Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1999, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1999, Blaðsíða 22
4 4 * Costner nakinn klipptur út Fyrir nokkru spuröist að Kevin Costner kæmi fram nakinn í nýjustu kvikmynd sinni For Love of the Game og var ekki laust viö að fiöringur færi um kvenkyns aðdáendur hans. Nú er Ijóst að ekki verður af því þar sem þúiö er að klippa út úr myndinni bað- senu þar sem hann sést nakinn bæði að framan og aftan (áður hefur nakinn bak- hluti Costners sést í þremur kvikmyndum). Það voru ráðamenn hjá Universal Picture sem ákváðu þetta eftir að prufuáhorfendur spuröu hvort þeir þyrftu endilega að sjá typpiö á Costner. Ekki er Costner sammála þessari skýringu og segir í viðtali að Univer- sal skorti hugrekki til að láta hann sjást nakinn og bendir á um leið að nokkur atriði með Ijótu orðbragði hefðu einnig verið klippt út til þess að myndin yrði ekki bönn- uð innan þrettán ára. For the Love of the Game er þriöja kvikmyndin þar sem Costner leikur hafnaboltakappa. Amerísk fegurð Á kvikmyndahátíðinni í Boston og Toronto hefur verið sýnd bandaríska kvikmyndin American Beauty og hefur hún fengið mjög góðar viðtökur. Meðal annars fengu Kevln Spacey og Annette Bening verölaun sem bestu leikarar í Boston og í Toronto er myndin talin líkleg til verðlauna, en hátið- inni lýkur 18. september. American Beauty fjallar um miðaldra mann sem kominn er með gráa fiöringinn og fær óviðráðanlegan áhuga á vinkonu dóttur sinnar. Spacey þyk- ir fara á kostum í hlutverki þess með gráa fiðringinn. Annette Bening leikur stjórn- sama eiginkonu hans. Thora Blrch leikur dóttur hans. Leikstjóri er Sam Mendes. American Beauty fer í almennar sýningar i Bandaríkjunum um þessa helgi og er þeg- ar farið að sþá henni óskarsverðlaunum. Hryllingurínn blífur Nýja Bruce Wlllls-myndin The Slxth Sense varð að gefa eftir efsta sætið á vinsælda- listanum í Bandaríkjunum um síðustu helgi. Sú kvikmynd sem vinsælust var um helgina er Stlgmata, hryllingsmynd. I þriöja sæti kom svo önnur ný kvikmynd, Stlr of Echos, og þar með eru þrjár hryll- ingsmyndir vinsælastar i Bandarikjunum um þessar mundir. Stigmata er iyrsta kvik- myndin í efsta sæti frá því fornfræga fyrir- tæki Metro-Goldwyn-Mayer í þrjú ár eða allt frá því The Blrdcage var frumsýnd. Aðal- hlutverkiö i Stigmata leikur Patrlcla Arquette, hárgreiðslukonu sem talin er bera sár Jesú Krlsts. Kaþólskur prestur, sem er sérfræðingur í kraftaverkum, er sendur til að athuga hvað sé til i sögusögn- um um stúlkuna. Auk Arquette leika í myndinni Gabrlel Byrne og Jonathan Pryce. Sögukennari tekinn í bakaríið Teaching Mrs. Tingle hefur að undanfornu verið á milli tannanna á fólki í Bandaríkjunum og er ástæðan sú að á síðustu stundu var nafni myndarinnar breytt. Hún átti að heita Killing Mrs. Tingle en nafninu var breytt eftir fjöldamorð- in í Littleton-menntaskólanum þar sem tveir nemendur réðust gegn öðrum nemendum og kennurum með byssur að vopni. Framleiðend- um Killing Mrs. Tingle þótti efni hennar vera of nálægt nýliðnum at- burði og reyndu að fá mýkri ímynd með þvi að breyta nafninu. Ekki dugði það því myndin hefur fengið frekar dræma aðsókn, að minnsta kosti miðað við það sem leikstjór- inn og handritshöfimdur myndar- innar, Kevin Williamson, á að venj- ast. í Teaching Mrs. Tingle segir frá Leigh Ann Watson (Katie Holmes) sem gengur yfirleitt allt í haginn. Eitt vantar hana þó til að fá skóla- styrk, það er A í sögu. Fljótt sér hún að ljón er á veginum og það ljón er sögukennarinn frú Tingle (Helen Mirren) sem í tuttugu ár hefur hrætt nemendur og stjómað sögukennslunni í Grandsboro- menntaskólanum af mikilli hörku. Þegar hún ásakar Leigh og tvo bestu vini hennar um að hafa svindlað á prófinu ákveða þau að taka til sinna ráða og sanna sak- leysi sitt og það verður ekki gert með neinum venjulegum aðferðum. Kevin Williamson hefur átt mikilli velgengni að fagna á undanförnum árum. Ævintýr- ið hófst þegar hann skrifaði handritið að Scream, sem nán- ast innleiddi táningahryllings- myndir að nýju. Hann skrifaði einnig handritið að Scream 2 og I Know What You Did Last Summer. Auk þess á hann heiðurinn af því að hafa kom- ið á koppinn vinsælustu sjón- varpsseríunni vestanhafs, Dawson’s Creek. Katie Holmes leikur Leigh Ann Watson sem -HK nauðsynlega þarf að fá góða einkunn í sögu. bíódómur Sam-bíóin - Eyes Wide Shut ★ ★★ Angist draumsins Eins og gjarnan er til- fellið með myndir Kubricks vekur þessi með manni óræðar til- fmningar. Hann gerir myndir sínar af ná- kvæmni og formfestu, hver myndrammi skipt- ir máli og hvert orð sem látið er falla virðist skipta máli. Oft er svo- lítið erfitt að horfa á slíkar myndir, maður ókyrrist og langar að brjótast út úr spenni- treyjunni. Svo koma kaflar sem fá mann til að hætta að brjótast um og fylgjast með dáleidd- ur. Eyes Wide Shut er þess háttar draumleik- ur, dans á mörkum ímyndunar og veru- leika, ferðalag inn i und- irheima vitundarinnar þar sem engir vegvlsar frnnast. Sagan gerist i New York um jólaleytið. Hjónin Cruise og Kid- man eru læknishjón sem boðið er til veglegrar veislu þar sem tvö súpermódel reyna að draga Tom á tálar meðan Nicole verst ásókn ungversks aristókrata. Kvöldið eftir deila þau hjónin og Nicole segir honum að stuttu áður hafi hún verið reiðubúin að yfirgefa hann fyrir ókunnan mann sem gerði hana ósjálfbjarga með augnaráðinu einu saman. Um nóttina er Tom boð- aður að dánarbeði eins skjólstæð- ings síns þar sem dóttir hins látna lýsir yfir ást sinni á Tom. Honum tekst að smeygja sér burt en heldur út í nóttina þar sem tekur við martraðarkenndur leiðangur inn í skuggadali kynóranna. Eftir þetta ræður læknirinn vart fór sinni, það er líkt og dýr næturinnar finni lykt- ina af ástandi hans og sogist því að honum. Læknirinn getur lítið annað gert en brugðist við hverju sinni en því dýpra sem hann kafar því meira verður um spumingar en færra um svör. Cruise virðist á köflum, líkt og persónan sem hann leikur, á afar þunnum ís. Hann á spretti innan um en of oft er einfaldlega erfitt að trúa á þennan brosbjarta leikara í jafn skuggalegri veröld og hér er til sýn- is. Hins vegar er Kidman afbragö, hún virðist stöðugt búa yfir nýjum hliðum til að sýna okkur, en hlut- verk hennar er miklu minna. Leiðarstef Kubricks, afmennskun og sálarleysi, eru í forgrunni sög- unnar. Læknirinn hefur hingað til talið sig hafa fast land undir fótum: góða fjölskyldu, gott starf og góð efni. Yfirlýsing konu hans verður hins vegar til að kippa undan hon- um fótunum og steypa honum ofan i hyldýpi ópersónulegra samskipta við skuggaverur sem virðast þrifast á holdlegum fýsnum án tilfinninga- tengsla. I lokin býður Kubrick okkur upp á einhvers konar úrlausn en við finnum að ekki eru öll kurl komin til grafar. Þetta kristallast í síðustu setningu verksins sem á yfirborðinu virðist bjóða hjónakomunum upp á leið út úr martrööinni en virðist þegar betur er að gáð aðeins blekk- ing. Um leið er Eyes Wide Shut ein „mannlegasta" mynd hans, við flnn- um fyrir samkennd hans með aðal- persónunum en það aftrrar honum ekki frá þvf að fylgja bölsýnni sann- færingu sinni allt til enda. Leikstjórn: Stanley Kubrick. Handrit: Stanley Kubrick og Frederic Raphael. Aðalhlutverk: Tom Cruise, Nicole Kidman. Ásgrímur Sverrisson 22 f Ó k U S 17. september 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.