Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1999, Blaðsíða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1999
Útlönd
Stuttar fréttir i>v
Rússar geröur
loftárásir á
Grozní í nótt
Rússneskar orrustuflugvélar
héldu loftárásum sínum á Grozní,
hofuðborg Tsjetsjeníu, áfram í
nótt og morgun. Þær vörpuðu
sprengjum sínum á olíuvinnslu-
stöðvar og orkuver í eigu ís-
lamskra uppreisnarmanna.
Fréttastofan Interfax hafði eftir
embættismönnum í morgun að
fimmtán árásarferðir hefðu veriö
famar.
Talsmaður landvamaráðuneyt-
is Rússlands sagði í morgun að
hermenn hefðu verið sendir til að
styrkja vamir á landamærunum
að Tsjetsjeníu. Stjórnvöld í
Moskvu saka Tsjetsjena um að
skjóta skjólshúsi yfir uppreisnar-
menn sem stóðu fyrir mannskæð-
um sprengjutilræðum í nokkrum
rússneskum borgum.
Framboðsbrölt
Quayles félaust
Dan Quayle, fyrrum varaforseti
Bandaríkjanna, er hættur við að
keppast eftir forsetaefnisútnefn-
ingu Repúblikanaflokksins. Bæði
er að kosningasjóður Quayles er
nærri tómur og svo hefur varafor-
setinn fyrrverandi ekki átt mikilli
velgengni að fagna í skoðana-
könnunum. Ekki bætir úr skák að
Quayle hefur enn ekki tekist að fá
þjóðina til að gleyma því að hann
flaskaði einhvern tíma á því
hvemig skrifa ætti orðið fyrir
kartöflu á ensku.
George W. Bush, líklegur fram-
bjóðandi repúblikana, óskaði
Quayle alls hins besta.
Vígasveitir á Austur-Tímor áforma skæruhernað:
Gæsluliðar létu
til skarar skríða
Friðargæslusveitir Sameinuðu
þjóðanna beittu árásarþyrlum þegar
þær létu til skarar skríða gegn víga-
sveitum á bandi Indónesíu á Aust-
ur-Tímor í gærkvöld. Fimmtán
menn vom handteknir í þessari
annarri árás gæsluliða á bækistöðv-
ar vígamanna á einum degi. Ekki
kom til átaka og var engu skoti
hleypt af.
Gæsluliðarnir réðust til atlögu
gegn bænum Com, sem er austan
við héraðshöfuðborgina Dili, eftir
að fregnir bárast um að vígasveitir
gengju berserksgang á þessum slóð-
um, myrtu og kveiktu í.
Mark Kelly, herráðsstjóri friðar-
gæslusveitanna, sagði að lagt hefði
verið hald á nokkurn fjölda vopna í
árásinni í gærkvöld.
Indónesísk fréttastofa greindi frá
því í morgun að vígasveitirnar, sem
eru andvígar sjálfstæði Austur-
Tímor, hafl uppi áform um að efna
til skæruhernaðar gegn friðar-
gæslusveitunum. Að sögn fréttastof-
unnar sögðu foringjar vígasveit-
Ástralskur hermaður beinir byssu
sinni að meintum liðsmanni víga-
sveitanna á Austur-Tímor.
anna frá því á fundi með þúsundum
stuðningsmanna sinna rétt innan
landamæra Vestur-Tímor í gær-
kvöld.
Fundurinn var haldinn í bænum
Atambu þar sem sagt er að víga-
sveitirnar hræði liftóruna úr þús-
undum flóttamanna frá Austur-
Tímor með dólgshætti sínum.
Eurico Guterres, leiðtogi víga-
sveitanna, sagði fundarmönnum að
skæruhernaðurinn myndi hefjast
innan fárra daga.
William Cohen, landvarnaráð-
herra Bandaríkjanna, tók í gær
undir kröfur sem margir hafa gert
að undanförnu um að rannsaka ætti
voðaverkin á Austur-Tímor.
Tveir helstu leiðtogar sjálfstæðis-
sinna á Austur-Tímor, þeir Xanana
Gusmao og José Ramos-Horta, eru i
New York þar sem þeir hitta Kofi
Annan, framkvæmdastjóra SÞ, að
máli í dag. Þar munu þeir ræða um
aðdragandann að því að Austur-
Tímor verði sjálfstætt ríki, eins og
meirihluti íbúanna vill.
Kínverjar eru í óðaönn að búa sig undir að halda upp á fimmtíu ára afmæli alþýðulýðveldisins. Það var stofnað 1.
október 1949. Þessi glæsilega búna kona frá Innri-Mongólíu sótti sérstaka hátíðarveislu fyrir þjóðernisminnihluta
kínverska ríkisins sem haldin var í Peking í morgun.
Mótmælendur retta yfir
Milosevichjónunum
Um 15 þúsund manns söfnuðust
saman í miðborg Belgrad í gær-
kvöld og kröfðust afsagnar Slobod-
ans Milosevics Júgóslavíuforseta og
stjórnar hans. Hélt mannfjöldinn
gerviréttarhöld yfir forsetanum og
eiginkonu hans, Mirjönu Markovic.
Vora þau sökuð um að hafa lagt rík-
ið í rúst. Mannfjöldinn réttaði
einnig yfir bandamanni Milosevics,
Vojislav Seselj, og forsætisráðherra
Serbíu, Mirko Marjanovic. Vora
fjórmenningamir fundir sekir og af-
sagnar þeirra krafist.
Áður höfðu mótmælendur gengið
fram hjá aðalstöðvum lögreglunnar
og krafist þess að tæknistjóri óháðr-
ar útvarpsstöðvar yrði látinn laus.
Hann var handtekinn á sunnudags-
kvöld. Samkvæmt upplýsingum lög-
manns tæknistjórans var hann
dæmdur í vikufangelsi í gær fyrir
Konur í Belgrad mótmæla gegn
Milosevic Júgóslavíuforseta.
að hafa notað hátalara sina í mót-
mælagöngunni á sunnudagskvöld.
Þá tóku um 50 þúsund manns þátt í
mótmælum í Belgrad.
Stjórnarerindrekar segjast ekki sjá
þess nein merki að mótmælagöng-
umar séu það fjölmennar að þær
ógni veldi Milosevics.
í gær tóku um 6 þúsund manns
þátt í mótmælagöngu í borginni
Novi Sad og um 8 þúsund í Nis.
Vuk Draskovic, einn leiðtoga
stjórnarandstöðunnar, ítrekaði í
gær að hann sæi lítinn tilgang í
mótmælunum. Koma yrði Milosevic
frá í frjálsum og réttlátum kosning-
um. Draskovic benti á að hann hefði
skipulagt fjöldamótmæli i 10 ár án
nokkurs árangurs. „Það er ljóst að
ekki er hægt að sigra Milosevic með
tónleikum og göngum um götur og
torg,“ sagði Draskovic.
500 teknir af lífi
íraski kommúnistaflokkurinn,
sem er í útlegð, fullyrti í gær að
íraskar öryggissveitir hefðu tekið
um 500 manns, að mestu ung-
menni, af lífi í kjölfar tilraunar til
uppreisnar í mars síðastliðnum.
Loftsteinn í rúmið
Talið er að það hafi verið loft-
steinn sem hrapaði á hús fjöl-
skyldu í vesturhluta Japans á
sunnudagskvöld. Steinninn fór í
gegnum þakið og splundraðist í
marga hluta sem höfnuðu í rúmi
heimasætunnar.
Friðarverðlaun
Ezer Weizman, forseti ísraels,
varð undrandi og glaður í gær er
hann frétti að
ýmsir þjóðar-
leiðtogar hefðu
tilnefnt hann
til friðarverð-
launa Nóbels.
Weizman
kvaðst ekki
myndu verða
vonsvikinn fengi hann ekki verð-
launin þar sem hann hefði ekki
átt von á tilnefningu.
Styöur samkynhneigða
Mannréttindadómstóllinn í
Strasbourg lýsti því yfir í úr-
skurði í gær að það hefði verið
rangt af yfirmönnum í breska
hemum að reka þrjá menn og
eina konu vegna samkynhneigðar
þeirra.
Kemur peningum undan
Belgíska fyrirtækið Verkest,
sem á þátt i díoxinhneykslinu,
hefur sett yfir milljarð islenskra
króna á bankareikning í Lúxem-
borg. Fyrirtækið hefur átt í efna-
hagsvanda og því er hluti fjárins
talinn svartir peningar.
Venjuleg morð
Yfirvöld í Jórdaniu ráðgera nú
að breyta lögum svo að dæmt
verði fyrir morð, sem framin eru
til að bjarga fjölskylduheiðri, eins
og venjuleg morð. Karlar sem
myrða konur sínar vegna fram-
hjáhalds hafa verið dæmdir i 3
mánaða til 1 árs fangelsi.
Réttarhöldum frestað
Réttarhöldunum yfir Anwar
Ibrahim, fyrrverandi aðstoðarfor-
sætisráðherra
Malasíu, var
frestað í morg-
un eftir að
hann hafði
kvartað um
vanlíðan. An-
war, sem er
ákærður fyrir
samkynhneigð og spillingu, var
fluttur á sjúkrahús fyrir nokkrum
vikum í kjölfar fullyrðingar hans
um að honum hefði verið gefið
arsenik í fangelsinu.
Brúðurin skotin til bana
Brúður í New Jersey í Banda-
ríkjunum var skotin til bana þeg-
ar hún stillti sér upp fyrir mynda-
töku á brúðkaupsdaginn. Morð-
inginn var fyrrverandi unnusti
brúðarinnar.
Vilja flýta kosningum
Helstu stjómmálaflokkar
Indónesíu vilja flýta forsetakosn-
ingunum, sem fram eiga að fara í
nóvember, vegna veikrar stjómar
Habibies forseta.
Friöarferli í gangi
Mo Mowlam, ráðherra N-ír-
landsmála í bresku stjórninni,
hélt því fram í
gær að friðar-
ferlið væri enn
í gangi. Lýsti
ráðherrann því
yfir að mörgum
lífum hefði ver-
ið þyrmt vegna
vopnahlés írska
lýðveldishersins, IRA. Ofbeldið
væri miklu minna en áður. Það
vissu allir N-írar. Mowlam neit-
aði því að friðarferlið væru rann-
ið út i sandinn vegna pólitísks
karps.