Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1999, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1999, Blaðsíða 20
ivi min b í 1 u m Sigurður Kristjánsson, formaður SUS 1991: „Fyrsti bíllinn minn var Volkswagen bjalla, árgerð 1972. Ég keypti hann þeg- ar ég var nýkom- vK. inn með bílpróf, 17 ára gamall. Bíllinn var svo gott sem ónýt- ur þegar ég keypti hann. Við pabbi gerð- um hann síðan upp í sameiningu. Ég verð eiginlega að þakka karli föður mínum þá bylt- ingu sem á bílnum varð því við all- ar þessar lagfæringar var hann í aðalhlutverki en ég frekar eins kon- ar under-study fyrir hann. Ég held að mér þyki einna vænst um bjöll- una af þeim bílum sem ég hef átt vegna þess að þetta var fyrsti bíll- inn minn og því mjög eftirminni- legur.“ 1994: „Ég átti bjölluna í rúm tvö ár og eftir það eignaðist ég sægræn- an Nissan Sunny, SR 1,6. Þetta er týpískur smábíll, ekki sportbíll en er samt að reyna að vera það. Sunny-inn var finn. Ég náði reynd- ar að klessa hann í einhverju stressi fyrir kosningar í Háskólan- um. Ég seldi Sunny-inn í byrjun árs 1997 og átti því ekki bíl mín síðustu ár í Háskólanum heldur ferðaðist um á reiðhjóli eins og kinverskur alþýðumaður." 1998: „Eftir að ég útskrifaðist og fór að vinna keypti ég þann bil sem ég á í dag, Honda Accord, árgerð 1992. Þó ég ætti kannski að aka um á heiðbláum bíl þá er Hondan engu að síður eldrauð. Hún passar kannski Ögmundi Jónassyni eða Steingrími J. betur en mér, ég veit það ekki. Annars er þetta er flnn bíll og mér hefur ekki enn tekist að klessa hann.“ r\ 4vi W í bí Eggert W S*# Gíslason Mausari 1998: „Ég hef bara átt einn bíi, Niss- an Sunny ‘92 módel. Bíllinn er kven- kyns og heitir Sól- rún. Ég hef aldrei séð jafn kvenleg- an bíl. Ekki til karl i honum. Hún hefur ver- ið þvegin einu sinni á þessu ári, samt er hún hvít. Það er bara eins og að hún þvoi sér sjálf. Það bara fest- ist ekki á henni drulla. í þennan bíl er hægt að troða alveg ótrúlega miklu magni af græjum, það er eins og hún geti gleypt endalaust, þessi elska! Ég verð nú samt að viður- kenna að ég er ekki mikill bílamað- ur.“ Lausn á bílaþrautinni á síðu 18: 1. Helga Braga Jónsdóttir leikkona á Poloinn (h). 2. Jón Gnarr skemmti- kraftur á Skódann (d). 3. Herbert Guðmundsson tónlistarmaður á Lödu Sport (f). 4. Hjálmar Hjálmarsson leik- ari á Toyota Touring (b). 5. Hermann Gunnarsson útvarpsmaður á Benzinn (g). 6. Friðrik Þór Friðriksson leikstjóri á Rússajeppann (a). 7. Ragnheiður Clausen á MMC Lancer (e). Stelpur! Nú er rétti tíminn aö athuga hvort karlinn ykkar elskar bílinn meira en ykkur. Fókus hefur látið útbúa próf, sérhannað til að mæla bíladellu. Auðvitað virkar prófið líka fyrir bíladellukonur og þeim strákum sem finnst konan sín vera hrifnari af bílnum en sér er ráðlagt að láta frúna taka prófið. Njótið vel. EsidS Diia- dellukall? Þér finnst gaman að bóna bílinn þinn á laugardagskvöldi. Þú veist hvernig stimplar virka. 14 Uppáhaldslagið þitt er Autobahn með Kraftwerk. 15 Þú hlakkar til uppboðanna hjá Sölu varnarliöseigna. 16 Þú átt tvo bíla í pörtum inni í bílskúr. Þú átt derhúfu með lógói uppá halds-kertaframleiðandans þíns. Þú keyrir stundum upp í Hafnarljörð, bara til að fara eitthvað. Þú þolir ekki börnin og ert hundleiðinlegur viö þau af því þau skíta alltaf út bílinn þinn. 18 Þér finnst allt í lagi að bílarnir sem þú átt séu dýrari en íbúðin þín. 5 Þú átt grifflur. 6 Bíllinn þinn hefur gengið í gegnum tvær upphækkanir. Konan þín grætur alla leiðina yfir Hellisheiðina þegar þú keyrir. 8 Þú átt staðsetningartæki og hefur reynt að keyra blindandi í vinnuna meö því. 9 Þér finnst vond lykt af bílnum þínum þegar hann er skítugur. 19 Þig langaöi til aö berja konuna þína þegar hún reyndi aö skipta um bleiu á barninu á húddinu á bílnum þinum. Eitt herbergi heima hjá þér er tileinkað bílamódelum. 10 Þú geymir katalóginn frá Bílabúð Benna þar sem Sjónvarpshandbókin á að vera. 21 Þú átt BMW-rúmföt. Þú hefur aldrei fyrirgefið pabba þínum aö hafa leyft mömmu þinni að keyra. 11 Konan þín gaf þér nýjan stuðara í afmælisgjöf. 12 Þér finnst það móðgun við Henry Ford þegar fólk ríöur í bílum. pl i m i n b í 1 u m 13 Þú hefur átt fleiri en fimmtán bíla á síö- ustu fimm árum. Eitt stig fyrir hverja fullyrö- ingu sem þú svarar játandi: Færrl en fimm: Það er nú á mörkunum aö þú vitir hvað snýr aftur og hvað fram á bíl. Og þér er I rauninni ekki treystandi fyrir bifreið þar sem þú ert örugglega ekki með bílpróf. Reiðhjól eru einföld og sniðug uþþfinning. Þú ættir að flár- festa í einu slíku svo þú drepir engan. Sex tll tólf: Þó þú kunnir aö skiþta um dekk og bónir bílinn þinn sex sinnum á ári þá værirðu í djúpum kúk ef kertin í bílnum færu. Þú myndir ekki hafa hugmynd um hvað hefði gerst og þyrftir að koma þér á næsta verkstæði. I ofaná- lag þá leyifirðu konunni þinni að keyra. Og það gerir enginn sannur bíladellukall. Þrettán til tuttugu: Þú ert akkúrat. Svoldiö matsjó og vondur við konuna þína og börn en veist allt um bílinn þinn. Það getur verið kostur. Þú gætir allavega verið einn á Steingrímsfjarð- arheið á Land Rover, vopnaður Rambo-hnífi, og komist lifandi niður, sama hvernig viðrar. En um leið er leiðinlegt að konan þin mun fara frá þér einhvern tíma í vetur. Þú færð að hitta börn- in þin aðra hverja helgi - sem er eiginlega of mikið þar sem þau fyrirlita þig. 23 Þú ert búinn að bólstra stýrið. 24 Þú myndir frekar stela bíl en að fara í strætó. 25 Þú veist hvernig á að skipta um kol í startara. 26 Þú hefur orðiö andvaka út af niður- stööum tímatökunnar í Formúlunni. Fleiri en tuttugu: Djíses kræst, hvað þú ert mikill bíladellukall. Ef orðið bíladellukall væri í orðabók myndi fésið á þér vera skýringarmynd- in. Konan þín er löngu farin frá þér og þú átt enga vini, fýrir utan mennina sem selja þér varahluti og aukahluti. Þú veröur að leita þér hjálþar og horfa á myndina Matrix. í henni er veruleikinn kynntur sem blekking. Maðurinn lif- ir í hylki og allt sem hann sér og veit er lygi. Þér myndi líða betur ef þú tryðir því, eins ótrúlega og það hljómar. Annars ertu bara vonlaust keis og Fókus biður að heilsa bílnum þlnum. Því það er nokkuð Ijóst að þú talar við hann. b 4 k u r hjátrú Samkvæmt Stóru hjátrúarbók- inni eftir Símon Jón Jóhannsson er allnokkur hjátrú tengd bílum. Þar segir meðal annars að þegar nýkeyptum bil er ekið í fyrsta skipti er öruggara að hafa ekki konuna eða kærustuna með. Ef ekki verður hjá því komist að taka kvenmann með í fyrsta bíltúrinn er vissara að fara sem styst. Einnig skal forðast að þvo bílinn áður en lagt er af stað í ferðalag því þá eiga menn á hættu að það rigni alla ferðina. Áður fyrr var algengt að leigubílstjórar gæfu fyrstu ferðina sem farin var á nýjum bíl því ann- ars töldu þeir voðann vísan. í hópi danskra flutningabílstjóra, einkum þeirra sem eldri eru er það sögð algeng hjátrú að ekki megi gera þarfir sínar fyrir framan eða aftan bíl- inn heldur einungis við hlið hans. Sagt er að sumir bílstjórarnir kjósi frekar að keyra á afvikinn stað og gera þarfir sínar við hlið bílsins heldur en að nota al- menningssalerni. Þetta á að vernda bæði bílstjóra og bíl gegn óhöpp- um. Sú hjátrú þekkist víða að óheppilegt sé að keyra undir járn- brautarbrú um leið og lest keyrir yfir brúna. Sagt er að langferðabíl- stjórar í Wales stöðvi rúturnar og og gangi vel og rækilega úr skugga um að engin lest sé á ferðinni áður en þeir aka undir járnbrautarbrýr en bíði hins vegar eftir því að lest- in fari hjá sjái þeir hana nálgast. ú r f ó k u s Lo bí Nei takk Það hefur færst mjög i vöxt að fólk setji svokölluð einkanúmer á bílana sína, þ.e. skráningarnúmer sem maður velur sjálfur. Þessi númer eru síður en svo gefins og það að vera merktur í bak og fyr- inn? (a dópo ir kostar hvorki meira né minna en 28.750 krónur. Einkanúmer er góð gjafahugmynd enda ekki óþekkt fyrirbæri að vinir og félag- ar gefi hverjir öðrum einkanúmer með skoplegum áletrunum. Ekki er heldur óalgengt að eiginmenn gefi elskunni sinni númeraskilti með nafni viðkomandi konu. Að karlmaður fái hins vegar þannig skilti að gjöf frá sinni konu er hins vegar hin mesta hneisa. Þeg- ar það er voða sætt að kona aki um á bíl með skiltinu „Dódó“ get- ur hins vegar alvörukarlmaður ekki keyrt um á bíl, merktum „Lolli". Að fá þannig „sætt“ nafna- skilti að gjöf frá kærustunni særir írLöiin hreinlega stolt allra alvörukarl- manna. Bílar eiga, í augum karl- manna, ekki að vera krúttí og sæt- ir. Stelpur, haldið því gælunöfnun- um innan veggja heimilisins og gefið strákunum frekar nýtt bón heldur en svona krúttípúttí skilti sem þeir þurfa að skammast sín fyrir. f Ó k U S 17. september 1999 20

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.