Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1999, Blaðsíða 29
FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1999
33
Myndasögur
Veiðivon
£g bjó þessa
geisiabyssu til
þeim tilgangi aö
skjóta niður ðlls
konar flutninga-
vélarl
•i-l
fi
B
s
S
f LÓRAVÍDDIR AIHEIMSINS A f RUGLA MANNÍRÍMIHU. í RAÐ ERU 140.51CM TIL 1 SÓLARINNAR OG NÆSTU STJÖRNUWDKUR ERU, MILUARÐA UOSÁRA1 BURTU. •
;fí fe'
Drífa Garðarsdóttir með 12 punda sjóbirting úr Fjárhúsabakka f Geirlandsá,
sem veiddist á spún og þrjá aðra faliega sjóbirtinga.
Geirlandsá:
Mikið af fiski
víða í ánni
- veiddu 12 punda sjóbirting
„Við erum mjög hress með veiðitúr-
inn, hjónin, en við fengum 7 sjóbirt-
inga og sá stærsti var 12 pund. Holiið
veiddi 12 fiska en veiðin hefur verið
fin í ánni síðustu vikuna," sagði Bald-
ur Waage en hann og eiginkona hans,
Drífa Garðarsdóttir, voru að koma úr
Geirlandsá í Vestur-Skaftafelissýslu.
En tími sjóbirtings er að koma
þessa dagana, eins og í Geirlandsá,
þar virðist hann vera mættur. Árið í
fyrra var alls ekki gott en annað virð-
ist vera upp á önglinum núna.
„Það var mikið af fiski víða en
hann var tregur. í Ármótahylnum er
mikið af fiski og sumir þar eru vænir
en hann var mjög tregur að taka. Þar
var hann alltaf að stökkva um allan
hyl. Þennan 12 punda sem konan
veiddi fékk hún í Fjárhúsabakka á
spún. Þetta var afmælistúr hjá henni
en hún á afmæli á fímmtudaginn og
þess vegna var gaman að hún skyldi
veiða stærsta fiskinn í ferðinni. Sið-
asta vika gaf 72 sjóbirtinga, en veiðin
í ánni hefur verið mjög góð. Mér
sýndist að ekki hefðu veiðst margir
laxar í ánni í sumar,“ sagði Baldur
enn fremur.
Umsjón
Gunnar Bender
Við fréttum af ungum og efnilegum
veiðimönnum sem voru í Brúará og
Laxá fyrir austan Kirkjubæjarklaust-
ur fyrir skömmu. Þeir fengu laxa og
sjóbirting; laxinn var 4 pund en sjó-
birtingurinn 3 pund. Eitthvað hefur
Baldur Waage með tvo sjóbirtinga
úr Geirlandsá en veiðin þar hefur
verið góð síðustu vikurnar.
DV-myndir BWW
veiðst meira af fiski þarna um slóðir.
í Tungufljóti hefur verið ágæt veiði
og sumir sjóbirtingarnir eru vænir;
sama er hægt að segja um Greníæk-
inn.
Svo virðist sem sjóbirtingsveiðin sé
betri núna en fyrir ári og eru veiði-
menn, sem við höfum rætt við, sam-
mála um það. Besti tíminn er að koma
þessa dagana og stórir sjóbirtingar
eiga vonandi eftir að bíta á næstu
daga og vikur.
Mýrarkvísl
Veiði í Mýrarkvísl er lokið og
veiddust 122 laxar; tveir stærstu fisk-
arnir voru 17 punda. Flugan Dimmblá
gaf best, en veiðin hefur oft verið betri
í Kvíslinni en þetta.
Blaðbera vantar í
Fákafen - Faxafen - Skeifuna
Laugaveg - Bankastræti.
Upplýsingar á afgreiðslu DV
í síma 550 5000.