Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1999, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1999
Fréttir
Forsetinn finnur
ástina á ný
- kom nánum vinum skemmtilega á óvart
Dorrit Moussaieff, 49 ára gamall blaðamaður og ritstjóri í London (lengst til hægri) ásamt forseta íslands og dóttur
hans við vígslu Bláa lónsins fyrir skemmstu. Innfellda myndin er af Dorrit Moussaieff.
„Dorrit er stödd í New York og
verður ekki hér fyrr en eftir nokkra
daga,“ voru svörin sem DV fékk í
morgun á ritstjórnarskrifstofum
breska tímaritsins Tatler þar sem
kær vinkona Ólafs Ragnars Gríms-
sonar forseta íslands starfar sem
blaðamaður og ritstjóri. Forsetinn
lýsti því yfir í sjónvarpsviðtali í
gærkvöldi að hann hefði eignast
vinkonu og óskaði eftir því að þjóð-
in veitti sér tilfinningalegt svigrúm
til að þróa með sér tilfinningar
gagnvart annarri konu samfara
óbreyttri ást sinni á Guðrúnu
Katrínu Þorbergsdóttur sem lést
fyrir tæpu ári.
Ástin í lífi forsetans heitir Dorrit
Moussaieff, 49 ára, ítalskur gyðing-
ur og hannar skartgripi samhliða
blaðamannsstarflnu hjá tímaritinu
Tatler. Dorrit hefur oftsinnis komin
Bensíndælan
gekk
„Jú, ég veit allt um þetta en
ætla ekki að segja ykkur neitt,“
sagði úrillur Magnús Haraldsson
vaktstjóri Esso í Borgartúni við
DV í morgun. Magnús mun hafa
gleymt að læsa einni dælunni á
stöð sinni þegar hann lokaði
klukkan hálfátta í gærkvöldi og
var dælan opin fram til klukkan
hálftólf. Á meðan var löng röð
óheiðarlegra ökumanna við dæl-
una og fylltu þeir bíla sína hver
af öðrum af bensíni. Þuríður
Snorradóttir, vaktstjóri hjá Esso
í Stóragerði, er yfirmaður Magn-
úsar Haraldssonar og voru þau
tvö í morgun einu starfsmenn
Olíufélagsins sem vissu um at-
burðinn. Komu yfirmenn þeirra
því af fjöllum þegar leitað var
upplýsinga hjá þeim. „Þetta voru
mannleg mistök," sagði Þuríður
i morgun. -GAR
hingað til lands og verið við opin-
berar athafnir ásamt forseta íslands
þó leynt hafi farið um samband
þeirra. Nánir vinir þeirra til
margra ára höfðu ekki hugmynd
um ástarsamband forsetans fyrr en
hann ræddi það sjálfur í sjónvarps-
fréttum í gærkvöldi. Eða eins og
einn þeirra orðaði það: „Það má
segja að þeta komi skemmtilega á
óvart. Ég hafði ekki hugmynd um
þetta."
Dorrit fylgdi forsetanum við
vígslu Bláa lónsins og sat einnig ha-
ádegisverðarboö sen haldið var til
heiðurs Richard A. Grasso forstjóra
Kauphallarinnar í New York fyrr í
þessum mánuði. Þar sat hún til
borðs með Ólafi Jóhanni Ólafssyni
rithöfundi og fyrrum Sony-forstjóra.
í hádegisverðarborðinu var einnig
Friðrik Þór Friðriksson kvikmynda-
leikstjóri:
“Ég tók eftir þessari konu en vissi
ekki hver hún var og veitti ekki
frekari athygli enda sat ég langt frá
henni. Hins vegar get ég sagt að for-
setinn hefur verið óvenju brattur að
undanfómu í þau skipti sem ég hef
átt við hann samskipti. Það kæmi
mér ekki á óvart að hann væri ást-
fanginn," sagði Friðrik Þór Frið-
riksson í morgun. -EIR
Andstaða við fyrirhugaða úthlutun byggðakvóta til fyrirtækis bæjarfulltrúa:
Patró logar í ágreiningi
Hugmynd bæjarstjómar Vestur-
byggðar um að úthluta nýju fyrir-
tæki á Bíldudal öllum 205 tonna
byggðakvóta sveitarfélagsins hefur
mætt kröftugri mótspyrnu meðal
íbúa á Patreksfirði. Eins og kunn-
ugt er mynda Bíldudalur og Pat-
reksfjörður Vesturbyggð. Bæjar-
stjórnin hafði leitað álits Atvinnu-
þróunarfélags Vestfjarða um hvem-
ig hagkvæmast væri að úthluta
kvótanum og mun félagið telja best
að setja kvótann allan á Bíldudal.
Ætlunin mun sú að Þórður Jóns-
son ehf. á Bíldudal og Oddþór ehf.,
sem er í eigu fyrirtækjanna Odda á
Patreksfirði og Þórsbergs á Tálkna-
firði, stofni ásamt fleiri aðilum, m.a.
Byggðastofnun, nýtt útgerðcufyrir-
tæki á Bíldudal og fá byggðakvót-
ann til sín.
Vísa öllum ágreiningi á bug
Samkvæmt heimildum DV er gert
ráð fyrir að Þórður Jónsson ehf. eigi
47% í nýja fyrirtækinu en Oddþór á
bilinu 10 til 20%. Framkvæmda-
stjóri Þórðar Jónssonar ehf. er Jón
Þórðarson, sem er bæjarfulltrúi í
Vesturbyggð fyrir Samstöðulista
Framsóknarflokks, Alþýðuflokks og
Alþýðubandalags. Andstæðingar
fyrirætlana bæjarstjórnarinnar
telja að Jón hafi misnotað aðstöðu
sína sem bæjarfulltrúi til að ná for-
skoti á aðra umsækjendur byggða-
kvóta Vesturbyggðar á meðan málið
var í undirbúningi af hálfu bæjaryf-
irvalda. Það hafi þýtt að Jón hafi
getað lagt fram umsókn sem sniðin
var að hugmyndum bæjarstjórnar-
innar.
Sagt er að meirihlutasamstarf
sjálfstæðismanna og samstöðu-
manna, sem hvorir um sig ráða fjór-
um fulltrúum í níu manna bæjar-
stjórn Vesturbyggðar, sé við það að
springa vegna málsins. Heba Harð-
ardóttir, forseti bæjarstjórnar, vísar
slíkum sögusögnum algerlega á bug
og það gerir einnig Haukur Már Sig-
urðsson, formaður bæjarráðs. Þau
segja sömuleiðis bæði að engin
ákvörðun liggi fyrir í málinu af
hálfu bæjarstjórnarinnar um að
senda kvótann á Bíldudal. „Þetta er
sagt á götunni en á við engin rök að
styðjast. Við höfum fariö yfir allar
umsóknir og erum að leita eftir því
sem er sveitarfélaginu sjálfu fyrir
bestu en ekki einstaklingum og út-
gerðum," sagði Haukur Már.
Ástæðulaus undirskrifta-
söfnun
Dagana 9. og 10. september
gengu andstæðingar þess að kvót-
anum verði öllum ráðstafað til
Bíldudals í hús á Patreksfirði og
söfnuðu undirskriftum skoðana-
systkina sinna. Að sögn Jón Her-
manns Óskarssonar, fiskverkanda
og umsækjanda um byggðakvóta,
skrifuðu 94% þeirra 300 atkvæðis-
bærra manna sem í náðist undir
skjalið. Á milli 500 og 600 manns
hafa atkvæðisrétt á Patreksfirði.
Haukur sagðist draga gildi und-
irskriftarsöfnunarinnar sem heim-
ildar um skoðun bæjarbúa á Pat-
reksfirði í efa og taldi ólíklegt að
hún myndi hafa áhrif á ákvörðun
bæjarstjómar í málinu. „Söfnunin
er ástæðulaus viðbrögð við röng-
um sögusögnum um að bæjar-
stjórn hampi einum umsækjanda
umfram aðra. Það er ekki óeðlilegt
að menn árétti skoðanir sínar á
málinu og áminni bæjarstjórn um
það að þeir telji að einhverjir eigi
tiltekinn rétt umfram aðra. Það
væri mjög óráðlegt ef pólitískt
kjörnir fulltrúar létu undirskrift-
arsöfnun hafa meiri áhrif á sig en
hag bæjarsjóðs,“ sagði Haukur
Már.
„Það verður að játa að bæjarfull-
trúinn Jón Þórðarson hefur ákveð-
ið forskot því hann hafði unnið
sína vinnu mjög vel áður en álit at-
vinnumálafulltrúans lá fyrir og
var til dæmis búinn að kalla bæj-
arstjórnina á sinn fund og fara
ofan í saumana á sínum hugmynd-
um. Það er deginum ljósara að bæj-
arfulltrúar, sem sjá öll gögn og
heyrá hljóðið í mönnum, njóta lyk-
ilstöðu. Við stöndum ekki jafnfæt-
is, Jón og Jón,“ sagði Jón Her-
mann Óskarsson sem sjálfur teng-
ist einum sex umsóknum um hlut
af byggðakvótanum. Jón Hermann
dró stórlega í efa hagkvæmni þess
að úthluta öllum kvótanum á
Bíldudal og vill að Patreksfjörður
fái sinn skerf. -GAR
Stuttar fréttir i>v
Kemur ekki á óvart
Jóhann Geirdal, varaformaður
Alþýðubanda-
lagsins, segir
undirölduna hjá
ótilgreindum
hópi fólks i
flokknum ekki
koma sér á óvart.
Hann segist telja
víst að Samfylk-
ingin verði gerð að formlegum
stjórnmálaflokki. Dagur sagði frá.
Kafað að Ei Grillo
Byrjað verður að kafa niður að
flaki breska olíuskipsins E1 Grillo í
dag, flmmtudag, en Þjóðverjar
skutu skipið niður í Seyðisfirði á
stríðsárunum. Tilgangur þess að
kafa niður, að sögn Dags, er að
þétta rifur á skipinu sem olía lekur
út um og upp i mengunarvarnar-
girðingu.
Nektardans
Fyrirhugað er að bjóða gestum
veitingastaðarins Ráðhúskaffls
upp á að horfa á nektardans í
nánustu firamtíö. Það yrði þriðji
staðurinn á Akureyri sem byði
viðskiptavinunum upp á dans fá-
klæddra eða óklæddra meyja.
Dagur sagði frá.
Gjaldþrotahrina
Gjaldþrotaúrskurðir Héraðsdóms
Norðurlands eystra á Akureyri eru
alls orðnir 29 talsins það sem af er
árinu 1999. Flestir gjaldþrotaúr-
skurðanna snúa að einstaklingum
en stærsta gjaldþrotið á árinu er
hjá timburvinnslufyrirtækinu Ald-
in á Húsavík, dótturfyrirtæki Kaup-
félags Þingeyinga. Dagur sgði frá.
Óheppileg tengsl?
Árið 1992 bauð LÍN út auglýs-
ingar fyrir sjóðinn og fékk fyrir-
tækið Frjáls
miðlun verkefn-
ið en það er i
eigu stjórnar-
formanns LÍN.
Fyrirtækið hef-
ur haldið þessu
verkefni síðan
þá og hefur ver-
ið eytt um 10 milljónum króna í
auglýsingar á þessum tíma. Vís-
ir.is sagði frá.
Rukkaður
Skattayfirvöld kröfðu 75% ör-
yrkja um hundruð þúsunda króna
aftur í tímann vegna þess að hann
taldi ekki fram slysadagpeninga
sem hann fékk. RÚV sagði frá.
Ræningi tekinn
Lögreglan í Kópavogi handtók
síðdegis í gær mann sem grunaður
er um aðild að ráninu í verslun-
inni Strax við Hófgerði á fóstudag.
Lögð verður fram krafa um gæslu-
varðhald í dag. RÚV sagði frá.
Gagnrýna óvissu
Stjómarandstæðingar gagn-
rýna mjög það sem þeir kalla
óvissu í fyrirætlunum um sölu á
Fjárfestingarbanka atvinnulifs-
ins. Þeir telja það meðal annars
dónaskap að bíða ekki í nokkra
daga svo hægt verði að ræða mál-
ið á Alþingi.
Hrossabanki
Á annað hundrað þúsund ís-
lenskra hrossa eru skráö í tölvu-
tækan gagnagrunn Bændasamtak-.
anna. Nánast öll hross hérlendis
eru skráð í grunninn en fyrirhug-
að er að hefja skráningu á íslensk-
um hrossum erlendis í janúar árið
2000. Mbl. sagði frá.
Lyfjasamningur
Lyflabúðir hf„ sem að stærstum
hluta eru í eigu Baugs, hafa skrifað
undir samning
við norskt lyfja-
fyrirtæki sem er
eitt það stærsta á
Norðurlöndum.
Samningurinn á
að geta leitt til
þess að unnt
verði að lækka
verð á ákveðnum lyfjaflokkum og
koma í veg fyrir hækkanir á öðrum.
-hlh