Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1999, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1999, Síða 15
ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1999 15 Tíska Ofurfyrsætan Eva Herzigova skartar hér hvítum kvöldkjól eftir ítalska hönnuðinn Marchese Coccapani á tfskuvikunni f Mílanó. Kvenleg snið og Ijósleit efni voru áberandi í sumarlínu Coccapanis fyrir árið 2000. Stuttir toppar og pínupils halda greinilega áfram að vera f tísku næsta sumar. Fötin koma úr smiðju tísku- hönnuðanna Stefanos Gabbana og Domenicos Dolce en þeir voru að sjálfsögðu mættir með vor- og sumarlínuna fyrir árið 2000 á tískuvikuna sem nú stendur yfir í Mílanó á Ítalíu. Alþjóðleg hársýning var haldin í Sofíu f Ungverjalandi um helgina og voru brúðar- greiðslur áberandi. Greiðslan hér að ofan er verk hins virta hárgreiðslumeistara, Tamöru Mihalevu. ■ - áfk Plastefni voru áberandi í sumarlfnu japanska tísku- hönnuðarins Michíko Koshin- os sem var síðastur til að kynna fatnað sinn f tfskuvik- unni í London. Koshino hefur alltaf þótt djarfur í hönnun sinni og olli aðdáendum sínum svo sann- arlega ekki vonbrigðum í þetta sinn. Framtíðarfatnaður var hins vegar lítt áberandi á tískuvikunni í London og þótti Koshino skera sig skemmtilega úr. |P' •: > , Tískuvika í London og Mílanó: Svart ekki lengur 1 tisku Ofinn toppur í flegnari kantinum var meðal þess sem tískuhönnuð- urinn Copperwheat Blundell vill sjá konur skarta sumarið 2000. Fatalína Blundeils var kynnt á tískuvikunni í London sem nú er ný- lokið. Tískuvikunni í London er nýlokið en tískuvikan í Mílanó er nýhafin. Það er vor- og sumartískan fyrir árið 2000 sem er í brennidepli og sjaldan ríkt jafnmik- il eftirvænting og nú enda árþúsundaskipti í vændum. Það er álit margra þeirra sem fjalla um tísku að ekki hafi áður jafhmargir hönnuðir leitað hugmynda í fortíðinni. Svokallaður framtíðarfatnaður hefur verið ótrúlega litið áberandi, helst hjá japanska hönnuðin- um Koshino, en þess í stað hafa kvenlegar línur, mildir litir og áferðafalleg efni verið látin njóta sín. Þá þykir það tíð- indum sæta að á tískuvikunni í London har óvenjulítið á svörtum fatnaði. Haft var eftir tískuhönnuð- inum Paul Smith að löngu og erf- iðu tímabili svarta litarins væri nú loks lokið. Bjartir litir bæru vott um bjartsýni við upphafi nýrrar aldar. Bjkinj og peysa ættu að henta vei hér á landi en hugmyndin er ættuð úr Blumarine-tískuhús- inu. Sundfatatíska Blumarine þykir afar glæsileg og hlaut mikið lof í Mílanó.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.