Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1999, Blaðsíða 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1999
Viðskipti
Þetta helst: -Viðskipti á Verðbréfaþingi alis 398 m.kr.,. -Viðskipti með hlutabréf námu 250 m.kr. Mest með
bréf íslandsbanka fyrir 70 m.kr., Marel 34 m.kr Opin kerfi 31 m.kr.,, .Nýherji hækkar um 5,6%. íslenskir aðalverktakar
lækka um 5,5%,,»Úrvalsvísitala lækkaði um 0,50% og er nú 1.376 stig..., Hlutabréfaviðskipti á árinu orðin 26 milljarðar
Markaðsvirði IS og
SÍF 9,2 milljarðar
í gær voru öll viðskipti með
hlutabréf í ÍS og SÍF stöðvuð á Verð-
bréfaþingi íslands. Ástæðan er sú
að frétta er að vænta í dag frá félög-
unum. Talið er líklegt að sameining
félaganna sé í vændum eða mjög
víðtækt samstarf en það verður
ekki ljóst fyrr en eftir hádegi í dag.
Fyrirtæki í dreifbýlinu:
Njóta ekki
jafnréttis í
símamálum
DV, Vesturlandi:
Nýverið sendi Markaðsráð
Borgfirðinga bréf til Landssímans
og þingmanna Vesturlands varð-
andi úrbætur í síma- og sam-
göngumálum. „Tilefni bréfanna
var það að Markaðsráð hefur að
undanfömu unnið að gerð mark-
aðsáætlunar fyrir Borgarfjörðinn,
í samvinnu við Atvinnuráðgjöf
Vesturlands og þróunarsvið
Byggðastofnunar. Myndaður var
stýrihópur sem var að störfum í
vetur og meðal þess sem þar var
rætt um voru samgöngumál.
Menn ræddu ekki einungis um
nauðsyn bættra samgangna fyrir
fyrirtæki heldur líka nauðsyn
þess að símasamskipti séu greið.
Þau eru með mikilvægari sam-
gönguleiðum nútimans. Greið
símasamskipti teljum við vera
eitt grundvallaratriði þess að fólk
geti notið kosta þess að búa í
dreifbýli án þess að búa við sam-
skiptalega einangrun.
Ég nefni sem dæmi að ýmiss
konar atvinnurekstur geti auð-
veldlega verið hvar sem er á land-
inu væru símasamskipti það góð
að fyrirtækin nytu jafnréttis á við
fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu.
Staðan er hins vegar slík í dag að
viða vantar ISDN-tengingarmögu-
leika og línur eru of fáar, auk þess
sem verðlagning er fjarlægðar-
tengd svo að samskiptakostnaður
er meiri fyrir þá sem búa í dreif-
býlinu. Við bárum okkur upp við
Landssímann vegna þessa og
nefndum þar sérstaklega eitt fyr-
irtæki sem dæmi sem er Teikni-
stofan Jaðar sem starfrækt er í
Bæjasveit hér í Borgarfirði. Sam-
skiptaörðugleikar höfðu valdið
því fyrirtæki verulegum vand-
ræðum. Landssíminn svaraði
okkur fyrst á þann veg að erfitt
væri að leggja út I mikinn kostn-
að eins og þann að leggja linur
langa leið þegar bara um eitt fyr-
irtæki veri að ræða. Síðan fékk
Jaðar loforð um úrlausn sinna
mála í sumar og það var auðvitað
þakkarvert, sagði Guðrún Jóns-
dóttir, framkvæmdastjóri Mark-
aðsráðs Borgfirðinga, við DV.
-DVÓ
Skipamiðlunin
Bátar & Kvóti
Sími: 568 3330
ht I p://w w w, vort e x.is/-sklp/
- stærstu sölusamtök landsins í bígerð?
Hins vegar hefur þrálátur orðrómur
um sameiningu verið á kreiki og á
fóstudaginn hækkaði gengi félag-
anna mikið.
Samkvæmt útreikningum Við-
skiptablaðsins yrði markaðsvirði
sameinaðs fyrirtækis um 9,2 millj-
arðar króna, miðað við núverandi
gengi bréfa félaganna á VÞÍ. Fyrir-
tækið yrði 9. verðmætasta félagið á
VÞÍ.
Síðasta viðskiptagengi bréfa SÍF
var 6,20 og markaðsvirði sam-
steypunnar þvi 6,5 milljarðar. í kjöl-
far hækkunar á markaðsvirði um
liðlega 30% i lok síðustu viku er
markaðsvirði ÍS nú 2,7 milljarðar
króna. Telja verður líklegt að sú
hækkun sé tilkomin vegna þessa
orðróms um sameiningu félaganna.
Samanlögð velta 24,5 milljarðar
Á fyrstu sex mánuðum þessa árs
var samanlögð
velta félaganna
24,5 milljarðar
króna. Þar af var
velta ÍS 14,9 millj-
arðar og SÍF 9,6.
Hagnaður SÍF var
51 milljón króna á
fyrri helmingi árs-
ins og ÍS hagnað-
ist um 39 milljón-
ir. Samanlagður
hagnaður nam því
um 80 milljónum
króna. Miðað við
það yrði V/H-gildi
sameinaðs félags
58. Eigið fé SÍF
var um mitt þetta
ár 2,9 milljarðar
króna og eigið fé
ÍS var 0,9 milljarð-
ar. Þann 30. júni
sameiginlegt eigið
íslenskar
sjávarafurðir
milljarðar
króna. Verði af
sameiningu fé-
laganna
tveggja verða,
miðað við
veltu, eigið fé
og mark-
aðsvirði, til
stærstu sölu-
samtök sjávar-
afurða á ís-
landi, en nú-
verandi mark-
aðsvirði Sölu-
miðstöðvar
hraðfrystihús-
anna hf. er 6,7
milljarðar
króna. Velta
SH á fyrri
hluta ársins
var 19,3 milljarðar og eigið fé fyrir-
tækisins 3,1 milljarður króna.
Stærstu fisksölusamtök iandsins
verða til ef af sameiningu ÍS og SÍF
verður.
síðastliðinn var
fé tæplega 3,9
EFA fjárfestir í sólarorku
Allied Efa hf., sem er í eigu Eign-
arhaldsfélagsins Alþýðubankinn hf.
og Allied Resom-ce Corporation,
hefur ásamt Alþjóðafjárfestingar-
samlagi Efa og Safeguard
International Fund keypt 48%
hlutafjár i norska fyrirtækinu
Renewable Energy Company (REC).
REC á nokkur fyrirtæki sem hafa
sérhæft sig í framleiðslu á sólarsell-
um og kerfum til þess að að fram-
leiða raforku úr sólarorku. Fram
kemur í frétt frá Allied Efa að sólar-
sellur eru framleiddar úr mjög
hreinum kisilmálmi. Hver fram-
leiðslueining er tiltölulega lítil en
orkufrek og getur hentað vel fyrir
ísland. Með þessari fjárfestingu
hafa ofangreindir fjárfestar öðlast
aðgang að mjög þróaðri tækni til að
vinna hátækniafurðir úr kísil-
málmi. Viðskiptavefurinn á Vísi
greindi frá.
Ekki samkeppnishæf
Raforka sem framleidd er úr sól-
arorku sé enn sem komið er ekki
samkeppnisfær við raforku sem
framleidd er úr öðrum orkugjöfum.
Sólarorkan er mjög hagkvæm þar
sem ekki er til staðar annað raf-
orkudreifikerfi, t.d. við merkjasend-
ingar frá afskekktum stöðum, end-
urvarp sjónvarps og í sumarhúsum.
Stærsti markaðurinn er þó í þróun-
arlöndum þar sem um tveir millj-
arðar manna hafa engan aðgang að
raforku, en í þessum löndum er
mikill vöxtur 1 rafvæðingu heimila,
skóla, opinberra stofnana og versl-
unarmarkaða með hjálp sólarorku.
Bent er á að um 20% vöxtur, að
meðaltali á ári, hafi verið í nýtingu
sólarorku á undanförnum árum og
spáð sé áframhaldandi vexti á því
sviði. Það muni leiða til þess að sól-
arorkan verði meðal mikilvægustu
orkugjafa á jörðinni á fyrri hluta
næstu aldar. Stefnt er að því að skrá
REC á markað innan tveggja ára.
Verðmæti botnfiskaflans stóreykst
Verðmætaaukning botnfiskafla er um tveir milljarðar.
Heildarverðmæti fiskaflans á
fyrri helmingi þessa árs var 32.372
milljónir króna sem er liðlega
tveggja milljarða aukning á verð-
mætum frá sama tímabili í fyrra,
samkvæmt frétt Hagstofunnar sem
birt var á föstudaginn. Aukning
skýrist eingöngu af auknu verð-
mæti botnfískafla.
Heildarverðmæti botnfiskaflans
nam 21.133 milljónum króna á fyrri
hluta ársins, samanborið við 26.110
milljónir á sama tímabili árið á
undan. Verðmæti þorskafla jókst úr
10.262 milljónum i 13.692 milljónir á
fýrri hluta þessa árs. Þá jókst verð-
mæti ýsuaflans úr 2.045 milljónum
króna árið 1998 í 3.011 milljónir
króna árið 1999.
Verðmæti uppsjávarafla dróst
saman milli ára. Á fyrri helmingi
síðasta árs nam það 5.330 milljónum
en á þessu ári 4.110 milljónum
króna. Verðmæti skel- og krabbaafla
dróst einnig verulega saman milli
ára, úr 3.876 milljónum i 2.145 millj-
ónir á fyrri helmingi þessa árs.
Samdráttur í júní
Heildarverðmæti fiskaflans í júní
sl. var 4.760 milljónir króna saman-
borið við 5.774 milljónir króna í júní
1998. í frétt Hagstofunnar kemur
fram að verðmæti botnfiskaflans í
júni á þessu ári var 3.608 milljónir
króna sem er 210 milljónum minna
en í sama mánuði í fyrra. Verðmæti
uppsjávaraflans dróst verulega sam-
an, fór úr 1.271 milljón króna í 775
milljónir i júni á þessu ári. Þá
minnkaði heildarverðmæti skel- og
krabbaafla um 306 milljónir frá ár-
inu á undan og nam 378 milljónum
króna í júní síðastliðnum.
Bókaverslanir semja við
Heildsölu Pennans
Fjórar bókaverslanir utan höf-
uðborgarsvæðisins undirrituðu á
fostudaginn samstarfssamning við
Heildverslun Pennans. í frétt frá
Pennanum kemur fram að samn-
ingurinn feli í sér að verslanirnar
fái beinan aðgang að vörudreifing-
armiðstöð Heildverslunar Penn-
ans. Þær bókaverslanir sem um
ræðir eru: Bókabúð Andrésar Ní-
elssonar Akranesi, Bókhlaðan ísa-
firði, Bókabúðin Heiðarvegi Vest-
mannaeyjum og Bókabúð Keflavík-
ur. Samningurinn mun einfalda
lagerhald og koma viðskiptavinum
búðanna til góða.
Búnaðarbankinn eignast
7,4% í Samvinnusjóðnum
Búnaðarbankinn hefur fest
kaup á 7,4% hlutaijár í Samvinnu-
sjóði íslands hf. Fyrir átti Búnað-
arbankinn ekki bréf i sjóðnum.
Miðað við gengi bréfa Samvinnu-
sjóðsins á VÞÍ er markaðsvirði
hlutarins rúmlega 140 milljónir
króna. f síðustu viku keypti FBA
stóran hlut i Samvinnusjóðnum
og hefur gengi félagsins hækkað
veralega. f síðustu viku nam
hækkunin 20%.
Rekstrarbati Hólmadrangs
Hagnaður Hólmadrangs hf. var
fjórar milljónir kr. á fyrstu sex mán-
uðum þessa árs, en Hólmadrangur
var rekinn með 61 milljónar kr. tapi
allt árið í fyrra. Viðskiptavefurinn á
Vísi.is greindi frá. Veltan fyrri hluta
þessa árs nam tæpum 359 milljónum
króna, samanborið við 710 milljónir
allt árið 1998.
Lifandi rauntími
í gær tók Kauphöll Landsbréfa í
notkun nýjung á Wall Street hluta
Kauphallarinnar. Nýjung þessi
felur í sér að viðskiptavinum
Kauphallarinnar býðst að fylgjast
með „lifandi" rauntíma gengi fé-
laga skráðum á Wall Street. Geng-
islisti þessi er „lifandi" sem gerir
það að verkum að allar gengis-
breytingar birtast jafnóðum og
þær eiga sér stað.
Ný efnahagsstjórn í Japan
Keizo Obuchi, forsætisráðherra
Japans, sagði í gær að f—
hann vonaðist til að kSB
skipuð yrði ný stjórn jj"
efnahagsmála fyrir kj*.
vikulok. Nýrri stjórn M
er ætlað að koma á
fót umtalsverðum
efhahagsumbótum. —Æ
Eitt af verkefnum nýrrar stjórn-
ar verður að skipuleggja ný fjárlög
sem eiga örva efnahag landsins.
Barist við jenið
Á fundi leiðtoga sjö helstu iðn-
ríkja heims, sem haldin er um þess-
ar mundir, hefur mikið verið rætt
um sterka stöðu jens gagnvart doll-
ar. Undanfarnar vikur hefur heyrst
orðrómur um að á fundinum verði
tekin ákvörðun um ákveðnar að-
gerðir til að koma í veg fyrir frek-
ari styrkingu á jeninu. Það eru
ekki miklar líkur á því að gripið
verði til sameiginlegs inngrips en
fjárfestar hafa þó varan á og ólík-
legt er að miklar sveiflur verði á
gengi jens á móti dollara þar til nið-
urstöður fundarins liggja fyrir.
Styttist í vaxtaákvörðun
A fostudaginn verður birt fram-
leiðsluvísitala í Bandaríkjunum.
Hún er talin vera lokaáhrifaþátt-
urinn fyrir fund Seðlabankaráðs
Bandaríkjanna þann 5. október.
Menn vilja meina að lítil hreyfing
muni verða á markaðnum þar til
NAPM-framleiðsluvísitalan hefúr
verið kynnt.