Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1999, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1999, Blaðsíða 14
3 llí fJ'/UJlrJ íslenska kvikmyndin Ungfrúin góða og húsið, sem er fyrst í röð nokkurra íslenskra kvikmynda sem sýndar verða á næstu mánuðum, verður frumsýnd föstudaginn 24. september. Efni myndarinnar er sótt í smiðju Halldórs Laxness en dóttir skáldsins, Guðný Halldórsdóttir, vann handritið og er jafnframt leikstjóri. Ungfrúin góða og húsið segir frá tveimur systrum um síðustu aldamót sem eiga fátt sameiginlegt annað en að vera af finasta fólki héraðsins. Sú yngri var send til Kaupmannahafnar að nema handverk en kemur til baka ólétt sem verður til þess að hjólin fara að snúast henni í óhag. Eldri systirinn tekur af henni ráðin undir því yfir- skini að bjarga heiðri hússins og fjöl- skyldunnar. Úr verður mikil átaka- saga milli systranna. Upptökur hófust síðastliðið haust í Flatey á Breiðafirði þar sem gerð var útileikmynd af þorpinu Eyvík. Að því loknu var haldið til Svíþjóðar þar sem upptökur fóru fram í kvikmyndaveri í Trollháttan og loks var tekið upp í Helsingor og Kaupmannahöfn sem ásamt Eyvík eru aðalsögusvið mynd- arinnar. í helstu hlutverkum eru Tinna Gunnlaugsdóttir, Ragnhildur Gísla- dóttir, Rúrik Haraldsson, Egill Ólafs- son, Helgi Björnsson og Helga Braga Jónsdóttir. Einnig leika skandinavísk- ir leikarar í í myndinni, Ghita Norby, Reine Brynolfsson, Agneta Ekmanner og Björn Floberg, allt eru þetta stór nöfn á Norðurlöndum. Sagan um Ungfrúna hefur verið þýdd á öll helstu tungumál og gefin út víðs vegar um heim. Sagan var skrif- uð 1933 og kom fyrst út í smásagna- safninu Fótatak manna og síðan end- urútgefin í Þáttum. Síðastliðið sumar var Ungfrúin gefin út ein og sér í kilju. -HK h aÝ Penthouse Pet of the Year verður á landinu um helgina ásamt drykkjuhópi á vegum vodkaframleiðanda. Ætlar að fara upp á jökul til að láta taka myndir af sér og svo á að skella sér á Astró annað kvöld. Strák- ar: Á Astró, annað kvöld! Ný Kringla er að spretta upp í góðærinu líkt og fyrri Kringl- an sem spratt upp í síðasta góð- æri. Þessi er að vísu við- bygging við f y r r i Kringlu og mun valda því að ekk- ert toppar Kringluna. Nema þá helst hann Einar Bárðarson, fram- kvæmdastjóri Hard Rock Café. Kauði er alveg að verða geð- veikur í nýja starfinu og er nú að láta gera risastóra afsteypu af Fender Stratocaster raf- magnsgítarnum. Afsteypan verður ljósaskilti, vegur 2 tonn, 10 metrar á hæð og 4,8 metrar á breidd. Kauði mun kveikja á gitamum á sama tíma og nýja álman í Kringlunni verður opnuð, 14. október. íslenska MTv, Popptíví, fer í loftið annað kvöld eins og við frá síðustu viku. í fyrstu verður ekki sent út læf því aðstand- endur stöðvar- innar vilja ekki klúðra neinu. Fókus fór samt á stjá og reyndi að finna út hvort einhverjar stjömur væm viðriðnar stöðina. Ekkert fékkst upp úr neinum en samkvæmt mjög óáreiðan- legum heimild- um eru þeir Skjöldur herrafatakaup- maður og Svali á FM orðaðir við stöðina. Þetta fékkst ekki staðfest og forvitnir lesendur verða bara að stilla á Áttuna annað kvöld. Þá sjálði líka að þessi leiðindaauglýsing sem tók hálfan skjáinn hverfur. Hjúkk! Hið mikla kvikmyndahaust er nú dautt og tröllum gefið. Það er Ung- frúin góða og húsið hans Lax- ness eftir viku en ann- að er bara i tómu tjóni. Það er búið að fresta öllu fram undir jól og eiginlega óvíst hvenær nokkuð gerist en í upp- hafi var rætt um sjö til átta myndir í haust. Ástæða tafanna er rakin til Hrafns nokkurs Gunnlaugssonar. Hann er bú- inn að vera í henglum með Myrkrahöfðingjann greyið. Óheppnin virðist elta hann á röndum og í erfileikum gengur að klára hljóðið í myndinni. En allir sannir íslendingar búast við einhverju hljóðveseni þegar þeir mæta á íslenska mynd. Eða hvað? 14 f Ó k U S 17. september 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.