Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1999, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1999, Blaðsíða 16
æ v i m í n ÖDD - irn* i b 1 1 U m Magnús Geir Þórðarson 1995: „Minn fyrsti bíll var Honda Civic ‘89-módel. Hann var lítill og nettur og entist alveg rosa- lega vel. Það voru mjög góð kaup í þessum bíl.“ 1996: „Ári seinna keypti ég mér nýleg- an Toyota Corolla. Ég hef ekki hundsvit á bíl- um en ástæðan fyrir því að ég keypti mér þennan bíl var sú að hann var með geisla- spilara. Það nægði mér alveg og var eiginlega það besta við þann bíl.“ 1997: „Þetta ár keypti ég mér íbúð og þurfti þá að fá mér ódýrari bíl. Fyrir valinu varð eldri Toyota Corolla. Þetta var algjör drusla og í honum bilaði allt sem bilað gat. Útvarpið var meira að segja ekki í standi! Helvítis bílasalinn prang- aði honum inn á mig.“ 1997: „Ég var þvi ekki lengi að losa mig við þetta hræ og keypti mér Opel Corsa. Þetta er ekki töff bíll, hann er svona ömmulegur. Þessi bíll var eiginlega með sjálf- stæðan vilja og bar mig ofurliði að lokum!“ 1999: „Það var keyrt á Opelinn að næturlagi og stungið af. Ég nennti ekki að gera við hann þannig að ég trítlaði á bílasölu og varð ástfanginn af Mitsubishi Lancer. Ástæðan fyrir því að mér leist svona vel á Lancerinn er fyrst og fremst sú að í honum er geislaspilari og kókstandur til að geyma gos þegar maður er að keyra." r\ æ v i m í n i b i 1 u m Andrea Róberts- dóttir lyrirsæta og nemi 1995: „Eftir að hafa níðst á bíl- um mömmu og jeppunum hans pabba keypti ég Daihatsu Char- ade, einmitt af mömmu. Ég keyrði hann nokkur hundr- uð þúsund kíló- metra og undir lokin var bara happa og glappa hvort hann fór í gang. Hann endaði í Vöku, þessi elska - bíll með sál. Seinna eignaðist ég ofdekraðan Benz, Volkswagen Carmanghia ‘65 og Golf, allt bilar sem ég átti í stuttan tíma.“ 1999: „í dag á ég Land Rover ‘98-módel, á 35 tomma dekkjum og læti. Þessi bíll er löðrandi ljóna- steik í krókódílasósu. Stundum keyri ég „óvart“ yfir hóla og læki! Pínulítil torfæra blundar í mér, það er að segja þegar ég er undir stýri og fæ að ráða ... öllu.“ Sportbílar hafa aldrei notið mikillar hylli hér á landi. Það er snjórinn, vegirnir og allar hraðahindranirnar sem gera jeppann að fýsilegri töffarabíl. En nú í miðju góðæri og verðandi óðaverðbólgu spretta alvöru kaggar upp eins og gorkúlur. Fókus fór á stjá og fann nokkra, unga sem aldna, pilta sem allir eiga það sameiginlegt að eiga bíla sem flestir eru dýrari en þriggja herbergja íbúð í vesturbænum. Corvette Þú ekur um á sportbíl, er þaó ekki Jón? „Jú, ég ek um á bíl sem Bílahöll- in á. Þetta er ‘92-módelið af Cor- vette með special Corvette 350 vél. Bíllinn er einhver 300 hestöfl og allur leðraður að innan. Þetta er bara venjuleg Corvette.“ Þegar þú velur þér sportbíl, hverju ertu þá aö leita eftir? „Ég er nú í sjálfu sér ekki neinn svaka sportbílamaður en jú, ég hef nú gaman af þessu. En ef maður er á sportbíl þá vill maður vitanlega hafa hann mjög sportlegan í útliti. Ég leita fyrst og fremst eftir útlit- inu.“ Þú ert nú þekktasti rallkappi landsins, skiptir hraöinn engu máli? „Við skulum ekki tala um hraða, það er alveg bannað. Við tölum um orku! Sportbíll þarf vissulega að hafa orku en fyrst og fremst þarf hann að vera flottur, en öflug vél skemmir ekki fyrir.“ Fœrðu kannski útrás fyrir ork- una í rallinu? „Já, ég fæ það og kannski þess vegna er ég frekar að leita eftir fal- legu útliti." Heldurðu aö þú munir alltaf keyra um á sportbíl? „Nei, það hugsa ég ekki. Ég fæ alla útrásina í keppnum og því hugsa ég að ég muni ekki alltaf eiga sportbíl. Það er ekkert atriði fyrir mig. Ég hef samt gaman af þessu en þarf ekkert að eiga sport- bil dags daglega," segir þessi mesti rallsniUingur þjóðarinnar að lok- um. Hákon Orri Ásgeirsson, 24 ára Mitsubishi Eclipse GSX Mikiö er hann fallegur bíllinn þinn. „Já, takk fyrir það. Þetta er ‘95- módel af Eclipse GSX með 2,0 lítra vél og hann er einhver 300 hestöfl. Ég er búinn að gera allan andskotann fyrir hann, alls konar dútl.“ Ertu ekki ánœgöur meö hann? „Jú, ég er það. Hann hefur öll þau þægindi sem ég er að leita eftir. Hann er með þægileg sæti og innréttingu og hann er mjög kraftmikill. Það eina sem vantar er farangursgeymslan en maður verður nú að fórna ein- hverju,“ svarar Hákon glaðhlakka- lega. Segðu mér, Hákon, er ekki bara vit- leysa aö eiga svona bíl á þessu landi? „Nei, nei. Á íslandi er mikið af hraðahindrunum og þær eru mjög leiðinlegar en snjórinn finnst mér mjög skemmtilegur. Ég er með drif á öllum hjólum og dríf mest af þeim sem ég þekki. Það er ekkert sem stoppar mig, nema kannski skaflar. Snjórinn er ekkert vandamál. Þannig að ég myndi nú ekki segja að það væri vitleysa að eiga svona bíl og svo virkar hann ágætlega á stelp- urnar.“ Helduröu aö þú munir einhvern tímann fá þér venjulegan fólksbíl? „Já, það held ég en það er mjög langt þangað til. Ég vona nú að ég vaxi einhvern tímann upp úr þessu. En núna er ég með bíladellu og hana mun ég eflaust alltaf hafa en hún á kannski eftir að taka á sig aðra mynd,“ svarar Hákon að lokum. Grétar J. Jónstei 28 ára Pot Jœja Grétar, þú átt svaka Porsch Porsche er þaö ekki? bara gi „Jú, ég á Porsche 911, ‘74-mód- Á ís el en hann er allur uppgerður. mikiö Hann er með 2,7 lítra vél og er þessir 150 hestöfl. Ég setti á hann sportbi túrbó-lúkk og smíðaði á hann „Þaí sílsana og einnig stuðarana úr Minn leir og hannaði þetta allt sjálfur. við gö Það eru bara til tveir bílar í hraðal heiminum með þetta lúkk. Þessi erfiðar bíll gefur nýju sportbílunum aðeins ekkert eftir,“ svarar Grétar og bílnun glottir enda greinilega stoltur af hann i bflnum sem hann hefur eytt inn.“ fleiri hundruð vinnustundum í Held að gera upp. um á En Grétar, segöu mér, er eitt- gamall hvaö vit í því aö eiga sportbíl á „Ég íslandi? eiga Pc „Það er ekki spuming. Ég hef alltaf < alltaf átt sportbíl og bara verð kosti e að eiga sportbíl annars verð ég litrófið bara dapur. Þetta er bara orðin svipnu rútína. í rauninni eru bara tvær að han gerðir af sportbílum á íslandi, 16 f Ó k U S 17. september 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.