Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1999, Blaðsíða 3
meömæli
Kauptu bjórtunnu fyrir
helgina. Fáóu þér svo
svona einfalda og
netta dælu og byrj-
aöu að djúsa. Ekki
halda aö þetta sé ekki
fyrir þig þó þú sért ekk-
ert að halda partí! Það er
kúl að vera með bjórtunnu
inni í eldhúsi, sérstaklega I
bullandi verðbólgu.
Sharp MD-MS702H er
mini-diskaspilari vikunn-
ar, þrusugræja sem
ætti að hanga utan
á öllum almenni-
legum mann-
eskjum. Geisla-
spilarar eru
bara stofustáss
og eiga hvorki að vera f
bíl né á líkama. Þá fer bara
allt að hiksta og geislaspilarinn verður ónýtur
mjög fljótlega. En mini-diskaspilarinn er
þannig að þú mátt missa hann og það hefur
engin áhrif á spilunina. Eina vesenið er að það
er enn ekki seld tónlist á mini-diskum en það
er náttúrlega hneyksli.
Finndu úlpuna þína. Núna.
Það er kalt úti og það
verður kaldara með
hverri mínútunni
sem líður. Eftir
nokkrar vikur
verður allt f frosti
og tómri steypu.
Hvar er úlpan
þfn?
Sagan segir að bílaumboðin fari með notaða
bíla Ifkt og hundaeigandi fer meö hvolpa sem
hann getur ekki selt. Hann lógar þeim því það
er ómögulegt að gefa hvolp sem á að selja. Þá
lækkar verðið og svo framvegis. Þaö er af
þessari ástæðu sem Fókus mælir meö þvf að
allir þeir sem eigi gamlan bíl setji hann í brota-
járn. Þú munt aldrei selja bflinn oggetur alveg
eins sett hann f brotajárn og reynt að láta eins
og verðbólgan hafl gleypt drusluna. En síðan
færðu þér auðvitað nýjan bíl með óverð-
tryggðu láni - f sjötfu prósenta verðbólgu
hverfur það mjög fljótt.
Strákarnir í Maus eru að fara að gefa út fjórðu plötuna sína í næsta
mánuði. Þeir þjófstarta samt með smáskífu sem gefin verður út á Fókus
vefnum á www.visir.is í dag. Það er því ekki seinna vænna en að skella
sér á vefinn og lóda inn ókeypis smásögu. Fókus tók drengina samt tali
og fékk að vita um hvað smáskífan fjallar og hvað er fram undan.
/gE' X
i |mjmV/j wm . ■ \ \ 3
? mm&uÆ
. .. I 'm \ M
„Við erum að ná að gera tónlistina okkar eins og okkur sýnist en þurfum auðvitað að vinna með þessu. En það er gjald-
ið sem maður borgar fyrir að gera það sem manni sýnist. Þá er maður að græða minni peninga og þarf að vinna með.“
„Við stefnum á áð koma skífunni
út um miðjan október," segir Birg-
ir Örn Steinarsson, söngvari
Maus, um væntanlega plötu. „Hún
ætti allavega að vera tilbúin fyrir
20. október. Platan er tilbúin. Við
eigum bara eftir að raða henni
saman og gera kover.“
Og hvaó á barnið aö heita?
„Við erum ekki alveg komnir
með nafn enn þá. Ég hef komið
með aragrúa af hugmyndum sem
allar hafa verið púaðar niður af
hinum hljómsveitarmeðlimunum
en við erum að leita og gefumst
ekkert upp. Að velja nafn á plötu er
líka eitthvað sem við gerum alltaf
síðast," segir Birgir en platan sem
um ræðir er fjórða plata Maus.
Plata fyrir íslendinga
„Fyrir mig er þessi plata per-
sónulegri og textarnir meira í ætt
við smásögur. En þó þetta sé per-
sónulegt þá er ég ekkert vælandi á
plötunni," segir Birgir og á við að
persónulegir textar geti þýtt eitt-
hvað annað en þunglyndi og ein-
tómt svartnætti.
Hvað meö heiminn? Á ekkert að
sigra hann?
„Þetta er íslensk plata gefln út
fyrir íslendinga. Þannig höfum við
alltaf haft það og ég held að allt
annað sé bara vitleysa."
Ó Internet, ó Internet
En hvað sem því líður öllu sam-
an þá er Maus framúrstefnuleg
hljómsveit. Nýrómantíkerar og
þekktir meðal annars fyrir frum-
legu textana sína og frábæra
heimasíðu. Þeir ætla ekki að gefa
framúrstefnuna upp á bátinn og
ætla nú að verða fyrstir íslenskra
hljómsveita til að gefa singul út á
Fókusvefnum á www.visir.is.
Hvaó fáum við að heyra á vefn-
um?
„Lagið heitir strengir og fjallar
um karlinn sem strengjabrúðu. Því
eins og við vitum þá ráða stelpurn-
ar alltaf öllu,“ segir Birgir en hægt
verður að nálgast lagið á Netinu,
ókeypis, fram að næsta fostudegi.
Annars munu strákarnir síðan
opna nýja heimasíðu á útgáfudegi
nýju plötunnar. Hún verður í stíl
við albúmið og er auðvitað á
www.maus.is en það er annars
hægt að finna allar heimasíður ís-
lenskra hljómsveita á Fókusvefn-
um. Loggið ykkur inn.
-MT
liggur
í loftinu
Sumarið liggur ekki lengur í
loftinu, ekki heldur hjá léttklæddu
stelpunni sem prýddi TAL-auglýs-
ingar sumarsins. Módelpían Anna
Rakel Róbertsdóttir er komin úr
bikiníinu og yfir í lopavettlingana
og okkur er spum:
Hvað liggur eiginlega í loftinu í
vetur?
„Það er rosalega mikið í bígerð
hjá mér sem ég má bara ekki tala
um núna. Ég get þó sagt ykkur frá
þvi að ég er byrjuð í spænsku og fé-
lagsfræði í MH og það sem liggur
aðallega í loftinu hjá mér í vetur er
bara að standa mig vel í skólan-
um,“ segir Anna Rakel með sann-
færingarkrafti.
„Ég held að þetta verði frábær
vetur og spái 15 metra úrkomu á
sekúndu."
Hún segir þetta í gegnum TAL-
símann sinn, Nokia 6110, sem er
með blágrænni framhlið sem skipt-
ir um lit eftir því hvemig ljósið
fellur á hann. Sumarið var að
hennar sögn bara fínt þrátt fyrir
að hún hafi ekki farið í eitt einasta
ferðalag eða útilegu í sumar. Aug-
lýsingin fyrir TAL er síður en svo
fyrsta auglýsingin sem Anna Rakel
leikur í. Frá því að mamma Önnu
byrjaði að vinna á auglýsingastofu
þegar hún var 7 ára gömul hefur
Anna Rakel jafnt og þétt setið fyrir
í hinum ýmsu auglýsingum. Það
má því eiginlega segja að Anna
hafí komist inn í módelbransann
fyrir klíkuskap, svona i byrjun.
En hvað finnst svo TAL-stelpunni
svona almennt um farsímanotkun?
„Fyrst fannst mér voða fyndið að
sjá fólk vera að tala i símann i
strætó en svo núna er ég náttúr-
lega líka farin að gera það. Þetta er
auðvitað voða hentugt ef maður
hefur ekki tíma til að stoppa og
leita að einhverjum peningasíma.
Þetta er alveg framtíðin . . .
(bla,bla,bla...),“ segir Anna sem
greinilega hefur ekki bara setið
fyrir í auglýsingum TALs heldur
líka fengið alla heimspeki þeirra
með sér. -SI
Við könnumst öll við hana.
Léttklæddu stelpuna í TAL-auglýsing-
unum sem spáði léttskýjuðu og fimmtán
stiga hita í allt sumar. Nú er hún farin
úr bikiníinu, komin í lopavettlingana og
■ spáir snjóþungum vetri.
FJUJi
Hrafn Jökulsson: 6
Geri ekki tilkall til ís-
lensku bókmennta-
verðlaunanna
Það er alltaf einhver
ríkari en þú 8
Poppið:
Tinder-
sticks
með 10
nýja breiðskífu
Hvar á
Keisarinn
að vera?
Hjá öryrkjunum
eða á Vogi
12-13
Valdimar Örn
Flygenring:
Ólæknandi
15 Land
Rover bóndi
Hver á hvaða
bíl? 18
Dragðu línu á
milli bíls og
manneskju
Ertu bfladellukall? 20
Eða hjátrúarfullur bílaeig-
andi?
Bíó:
Tom Cruise
náði toppnum
öfugt við alla
|3 spádóma
Seldu kroppinn:
Vill einhver
kaupa
heiladingul
á 50-kall?
24 * \|
Lííid eftir vinnu
»ick Of It All
Helgi Þorgil
Rokkstokk upphaf
meiksim
f í gódum sköpun
tverjir voru^
f ókus
fylgir DV á
föstudögum
Forsíðumyndina tók ÞÖK
af Hrafni Jökulssyni.
17. september 1999 f ÓkllS
3