Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1999, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1999, Blaðsíða 23
Pitt og Fincher eina feröina enn Brad Pítt og leikstjórinn David Rncher gerðu saman hina stórkostlegu Seven og á næst- unni verður frumsýnd Rght Club þar sem Rncher leikstýrir Pitt og Edward Norton í kvikmynd sem sögð er í anda Seven og nú eru þeir félagar að undirbúa þriðju kvik- mynd s!na saman, The Mexican, og mun þar vera um gamanmynd að ræða. Hvenær þeir taka til viö gerð myndarinnar er óráðið og verður varla á næstunni því Pitt er aö fara að leika í Dlamonds, sem breski leik- stjórinn Guy Ritchle (Lock, Stock and Two Smoking Barrels) leikstýrir og fljótlega síö- an í Waklng up for Reno í leikstjórn Billy Bob Thornton (Sling Blade). Gatið sem þeir félagar þurfa getur samt orðið áður en langt um liður því Pitt og kærasta hans, Jennlfer Aniston, hafa hætt við að leika í Reno eins og ætlunin var. Douglas vill leika á móti Zeta-Jones Michael Douglas hefur hætt við að leika í sakamálamyndinni The Score svo hann geti leikið á móti sinni heittelskuöu Catherine Zeta-Jones, en ekkert er samt ákveðið í þeim efnum. i Score átti Douglas áð leika háþróaöan þjóf sem hrellir íbúa San Francisco. Leikstjóri myndarinnar, Frank Oz, segir aö nú sé unnið í því að finna annan leikara, Douglas er þessa dagana að leika í Wonder Boy sem Curtis Hanson (LA Confidental) leikstýrir en Catherina Zeta-Jo- nes er að leika í The Tenth Victim sem Lee Tamahori (Once Were Warrior) leikstýrir og hefur nýlokið við að leika í High Fidelity, rómantískri gamanmynd sem Stephen Freárs leikstýrir. Limbo var frumsýnd á vel heppnaðri Kvikmyndahátíð í Reykjavík og hefur nú verið tekin til almennra sýninga í Stjörnubíói. Z3Z - ../vT ^ -'v ' Joe (David Straitharn) og Donna (Mary Elizabeth Mastrantonio) finna hvort annað í auðnum Alaska. Tom Cruise: Nýjasta kvikmynd John Sayles, Limbo, var sýnd í örfá skipti á vel heppnaðri Kvikmyndahátíð í Reykja- vík. Nú verður bætt um betur því myndin verður tekin til almennra sýninga í Stjömubíói í dag. Óhætt er að mæla meö myndinni sem er ein- staklega áhugaverð og lifandi og er ekki síðri en Lone Star, sem er sú kvikmynd Sayles sem hvað mesta at- hygli hefur fengið. Limbo gerist í Alaska og segir frá kynnum tveggja manneskja sem eiga við ýmis vandamál að stríða. Joe (David Straitharn) er sjómaður sem hefur í langan tíma beðið þess að eitt- hvað vaknaði með honum sem myndi gera það að verkum að minning um atburð, sem skeði fyrir tuttugu og fimm árum, hætti að ásækja hann en hann telur sig hafa átt sök á því að tveir dóu í sjóslysi. Þegar hann hittir Donnu (Mary Elizabeth Mastranton- io) er eins og eitthvað bresti innra með honum og hann fer að líta tilver- una bjartari augum. Donna hefur einnig sín vandamál að glíma við. Hún þótti eitt sinn efnileg söngkona en mislukkuð ástarsambönd og mislukkaður ferill hefur gert það að verkum að hún hefur litla trú á lífinu auk þess sem hún á í erfiðleikum með uppeldi dóttur sinnar. Það er að- eins þegar hún er á sviðinu og syng- ur að hún finnur frið. -HK spádómum Ferill Tom Cruise sem kvik- myndaleikari er einstakur og markast af því í upphafi að vera sagður ekki hafa það til að bera að verða kvikmyndastjarna. Gegn öll- um spádómum varð Cruise alltaf frægari og frægari. Það er ljóst að til að standast slikt ádag sem því fylgir að fá ávallt neikvæða um- fjöllum þarf sterkan persónuleika og mikla leikhæfileika. Tom Cruise hefur margoft sannað að hann hef- ur það sem til þarf. Síðasta dæmið er Eyes Wide Shut. Hann þurfti á mikilli þolinmæði og styrk að halda til að þola álagið sem því fylgdi að leika hjá Stanley Kubrick. Það tók nærri tvö ár að leika í myndinni og afsalaði hann sér hvað eftir annað gylliboðum upp á milljónir dollara til að geta haldið áfram að leika í Eyes Wide Shut. Tom Cruise fæddist 3. júlí 1962. í byrjun ferilsins var hann orðaður við hinn svokallaða „Brat Pack“ hóp ungra leikara sem þóttu efni- legir og héldu hóp- inn. Staðreyndin var að Cruise var aðeins með á yfirborðinu og tók litinn þátt í villtu líf- erni kollega sinna, en í þessum hópi voru mest áberandi, auk Cruise, Judd Nelson, Emilio Estevez, Molly Ringwald, Andrew McCarthy, Ally Sheedy, Rob Lowe og Demi Moore. Það eru að- eins Cruise og Demi Moore sem hafa náð þeim stalli að geta kallast kvikmyndastjömur. Eftir að hafa leikið unglingahlut- verk sýndi Tom Cruise að hann gat haldið uppi kvikmynd í Top Gun og Days of Thunder og átt í fullu tré við Paul Newman í The Color of Money, Dustin Hoffman í Rain Man og Jack Nicholson í A Few Good Men. Tvisvar bíódómur Sam-bíóin - Inspector Gadget ★ i< Næstum því vélmenni Ferillinn: Endless Love 1981, Taps 1981, Losin’ It 1982, Risky Business 1983, All the Right Moves 1983, The Outsiders 1983, Legend 1985, Top Gun 1986, The Color of Money 1988, Cocktail 1988, Rain Man 1988, Born on the Fourth of Juiy 1989, Days of Thund- er 1990, Far and Away 1992, A Few Good Men 1992, The Firm 1993, Interview with the Vampire 1994, Jerry Maguire 1996, Mission: Impossible 1997, Eyes Wide Shut 1999. Útsala Útsala Úísala Sumar teiknimyndaseríur eiga aðeins að vera teiknimyndaseríur og ekkert annað, þannig er það með Inspector Gadget. Þessi bjargvætt- ur er fígúra sem gengur upp í teiknimynd en ekki í leikinni mynd vegna þess að fáránleikinn í sam- bandi við persónuna er kominn út yfir öll mörk. Eins og John Brown eða Gadget lögregluforingi kemur fyrir í Inspector Gadget er hann of mennskur til að geta verið vél- menni og of tæknilegur til að geta verið mennskur. í upphafi kynnumst við hinum mjúka öryggisverði John Brown (Matthew Broderick), sem dreymir um að verða hetja. Hann hefur tvisvar sótt um starf í lögreglunni en jafnoft fengið neitun. í tilrauna- stöðinni þar sem hann vinnur er Brenda (Joely Fisher) ásamt foður sínum að vinna að lokafrágangi á vísindalegri uppgötvun sem sam- ræmir getu vélmennis og manns. Óviljandi lendir Brown í miðju at- burða þar sem glæponinn Sanford Scolex (Rupert Everett) nær að stela uppgötvun Brendu og í mátt- vana tilraun sinni til að skerast í málið er Brown nánast sprengdur í loft upp. Á sjúkrahúsinu er honum tjaslað saman og Brenda sér að þama er komið hið fullkoma til- raunadýr og eftir aðgerð þar sem allt annað en skurðlæknaáhöld eru notuð verður Inspector Gadget til. Inspector Gadget er tækniundur eins og við er að búast frá snill- ingnum Stan Winston (Jurassic Park, Aliens, Terminator II). En eins og svo oft hefur sannast er lít- ið varið í tæknibrellurnar ef ekkert kjöt er á beinunum og fljótt verður maður leiður á öllum brellunum vegna þess að það er nánast ekki boðið upp á neitt annað. Handritið er uppfullt af klisjum og aulabrönd- urum og greinilegt að dagskipunin hefur verið að láta tæknimennina um að skila árangri. Matthew Broderick kemst slysalaust frá sínu tvöfalda hlutverki. Það sama verð- ur ekki sagt um Rupert Everett sem hvorki er fyndin fígúra né sannfær- andi stórglæpon. Nýliðinn í leik- stjórastéttinni, David Kellogg, kem- ur úr auglýsingabransanum og ef hann getur ekki gert betur en þetta ætti hann að hverfa á gamlar víg- stöðvar hið fyrsta. Leikstjóri: David Kellogg. Handrit: Kerry Ehrin og Zak Penn. Kvik- myndataka: Adam Greenberg. Tónlist: John Debney. Aðalleikar- ar: Matthew Broderick, Rupert Everett og Joely Fisher. Hilmar Karlsson Allt aá 4*0 /o aFsláttur aF kassagíturum SöngkerFi frá 49.000 Trommusett Frá 45.000/ Rafgítarar frá 9.000 Rafbassar frá 15.000 Pokar frá 990 TXh'irtrk Lau9ave9‘ ^ ~ sími ^2 212^ ui Ldnnn gsm 895 9370 17. september 1999 f ÓktlS 23

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.