Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1999, Blaðsíða 32
IBFRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Niðurskurðarkrísan hjá Lögreglunni í Reykjavík:
Svindlað á okkur
%
- segir rannsóknarlögreglumaður í sporum Odincovumanna
„Það má líkja þessu við það þegar
smyglið var tekið af sjómönnunum á
sínum tíma. Þá áttuðu þeir sig á hvað
þeir höfðu i laun,“ segir Eiríkur Beck
rannsóknarlögreglumaður um niður-
skurð hjá Lögreglunni í Reykjavík.
Eiríkur er hér að vísa til þess þegar
Eimskip hóf þá nýbreytni að segja
upp starfsmönnum sem staðnir voru
að smygli en stórverkfall sjómanna
fylgdi í kjölfarið.
„Við höfðum gert samning þar sem
við afsöluðum okkur verkfallsrétti og
gátum þar með ekki farið í verkfall til
jð knýja fram kjarabætur. Síðan eru
Hringdi á bíl
undir þýfið
Innbrotsþjófur sem stal sjónvarps-
tæki úr íbúð við Grettisgötuna í gær-
kvöld virðist einfaldlega hafa hringt á
greiðabíl til að koma þýfinu undan.
Fljótlega var þó tilkynnt um verknað-
inn og náðist samband við bílstjórann
sem stöðvaði bíl sinn við Bragagötu.
yjpófurinn lagði hins vegar á flótta.
Maður sem svaraði til lýsingarinnar
náðist skömmu síðar. -GAR
Eiríkur Beck rannsóknarlögreglu-
ma>ur. DV-mynd S
allar forsendur, sem þar lágu að baki,
brostnar og það er engin önnur leið
fyrir okkur en að krefjast þess að fá
verkfallsréttinn aftur,“ segir Eiríkur.
„Það hefur verið svindlað á okkur
og allskonar afsakanir notaðar til að
leiðrétta ekki launin okkar til sam-
ræmis við það sem gengur og gerist í
þjóðfélaginu, eins og um var samið í
upphafi. Forsætisráðherra mætti hér
á neyðarfund upp á kaffistofu, tveim-
ur dögum fyrir kosningar, þar sem
hann sagði að þessum málum yrði öll-
um kippt í liðinn og að lögreglumenn
þyrftu engar áhyggjur að hafa. Það
hefur minna en ekkert verið gert því
efhdirnar hafa verið þveröfugar."
Eiríkur segir lögreglumönnum
bjóðast 12% hækkun launa, á sama
tíma og viðmiðunarstéttir þeirra hafi
hækkað um 30 til 40%, og telur illa á
þeim brotið. „En við erum í nákvæm-
lega sömu aðstöðu og mennimir á
Odenkova. Við getum ekki hætt og
ekkert farið. Við höfum sumir tileink-
að okkur þetta starf í tugi ára og það
stekkur enginn burt eftir 30 ára starf.
Menn stökkva ekki frá skipi nema
það sé að sökkva og þetta skip er ekki
að sökkva þótt það vanti bæði útgerð
og skipstjóra eins og sést á fjárreiðum
embættisins." -GAR
Vilja fresta söiu á FBA
„Það er verið að klæðskersauma
einhverjar reglur sem henta munu
þeim aðilum sem Davíð Oddsson
ætlar að velja. Hann getur þannig
náð sér niðri á þeim sem þegar hafa
keypt stóran hlut í bankanum. Við
getum síðan ekki séð hvernig Davíð
ætlar að tryggja eftirmarkað á bréf-
unum. Við viljum fresta sölunni á
'Jj^sum hlut ríkisins í FBA og skoða
væntanlega sölu ríkisfyrirtækja
almennt í ljósi þeirrar reynslu sem
þegar er orðin. Það mál á að fara
fyrir Alþingi," sagði Margrét Frí-
mannsdóttir,
talsmaður Sam-
fylkingarinnar,
við DV i morgun.
Unnið er að
undirbúningi for-
vals vegna sölu á
Fjárfestingar-
banka atvinnu-
lífsins þar sem
væntanlegir
kaupendur að
51% hlut ríkisins, sem seldur verð-
ur í einu lagi, verða valdir. Davíð
Oddsson forsætisráðherra hefur
sagt að forvalið muni fara fram eft-
ir eina til tvær vikur og sjálf salan
nokkrum vikum síðar. Hópar sem
taka þátt í forvalinu gangast undir
skoðun þar sem athugað verður
hvort þeir uppfylli ákveðin skilyrði
um skyldleika og tengsl. Sé ekki svo
fá menn frest til að koma málum í
lag áður en útboðið fer fram. Ein-
ungis þeir sem þátt taka í forvalinu
fá að taka þátt f útboðinu á meiri-
hlutaeign ríkisins í FBA.
-hlh
Margrét
Frímannsdóttir.
Ókeypis bensín í Grindavík
„Viðskiptavinimir eru vanir að
kvarta við mig um miðjar nætur ef
sjálfsalinn bilar en þeir létu mig ekki
vita í þetta sinn,“ sagði Sigmar Eð-
varðsson, útibússfjóri Olis í Grinda-
vik, en sjálfsali á bensínstöð hans bil-
aði á laugardagskvöldið með þeim af-
■áiiðingum að biðröð bOa myndaðist
við dæluna sem dældi án afláts án þess
að greiðsla kæmi fyrir. Talið er að
sjálfsalinn hafi bilað um níuleytið á
laugardagskvöldið og Sigmari útibús-
stjóra tókst ekki að grípa í taumana
fýrr en klukkan að ganga tólf sama
kvöld.
„Það runnu 700 lítrar ókeypis úr
dælunni þannig að um 20 bílar hafa
náð því að fylla sig. Þetta er tjón upp á
um 60 þúsund krónur sem er óaftur-
kræft þó svo ég viti um nokkra þeirra
bílstjóra sem notfærðu sér bilunina í
sjálfsalanum. Ég hef sent nokkrum
þeirra orðsendingu þess efhis að það
þýði ekki að vekja mig heima næst
þegar sjálfsalinn gleypir peningana
þeirra. Þeir vita upp á sig skömmina,"
sagði Sigmar Eðvarðsson sem var að
vonum sár og kennir um gömlum og
úreltum tækjakosti á bensinstöð' Olís í
Grindavik. -EIR
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
fiRÞJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1999
A> loknum skóladegi f haustkyrr>inni. Nesti> búi> en örlítill meiri fró>leikur
í kollinum. Allt Iffi> fram undan. Gó>a fer>! DV-mynd Pjetur
Veðrið á mórgun:
Skúrir aust-
anlands
Á morgun verður austan- og
norðaustanátt, 8-13 metrar á sek-
úndu og dálítil rigning eða skúrir,
einkum um austanvert landið.
Vaxandi vindur er líður á daginn.
Hiti verður á bilinu 6-14 stig.
Veðrið í dag er á bls. 37.
brother PT-210E nvvéi
Islenskir stafir
Taska fylgir
8 leturgerðir, 6 stærðir
6, 9, 12, 18 mm borðar
Prentar í 4 línur
Aðeins kr. 10.925
u
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443 «
-Veffang: www.if.is/rafport____2.
reyklaust
flug
með Nicotinell
Ú T I B Ú
_ APÓTEK
SUÐURNESJA
S T ö Ð
K