Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1999, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1999, Blaðsíða 4
Jón Gnarr er fallegur í dag en hann var miklu fallegri þegar hann fermd- ist, blessaður. Jón Gnarr nneð meira ii i; rs iti /Hl Tvíhöfði hefur endurnýjað starfssamning sinn við Fínan mið- il. Strákarnir ætla að diskóast á X- inu fram á næstu öld og sjá svo til með framhaldið. Aðdáendur Sig- urjóns og Jóns eru að vonum ánægðir. Allir hinir vona auðvitað að piltarnir verði komnir í djeilið áður en ný öld kemur. Það eru ágætis líkur á því þar sem drengirnir gefa ekkert eftir og lenda að öllum líkindum í dómara áður en þeir ná að kaupa jólagjaf- irnar fyrir þessi jól. Það væri nú sorglegt en sem betur fer heyrast jákvæðar fréttir af Tvíhöfðanum líka. Yflrhöfuðið, Jón Gnarr, er víst að koma með nýtt prógram: Ég var einu sinni nörd. Um er að ræða uppistand sem spannar einn og hálfan tíma og byggist standur- inn á æfi Jóns frá þvi hann var lít- ill drengur og til dagsins í dag. Sýningamar hefjast í lok septem- ber eða byrjun október og úr her- búðum Jóns fást þær fréttir að staðsetning nördakvöldanna - sem verða ei fleiri en þrjú - sé ekki komin á hreint. En fyrir allra hörðustu aðdáendur Jóns, þá sendi kauði frá sér þessa fréttatil- kynningu: „Ef þú vilt ekki... áttir ekki... vilt ekki aftur.. eða óskar eftir fleiri upplýsingum um þetta... Þá vil ég endilega fá að heyra af því svo að ég geti kippt því í lag.“ Fókus lætur hann kippa því í lag sem allra, allra fyrst. (itlM Ingibjörg Stefánsdóttir er kom- in heim eftir aó hafa lært bæói jóga og leiklist í Ameríku. Nú þreytir hún frumraun sína á sviói Leikfélags Akureyrar. Fyrir fjórum árum seldi Ingibjörg Stefánsdóttir allt sitt hafurtask og hélt til Bandaríkjanna til þess að læra leiklist. Nú er stelpan komin aftur á klakann, sprenglærð og komin upp á svið hjá Leikfélagi Akureyrar. Fókusi lék forvitni á að vita hvað lífið hefði gert henni og fann út að það var meira en bara að kenna henni að leika. Sólargeislinn Ingibjörg Stefáns- dóttir er ekki lengur sama fáfróða sveitastelpan og í Veggfóðri. Eftir að hafa eytt síðustu fjórum árum í leik- listarskóla í Ameríku er hún nú kom- in til baka á klakann heldur betur reynslunni ríkari. „Þetta er mjög þekktur leiklistar- skóli í New York sem ég var i og það hafa tveir aðrir íslendingar stundað nám í þessum sama skóla,“ segir Ingi- björg sem getur stolt veifað prófskír- teininu. Hún segist hafa kunnað vel við sig i New York og eignast þar vini fyrir lifstíð. „New York er alveg frábær borg. Þar er mikið líf og skemmtileg menn- ing. Eina neikvæða við borgina er verðlagið. Það er svo mikið af freist- ingum og mikið sem er hægt að gera þar þannig að stundum fannst mér erfitt að vera þar og eiga engan pen- ing,“ segir Ingibjörg sem kom algjör- lega auralaus til landsins. Jóganám í L.A. En Ingibjörg var ekki bara að læra að leika í Ameríku. Eftir að leiklistar- náminu í New York lauk lá leiðin til Los Angeles þar sem hún fór í jóga- kennaranám. „Ég kynntist jóga í leiklistarskólan- um og féll gjörsamlega fyrir því. Fólk verður bara að prófa þetta, þetta er al- veg ofboðslega gott. Mér liður miklu betur bæði andlega og líkamlega eftir að ég byrjaði í jóganu," segir Ingibjörg og dæsir. Planið var einnig að freista gæfunnar í Los Angeles en þar sem erfitt reyndist að fá atvinnuleyfi hrökklaðist Ingibjörg til baka til ís- lands. „Ég segi ekki að manni hafi ekki dottið ýmis ráð i hug til að verða sér úti um þetta leyfi,“ segir Ingibjörg hlæjandi og bendir á að ein leiöin til að verða sér úti um atvinnuleyfi í Banda- rikjunum sé að giftast innfæddum. Einhleyp á Akureyri Ingibjörg er þó hvorki komin með Ameríkana né nokkurn íslending upp á arminn. „Það er svona þegar maður er á mildu flakki, þá er erfitt að binda sig. Ég hef bara ekki haft tima fyrir ást- ina,“ segir hin 27 ára gamla Ingibjörg. En af hverju ertu komin til Akureyrar? „Ég var einungis búin að vera einn dag á landinu þegar Valgeir Skag- fjörð hringdi í mig bauð mér að leika unglingsstúlku í leikritinu Klukku- strengjum eftir Jökul Jakobsson. Þessi stúlka sem ég leik er að upplifa ástina í fyrsta sinn og er svolítið „týnd“ í lífinu. Mér leist strax mjög vel á handritið, leikstjórann og fólkið sem ég átti að vinna með þannig að ég gat ekk sagt annað en já við þessu til- boði,“ segir Ingibjörg. Voru það ekki mikil viðbrigöi að komafrá Ameríku til Akureyrar? „Jú, jú, en ég hef mjög gaman af breytingum og því að takast á við nýja hluti. Akureyri er líka alveg rosalega fallegur bær og ég er mikill náttúru- dýrkandi þannig að þetta á mjög vel við mig,“ segir Ingibjörg alveg heilluð. Nú ertu búin aó leika i þremur bíó- myndum og taka þátt í Eurovision fyrir íslands hönd. Ertu jafnstolt af öllu því sem þú hefur tekiö þér fyrir hendur? „Það er auðvitað ýmislegt sem ég hefði viljað að hefði komið öðruvísi út en það þýðir ekkert að vera að svekkja sig á því. Gert er gert og öllu sem ég hef tekið mér fyrir hendur hef ég lært ofboðslega mikið af.“ Hvað tekur við þegar starfi þínu hjá Leikfélagi Akureyrar lýkur? „Ég er bara opin fyrir öllu, hvort sem það er leiklist eða söngur. Mig langar líka til þess að fara aftur utan og læra meira jóga. Kannski reynir maður jafnvel aftur við atvinnuleyfið í Ameríku enda treysti ég mér alveg til að leika á ensku þótt ég sé með smá- hreirn," segir Ingibjörg. Þess má að lokum geta fyrir aðdá- endur Ingibjargar að það verður hægt að berja hana augum á fjölum Leikfé- lags Akureyrar í byrjun október þegar sýningar á Klukkustrengjum hefjast. -snæ 4 f Ó k U S 17. september 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.