Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1999, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1999, Blaðsíða 2
FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 1999 Fréttir Stuttar fréttir i>v Framkvæmdastjóri verktakafyrirtækis sem skaffar Odincovumönnum vinnu: Skellti nánast á formann Eflingar - Útlendingaeftirlitið sett í málið „Það hefur engin ósk borist hing- að um undanþágu til að Lettamir fái að vinna hér,“ segir Halldór Björnsson, formaður stéttarfélags- ins Eflingar, um atvinnumál lett- nesku sjómannanna af Odincovu. Eins og fram kom í gær starfa sjó- mennirnir hjá verktakafyrirtæki í Reykjavík og hafa undanfarið mætt til vinnu eldsnemma á morgnana og unnið langt fram á kvöld við loka- frágang á húsi íslandspósts við Höfðabakka. Þeir hafa fengið greitt í reiðufé enda hafa þeir ekki leyfi lögum samkvæmt til að starfa á ís- landi. Lettarnir hafa verið um borð í skipi sínu allt síðan í febrúar eða um 8 mánaða skeið vegna þess aö þeir hafa ekki fengið laun greidd. Þeir hafa fengið aðstoð frá mörgum í formi matargjafa. Meðal þeirra sem hafa hjálpað þeim em forsvars- menn Byrgisins, meðferðarheimilis fyrir unglinga, sem hafa gefið þeim að borða. Halldór Björnsson kannaði at- vinnumál Lettanna í gær eftir að frétt DV birtist enda starfa þeir á fé- lagssvæði Eflingar. Hann segist hafa haft samband við fram- kvæmdastjóra fyrirtækisins sem hafi ekkert viljað um málið tala að öðru leyti en því að hann hafi sagt Odincovumenn voru að vinna í húsi íslandspósts í gærmorgun. Hörkuduglegir en slitnir, sagði framkvæmdastjór- inn. DV-mynd S Lettana vera að dunda eitthvað hjá sér. „Hann nánast skellti á mig. Við munum í samráði við lögmann okk- ar rita Útlendingaeftirlitinu bréf þar sem við förum fram á að það kanni málið. Það er venjuleg af- greiðsla frá okkar hendi þegar svona mál koma upp,“ segir Hall- dór. í dag áformuðu lettnesku sjó- mennirnir að grípa til mótmæla- stöðu framan við húsnæði Sjóvár- Almennra sem þeir telja brjóta á sér vegna þess að félagið gengur að veði í skipinu Erlu sem er í eigu sama útgerðarmanns og hefur verið kyrr- sett í Kanada. -rt Varaformaður Neytendasamtakanna: Fullviss um að grænmeti er urðað - til að viðhalda háu verði „Við höfum þær upplýsingar um að urðun hafi átt sér stað, að ekki er minnsta ástæða til að ve- fengja þær. Þetta eru algjörlega haldbærar upplýsingar og meira að segja staösetningar á því hvar urðun fór fram,“ segir Jón Magn- ússon, varaformaður Neytenda- samtakanna, Hann fullyrðir að dreifingaraöilar stjórni markaðs- verði með því að fleygja grænmeti og halda þannig uppi háu verði. Dreifingaraðilar hafa sagt það uppspuna einan að þeir fleygi grænmeti. Það eina sem urðað sé af vörunni sé skemmt græn- meti. Aðspurður hvort þessir að- ilar segi þá ósatt segir Jón. „Já, það er rangt. Þessir að- ilar hafa haldið uppi verði með því að fleygja grænmeti." -rt Jón Magnús- son. Tillaga um Fljótsdalsvirkjun: Borgarstjórn krefj- ist umhverfismats „Ég treysti því að fyrir þessu máli sé meirihluta- stuðningur í borg- arstjóm," segir Ólafur F. Magnús- son, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, en Ólafur hyggst leggja fram tillögu í borgarstjórn um Ólafur F. Magn- að hún skori á Al- ússon. þingi að sjá til þess að fram fari lög- formlegt umhverfismat vegna Fljóts- dalsvirkjunar. Ólafur segir að þrátt fyrir að hann leggi tillöguna fram i eigin nafni viti hann til þess að hún njóti stuðnings innan hóps borgarfulltrúa Sjálfstæðis- flokksins. „Þetta mál er þverpólitískt og það er mikilvægt að menn láti ekki flokksbönd ráða ákvörðun sinni held- ur fylgi sannfæringu sinni,“ segir hann og bendir á að skoðanakannanir hafi sýnt að það sé vilji yfir 80% þjóð- arinnar, og sömuleiðis íbúa Reykja- víkur sem eigi 45% í Landsvirkjun, að Fljótsdalsvirkjun fari í lögformlegt mat. „Ég trúi ekki öðru en að borgar- stjóm vilji endurspegla vilja íbúanna í málinu. Hálendið er sameign þjóðar- innar og því eiga íbúar Reykjavíkur hagsmuna að gæta. Samþykki borgar- stjórn tillöguna setur hún þrýsting á Alþingi að fara að nútímalegum og lýðræðislegum kröfum," segir Ólafur F. Magnússon. -GAR Það fór vel um Sigríði Höskuldsdóttur þegar hún var á ferð með mömmu sinni, Sigríði Ólafsdóttur, í haustlitadýrðinni. DV-mynd ÞÖK Lögreglan spurð Sólveig Pétursdóttir dómsmála- ráðherra hefur óskað eftir að lög- reglan skýri gagnrýni sína á ákvæði laga sem heimilar verj- endum meintra sakamanna að- gang að rann- sóknargögnum í sakamálum. Lög- reglan telur að þessi heimild geti stórspillt rannsókn sakamála. RÚV greindi frá. Spillir ekki rannsókn Eiríkur Tómasson lagaprófessor telur ekki að það spilli lögreglu- rannsókn stóra fíkniefnamálsins þótt sakborningar fái að sjá rann- sóknargögn. Sjónvarpið sagöi frá. Fá ekki gögnin Verjendur hinna grunuðu í stóra dópmálinu fá málsgögn ekki aíhent næstu 3 vikur, samkvæmt úrskurði Hæstaréttar. Hæstirétt- ur hefur þar með staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur. Frávísun Hæstiréttur vísaði í gær frá kröfu grænmetisinnflutnings- og sölufyrirtækjanna Banana, Ágæt- is og Sölufélags garðyrkjumanna um að húsleit Samkeppnisstofn- unar hjá fyrirtækjunum yrði dæmd ólögleg og gögnum sem hald var lagt á yrði skilað. Ómar settur áfram Utamákisráðherra hefur að til- lögu þriggja manna nefndar um málefni Flug- stöðvar Leifs Ei- ríkssonar fram- lengt setningu Ómars Kristjáns- sonar i embætti forstjóra Flug- stöðvarinnar um ár, til 1. október 2000. Jafnframt hefur ráðuneytið ákveðið að falla frá því að skipa í embætti forstjóra Flugstöðvarinnar á grundvelli auglýsingar frá 30. mars sl. Halli sjúkrahúsanna Halli sjúkrahúsanna tveggja í Reykjavík og heilbrigðisstofnana úti um landið er talinn verða rúmlega 2,4 milljarðar króna á ár- inu. Fjárhagsvandinn er til skoð- unar í heilbrigöis- og fjármála- ráðuneyti. Mbl. sagði frá. Fjara hreinsuð Starfsmenn Reykjavíkurborgar hreinsuðu fjöruna í Eiðisvík á Geld- inganesi í gærmorgun. Stöð 2 hafði vakið athygli á miklum skolp- óþverra á þessum stað fyrr í vik- unni. Bylgjan greindi frá. Hitakærar örverur íslenskar hveraörverur ehf. fá sérleyfi til hagnýtra rannsókna á 28 hverasvæðum landsins, Stofnað verður nýtt hlutafélag um rekstur- inn. Deilur urðu um málið seint á síðasta ári þegar fyrirtækið sótti um einkaleyfi. Mbl. sagði frá. Fisksölustríð Dagur segir samruna SÍF og ÍS hafa komið stjórnendum SH f opna skjöldu og nú sé búist við meiri hörku á fisksölumörkuðum en nokkru sinni fyrr. Siðareglur á sjó Árni Mathiesen sjávarútvegs- ráðherra vill að sjávarútveg- urinn setji sér siðareglur til að mæta aukn- um kröfum meðvitaöra neytenda. Þetta kom fram á Fiskiþingi í gær. 90 aura hækkun Bensínlítrinn hækkaði um 90 aura á miðnætti hjá OLÍS að sögn Samúels Guömundssonar, for- stöðumanns hagdeildar Olíuversl- unar íslands, vjð Morgunblaðið. -SÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.