stjómmálamaður í leit að embætti.
Hillary Clinton hefur nú í þriðja
sinn lýst yfir andstöðu sinni við
stefnu eiginmanns síns, Bills Clint-
ons Bandaríkjaforseta.
Þann 11. ágúst síðastliðinn bauð
Clinton 16 félögum í skæruliða-
hreyfmgunni FALN í Puerto Rico
sakaruppgjöf. Þeir hafa allir setið í
fangelsi í Bandaríkjunum í að
minnsta kosti 14 ár vegna meintra
hryðjuverka. Boð Clintons var með
því skilyrði að skæraliðarnir tækju
ekki framar þátt í ofbeldisverkum.
Margir hafa brugðist harkalega
við fyrirhugaðri sakaruppgjöf. Lög-
reglustjórinn í New York er meðal
þeirra sem lýst hafa yfir andstöðu
sinni við frelsi hinna meintu
hryðjuverkamanna.
Hillary krefst þess nú að forset-
inn dragi boðið um sakaruppgjöf til
baka.
Pólitískir andstæðingar forseta-
hjónanna segja boðið um sakarupp-
gjöf einungis hafa verið til að
styrkja stöðu Hillary meðal
spænskumælandi kjósenda í New
York. Hillary kveðst ekki hafa vitað
fyrir fram að Clinton hygðist náða
skæruliðana.
FALN-hreyfingin gerði fjölda
sprengjuárása á lögreglustöðvar og
aðrar opinberar byggingar i Banda-
ríkjunum 1974 til 1983. Sex létu lifið
í árásunum. Ekki hefur verið hægt
að tengja fangana 16 beint við árás-
imar.
Ekki eru allir vissir um að Clintonhjónin séu í raun á öndverðum meiði.
Símamynd Reuter
Útlönd
Stjórnarandstaðan í Serbíu deilir:
Vuk með Slobodan
Klofningur í röðum stjórnar-
andstæðinga i Serbíu kom fram í
dagsljósiö í gær þegar kristilegir
demókratar sökuðu Vuk Dra-
skovic, einn mest áberandi leið-
toga stjómarandstöðunnar, um að
taka afstöðu með Slobodan Milos-
evic Júgóslavíuforseta og stjórn
hans.
„Grímurnar hafa verið teknar
niður. Draskovic hefur sýnt sitt
rétta eðli þótt hann hafi oft haft
hamskipti," sagði Vladan Batic,
sem hefur samhæft starfsemi
samfylkingar stjórnarandstæð-
inga.
Draskovic og Zoran Djindjic,
leiðtogi lýðræðisílokksins, voru
samherjar þegar þeir fóru fyrir
mótmælaaðgerðum sem skóku
stjórn Milosevics árið 1996. Hins
vegar kastaðist í kekki milli
þeirra þegar Draskovic, einn
stjórnarandstöðuleiötoga, tók þátt
í kosningum og sat svo stutt í rik-
isstjóm.
Blaðberar óskast
í eftirtaldar götur:
Brúnaveg
Dalbraut
Selvogsgrunn
Sporðagrunn
Bankastræti
Laugaveg
Máshóla
Orrahóla
Ugluhóla
Valshóla
Auðbrekku
Löngubrekku
Laufbrekku
Fjólugötu
Smáragötu
Sóleyjargötu
Upplýsingar veitir afgreiðsla
DV í síma 550 5000
Grand Cherokee limited 5,2 '97,
ek. 50 þús. km. Ásett verð 3.890.000.
Tilboðsverð 3.590.000.
Grand Cherokee limited 5,2 '96,
ek. 54 þús. km. Ásett verð 3.590.000.
Tilboðsverð 3.290.000.
Grand Cherokee limited 5,2 '94, ek.
59 þús. km. Ásett verð 2.790.000.
Tilboðsverö 2.490.000.
Ssang Young Musso dísil '96 (06-98),
ek. 32 þús. km. Ásett verð 1.990.000.
Tilboðsverð 1.850.000
Daihatsu Feroza '92, ek. 104 þús. km.
Ásett verð 730.000.
Tilboðsverð 620.000.
Toyota Corolla '95, ek. 85 þús. km.
Ásett verð 890.000.
Tilboðsverð 750.000.
Suzuki Baleno '96, ek. 72 þús. km.
Ásett verð 890.000.
Tilboðsverð 750.000.
Peugeot 106 1,4, ssk., '97, ek. 7 þús.
km. Asett verð 1.090.000.
Tilboðsverð 990.000.
Peugeot 405 station '95, ek. 66 þús.
km. Asett verð 990.000.
Tilboðsverð 830.000.
VW Golf Variant '97, ek. 33 þús.
km.Ásett verð 1.250.000.
Tilboðsverð 1.120.000.
Daihatsu Charade '97, ek. 43 þús. km.
Ásett verð 860.000.
Tilboðsverð 730.000.
VW Golf 4x4 station '98, ek. 43 þús.
km. Ásett verð 1.490.000.
Tilboðsverð 1.330.000.
Ford Mustang ‘94, ek. 89 þús. km.
Ásett verð 2.100.000.
Tilboðsverð 1.850.000.
Chrysler Stratus '95, ek. 70 þús. km.
Ásett verð 1.490.000.
Tilboðsverð 1.330.000.
Peugeot 306 bílaleigublll (11-02),
ek. 26 þús. km.
Tilboðsverð 1.190.000.
Peugeot 306 bílaleigubill (11-02) '99,
ek. 18 þús. km.
Tilboðsverð 1.190.000.
NÝBÝLAVEG U R 2 • SÍMI 554 2600 • OPIÐ VIRKA DAGA 9-18