Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1999, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1999, Blaðsíða 28
Lifid cftir vinnu •Ka barett Fimm sætlr strákar stíga á sviöiö á Broadway ! kvöld og flytja fullt af Bee Gees-lögum í sam- nefndri sýningu. Þeir taka öll þekktustu lög þeirra Glbb-bræöra og meira til. Þegar allir eru síðan orönir heitir í skónum eftir að hafa horft > á þá snúa sér uppi á sviði stíga Trúbrot og Shady Owens á stokk. Það þarf ekki aö lýsa þeirri skemmtun. Ekki má heldur gleyma Pónik og Einari en þeir leika líka fyrir dansi í aðalsal. Þaö er til mikils að vinna meö mæt- ingu þar sem Pónik og Einar spila elnungis í þetta skipti. Fyrir börnin Viðskiptanetið stendur fyrir allsherjar vörukynn- ingu í Perlunni þar sem fimmtíu fyrirtæki kynna vörur slnar og þjónustu. Pétur Pókus og Hattur og Fattur skemmta. Einnig verða hestar fyrir bömin. Ókeypis aðgang- ur. •Opnanir Nú verða opnaðar þrjár nýjar sýningar í sölum Llstasafns íslands: sýning á verkum Helga Þorgils Friðjónssonar og tvær sýningar á verk- um úr eigu safnsins sem bera heitin; Nýja málverkið á 9. áratugnum og Öræfalandslag. Sýningin á verkum Helga Þorgils spannar 20 ára feril hans og er liður í þeirri viðleitni safns- ins að sinna með sérstökum hætti því mark- verðasta sem er að gerast í Islenskri myndlist ! samtínanum. Markmiðið með þessu úrvali er að gefa yfirlit um listferil hans, draga fram nokkur meginþemu og dýpka skilning okkar á stööu hans! íslenskri og alþjóðlegri samtíma- list.Sýningin Nýja málverklð á 9. áratugnum á verkum í eigu safnsins er hugsuðsem vitnis- burður um fjölbreytni og grósku íslenskrar * málaralistar viðaldarlok. Á sýningunni verða m.a. verk eftir Jðn Óskar, Daða Guðbjörns- son,Jóhónnu Kristinu Yngvadóttur, Tuma Magnússon og Krlstján Steingrím.Sýningunni Öræfalandslagi er ætlað að varpa Ijósi á fram- lag íslenskra myndlistarmanna til sjálfsimynd- ar þjóðarinnar en þar eru sýnd verk lista- manna sem voru (eru) bundnir islensku ör- æfalandslagi sterkum böndum. Einnig má kynna sér þessi mál á vefnum, www.lista- safn.ls. Alltaf eru þau á fullu spani, krakkarnirioneoo- ne. Ekki nóg með að fatabúðin sé glæsileg, heldur er galleríið það líka. í dag opnar einmitt ný sýning í oneoone galleríinu. Að þessu sinni ' eru það listamennirnir Gabríella Friöriksdóttir og Magnús Sigurðarson sem riða á vaðið. Saman kalla þau sig maggoggabb ehf. og heitir sýningin þeirra listir. Sýningin sam- anstendur m.a. af málverkum og Ijóðum. Oneoone galleríið er á Laugavegi 48b og eru opnunartímarnir eftirfarandi: mánudagar - föstudagar frá kl. 12-19; laugardagar frá kl.11-16 og sunnudagar frá kl. 14-17. Sýning- in stendur til 12. október og ef þú ert ekki búin(n) að kikja i oneoone er kominn timi til. í dag kl. 16 verður opnuö sýning á Ijósmynda- verkum í nýjum sal félagsins íslensk grafík að Tryggvagötu 17 (hafnarmegin). Salnum er ætlað að vera vettvangur fyrir verk unnin á pappír; grafik, teikningar og Ijósmyndlr , svo eitthvað sé nefnt. Þeir sem sýna að þessu sinni eru Elnar Falur Ingólfsson, Guðmundur Ingólfsson, ívar Brynjólfsson, Spessi og Þor- björg Þorvaldsdóttir. Öll sýna þau Ijósmyndir r og hafa verkin ekki verið sýnd áður í Reykjavík. Sýningin er opin frá fimmtudegi til sunnudags, kl. 14 - 16, og stendur til 10. október. Að- gangur er ókeypls. Frakkinn Jean Posocco opnar sýningu á 40 vatnslitamyndum af hrauni og vatni í Lista- kotl, Laugavegi 70, kl. 15. Sýningin stendurtil 10. október og er opin frá 12 til 18 virka daga og 10 til 16 laugardaga. Franski listapensillinn Jean Posocco opnar sýningu á 40 vatnslitamyndum í Listakoti, Laugavegi 70. Myndefnið er vatn og hraun og myndirnar eru allar unnar á þessu ári. Sýning- in stendur til 10. október og er opin frá 12 til „Aldurinn er ekkert fafl inn aö bíta á Papana," segir söngvarinn Ingvar Jónsson. Þaö munu þeir sýna og sanna í vikunni á Gauknum þar sem þeir troöa upp eftir sumarfrí. Alltaf í jafn ^ góðum sköpum Búast má við þrusutónleikum hjá hinum íslensku Pöpumá miðviku- dags- og fimmtudagskvöldið. Sveitin er að koma úr mánaðarsumarfríi og eru því hljómsveitastrákamir sól- brúnir og endurnærðir og hreinlega klæjar í að komast aftur á sviðið á Gauki á Stöng. Þeir munu þó alls ekki spila einhverja Mallorcamúsík heldur að sjálfsögðu halda uppi írskri stemningu eins og þeim ein- um er lagið. „Það er ekki heldur ótrúlegt við munum taka einhver lög af okkar nýju breiðskífu sem er nú í vinnslu," segir Ingvar Jónsson, söngvari hljómsveitarinnar, og hæt- ir við að aðdáendur sveitarinnar geti farið að hlakka til jólanna því stefnt er á að platan komi út i jóla- pakkaflóðinu. Titill skífunnar er ekki enn kominn á hreint en strák- arnir brjóta stíft hausinn þessa dag- ana í Stúdíó Sýrlandi. „Eitt er víst að ef nafnið verður ekki smellið þá verður koverið það allavega,“ lofar Ingvar. „Skífan mun innihalda eitthvað meira af popplögum en verið hefur og frumsamið efni verður áberandi." Paparnir hafa verið í bransanum í 14 ár en að þeirra sögn er aldurinn ekkert farinn að bíta á þá. „Við eru alltaf jafn kátir og í góðum sköpum,“ segir Ingvar sannfærandi. Þess má að lokum geta fyrir allar þær einstæðu mæður sem ekki fá bamapössun og komast af þeim sök- um ekki á tónleikana á Gauknum þá verður tónleikunum á fimmtudags- kvöldið varpað í gegnum Netið á vef- síðunni. www.xnet.is. 18 virka daga og 10 til 16 á laugardögum. 1 Listasafni ASÍ er sýning á verkum Daða Guö- björnssonar. Á sýningunni eru 20 ollumálverk þar sem reynt er að lýsa hinum flókna nútíma á Ijóðrænan og persónulegan hátt, án þess að reyna að einfalda myndmálið og kveðja þannig öldina á tímum þar sem orðið myndlist á ekki neina sérstaka merkingu. Sýningin stendur til 3. október og er opin alla daga nema mánu- daga frá kl. 14-18. Bikarar nefnist sýning Kolbrúnar S. Kjarval á leirmunum sem opnuð verður í Stöðlakoti við Bókhlöðustig kl. 15. Sýningin stendur til 3. október og er opin alla daga frá kl. 14-18. •Síöustu forvöö Jóhann Vlðarsson er islandsmeistari í snóker. Hann ætlar, annan laugardaginn í röð, að leika snóker í búðinni hjá Sævari Karll, út- skýra gang leiksins og sýna leikni sína (Trick shots). i búðinni er búið að koma fyrir 9 feta billiard-borði, 200 kílóa þungu, þannig að þetta er ekkert platsjóv. Á laugardaginn er opiö til kl. 16. •Feröir Land Rover-eigendur ætla saman í blltúr í dag. Lagt verður af stað frá Bifrelðum og Landbún- aðarvélum Grjóthálsi 5, kl. 9. Eftir að hafa keyrt ýmsar krókaleiðir er áætlað að blltúrinn endi i Húsafelll þar sem verður grillað. Þátt- taka tilkynnist til BHL. Um 200 Land Rover- áhugamenn víðs vegar af landinu hafa boðað komu s!na. Sunnudagur 19. september •Krár l/’Sunnudagur, hvíldardagurinn sjálfur, er kjörinn til að sökkva sér! mellonkollí hugsanir. Hvaö er þá betra en að blúsa með Andreu og Blúsmönn- um hennar? Við leggjum til aö allir eyði deginum í íhugun, athugið stöðu ykkar í lífinu. Með Blús- mönnum Andreu fáið þið síðan oplnberun. Ójá, þetta gerist allt á Gauk á Stöng. Vírus leikur á Kaffl Reykjavík eitthvað fyrir þá sem ekki fengu nóg af útstáelsi um helgina. Það er enginn annar en Guðmundur Rúnar Lúðvíksson sem tekur upp gítarinn og leiðir áhorfendur í trans á heimsmælikvarða. Hvar annars staðar en á Kringlukránni? Góða skemmtun Stendur þu fyrir einhverju? Sendu upptýsinyar i e-mad fokus@toKus.is / fax 550 5020 Ifókus vefur á vísir.is allt sem þú þarft að vita - og miklu meira til Lífið eftir vinnu nákvæmur ieiðarvísir um listir og afþreyingu f Ó k U S 17. september 1999 £ V

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.