Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1999, Side 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1999
Fréttir
Ólafur Ragnar Grímsson axlarbrotnaði er hann féll af hestbaki i Landsveit i gær:
Dorrit felldi tar er hún
hlúði að forsetanum
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
íslands, féll af hestbaki og slasaðist
á öxl í útreiðartúr í Landsveit um
kvöldmatarleytið í gær. I hópi fylgd-
arfólks hans var Dorrit Moussaieff,
margfræg vinkona forsetans frá
London sem kom hingað til lands á
laugardag og hefur dvalið hjá forset-
anum síðan. Dorrit varð fyrst til að
hlúa að forsetanum þar sem hann lá
á jörðinni, kvalinn í öxl eftir fallið,
sveipa hann yfirhöfn sinni og búa
um hann sem hún best gat. Við-
staddir urðu vitni að því að Dorrit
felldi tár þar sem hún sat með höf-
uð forsetans í kjöltu sér og strauk
hár hans.
Tvær klukkustundir á kaldri
jörð
Slysið varð með þeim hætti að
hestur forsetans hnaut í aflíðandi
brekku. Við það rann hnakkurinn
til og forsetinn missti jafnvægið.
Eftir fcdlið reis hann ekki upp
heldur lá og beið aðstoðar. Með
forsetanum og Dorrit vinkonu
hans í þessum reiðtúr, sem því
miður endaði öðruvísi en ætlað
var, voru Haraldur Haraldsson,
framkvæmdastjóri í Andra, Gunn-
ar V. Andrésson ljósmyndari og
Sveinn R. Eyjólfsson, útgáfustjóri
DV og eigandi Leirubakka, þaðan
sem hrossin voru og reiðtúrinn
hófst.
Strax og ljóst varð að forsetinn
myndi ekki komast hjálparlaust til
bæja eftir fallið af hrossinu var
riðið eftir hjálp og von bráðar birt-
ist Þórir B. Kolbeinsson, heilsu-
gæslulæknir á Hellu, með sjúkra-
bifreið. Eftir stutta læknisskoðun
Þórir B. Kolbeinsson, heilsugæslu-
læknir á Hellu, veitir forsetanum
fyrstu læknisaðstoð á slysstað.
Forsetinn dúðaður f allt tiltækt á
kaldri jörðinni, skrámaður í andliti
og brotinn á öxl.
Þyrla Landhelgisgæslunnar komin
á vettvang. Hún lenti eins nærri for-
setanum og unnt var.
Dorrit Moussaieff strýkur hár forsetans skömmu eftir fallið. Hún vék ekki frá hlið hans meðan þyrlunnar var beðið
frá Reykjavík. Saman biðu þau ein í hálftíma eftir hjálp. DV-myndir gva.
var gripið til þess ráðs að biðja um
aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar
og fljúga með forsetann á Sjúkra-
hús Reykjavikur. Hafði forsetinn
þá legið í tvær klukkustundir á
kaldri jörð án þess að geta hreyft
sig og var farinn að kólna. Dimmt
var orðið þegar þyrlan lenti rétt
hjá slysstað og um hálftíuleytið í
gærkvöldi lenti hún með forsetann
og Dorrit Moussaieff, vinkonu
hans, á þyrlusvæðinu við Sjúkra-
hús Reykjavíkur þar sem forset-
inn var lagður inn. Við skoðun
kom í ljós að forsetinn var illa axl-
arbrotinn og líðan hans eftir atvik-
um.
Einn með Dorrit í silfurlituð-
um BMW
Ólafur Ragnar Grímsson og Dor-
rit, vinkona hans, komu að Leiru-
bakka í Landsveit síðdegis í gær á
nýrri, silfurlitaðri BMW-bifreið for-
setans. Forsetinn ók sjálfur með
Dorrit sér við hlið. Við komuna á
Leirubakka þáðu þau kaffi og
pönnukökur hjá staðarhöldurum
og Dorrit heilsaði fólki á íslensku
auk var auk þess mjög hrifin af
pönnukökunum. Að því loknu var
haldið í reiðskemmu þar sem gæð-
ingar voru beislaðir, lagt á og hald-
ið í reiðtúr sem ekki stóð nema í
um 20 mínútur vegna þeirra at-
burða sem fyrr var frá greint. Dor-
rit Moussaieff sýndi að hún er vön
reiðkona og lét gæðing sinn renna
á tölti þó svo hún hefði aldrei fyrr
sest á íslenskan hest. Þótti henni
sem fákur forsetans væri ekki nógu
Dorrit Moussaieff fylgist grannt með öllum aðgerðum á slysstað. Verið er að
koma forsetanum fyrir á börum fyrir flutning til Reykjavíkur.
viljugur og lánaði honum því písk.
Forsetinn var ekki fyrr búinn að fá
pískinn en hrossið hnaut og hann
féll af. Það fyrsta sem hann sagði
eftir fallið þar sem hann lá á kaldri
jörðinni í ljósaskiptunum var:
„Ætli hrossið hafi ekki kunnað að
meta pískinn sem Dorrit færði
mér.“
Kom með leynd
Dorrit Moussaieff kom fljúgandi
til landsins með mikilli leynd á
laugardaginn. Var henni fylgt frá
borði fram hjá hefðbundinni leið
komufarþega og ekið á fund forset-
ans með leynd. Á Leirubakka höfðu
þau hins vegar fallist á að hitta ljós-
myndara DV og veitt honum heim-
ild til að mynda þau að vild í góð-
um félagsskap og í fallegu lands-
lagi. En margt fer öðruvísi en ætlað
er - því kynntust forseti íslands og
Dorrit Moussaieff í Landsveitinni í
gær.
-EIR/-GVA
Stuttar fréttir i>v
Einokunarveldi
Jóhannes Gunnarsson, formað-
ur Neytendasamtakanna, segir
einokunarfyrir-
tæki urða græn-
meti til að
halda verðlagi
uppi. Georg
Ottóson, stjóm-
arformaður
Sölufélags garð-
yrkjumanna,
segir þetta rakalausan þvætting.
Dýrara grænmeti
Verð á grænmeti hefur hækkað
mun meira en neysluverðsvísitala
undanfarin ár, þrátt fyrir
tækninýjungar, hagræðingu og
framleiðsluaukningu í fram-
leiðslu á grænmeti. Þetta er ein af
meginniðurstöðum í lokaritgerð
Kristjáns Gíslasonar við við-
skiptafræðideild HÍ. Stöð 2
greindi frá.
Jaröskjálftar í nótt
Fimm litlir jarðskjálftar sem
mældust um og undir 1 stig á
Richter voru í nótt á Suðurlandi.
Upptök þeirra vora við Oddgeirs-
hóla í Hraungerðishreppi þar sem
4,3 stiga jarðskjálfti mældist um
fjögurleytið í gær.
Einn karl
28 manns hafa tilkynnt sig af ís-
lands hálfu til að sitja alþjóðlega
kvennaráðstefnu á íslandi um
konur og lýðræði um aðra helgi.
Af þeim er aðeins einn karlmað-
ur. Upphaflega var reiknað með
15 þátttakendum af hálfu íslands.
Vísir.is sagði frá.
70 missa vinnuna
Fátt bendir til annars en að
þeir starfsmenn sem sagt var upp
störfum hjá fiskvinnslufyrirtæk-
inu Sæunni Axels fyrr í sumar,
hætti störfum næsta fóstudag, 1.
október, alls um 70 manns. Enn á
ný virðist því stefna í það að mik-
ið atvinnuleysi verði hlutskipti
Ólafsfirðinga. Vísir.is sagði fi-á.
Ekki í fylkingarbrjóst
Jón Baldvin
Hannibalsson,
sendiherra ís-
lands í Wash-
ington, sagðist í
samtali við
fréttastofu Sjón-
varpsins ekki
verá á heimleið
til að leiða Samfylkinguna. Hann
hafi ekki veriö beðinn um slíkt.
Sameina og selja
í viðtali í nýjasta tölublaði SÍB-
blaðsins, málgagni bankastarfs-
manna, segist Finnur Ingólfsson
viðskiptaráðherra vera þeirrar
skoðunar að sameina eigi ríkis-
bankana og að því loknu komi til
greina að selja þá.
Gómaður á bikarleik
Á bikarúrslitaleik KR-inga og
Skagamanna á Laugardalsvelli
handtók lögregla eftirlýstan af-
brotamann i hópi átta þúsund
áhorfenda. Fíkniefni fundust á
honum við handtöku.
Betri lífeyrir
Ellilífeyrisþegi, sem hefur 90
þúsund króna fjármagnstekjur,
hefur næstum 40 þúsund krónum
meira úr að spila á mánuði held-
ur en sá sem hefur 90.000 kóna líf-
eyris- eða atvinnutekjur á mán-
uði. Dagur greindi frá.
Kæra kannski
Náttúruverndarsamtök íslands
lýsa miklum vonbrigðum með það
að Skipulags-
stofnun ríkisins
hafi fallist á að
lagður verði veg-
ur yfir Vatna-
heiði á Snæfells-
nesi. Árni Finns-
son, talsmaður
Náttúruverndar-
samtakanna, segir við Dag að sam-
tökin kæri líklega úrskurðinn. Svo
virðist sem stofnunin þori ekki að
taka af skarið og vísi kaleiknum því
til ráðherra. -SÁ