Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1999, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1999, Qupperneq 4
4 FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1999 Fréttir Milljónaviðskipti á AustQörðum: Sigurjón Sighvatsson vill kaupa heilan fjörð - trillukarlar í Neskaupstað setja strik í reikninginn Sigurjón Sighvatsson, kvik- myndaframleiðandi í Los Angeles, hefur gert tilboð í og vill kaupa Hellisíjörð sem er næsti fjörður suð- ur af Norðfirði. Hellisfjörður er eyðifjörður og þangað er ekki fært öðrum en fót- gangandi á landi. Eigandi Hellis- ijarðar er Sigurð- ur Karlsson, erf- ingi Karls heit- ins Lúðvikssonar sem var lyfsali í Austurbæjarapó- teki. Það stendur þó í vegi fyrir Sigurður undirritun kaup- Karlsson samnings á mifli “ vil1 seiía' Sigurðar Karlssonar og Sigurjóns Sighvatssonar að Félag smábátaeig- enda á Norðfirði er eigandi að sumarbústað í firðinum og neit- ar að selja: „Ég og faðir minn reistum þennan sumar- bústað 1972 en gáfum hann síð- an Nökkva, Fé- lagi smábátaeig- enda í Neskaup- stað, vegna þess að við áttum erfitt með að sinna viðhaldi á honum og öðru. Nú bregður hins vegar svo við að trillukarlarnir vilja ekki selja mér bústaðinn aftur en það er skilyrði þess að ég geti selt Hellisfjörö. Væntanlegur kaupandi vill ekki kaupa en þriðji aðili á sumarhús í firðinum eins og gefur að skilja,“ segir Sigurður Karlsson sem hefur boðið Félagi smábátaeigenda hálfa aðra milljón fyrir bústaðinn í sam- ræmi við mat fasteignasala á staðn- um. Sigurjón Sighvatsson - vill kaupa. leskaupstaBur Hellisfjörður - náttúruperla sunnan Norðfjarðar. Hjörtur Arnfmnsson var foringi trillukarla í Neskaupstað um miðj- an níunda áratuginn þegar Karl heitinn Lúðvíksson færði þeim sum- arbústaðinn að gjöf: „Karl vildi að við ættum bústaðinn og ég sé engin haldbær rök fyrir því að við fórum að skila gjöfina frá honum. Þó vil ég taka fram að engin ákvörðun hefur enn verið tekin í þessu máli,“ sagði Hjörtur Arnfinnsson. Hellisfjörður liggur á milli Við- fjarðar og Noröfjarðar og þangað er siglt með ferðamenn á sumrin. Eng- inn vegur liggur í fjörðinn en tveggja og hálfs tíma gangur er þangað í skriðum og fyrir fjall ef lagt er upp frá Grænanesi i Norð- firði. Hellisfjörður hefur löngum verið talinn ein landmesta jörðin í fjórðungnum. Áhugi Sigurjóns Sig- hvatssonar á Hellisfirði mun helg- ast af því að móðir hans, Sigurborg Sigurjónsdóttir, var uppalin í Norð- firði og þar voru hennar æskuslóð- ir. -EIR Samtök sunnlenskra sveitarfélaga: Stuðningur vegna campylo „Menn voru að lýsa yfir stuðningi við öll störf nefndarinnar sem snúa að þessu máli,“ sagði Þorvaröur Hjaltason, framkvæmdastjóri Sam- taka sunnlenskra sveitarfélaga, um stuðningsyfirlýsingu stjómar sam- takanna við heilbrigðisnefnd Suður- lands. í yfirlýsingunni segir að á fundi stjómar SASS, sem haldinn var 6. október sl., hafi verið fjallað um deilu- og álitamál sem komið hafi upp vegna campylobactersýk- inga sem rekja megi til kjúklinga- eldisstöðva og hlut Heilbrigðis- nefndar Suðurlands í þeim. „Af þessu tilefni lýsti stjóm SASS ein- dregnum stuðningi við nefndina og formann hennar," segir í tilkynn- ingunni. Þorvarður sagði að mikil deilu- mál hefðu verið uppi og ágreiningur milli ýmissa aðila vegna málsins. Að nokkru leyti ætti þetta við heil- brigðisnefnd Suðurlands og Heil- brigðiseftirlit Suðurlands. Að öðru leyti kvaðst Þorvaður ekki vilja „sundurgreina" það. Samþykktin tæki til alls málsins. Aðspurður hvort eitthvert sér- stakt tilefni hefði verið til þessarar stuðningsyfirlýsingar nú sagði Þor- varður að heilbrigðiseftirlitið starf- aöi á vegum SASS og fundargerðir nefndarinnar væru lagðar fyrir stjórn samtakanna. Mönnum hefði fúndist ástæða til að taka þetta fram meðfram því að fundargerðirnar vom lagðar fram. Um þá niðurstöðu umhverfis- ráðuneytis að heilbrigðiseftirlits- fulltrúar Suðurlands hefðu ekki gerst brotlegir við lög kvaðst Þor- varður ekki hafa neina sérstaka skoðun á því. -JSS Átakiö Fegurri sveitir 2000 að fara af stað: Rífum draslið og málum stafnana - segir Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra Guöni Agústsson landbúnaöar- ráðherra. Guðni Ágústsson landbúnaðar- ráðherra segir að ef til vill þurfi að koma til opinber fjárstuðningur við átakið Fegurri sveitir 2000. Um sé að ræða samstillt átak sveitar- félaga og ríkisins. „Við vitum ekki enn hversu stórt peningamál þetta er, en þaö er líka að skapa metnað- inn, rífa draslið sem er ónýtt og mála stafnana,“ segir ráðherra. Átakið Fegurri sveitir 2000 er verkefni næsta árs. Landbúnaðar- ráðherra er að leggja lokahönd á skipun nefndar samkvæmt tilnefn- ingum frá Sambandi sveitarfélaga, Kvenfélagasambandi íslands, Bændasamtökum íslands og um- hverfisráðuneytinu. Landbúnaðar- ráðherra skipar sjálfur formann nefndarinnar. Níels Árni Lund í landbúnaðar- ráðuneytinu, sem vinnur að undir- búningi málsins, segir að nefndin muni nú í október fara að setja niður línur um hvernig hún muni starfa.Trúlega verði að ráða erind- reka fyrir verkefnið sem síðan fari um landið og kynni sér ástandið. í kjölfarið verði mótaðar tillögur um hvað gera eigi og hvernig, svo og að leita eftir samstarfi viö sveit- arfélögin um móttöku- og urðunar- staði rusls. Jarðeigendur og um- sjónarmenn jarða verði hvattir til dáða. Nefndin muni hugsanlega leita eftir stuðningi í einhverju formi, t.d. óska eftir tilboðum frá málningarverksmiðjum, um flutn- ing á brotajámi og fleira þess hátt- ar. -JSS Komin heim Meðan Hillary Clinton var stödd hér á landi, á ráðstefnu slæðukellinga af æðri stigum, léku grinkallar lausum hala úti í Ameríku. Sagan segii-, að þeim hafi orðið tíðrætt um for Hillary, eða Clinton eins og hinn formfasti Moggi kallar hana á sinn virðulega hátt, hingað til lands. Grínkallamir töluðu ekki eins virðulega um forsetafrúna. Þeir sögðu að litlir kærleikar væra með þeim hjónum eftir Monikuævintýrið. Lofthiti færi lítið hækkandi og næði kulið alla leið inn í helgustu vistarverm- Clintons. Því væri sá hluti hjónarúmsins sem tilheyrði Hillary kallaður „Iceland". Hún væri því á heimaslóðum hér... Haltur og blindur SAS og Flugleiðir ætla að arka saman í framtíðinni og fréttir um vissan samruna fyrirtækjanna, sem hefur legið í loftinu um árabil, vakti mikla athygli. Þykir samvinnan nokkur sigur fyrir Sigurð Helgason forstjóra sem sop- ið hefur marga ijöruna í rekstri Flugleiða. Á dög- unum vora nokkrir illkvittnir flugmálamenn staddir í mat á Hótel Loftleiðum og þeir létu sér fátt um finnast. Einum þeirra varð þá að orði: „Það má segja að það leiði haltm- blindan á Atlantshafinu þegar Flugleiðir og SAS fljúga sam- « Oreglulegri Hinn skorinorði Svavar Gests- son fór mikinn þegar hann opn- aði heimasíðu sínu undir hinum firumlega nafni Hugmynd. Sendi Svavar út sér- staka fréttatil- kynningu og fékk heljarinnar viðtal í dagblað- inu Degi þar sem hann sagði eitthvað á þá leið að hann væri maður sem væri í takt við tímann. Það var hins vegar ekki í nema nokkrar vikur sem Svavar var í takt við timann því síðasta tölublað Hugmyndar kom út 18. febrúar sL en þá hafði Svavar rit- að nokkur orð um það að útgáfan yrði nokkuð óréglulegri á næst- unni. Óreglulegri í augum Svav- ars er því væntanlega eitt ár... Jón er nefndur Hinn sólbrúni og sællegi pró- fessor Hannes Hólmsteinn Gissurarson hefur að undan- fornu farið mik- — inn í gagnrýni sinni á fjandvin sinn Jón Ólafs- son í Skífunni. , Hannes Hólm- i steinn hefur J lengur en elstu I menn vilja m muna haft sér- ™ stakt dálæti á þessu óska-~~ bami Keflvíkinga og vart hefur liðið sá dagur að hann hafi ekki í ræðu eða riti höggvið til Jóns. Það vakti athygli margra að i Degi tók hin geðríka prímadonna Kolbrún Bergþórsdóttir upp hanskann fyrir Jón. Það er at- hyglisvert í því ljósi að hún og prófessorinn þráhyggni eru í sam- starfi um hina umdeildu sjón- varpsþætti, Maður er nefndur. Nú bíður fólk þess i ofvæni að upp dúkki í þáttaröðinni undir stjórn Hannesar Hólmsteins: Maður er nefridur, Jón Ólafsson... Umsjón Reynir Traustason Netfang: sandkorn is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.