Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1999, Qupperneq 7
ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1999
7
DV
Fréttir
Eignarhaldsfélagiö DB ehf.:
Deilt um forkaupsrétt
Forkaupsréttur hluthafa í Eignar-
haldsfélaginu DB ehf. hefur ekki
verið í gildi í 17 ár eða frá aðalfundi
sem haldinn var 27. ágúst 1982.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem
lögmaður félagsins hefur sent frá
sér en nokkrir hluthafar hafa höfð-
að mál vegna ágreinings um afnám
forkaupsréttarins. Svo virðist hins
vegar að mistök hafi átt sér stað i
hlutafélagaskrá og voru breytingar
á samþykktum ekki skráðar opin-
berlega. Nú er tekist á um hvort
breytingarnar hafi öðlast gildi eða
ekki. Eignarhaldsfélagið á helm-
ingshlut í Frjálsri fjölmiðlun hf.
sem meðal annars getur út DV.
Jón Gunnar Zoega hrl., lögmaður
Eignarhaldsfélagsins DB ehf. og
umsjónarmaður, segir í yfirlýsingu
að á aðalfundi félagsins 27. ágúst
1982 hafi verið gerðar breytingar á
samþykktum félagsins mótatkvæða-
laust og forkaupsréttarákvæði felld
niður. Þá segir orðrétt: „Tilkynning
um þetta var send hlutafélagaskrá
og er handskrifað á skjöl þessi að
þau séu móttekin af Ásberg Sigurðs-
syni, þáverandi forstöðumanni
hlutafélagaskrár. Hins vegar voru
hinar breyttu samþykktir hvorki
skráðar í hlutafélagaskrána né birt-
ar í Lögbirtingablaði. Engar skrif-
legar upplýsingar liggja fyrir um
ástæður þessa en eftir hinum
breyttu samþykktum, sem vissulega
voru á allan hátt lögformlega réttar,
hefur verið starfað í félaginu öll þau
17 ár sem liðin eru, án þess að at-
hugasemdum væri hreyft." Bent er
á að þeir aðilar sem að stefnunni
standa hafi setið flesta aðalfundi fé-
lagsins á undanfómum 17 áram og
„stóðu sumir sjálfir árið 1982 að
breytingum á samþykktum í þá
veru sem hér er deilt um. Aldrei
hefúr verið hreyft athugasemdum
um þessi atriði fyrr né heldur hafa
aðilar að máli þessu sýnt áhuga á
hlutabréfakaupum eða haft þá trú á
fyrirtækinu að þeir vildu eignast
aukinn hlut í því,“ segir í yfirlýs-
ingunni. Þar kemur jafnframt fram
að áður en til málaferla kom hafi
stefnendur haft samband við lög-
mann félagsins og óskað eftir því að
vera keyptir út úr félaginu „ella
myndu þeir grípa til þeirra aðgerða
sem nú er orðnar ljósar“.
í frétt frá þeim hluthöfum sem
standa að málssókninni er því hald-
ið fram að stórir eignarhlutar hafi
skipt um hendur en jafnan orðið
eign Sveins R. Eyjólfssonar, stjórn-
arformanns Frjálsrar fjölmiðlunar.
Þessum fullyrðingum er vísað á bug
af lögmanni Eignarhaldsfélag DB og
bent á að margar sölur og kaup hafi
átt sér stað í félaginu frá 1982. Með-
al annars hefur fyrrverandi stjórn-
arformaður til 20 ára, Björn Þór-
hallsson, keypt bréf, einnig fyrrver-
andi lögmaður félagsins svo og
Kassagerð Reykjavíkur og fleiri.
-hlh
Bæjarráð í viðræður um Hensonhúsið:
Fótboltaminjasafn
og Hvalfjarðar-
gangasafn
DV, Akranesi:
Hjá Þorsteini Þorleifssyni, eig-
anda Steinaríkis og Hvalíjaröar-
gangasafnsins, kviknaði sú hug-
mynd að koma á fót safnahúsi í
Henson húsinu á Akranesi þar sem
áður var aðsetur 66 gráður norður.
Hugmyndin var að þar yrðu
Knattspymuminjasafn íslands, safn
korta Landmælinga íslands, Steina-
ríkið, Hvalfjarðargangasafn, upplýs-
ingamiðstöð ferðamála og veitinga-
aðstaða. Þorsteinn bauð 18,5 millj-
ónir í Henson húsið en Verslunin
Bjarg á Akranesi bauð 25 milljónir
og var með annað tilboð upp á 27
milljónir, þar sem boðið var að taka
húsnæðið að Skólabraut 21 upp í.
Bæjarráð ákvað á fundi þann 16.
september að hefja viðræður við
hæstbjóðanda sem er Verslunin
Bjarg.
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum DV hefur Þorsteinn ekki lagt
árar í bát og skoðar ýmsa mögu-
leika varðandi húsnæði undir safn-
ið á Akranesi. -DVÓ
Námstefnunni "Gæðasala á þjónustuöld"
Fyrstu al-íslensku námstefnunni á ameríska vísu í
Borgarleikhúsinu 27. september 1999 kl. 19:40
Einstakrí upplifun þar sem fleirí hundruð sölumenn
og þjónustufólk verða saman komin á einn stað
með það eitt i huga til auka árangur sinn
Góðrí og hnitmiðaðrí kennslu í hagnýtum aðferðum
sem þú getur nýtt þér strax
Frábæru tilboði 2-fyrir-l
Fyrirlesari: Gunnar Andri Þórisson
Gunnar Andri hefur víðtæka reynslu i verslun og
sölumennsku, reynslu sem spannartæp 20 ár. Hann hefur
selt bæði vörur, þjónustu og hugmyndir meó góðum
árangri, hvort sem um er að ræða í verslun, gegnum
sima, í farandsölu, beint til fyrirtækja eða á
heimakynningum.
Þess má einnig geta að á siðustu árum hefur Gunnar
Andri hlotió fjöldann allan af viðurkenningum og
verðlaunum fyrir sölumennsku sína og hefur skipað
toppsæti söLumanna i Evrópu og Skandinaviu.
Segja má að námskeið þessi séu gamaLL draumur Gunnars
Andra vegna þess að hann sá hve mikil þörf var fyrir þau
hér á ístandi, og á síðustu tveimur árum hefur það sannað
sig þar sem hundruðir manna og kvenna hafa sótt hin
ýmsu námskeið, fóLk úr ölLum geirum atvinnulífsins.
Núna Loksins getur þú lært af einum besta sölumanni
íslands. Hann hefur reynsLu, þekkingu, kunnáttu og það
er hans markmið að þér gangi vel.
M SOLUKENNSLA GUNNARS ANDRA
Einkaþjálfun • Námskeið ■ Ráðgjöf ■ Fyrirlestrar
Upplýsingar í síma 561 3530 og 897 3167 - fax 561-3538 e-mail gunnarandri@gunnarandri.com - heimasíða www.gunnarandri.com