Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1999, Síða 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1999
Fréttir
sandkorn
Ástandiö á E1 Grillo verra en talið var:
Þrjú lekasvæði
- verðum að losna við þessa vá, segir bæjarstjóri
„Lekasvæðin virðast vera þrjú, að
sögn kafaranna. Þetta lítur því verr
út en menn áttu von á,“ sagði Ólafur
H. Sigurðsson, bæjarstjóri á Seyðis-
firði, er DV spurði hann hvernig
vinnu Áma Kópssonar og félaga við
E1 Grillo miðaði. Kafararnir eru nú
að háþrýstiþvo lekasvæðin og síðan
verður hafist handa við að þétta
þau. Þeir eru farnir að senda neðan-
sjávarmyndavélina um, að því er
Ólafur sagði, til að átta sig á því
hvort olía leki úr flakinu á fleiri
stöðum.
Ólafur sagði að olia, eins og sú
sem er í skipsflakinu, byrji að renna
við níu gráðu hita. Hún hefði farið
að renna i einhverjum mæli síðari
hluta júlí og ágúst. Nú væri mikið
magn komið upp.
„Við erum alltaf hræddastir við
að það gerist eitthvað meira og olían
byrji að streyma upp. Það er ekki
gott að átta sig á hvenær kominn er
dauðatími á þetta. Ég vona að þessi
rannsókn kafaranna leiði í ljós
hvaða tíma við höfum. Einhvern
veginn verðum við að losna við
þessa endalausu vá. Það er búið að
tala alltof lengi um þetta án þess að
eitthvað gerist. Ég held að ekki sé
eftir neinu að bíða með að stíga
skrefið til fulls. Þetta kostar pen-
inga, en það má líka spyrja hvað það
komi til með að kosta ef olía fer að
sullast hér upp í stórum stíl.“ -JSS
Akureyri:
Farið að móta fyr-
ir skautahöllinni
DV, Akureyri:
Það verða miklir dýrðardagar
hjá skautamönnum á Akureyri
næsta vetur þegar þeir fá til ráð-
stöfunar nýja glæsilega skauta-
höll sem framkvæmdir eru nú
hafnar við i Innbænum.
Skautamenn á Akureyri hafa
búið við gjörsamlega óviðunandi
aðstæður árum og áratugum sam-
an en þrátt fyrir það haldið uppi
merki skautaíþróttanna hér á
landi. Þegar brottfluttir Akureyr-
ingar hófu að beita sér fyrir því
að farið var að iðka íshokkí í höf-
uðborginni komu fljótlega fram
kröfur um byggingu skautahallar
þar en hún reis fyrir nokkrum
árum. Enn sátu Akureyringar eft-
ir, og sl. vetur máttu þeir svo
horfa á eftir íslandsmeistaratitl-
inum í íshokkí suður yfir heiðar
í fyrsta skipti.
Framkvæmdir við íþróttahöll-
ina á Akureyri hafa staðið yfir
undanfarna mánuði og er þegar
búið að steypa talsvert. Grind
hússins sjálfs er hins vegar inn-
flutt og þegar komin á staðinn og
mun verða hafist handa við að
reisa burðarbitana á næstu dög-
um. -gk
Skautahöllin á Akureyri er að „koma upp úr jörðinni" þessa dagana.
DV-mynd, gk.
Jarðboranirnar í Öxarfirði:
Borholan dýpkar og eftirvæntingin vex
DV, Akureyri:
Bormenn Jarðborana hf. hafa nú
borað rétt tæpan kílómetra niður í
jörðina á Austursandi í Öxarfirði,
eða um helming af þeirri dýpt sem
áætlað var að bora þar að þessu
sinni í leit að heitu vatni. Boranir
hafa gengið ágætlega, að sögn Franz
Ámasonar, formanns stjórnar Orku
ehf. sem stendur að boruninni. Byrj-
unarerfiðleikar hafa þó komið upp
með borinn sem notaður er en hann
er nýr af nálinni.
Þeir aðilar sem standa að Orku
ehf. eru Hita- og vatnsveita Akur-
eyrar, Jaröboranir ehf., Keldunes-
hreppur, Öxarfjarðarhreppur, Raf-
veita Akureyrar, Rafmagnsveitur
ríkisins, Orkuveita Húsavíkur og
Landsvirkjun. Áform eru uppi um
að fyrsta holan sem boruð verður og
nú er unnið að í Öxarfirði verði
1600-2000 metra djúp. „Nú þegar
boraðir hafa verið tæpir 1000 km er
berghitinn orðinn 240-280 gráður en
það er enn ekkert vatn komið inn í
holuna. Jarðvísindamenn segja það
vera af hinu góða, þeir vilja fá vatn-
ið inn þegar holan er orðin nokkru
dýpri, eða meira en 1000 metrar,"
segir Franz Árnason.
Hann segir menn ekki reikna
meö þvi að finna olíu eða gas á því
svæði þar sem nú er verið að bora
enda eigi það ekki að gerast ef
menn eru á réttu róli varðandi það
að fá upp heitt vatn til að breyta í
gufu. Menn hafa þó væntingar um
að gas eða olíu geti verið að finna
á öðrum stöðum í Öxarfirði en
engar áætlanir hafa verið fullgerð-
ar um að hefja leit að því.
-gk
Tilfinningalegt svigrúm
Fjölmiðlar hafa að
undanfórnu farið ham-
förum vegna hrein-
skilni forseta íslands
sem upplýsti
í sjónvarpsviðtali að
hann vildi fá frið til að
þróa ástarsamband við
konu. Forsetinn taldi
sig þurfa svokallað til-
finningalegt svigrúm
til að þróa ástarsam-
band sitt og breskrar
yfirstéttarkonu sem
hugsanlega myndi þá
sóma sér vel sem bú-
stýra á Bessastöðum.
Þar sem þróunarferlið
hafði staðið um nokk-
urra mánaða skeið og
ástmærin hafði komið
fram með með forset-
anum við opinberar at-
hafnir vissi hálf þjóðin
að hann var kominn á
sjéns. Því var ekki annað að gera hjá honum en
biðja þjóð sína um að fallast á að þetta væri ást í
leynum en ekki í meinum. Svo kom babb í bát-
inn. Forsetinn, sem nú er álitinn tilfinningar-
vera, hafði vart gert ástarjátningu sína í sjón-
varpi þegar erlend stórblöð fóru að velta sér upp
úr málinu. Þannig sagði blaðið The Times að
verðandi drottning íslendinga elskaði ekki for-
seta vorn. „Mér líkar vel við hann og dái ísland,
en það er allt og sumt,“ segir hin verðandi ís-
drottning kuldalega við Times um sambandið við
forsetann og meintan bónda á Bessastöðum. Þessi
yfirlýsing kemur flatt upp á forseta og þjóð sem
bundist hafa þöglu samkomulagi um að veita til-
fmnanlegt svigrúm svo ástin megi dafna og
þroskast í öruggu skjóli forsetabústaðarins á
Bessastöðum við undirleik sjófugla á hrímköldu
hausti. Það að verðandi drottning elski ekki sjálf-
an þjóðhöfðingjann er auðvitað fráleitt og rit-
stjóm Times skilur ekki málið. Það að konan seg-
ist dá ísland og bara líka vel við forsetann er auð-
vitað dulmál. Þegar frægt fólk segir við fjölmiðla
á krítískum tímapunkti að um sé að ræða vináttu
en ekki ástarsamband þá meinar það öfugt. Að
vera vinir þýðir ástvinir hjá þotuliðinu. Nú þeg-
ar forseti vor er kominn með annan fótinn inn í
heim þotuliðsins er hann því að sama skapi háð-
ur þeim lögmálum sem þar gilda. Dagfari hefur
það á hreinu að hin breska hástéttarstúlka elsk-
ar forsetann og það meira en lítið. Hann er sómi
sinnar þjóðar, sverð og skjöldur svo það hlýtur
bara að vera. The Times veit bara ekki betur og
heldur að forseti íslands sé einhver ótindur bóndi
sem drottning þotuliðsins hafi hirt upp af vegi
sínum. Sú var tið að ítalski stærðfræðingurinn
Galíleó var dæmdur fyrir að halda fram þeirri
firru að jörðin snerist I kringum sólu en sólin
væri ekki á fleygiferð í kringum jörðina eins og
almennt var talið í þá daga. Hann sagði þá með
þunga á leið úr réttarsalnum. „Hún snýst nú
samt.“
Dagfari sér forsetann í sporum ítalans mis-
skilda þar sem hann slítur blöð £if baldursbrá á
hlaðinu á Bessastöðum: „Hún elskar mig nú
samt.“
Dagfari
Sundlaug
Eins og áður hefur komið
fram í Sandkorni eru afdrif
Eyjabakka og
heimsókn Sivjar
Friðleifsdóttur
umhverfisráð-
herra þangað
mörgu tækifær-
isskáldinu hug-
stæð.
Gunnar
Thorsteins-
son yrkir:
Efperlunum fœkkar um
Fróniö
finnst mörgum þaó Ijóta
tjónid.
Af Eyjabökkum er eftirsjá
hér.
Skyldi Siv œtla aö synda um
lónið?
Kjarkurinn brást
Framsóknarkonur hugðust
halda ársþing sitt síðastliðna
helgi í Vík í Mýr-
dal. Eithvað
• brást þeim
kjarkurinn rétt
áður en þær
skunduðu til
Mýrdals eftir
að Jóhanna
Engilberts-
dóttir for-
maður hafði
fregnað að þar fyrir
austan væri vá fyrir dyrum og
Kötlugos yfirvofandi. Fram-
sóknarmönnum þar austur frá
þykir lítið hafa lagst fyrir val-
kyrjurnar og bíða nú í ofvæni
eftir því að sjá hvað stendur í
byggðamálaályktun þings sem
treysti sér ekki til að dvelja og
gista á þeim stað landsins sem
er hvað mest undir smásjá
allra helstu jarðvísindamanna
þjóðarinnar.
r
Iskugganum
Húmanistaflokkurinn ræðst
ekki á garðinn þar sem hann er
lægstur og ætlar
að afnema fá-
tækt, hvorki
meira né
minna, og byrj-
aði raunar á
því verki kl.
16.45 á fóstu-
daginn var
með því að
kynna verká-
ætlun flokksins
fyrir fréttamönnum við klukk-
una á Lækjartorgi. Eitthvað
virtust fréttamenn áhugalitlir
um málið því að þeir fáu sem
komu til fundarins rúmuðust
vel með Júlíusi Valdimars-
syni, talsmanni flokksins, í
skugganum af klukkunni...
Tekið í nefið
Nýlega var sagt frá því í
fréttum að ungir menn höfðu
sprengt upp
kamar á íþrótta-
vellinum í Þor-
lákshöfn. í frétt
RÚV af málinu
var vitnað i
Þröst Brynj-
ólfsson, yfir-
lögreglu-
mann í Ár-
nessýslu, sem
sagði að hægt væri að taka
kamarinn í nefið eftir spreng-
inguna. Þessi útskýring er æði
skondin og margir sáu atvikið
fyrir sér í öðru ljósi. Góður
hagyrðingur á Suðurlandi orti
af þessu tilefni:
Nú er alvég oröiö tryggt
aö aldrei fá þeir kvefiö.
BϚi kamri og kukalykt
kemur lögga í nefiö.
Umsjón Stefán Ásgrímsson
Netfang: sandkorn @ff. is