Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1999, Side 26
42
ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1999
Afmæli
Jón
Jón Guðlaugsson, Sogavegi 98,
Reykjavík, er áttræður í dag.
Starfsferill
Jón fæddist í Vík í Mýrdal, ólst
þar upp og átti þar heima til 1961.
Hann fór ungur að vinna almenn
sveitastörf og stundaði auk þess ver-
tíðir í Vestmannaeyjum eins og þá
tíðkuðust.
Jón var bifreiðarstjóri hjá Kaup-
félagi Vestur-Skaftfellinga i Vík í
Mýrdal 1944-61 er hann og fjöl-
skylda hans fluttu til Reykjavíkur
þar sem hann hefur átt heima síðan.
í Reykjavík var Jón bifreiðar-
stjóri hjá ísbirninum til 1970. Hann
hóf þá störf hjá Áburðarverksmiðju
ríkisins og var þar bifreiðarstjóri
þar til hann lét af störfum fyrir ald-
urs sakir 1990.
Guðlaugsson
Fjölskylda
Jón kvæntist 24.5. 1945
Margréti Ögmundsdóttur,
f. 9.8. 1925, húsmóður.
Hún er dóttir Ögmundar
Ólafssonar, vélstjóra í
Vestmannaeyjum, og k.h.,
Guðrúnar Jónsdóttur hús-
móður.
Böm Jóns og Margétar
em Guðrún Jónsdóttir, f.
15.3. 1948, skrifstofumað-
ur, búsett í Mosfellsbæ,
gift Oddi Þórðarsyni, f.
27.10. 1944, starfsmanni hjá Rann-
sóknarstofnun byggingariðnaðar-
ins, og eiga þau fjögur böm; Jóna
Jónsdóttir, f. 6.11. 1949, skrifstofu-
maður, búsett á Selfossi en sambýl-
ismaður hennar er Pétur Eiríksson,
f. 8.1. 1952, bifvélavirki, og eiga þau
fjögur böm; Guðlaugur
Gunnar Jónsson, f. 27.2.
1951, bifreiðarstjóri, bú-
settur í Þykkvabæ,
kvæntur Sigríði Ingunni
Ágústsdóttur, f. 8.4. 1959,
húsmóður, og eiga þau
fjögur börn.
Systkini Jóns era Jakob,
f. 1917, d. 1992, bóndi og
póstur í Skaftafelli í Ör-
æfúm; Valgerður, f. 1918,
húsmóðir, nú á Hrafn-
istu í Hafnarfirði; Anton,
f. 1920, d. 1993, bifreiðar-
stjóri í Vík í Mýrdal; Guðrún, f.
1922, d. 1999, húsmóðir í Reykjavík;
Guðfinna, f. 1923, d. 1998, húsmóðir
í Reykjavík; Sólveig, f. 1924, hús-
móðir í Reykjavík; Guðlaug Sigur-
laug, f. 1926, húsmóðir í Vík í Mý-
dal; Einar, f. 1927, d. 1996, starfsmað-
ur hjá Isal, búsettur í Mosfellsbæ;
Guðbjörg, f. 1929, húsmóðir á Sel-
fossi; Ester, f. 1931, húsmóðir í Vík í
Mýrdal; Ema, f. 1932, húsmóðir í
Reykjavík; Þorsteinn, f. 1933, d.
1999, bifreiðarstjóri í Reykjavík;
Svavar, f. 1936, bóndi að Fagrahóli í
Fljótshlíð; Guðlaug Matthildur, f.
1938, húsmóðir í Vík í Mýrdal.
Foreldrar Jóns voru Guðlaugur
G. Jónsson, f. 1894, d. 1984, pakkhús-
maður hjá Kaupfélagi Vestur-Skaft-
fellinga í Vik í Mýdal, og k.h., Guð-
laug Matthildur Jakobsdóttir, f.
1892, d. 1938, húsmóðir.
Jón og Margrét og böm þeirra
taka á móti gestum í Harðabóli í
Mosfellsbæ, félagsheimili hesta-
manna, sunnudaginn 3.10. frá kl.
14.00-18.00.
Jón Guðlaugsson.
Jón Gunnar Guðmundsson
Jón Gunnar Guðmundsson, fyrrv.
stýrimaður og skipstjóri, nú lager-
stjóri, Furabergi 7, Hafnarfirði, er
fimmtugur í dag.
Starfsferill
Jón Gunnar fæddist í Reykjavík
og ólst þar upp til 1960 og síðan i
Kópavogi. Hann lauk gagnfræða-
prófi frá Kársnesskóla, hóf nám við
Stýrimannaskólann í Reykjavík og
lauk þaðan farmannaprófi 1974.
Jón Gunnar var stýrimaður á
Bergþóri frá Keflavík að námi
loknu og var auk þess á loðnuveið-
um.
Jón Gunnar og fjölskylda hans
fluttu til Akureyrar 1978 og vom
þar búsett til 1993. Þar var Jón
Gunnar stýrbnaður og skipstjóri á
togurum Útgerðarfélags Akureyr-
inga. Þau flutti síðan aftur suður
1993. Jón Gunnar hætti til sjós um
það leyti og er nú lagerstjóri hjá fyr-
irtækinu Samhentir í Hafnarfirði.
Fjölskylda
Jón Gunnar kvæntist 29.5. 1971
Margréti Völu Grétarsdóttur, f. 16.7.
1951, húsmóður og starfsmanni við
Setbergsskóla. Hún er dóttir Grét-
ars Óttars Gíslasonar, f. 1932, og
Kristínar Baldvinu Jónsdóttur, f.
1929.
Böm Jóns Gunnars og
Margrétar Völu eru Bald-
vina Guðrún Jónsdóttir, f.
26.2. 1972, hárgreiðslu-
kona í Hafnarfirði, en
maður hennar er Gutt-
ormur Pálsson og era
böm þeirra Andrea og
Valmar; Jón Daníel Jóns-
son, f. 21.8.1975, sjómaður
í Hafnarfirði en dóttir
hans er Daníela Líf; Am-
ar Valur Jónsson, f. 21.5.
1988, nemi.
Systkini Jóns Gunnars
em Kristinn Guðmundsson, f. 1954,
búsettur í Danmörku; Ólafur
Sveinn Guðmundsson, f. 1958,
starfsmaður Tölvu-
mynda í Reykjavík; Guð-
rún Hrefna Guðmunds-
dóttir, f. 1960, sölumaður
í Reykjavík.
Foreldrar Jóns Gunnars:
Guðmundur Karlsson, f.
1919, d. 1979, blaðamaður
við Vísi og slökkviliðs-
maður hjá Slökkviliði
Reykjavíkur, og Anna
Guðný Jónsdóttir, f. 1930,
húsmóðir.
Jón og Vala taka á móti
ættingjum og vinum að
heimili sínu, Furubergi 7, Hafnar-
firði, laugardaginn 2.10. eftir kl.
19.00.
Jón Gunnar
Guðmundsson.
Andlát
Ingvar J. Helgason
Ingvar Júlíus Helgason
forstjóri.Vonarlandi við
Sogaveg, Reykjavík, lést í
Reykjavík 18.9. sl.
Jarðarför hans fer fram
frá Bústaðakirkju í dag,
þriðjudaginn 28.9. kl. 13.30.
Starfsferill
Ingvar fæddist að Vífils-
stöðum 22.7. 1928 og ólst
þar upp. Hann lauk prófi
frá Samvinnuskólanum í
Reykjavík 1948.
Ingvar hóf þá störf hjá Helga
Lámssyni frá Klaustri, sem rak
Packard-umboðið, Fataverksmiðj-
una Sunnu og sá um útgáfu tímarits
Jónasar Jónssonar, Ófeig. Hann
starfaði síðan hjá Innkaupastofnun
ríkisins 1951-60.
Ingvar sneri sér alfarið að rekstri
eigin fyrirtækis, Ingvar
Helgason hf., 1960 sem þá
flutti inn leikföng og
gjafavöra og seldi í heild-
sölu. Fyrirtækið hóf síð-
ar innflutning og sölu
bifreiða 1963, fyrst
Trabant en síðan bættust
við Wartburg, Nissan og
Subaru. Einnig flytur
fyrirtækið inn landbún-
aðarvélar og tæki, þ.á m.
Massey Ferguson drátt-
arvélar, Linde lyftara
o.m.fl.
Árið 1993 stofnaði Ingvar og fjöl-
skylda hans fyrirtækið Bílheima
ehf. sem flytur inn Opel, Isuzu, Saab
og GM bifreiðar. Ingvar var meðal
stofnenda Junior Chamber á íslandi
og var fyrsti forseti sambandsins
1960-61. Hann átti sæti í stjóm BU-
greinasambandsins 1984-88. Ingvar
var sæmdur riddarakrossi fálka-
orðunnar 1999.
Fjölskylda
Ingvar kvæntist 13.11. 1948
eftirlifandi eiginkonu sinni, Sigríði
Guðmundsdóttur, f. 19.6. 1926, for-
stjóra Bjarkeyjar ehf. Hún er dóttir
Guðmundar Ágústs Jónssonar og
Elísabetar Einarsdóttur.
Böm Ingvars og Sigríðar era
Helgi, f. 9.4. 1949, framkvæmda-
stjóri, kvæntur Sigríði Gylfadóttur
en fyrri kona hans var Halldóra G.
Tryggvadóttir sem er látin; Guö-
mundur Ágúst, f. 13.4. 1950, fram-
kvæmdastjóri og formaður HSÍ,
kvæntur Guðríði Stefánsdóttur; Júl-
íus Vifill, f. 18.6.1951, framkvæmda-
stjóri og borgarfulltrúi, kvæntur
SvanhUdi Blöndal; Júlía Guðrún, f.
7.8. 1952, sérkennari, gift Markúsi
K. MöUer; Áslaug Helga, f. 21.6.1954,
kennari; Guðrún, f. 20.7. 1955, sölu-
stjóri Bjarkeyjar ehf., gift Jóhanni
G. Guðjónssyni; Elísabet, f. 20.7.
1955, d. 24.6. 1958; Elísabet, f. 5.9.
1957, framkvæmdastjóri Bjarkeyjar
ehf., gift Gunnari Haukssyni; Ingv-
ar, f. 5.6. 1960, læknir, kvæntur
Helgu H. Þorleifsdóttur.
Bamaböm Ingvars og Sigríðar
em nú tuttugu og fimm talsins.
Systkini Ingvars: dr. Guðrún
Pálína, f. 19.4. 1922, fyrrv. skóla-
stjóri; dr. Láms Jakob, f. 10.9. 1930,
yfirlæknir; Sigurður, f. 27.8.1931, d.
26.5.1998, fyrrv. sýslumaður á Seyð-
isfirði; Júlíus f. 24.12. 1936, d. 27.2.
1937; Júlía, f. 14.7. 1940, d. 17.6. 1950.
Foreldrar Ingvars vom dr. Helgi
Ingvarsson, f. 10.10. 1896, d. 14.4.
1980, yfirlæknir á Vífilsstöðum, og
k.h., Guðrún Lárusdóttir, f. 17.3.
1895, d. 4.3. 1981, húsmóðir.
Ætt
Systur Helga vom Ingunn, amma
Vigfúsar Ingvarssonar, pr. á EgUs-
stöðum, og Soffia, borgarfuUtrúi í
Reykjavík, amma Sveinbjamar I.
Baldvinssonar rithöfundar. Helgi
var sonur Ingvars, pr. á Skeggja-
stöðum, Nikulássonar. Móðir Ingv-
ars var Oddný, systir Jóns, langafa
Jónatans, föður HaUdórs, fyrrv. for-
stjóra Landsvirkjunar. Oddný var
dóttir Jóns dýrðarsöngs í Hauka-
tungu, Pálssonar.
Móðir Helga yfirlæknis var Júlía,
systir Páls á Þingskálum, afa Magn-
úsar Kjaran stórkaupmanns, foður
Birgis alþm. Júlía var einnig systir
Jóns, afa Jóns Helgasonar, skálds
og prófessors. Júlia var dóttir Guð-
mundar, ættfoður Keldnaættarinn-
ar, Brynjólfssonar, b. á Vestri-
Kirkjubæ, Stefánssonar, b. í Árbæ,
Bjamasonar, ættföður Víkingslækj-
arættar, HaUdórssonar.
Guðrún Lárusdóttir var systir
Páls, föður Lámsar leikara. Guðrún
var dóttir Lámsar, smáskammta-
læknis í Reykjavík, Pálssonar, b. í
Amardrangi í Landbroti, Jónsson-
ar, pr. á KálfafeUi, Jónssonar. Móð-
ir Páls var Guðný Jónsdóttir, eld-
prests, Steingrímssonar.
Móðir Guðrúnar Lárusdóttur var
Guðrún Þórðardóttir frá Höfða á
Vatnsleysuströnd. Móðir Guðrúnar
var Sesselja Þórðardóttir.
Áskrifendur fá I
im< i:
aukaafslátt af Smáauglýslngar
smáauglýsingum DV
Ingvar J. Helgason.
Hl hamingju
með afmælið
28. september
85 ára
Kristín Grímsdóttir,
Bólstaðarhlíð 41, Reykjavík.
80 ára
Ástdís Aradóttir,
Kárastíg 6, Reykjavík.
Guðmundur Sigurðsson,
Ósi, Breiðdalshreppi.
Ingólfur Hallsson,
Steinkirkju, Hálshreppi.
Margrét Sveinbjömsdóttir,
VíðUundi 25, Akureyri.
Nikulás Guðmundsson,
Sólheimum 25, Reykjavík.
Þuríður Briem,
Mánagötu 11, Reyðarfirði.
75 ára
Elísabet Eggertsdóttir,
Garðavegi 19, Hvammstanga.
70 ára
Gunnþórunn
Friðriksdóttir,
Lækjarósi,
Dýrafirði.
Eiginmaður
hennar var Jón
K. Valgeirsson, bóndi að
Lækjarósi, sem lést í vor.
Anna Pálsdóttir,
Lundargötu 4, Reyðarfirði.
Hans Randversson,
Norðurgötu 54, Akureyri.
Magnús Jónasson,
Hjallastræti 25, Bolungarvík.
Sigurbjörg
Guðmundsdóttir,
Öxl I, Sveinsstaðáhreppi.
60 ára
Eðvarð Guðmundsson,
Stórateigi 29, MosfeUsbæ.
Halldór Bemódusson,
Helgubraut 17, Kópavogi.
Kristín Guðbjartsdóttir,
Neðstaleiti 2, Reykjavík.
Pálína Gústafsdóttir,
Fossvegi 6, Siglufirði.
Sigrún Andrewsdóttir,
Brúnastekk 11, Reykjavík.
Sigurbjörg Forberg,
Grjótaseli 9, Reykjavik.
50 ára
Einar K. Sigurgefrsson,
Marargrund 14, Garðabæ.
Kolbrún M. H. Jónsdóttir,
Esjugmnd 44, Reykjavík.
Kristinn Valdimarsson,
Ránargötu 19, Reykjavík.
Margrét MöUer,
Húsalind 22, Kópavogi.
Ragnheiður Einarsdóttir,
Álftárósi, Borgarbyggð.
40 ára
Anges Kragh Hansdóttir,
Brekkubyggð 14, Garðabæ.
Brigitte Bjamason,
SólvöUum 15A, Austur-Héraði.
Elínborg Gísladóttir,
Barmahlíö 38, Reykjavík.
Erna Gísladóttir,
Bogaslóð 20, Höfn.
Guðmundur Jóhannesson,
Hrísateigi U, Reykjahreppi.
Guðmundur Guðlaugsson,
Svarfaðarbraut 22, Dalvík.
Jóhann Pétur Guðjónsson,
Grundarbraut 41, Ólafsvík.
Karl Friðrik Thomsen,
Keflavíkurgötu 23,
HeUissandi.
Katrín Hulda JúUusdóttir,
Austurströnd 10,
Seltjamamesi.
Kristín G. Klemensdóttir,
Botnahlíð 29, Seyðisfirði.
Láms G. Valdimarsson,
Aðalstræti 27, fsafirði.
Sesselja I. Jósefsdóttir,
Teigagerði 17, Reykjavík.
Þorvaldur S. Benediktsson,
Eiðum, Austur-Héraði.