Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1999, Síða 16
16
FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1999
FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1999
17
Sport
DV DV
Sport
Endúró:
Úrslitakeppnin
við Lyklafell
Á laugardaginn kl. 11.30 hefst
úrslitakeppni íslandsmótsins í
endúrói eða þolreið á
mótorhjólum við nýju
motokrossbrautina við Lyklafell,
gengt Bláfjallaafleggjaranum.
Keppni þessi verður með
töluvert öðruvísi sniði en áður
þar sem keyrð verður sérstök
áhorfendaleið í miðri keppninni.
Erlendis eru þessar leiðir
kallaðar „Special Tests“ og
reyna þær mjög á þolrifin í
keppendum en þykja mjög
skemmtilegar á að horfa. Þar að
auki má aðeins fylla á bensíni og
gera við í aksturstíma á sérstöku
viðgerðarsvæði.
Einn aðstoðarmaður
Hver keppandi má svo aðeins
hafa einn aðstoðarmann og
búast má því við að þeir sem eru
að þjónusta eins hjól myndi lið,
svona svipað og í formúlunni.
Að ofangreindu má því ráða að
keppnin verður mjög spennandi
á að horfa.
-NG
Bandaríkjamenn tefla fram öflugu og reyndu liði, sem sést hér að ofan, í Ryder-bikarnum í ár sem fram fer á þeirra eigin heimavelli um helgina. DV-mynd Reuter
33. Ryder-bikarinn fer fram í Brookline í Bandaríkjunum um helgina:
Hvað gera Bandaríkjamenn
- til að hindra Evrópumenn í að vinna sjöttu keppnina af síðustu átta?
Leikið verður með tveggja manna Texas Scramble
fyrirkomulagi.
Aðalverðlaun fyrir sigur á mótinu eru glæsileg
utanlandsferð fyrir tvo frá Samvinnuferðum-Landsýn
og farandbikar frá FM 95.7.
Fjöldi aukaverðlauna er í boði, þar á meðal KIA
CLARUS bifreið að andvirði 1.590.000.- frá Jöfri.
Korpúlfsstaóavöllur laugardagurinn 25. septeniber.
Mótsgjald er kr. 3000 á mann.
Skráning í síma 587-2211.
Verðlaunaafhending verður í beinni útsendingu hjá
Hvata og félögum á FM 95.7 þriðjudagsmorguninn
28. september.
iz
j 'íTjFj taij jgHl
Sami/inniilerúir
Landsyii
Golfveisla ársins hefst í dag í Brookline
í Bandaríkjunum þegar 24 bestu golfleik-
arar Bandaríkjanna og Evrópu hefja
keppni i 33. skiptið um Ryder-bikarinn.
Tólf eru í hvoru liði.
Bandaríkjamenn eru í þetta skiptið á
heimavelli en Evrópubúar hafa unnið
Ryder-bikarinn í funm af síðustu sjö
keppnum frá árinu 1985.
Bandaríska liðið er ekki árennilegt í
þetta skiptið, þar er Tiger Woods, efsti
maður á heimslistanum, auk 10 af 20 efstu
á heimslistanum og enginn spilara liðsins
er neðar en í 28. sæti á fyrmefndum
heimslista. Reynslan er einnig þeirra
megin, David Duval er eini nýliðinn á
sama tima og 7 af 12 Evrópuspilurum eru
að keppa í fyrsta sinn. Fjórir lykilmenn
Evrópu í undanfomum keppnum: Steve
Ballesteros, Ian Woosnam, Nick Faldo og
Bemhard Langer, em ekki með í ár og
það gæti veikt Evrópuliðið nokkuð.
Eftirtaldir spila saman í tvíleiknum i
dag sem markar upphaf 33. Ryder-bikars-
ins. Þar vekur mesta athygli að ungar
stórstjömur golfsins, Tiger Woods og
Sergio Garcia, mætast í leik tvö.
Leikur einn: Colin Montgomerie og Paul
Lawrie (Evrópa) gegn David Duval og Phil
Mickelson (Bandaríkjunum).
Leikur tvö: Sergio Garcia og Jesper Pamevik
(E) gegn Tom Lehman og Tiger Woods (B).
Leikur þrjú: Miguel Angel Jimenez og Padraig
Harrington (E) gegn Davis Love og Payne
Stewart (B).
Leikur fjögur: Lee Westwood og Darren Clar-
ke (E) gegn Jeff Maggert og Hal Sutton (B).
Keppni heldur síðan áfram á laugardag
og sunnudag með fjórleik og einstak-
lingskeppni þar sem spennan er jafnan
mest enda fer hún fram á lokadegi. -ÓÓJ
Meistarakeppni KKÍ 1999:
Til styrktar Laufinu
Meistarakeppni karla og kvenna í
körfubolta fer fram á næstu dögum og
þetta árið rennur allur ágóði til LAUF,
Landssamtaka áhugafólks um flogaveiki,
og mun ágóðinn renna til styrktar floga-
veikum bömum og til kynningar á floga-
veiki. í öO fjögur skiptin sem meistara-
keppnin hefúr verið haldin hefur allur
ágóði af leikjunum og auglýsingasölu í
kringum þá runnið til góðgerðarmálefna.
Leíkir meistarakeppninnar 1999 eru:
Laugardagm- 25. sept. kl. 17.00: KR - ÍS í
kvennaflokki í nýja KR-húsinu i Frostaskjóli.
Þriðjudagin- 28. sept. kl 20.00: Keflavík - Njarð-
vík í karlaflokki i Keflavik. -ÓÓJ
Mosfellingar meistarar
- meistaranna eftir sigur á FH-ingum að Varmá
Það þurfti framlengingu til að knýja
fram úrslit í leik Aftureldingar og FH
þegar liðin mættust í meistarakeppni
HSÍ í Mosfellsbæ í gær. Þegar tæp mín-
úta var til leiksloka og staðan var 23-22
Aftureldingu í vil fékk FH vítakast en
Bergsveinn Bergsveinsson gerði sér lít-
ið fyrir og varði skot Knúts Sigurðsson-
ar. Þá var ekki útlit fyrir að FH myndi
ná að jafna en vöm þess var þétt fyrir,
sókn Aftureldingar rann út í sandinn
þegar 10 sekúndur vom til leiksloka og
FH-ingar geystust í sókn. Brotið var á
einum leikmanni þeirra og aukakast
dæmt en í því gall flautan og leiktíminn
var úti. Lagleg flétta í aukakastinu end-
aði með fóstu skoti frá Guðmundi Peter-
sen og jafnaði hann metin og tryggði FH
framlengingu.
Afturelding hafði öll völd í framlenging-
unni og sigraði öragglega, 29-26. Leik-
urinn var ekki sérlega góður en lofar
engu að síður góðu fyrir komandi hand-
knattleikstímabil.
Mörk UMFA: Bjarki Sigurðsson 9/5, Magnús
M. Þórðarson 7, Jón A. Finnsson 4, Gintaras
3, Þorkell Guðbrandsson 3, Valdimar Þóris-
son 3. Bergsveinn Bergsveinsson varði 13/1.
Mörk FH: Guðmundur Pedersen 9/1, Hálfdán
Þórðarson 5, Gunnar Beinteinsson 4, Valur
Arnarson 3, Knútur Sigurðsson 2, Lárus Long
2, Sigursteinn Amdal 1. Egrdijus varði 10/1.
-ih
Handboltastelpurnar
byrja á morgun
Fyrsta umferð 1. deildar kvenna í
handbolta fer fram á morgun, laugar-
dag, klukkan 16.30. Þá mætast eftirtalin
lið: Stjarnan - Fram, FH - ÍR,
Grótta/KR - Víkingur, Haukar - KA,
og Afturelding - Valur. -ÓÓJ
Bjarki Sigurðsson skoraði
níu mörk fyrir Aftureldingu
gegn FH í meistarakeppni
HSI í gær og tók síðan við
meistarabikarnum í
leikslok.
DV-mynd E. Ó
Bikarúrslitaleikur KR og ÍA á Laugardalsvellinum á sunnudag:
Ólíkir pólar
- segir Bjarni Jóhannsson, fyrrum þjálfari Eyjamanna
Stórleikur ársins í knattspym-
unni fer fram á Laugardalsvellinum
á sunnudaginn en þá leiða saman
hesta sína nýkrýndir íslandsmeist-
arar KR-inga og Akumesingar.
Gríðarlegur áhugi er fyrir leiknum
og viðri vel eins og allt lítur út fyr-
ir er ekki ósennilegt að milli 6 og 7
þús. manns mæti á völlinn.
DV fékk Bjama Jóhannsson, fyrr-
um þjálfara ÍBV, til að velta leikn-
um fyrir sér en hann þekkir vel til
úrslitaleikja i bikarkeppninni.
- Margir eru þeirrar skoðunar
að KR-ingar vinni auðveldan sig-
ur en hvað segir Bjami um það?
Skagamenn geta stillt upp
öflugu liði
„Miðað við gengi liðanna undan-
farinn mánuð þá ætti þetta ekki að
vera mjög erfitt fyrir KR. KR-ing-
amir hafa státað af mjög heil-
steyptu liði á meðan Skagamenn
hafa verið brokkgengir með menn í
meiðslum og bönnum og einnig
urðu sárindi í kringum þjálfara-
skiptin. Þaö sem kemur á móti er
að Skaginn er með fln-
an mannskap og það
er ekki spuming að
þeir geta stillt mjög
öflugu liði á móti KR.
Á góðum degi hafa
Skagamenn sýnt mjög
góða leiki og það er
ekkert í mannskap
þeirra sem segir að
þeir geti ekki átt góð-
an leik. En til þess að
ÍA vinni KR verður
hver einasti leikmað-
ur ÍA að eiga toppleik og það getur
vel gerst. Ef skoðaðir era leikir lið-
anna í sumar þá vom Skagamenn
ívið sterkari í fyrri leiknum en í
þeim síðari misstu þeir mann út af
snemma leiks sem gerði það að
verkum að KR sigraði. Ef maður
þekkir Skagahjartað sem hefur ein-
kennt þá í gegnum þennan áratug
þá eiga þeir að geta peppað sig vel
upp fyrir þennan leik.“
Sóknarferna KR miklu
sterkari
- Hvar á vellinum telur þú að
leikurinn muni vinnast?
„Mesti munurinn á þessum lið-
um eru fjórir fremstu leikmennirn-
ir. Sóknarfema KR-inga er miklu
sterkari heldur en Skagamanna.
Feman hjá KR hefur skorað fleiri
mörk og átt fleiri stoðsendingar og
samvinna þeirra hefur verið miklu
meiri en hjá sóknarmönnum ÍA.
Þessir fjórmenningar hafa gefið KR-
ingum mikið líf og em langsterkasti
hluti liðsins.
Hvað varðar miðjuna þá er það
svolítið sérstakt að miðjumenn ÍA,
Heimir og Jóhannes, em menn sem
eru mikið í boltanum, dreifa spilinu
og eiga að vera fram á við á meðan
miðjan hjá KR, Sigursteinn og Þór-
hallur,
em
frekar
menn
sem
hugsa
um að
verjast
og
brjóta
niður.
Þama
mætast
tvær
gjörólíkar miðjur.
Ef maður tekur vömina þá er
ekkert vafamál að samvinna vam-
arinnar hjá KR er mun betri en hjá
ÍA. Hins vegar eru bakverðir Skaga-
Þrjú met í hættu
Þrjú met eru í hættu í bikarúrslitaleik
KR og ÍA á Laugardalsvelli um helgina.
' Skagamenn geta unnið 8. bikarúrslita-
leik sinn í röð og bætt sitt met og KR-
inga, sem unnu sjö fyrstu úrslitaleiki sína.
' i, Skagamenn geta fyrstir liða farið í
gegnum allar fimm umferðir bikarsins
án þess að fá á sig mark.
'Á.jKR-ingurinn Guðmundur Benedikts-
son getur að lokum orðiö fyrsti leik-
maður sögunnar til að skora 1 öllum fimm
umferðum bikarsins. -ÓÓJ
manna miklu sókndjarfari en KR-
inga.
Þegar markverðimir em skoðað-
ir hafa KR-ingar reynslumann í
markinu á meðan Skagamenn em
með ungan og efnilegan markvörð
sem hefur staðið sig vel í sumar.“
Mikill áherslumunur á
uppstillingu
Á mörgum stööum mætast mjög
ólíkir pólar og það er mjög
skemmtilegt að þó að liðin virðist
kannski ekkert óáþekk þá er mikill
áherslumunur á uppstillingu
manna. 9 af 21 marki ÍA í sumar
komu eftir fóst leikatriði á meðan
KR-ingar hafa fengið 80%
markanna á sig úr þessum atriðum.
Þama kemur enn einn ólíkur póll-
inn í þetta og ailir þessir hlutir gera
leikinn á sunnudaginn mjög spenn-
andi.“
- Þorir þú að spá fyrir um úr-
slit leiksins?
„Nei, en ef við miðum viö þetta
tímabil á þetta ekki að vera mjög
erfiður leikur fyrir KR en hins veg-
ar kemur á móti að mannskapur ÍA
hefur alla burði til að klára þennan
leik. Ég trúi ekki að það sé neitt
vanmat í gangi hjá KR. Skagamenn
tóku Eyjamenn í bakaríið í bikam-
um. Þeir náöu gríðarlegri stemn-
ingu í þeim leik og takist það í
þessum leik er ómögulegt að spá
fyrir um úrslitin," sagði Bjarni að
lokum.
Þjálfarar liðanna, Atli Eðvaids-
son og Ólafur Þórðarson, munu
ekki tilkynna byijunarlið sín fyrr
en á morgun en gera má ráð fyrir
því að þau líti svona út:
hallur
Kristján Finnbogason -
Sigurður Öm Jónsson, Þor-
móður Egilsson, David
Winnie, Bjami Þorsteins-
son - Sigþór Júlíusson, Þór-
Hinriksson, Sigursteinn
Gislason, Einar Þór Daníelsson -
Guðmundur Benediktsson, Bjarki
Gunnlaugsson.
Þetta er liðið sem Atli hefur teflt
fram í allt sumar þegar allir hafa
verið heilir.
Ólafur Þór Gunnarsson -
Sturlaugur Haraldsson,
Reynir Leósson, Gunnlaugur
Jónsson, Pálmi Haraldsson -
Unnar Valgeirsson, Alexand-
er Högnason, Jóhannes Harðarson,
Heimir Guðjónsson, Kári Steinn
Reynisson - Stefán Þórðarson.
Alexander hefur leikið í sumar í
stöðu miðvarðar en ekki er ólíklegt
að hann taki sína gömlu stöðu
aftast á miðjunni og glími við gamla
félaga sinn, Bjarka Gunnlaugsson,
þegar hann kemur til baka að sækja
boltann. -GH
Úrslit íslandsmótsins ráðast
- í haustralli Esso sem fram fer um helgina
oka
Þýskaland sigraöi Úkrainu, 3-0, í
undankeppni Evrópumóts
kvennalandsliða í knattspymu en
þjóðimar leika í sama riðli og ísland.
1800 áhorfendur í Þýskalandi sáu Inku
Grings skora tvö mörk og Doris
Fitschen eitt. Þetta var fyrsti leikur
fjórfaldra Evrópumeistara Þjóðverja í
keppninni en þeir taka næst á móti
íslandi í Oldenburg þann 14. október.
íkjölfar sölu Bolton á Dananum Per
Frandsen til Blackbum er rætt um aö
fleiri leikmenn verði seldir frá
félaginu til að rétta við fjárhag þess.
Nefndir em Claus Jensen, Andy Todd
og Eiður Smári Guðjohnsen.
Meira af Bolton. Eftir að Colin Todd
sagði upp starfi sínu sem
knattspymustjóri félagsins í fyrradag
er hafm leit að eftirmanni hans. Roy
Evans, fyrrum stjóri Liverpool, er einn
þeirra sem koma til greina í starfið og
sjálfur segist hann vera tilbúinn ef
kallið kemur. -ih/GH
Lokaumferð íslandsmótsins í rall-
akstri, haustrall ESSO, hefst i kvöld
klukkan 17.58 þegar fyrsti bill brun-
ar af stað inn á sérleið um Geitháls
ofan Reykjavíkur. Þaðan liggur leið-
in upp fyrir Hafnarfjörð til að gera
báðum endum höfuðborgarsvæðis-
ins jafiit undir höfði og baráttuglað-
ir hestaflasafnarar geysast klukkan
18.40 gegnum skógræktarveg um-
hverfis Hvaleyrarvatn. Næturhlé,
árdegishlé og samansöfnun laugar-
dag verður við ESSO-stöðina við
Reykjavíkurveg.
Þessar tvær leiðir eru nánast
undanrásir fyrir aðaiátökin sem
hefjast á laugardagsmorgun kl. 8.10
meö 30 km langri sérleið um Djúpa-
vatnsleið/ísólfsskála í átt að Krísu-
vík. Aðrar sérleiðir laugardagsins
eru: Kleifarvatn noröur kl 8.55,
Hvassahraun kl. 11.35, Kúagerði kl.
11.50, Stapi kl. 12.15, Reykjanesleið
kl. 12.48. Þessar sömu leiðir eru ekn-
ar til baka og ræst kl. 15.18 inn á
síðustu sérleið keppninnar um ís-
ólfsskála/Djúpavatn, 30 km, sem
endar við Sveifluháls.
Á mótorsportvef visir.is er lýsing
á sérleiðunum og staða efstu manna
í íslandsmótinu. Ekki er gott að átta
sig á stöðunni þvi sumir mega telja
öll stigin úr keppninni en aðrir ekki
og 5 keppnir af 6 telja. Almennt er
talið að Feðgamir Rúnar Jónsson
og Jón R. Ragnarsson á Subam
Impreza eigi mesta möguleika á að
hremma íslandsmeistaratitilinn. Þó
em þeir ekki stigahæstir fyrir síð-
ustu keppnina af því þeir hafa fallið
úr einni keppni en þeir hafa unnið
allar hinar og eiga þvi kost á fullu
húsi stiga með sigri um helgina.
Falli þeir hins vegar úr keppni er
draumurinn gamli og margendur-
tekni úr sögunni og líklegast að Páll
H. HaOdórsson og Jóhannes Jó-
hannesson á MMC Lancer veiji tit-
ilinn eftirsótta. -ÁS
Bikarúrslit 1999
Úrslitaleikur KR og ÍA í bikarkeppn-
inni fer fram á Laugardalsvellinum
klukkan 15 á sunnudaginn.
Eins og undanfarin ár hafa félögin
ákveðið skiptingu stuðningsmanna
sinna í stúkunni. KR-ingar verða í
suðurhluta eldri stúkunnar og í norð-
urhluta nýju stúkunnar en Skaga-
menn verða í norðurhluta eldri
stúkunnar og suðurhiuta nýju
stúkunnar.
Beiöursgestur á leiknum verður Dav-
íö Oddsson forsætisráðherra. Hljóm-
sveitin Land og synir mun skemmta
fyrir leik og 1 leikhléi.
Bragi Bergmann mun dæma leikinn.
Aöstoðardómarar verða Pjetur Sig-
urösson og Kári Gunnlaugsson og
Jóhannes Valgeirsson verður fjórði
dómarinn. Eftirlitsmaður KSÍ á leikn-
um verður Bannes Þ. Sigurðsson.
KR hefur 12 sinnum leikið til úrslita
i bikarkeppnini og 9 sinnum fagnað
sigri. KR mætti síðast Fram í úrslit-
um árið 1995 og hafði betur, 2-1.
Ekkert félag er með betra sigurhlutfall
út úr bikarúrslitaleikjum.
ÍA hefur 15 sinnum ieikið til úrslita.
7 sinnum hafa Skagamenn fariö með
sigur af hólmi en 8 sinnum hafa þeir
þurft að láta í minni pokann. 8 fyrstu
úrslitaleikjunum tapaði ÍA en í 7 síð-
ustu skipti hefur liðið signtð, síðast
árið 1996 en þá vann liðið IBV, 2-1.
23 ár eru liöin frá því Akumesingar
töpuðu síðast úrslitaleik í bikarkeppn-
inni en þá sigraði Valur ÍA, 3-0.
ÍA og KR hafa aðeins þrisvar sinnum
mæst í úrslitaleik bikarkeppninnar og
í ÖU skiptin hafa KR-ingar haft betur.
Áriö 1961, 4-3, áriö 1963, 4-1, og árið
1964, 4-0. Þetta verður hins vegar í 11.
sinn sem félögin eigast viö í bikar-
keppninni. 1 leikjunum 10 hefur KR
unnið 7 leiki og ÍA 3. Markatalan er
32-14 KR í vil.
Leió KR-inga í úrslitaleikinn hófst
með sigri á U-23 ára liði Þróttar, 3-0. í
16-liða úrslitunum haföi KR betur gegn
Fylki, 4-3, i 8-liða úrslitunum lagði KR
Stjömuna, 3-1, og I undanúrslitunum
hafði KR sigur á Breiðabliki, 3-0.
Skagamenn hafa enn ekki þurfl að
sækja boltann í netið hjá sér í bikar-
keppninni í ár en þetta er í fyrsta sinn
sem liö fer f gegnum fjórar umferðir
án þess að fá á sig mark. í 32-liða úr-
slitunum sigraöi ÍA lið Njarðvíkur,
4- 0, í 16-liða úrslitunum hafði ÍA betur
gegn U-23 ára liði Fram, 0-3, í 8-liða úr:
slitunum vom Víkingar lagðir aö velli,
5- 0, og í undanúrslitum lögðu Skaga-
menn bikarmeistara, ÍBV, 3-0.
Aöeins tvö liö, KR 1996 og Víkingur
1971, hafa farið alla leið í gegnum
bikarkeppnina án þess að fá á sig
mark en bæöi í þremur leikjum.
Þaö liö sem fer með sigur af hólmi
fær 500.000 krónur en tapliöið fær
250.000. Vífilfell gefur verðlaunaféð.
I fyrsta sinn i sögu bikarkeppninnar
veröur leikið til þrautar. Verði jafn-
tefli eflir 90 mínútur verður framlengt
í 2x15 mínútur og verði enn jafnt verð-
ur gripið til vítaspymukeppni.
Félögin veróa með forsölu á leikinn.
Á Akranesi verður forsala á bensín-
stöðvum Olís og á skrifstofu ÍA á Jað-
arsbökkum. í Reykjavík verður forsala
á bensínstöövum Skeljungs við Birki-
mel og Suðurströnd og einnig í Spörtu
á Laugavegi 49. Á leikdegi hefst miða-
sala klukkan 10 á Laugardalsvelli.
Miöaverö er krónur 1300 fyrir 17 ára
og eldri, 11-16 ára greiða 500 og böm
10 ára og yngri fá frítt. Miðamir em
ónúmeraðir. -GH/ÓÓJ