Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1999, Side 30
34
FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1999
Afmæli
Sigurður Einarsson
Sigurður Einarsson, trésmiður og
trúboði, Schlieper str. 46, D-13507
Berlín, er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Sigurður fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp í foreldrahúsum, auk
þess sem hann var í sveit á sumrin
í Mýrdalnum. Hann hóf nám I Iðn-
skólanum í Reykjavík 1965, lauk
sveinsprófi í húsgagnasmíði 1970 og
sveinsprófi í húsasmíði 1972, en
prófi frá Meistaraskólanum lauk
hann 1981.
Sigurður hefur starfað við tré-
smíðar í Reykjavik síðan hann lauk
iðnnáminu. Hann sat um skeið í
trúnaðarráði Trésmiðafélags
Reykjavikur. Sigurður hefur verið
mikill áhugamaður um siglingar, en
hann er einn af stofnendum Sigl-
ingaklúbbsins Brokeyjar í Reykja-
vík og sat þar í stjórn í sjö ár, þar af
formaður í tvö ár. Einnig starfaði
hann í fjölmörg ár með ferðafélag-
inu Útivist.
Árið 1993 endurfæddist Sigurður
til lifandi trúar á Jesú Krist og er
virkur safnaðarmeðlimur í Fríkirkj-
unni Veginum. Hann stundar nú
andlegt nám í Berliner Bibelschulen
hjá Gemeinde auf dem Weg í Berlín.
Sigurður á þrjú börn
með fyrrv. konu sinni,
Hildi Skarphéðinsdóttur,
fóstru í Reykjavík. Þau
eru Eirún, f. 1971, mynd-
listarmaður, en eigin-
maður hennar er Magnús
Þór Þorbergsson, f. 1971,
leikhúsfræðingur; Vaka,
f. 1974, búfræðingur og
stúdent, en sambýlismað-
ur hennar er Haraldur
Jónsson, búfræðingur og
vélsmiður; Tinna, f. 1979, stúdent.
Auk þess á Sigurður dóttur frá
því fyrir hjónaband, Ásu, f. 1969,
húsmóður í Noregi, en eiginmaður
hennar er Bjarni Þór Sigurðsson, f.
1964, trésmiður og eru böm þeirra
Atli Þór, f. 1989, íris Ama, f. 1991 og
Kristi Ósk, f. 1996.
Sigurður á fimm systkini. Þau
eru Jón Reynir, f. 1940, múrara-
meistari og bóndi að Steinsmýri í
Meðallandi; Jóhann Þór, f. 1947,
veggfóðrarameistari i Kópavogi;
Sigriður, f. 1951, húsmóðir í Reykja-
vík; Brandur, f. 1953, stýrimaður i
Reykjavík; Einar, f. 1955, bílstjóri í
Reykjavík.
Foreldrar Sigurðar: Einar Jóns-
son frá Reyni í Mýrdal, f. 29.7. 1913,
fyrrv. aðalgjaldkeri SÍS í
Reykjavík, og k.h., Sig-
rún Þórðardóttir, f. 24.8.
1916, d. 21.1. 1982, hús-
móðir.
Ætt
Foreldrar Einars vora
Jón Ólafsson, skólastjóri
og sýsluskrifari í Vík í
Mýrdal, og k.h., Sigriður
Einarsdóttir.
Jón var sonur Ólafs
Ólafssonar, b. að Lækjarbakka í
Mýrdal, og k.h., Ingibjargar Jóns-
dóttur frá Suður-Götum í Mýrdal,
Guðmundssonar.
Sigríður var dóttir Einars, b. í
Reyni, Brandssonar, í Reynishjá-
leigu, Einarssonar. Móðir Einars
var Kristín Einarsdóttir, hrepp-
stjóra i Þórisholti, Jóhannssonar,
föður Gísla, langafa Jóns Þórs Þór-
hallssonar, forstjóra SKÝRR. Bróðir
Kristínar var Jón, faðir Eldeyjar-
Hjalta, afa Hjalta Geirs Kristjáns-
sonar forstjóra. Annar bróðir Krist-
íncir var Gunnlaugur Fossberg, afi
Einars Thorlacius forstjóra.
Móðir Sigríðar var Sigríður
Brynjólfsdóttir, frá Litlu-Heiði í
Mýrdal, Guðmundssonar, bróður
Jóns, afa Erlends Einarssonar,
fyrrv. forstjóra SÍS. Móðir Brynjólfs
var Guðrún, systir Helgu, ömmu
Þorsteins Erlingssonar skálds. Guð-
rún var dóttir Hallgríms, b. á Neðra-
Velli, Brynjólfssonar og Guðrúnar
Ögmundsdóttur, systur Sæmundar,
föður Tómasar Fjölnismanns. Guð-
rún var dóttir Ögmundar, pr. á
Krossi, Högnasonar og Salvarar Sig-
urðardóttur, systur Jóns, afa Jóns
forseta.
Foreldrar Sigrúnar vora Þórður
Jóhannsson, sjómaður í Reykjavík,
og s.k.h., Jóhanna Sigríður Eiríks-
dóttir. Móðir Þórðar var Guðbjörg,
systir Eiríks, föður Jóhönnu Sigríð-
ar. Eirikur og Guðbjörg voru börn
Filippusar, b. á Bjólu í Holtum, Þor-
steinssonar, b. í Kumla, Vigfússon-
ar, lrm. á Leiðólfsstöðum, Nikulás-
sonar, b. á Suður-Reykjum í Mos-
fellssveit, Jónssonar. Móðir Fil-
ippusar var Styrgerður Jónsdóttir,
b. í Brekkum í Holtum, Filippusson-
ar, pr. í Kálfholti, Gunnarssonar.
Móðir Eiríks var Sigríður Jónsdótt-
ir.
Sigurður verður í vinnunni í dag
en í kvöld þiggur hann andlegt fæði
af nægtaborði Drottins hjá Veginun
í Kópavogi.
Sigurður Einarsson.
Hólmfríður Sigurðardóttir
Hólmfríður Sigurðardóttir (Lilla
frá Fosshóli), símavörður við Fjórð-
ungssjúkrahúsið á Akureyri, er sex-
tug í dag.
Starfsferill
Hólmfríður fæddist á Akureyri og
ólst upp á Fosshóli í Bárðardal í
Þingeyjarsýslu. Hún stundaði nám
við Héraðsskólann að Laugum í
Þingeyjarsýslu og við Húsmæðra-
skólann að Laugum.
Hólmfríður starfaði hjá Lands-
síma íslands um árabil, á Akureyri
og í Reykjavík. Þá starfaði hún við
Sjúkrahúsið á Húsavík, við Klepps-
spitalann í Reykjavík og starfar nú
við Fjórðungssjúkrahúsið á Akur-
eyri.
Fjölskylda
Hólmfríður giftist 9.6. 1972 Sig-
urði Þórarinssyni, f. 16.1. 1944, pí-
anóleikara og gæslumanni við
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Hann er sonur Þórarins Sigurðsson-
ar og Laufeyjar Bjarnadóttur í
Reykjavík.
Börn Hólmfríðar frá því áður eru
Guðbjörg Birgisdóttir, f. 27.7. 1958,
verkakona í Reykjavík, en börn
hennar er Lina Súsanna, Árni
Kristján og Gyða Lóa; Sigurður
Lúther Vigfússon Gestsson, f. 17.1.
1970, starfsmaður við Kleppsspítal-
ann í Reykjavík, en sambýliskona
hans er Valgerður Guðbjörnsdóttir
og er sonur hans Birgir Þór en dótt-
ir Sigurðar Lúthers og Valgerðar er
Valgerður Selma.
Dætur Hólmfríðar og
Sigurðar eru Svava Sig-
urðardóttir, f. 21.8. 1971,
starfsstúlka við dvalar-
heimilið Hlíð á Akureyri,
en maður hennar er
Hilmar Sæmundsson sjó-
maður og er dóttir þeirra
Harpa Ýr; Sif Sigurðar-
dóttir, f. 29.6. 1973, nemi
við VMA, en dóttir henn-
ar er Hólmfríður Brynja.
Hálfsystkini Hólmfríð-
ar, sammæðra: Jóhannes
Pétur Leósson, nú látinn,
verkamaður á Akureyri; Benedikt
Gissur Leósson, kranamaður á Ak-
ureyri; Hreiðar Leósson, verkamað-
ur i Reykjavík; Ólafur Jón Leósson,
bifreiðarstjóri í Reykjavík; Gyða
Sólrún Leósdóttir, nú lát-
in, var húsmóðir og
verkakona í Keflavík;
Leó Viðar Leósson,
verkamaður á Akureyri;
Fríður Leósdóttir, verka-
kona á Akureyri; Krist-
ján Snær Leósson, verka-
maður á Akureyri.
Foreldrar Hólmfríðar:
Sigurður Lúther Vigfús-
son, f. 30.9. 1901, d. 13.11.
1959, bóndi og veitinga-
maöur á Fosshóli, og
Gyða Jóhannesdóttir, f.
14.8. 1914, húsmóðir og fyrrv. starfs-
maður við MA.
Stjúpfaðir Hólmfríðar: Leó Guð-
mundsson, f. 24.11. 1910.
Þau hjónin eru að heiman.
Hólmfríður
Sigurðardóttir
Fréttir
Norskir dagar í „norskum bæ“
- forseti íslands heimsækir Seyöfiröinga í dag
DV, Seyðisfirði:
Tengsl Noregs og Seyðistjarðar hafa
frá upphafi verið sterk og má víða sjá
þess merki í kaupstaðnum. Nægir að
nefna í því tilliti Otto Wathne, Norsk
Fiskarheim, síldarárin og timburhús
innflutt frá Noregi sem dæmi. Á Seyð-
isfirði er starfandi norskur konsúll,
Birgir Hallvarðsson. Hann hefur
ásamt ýmsum öðrum haft veg og
vanda af Norskum dögum 1999 á Seyð-
isfirði sem lýkur á morgun, föstudag.
Þá mun forseti íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, koma í heimsókn í Skafta-
fell, menningarmiðstöð bæjarins, og
njóta síðustu atriða dagskrárinnar.
Dagskrá hefur verið alla daga síðan
á sunnudag og hún fjölbreytt. Farið
hefur fram ferðakynning, tengsl ís-
lenska og norska þjóðdansins rifjuð
upp, kenndur var norskur þjóðdans af
félögum úr Fiðrildunum á Egilsstöð-
um. Sýning hefur staðið á fágætum
norrænum bókum og góðir gestir frá
Noregi halda uppi kaffihúsastemn-
ingu í Herðubreið á fimmtudagskvöld.
Á morgun er lokadagskrá Norskra
daga og formleg lok listahátíðarinnar
Á seyði ‘99. Þar er aukasýning á verk-
um Bernd Koberling og Bjöms Roth,
Loðmundarfjörður - haust. í kjallara
getur að líta verk hins heimsfræga
Dieters Roth. -JJ
Fallbyssuskothríð frá Norsk Fiskarheim, norska fiskimannaheimilinu á Seyðisfirði. Skotið var í síðustu viku vegna
kynningar á Netbankanum, sem fram fór í bænum, frá norska fiskimannaheimilinu, menningarhúsi bæjarins. Fall-
byssustjóri bæjarins er Jóhann Sveinbjörnsson bæjargjaldkeri og sagt að hann hafi próf á fallbyssu.
DV-mynd Jóhann Jóhannsson
I>V
Til hamingju með afmælið 23. september
95 ára
Teitný Guðmundsdóttir, Flúðabakka 4, Blönduósi.
90 ára
Axel Helgason, Hjallaseli 55, Reykjavík. Hulda Long Ingibergsdóttir, Furagerði 1, Reykjavík.
85 ára
ísabella Baldursdóttir, Akurgerði 10, Akranesi. Laufey Sigurðardóttir, Bleiksárhlíð 56, Eskifirði. Snjólaug Karlsdóttir, Kili, Aðaldælahreppi.
75 ára
Auður Sigurðardóttir, Þangbakka 8, Reykjavík. Gunnar Helgason, Lundi, Höfðahreppi. Hjalti Stefánsson, Eldshöfða 10, Reykjavík.
70 ára
Guðmundur Jónsson, Bjamastöðum, Hvítársíðuhreppi. Sigurrós Magnúsdóttir, Laufbrekku 27, Kópavogi. Svanur Jóhannesson, Fellsmúla 8, Reykjavík. Tómas Lárusson, Eik, Mosfellsbæ.
60 ára
Benedikt Erlingur Guðmundsson, skipaverkfræðingur og fýrrv. siglingamálastjóri, Víðigrund 18, Akranesi. Eiginkona hans er Sigurlaug Jónsdóttir röntgentæknir. Hann er að heiman. Bjarni Geirsson, Barmahlíð 2, Reykjavík. Guðný Jóhannsdóttir, Suðurbraut 2, Hofsósi. Guðrún O. Jónsdóttir, Snorrabraut 56, Reykjavík. Sigríður D. Ólafsdóttir, Klébergi 5, Þorlákshöfn.
50 ára
Ásdís Jónsdóttir, • Hjallabrekku 19, Kópavogi. Guðjón Þorvaldsson, Marbakkabraut 32, Kópavogi. Páll E. Kristjánsson, Austurbraut 5, Höfn. Sigurður Árni Sigurðsson, Miðleiti 10, Reykjavík.
40 ára
Bára Garðarsdóttir, Mánagötu 19, Reyðarfirði. Elín Guðbjartsdóttir, Holtagerði 36, Kópavogi. Erlendur Steinþórsson, Víghólastíg 7, Kópavogi. Guðlaugur Smári Jósepsson, Faxabraut 34 C, Keflavík. Guðrún Ágústa Bjarnþórsdóttir, Laufengi 72, Reykjavík. Jóna Thors, Lyngbrekku 7, Kópavogi. Kristín Gunnarsdóttir, Stórahjalla 1, Kópavogi. Lúðvík Kristinn Helgason, Hraunbæ 136, Reykjavik. Skæringur Markús Baldursson, Logafold 5, Reykjavik. Sólveig Birna Jósefsdóttir, Sólbergi 2, Hafnarfirði.