Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1999, Blaðsíða 6
6
FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1999
Neytendur
Gæöa- og verökönnun á grænmeti:
Hagkaup og Fjarðarkaup best
- Nýkaup meö dýrasta grænmetið
Matvælarannsóknir Keldnaholti,
Matra, könnuðu gæði þriggja græn-
metistegunda, jöklasalats, tómata og
grænnar papriku fyrir Neytenda-
samtökin og ASÍ fyrr í mánuðinum.
Kannað var ástand grænmetisins í
tíu verslunum á höfuðborgarsvæð-
inu. Þær eru: Bónus í Grafarvogi,
Fjarðarkaup, Hagkaup í Skeifunni,
10-11 í Glæsibæ, Nóatún í Rofabæ,
Samkaup í Hafnarfirði, 11-11 í Rofa-
bæ, Nýkaup í Grafarvogi, Nettó í
Mjódd og Strax i Hófgerði.
Útlit og bragð
Við mat á gæðum græmetisins
var annars vegar tekið tillit til útlits
þess og hins vegar bragðs. í útlits-
matinu var gefin einkunn fyrir lit
og lögun en einnig var leitað eftir
göllum eða skemmdum í sýninu.
Notaður var skali frá 0-4 þar sem
einkunnin fjórir þýddi: „fallegt og
algjörlega gallalaust grænmeti", 3
þýddi: „gott“, 2 þýddi: „sæmilegt", 1
þýddi: „slök gæði“ og 0 þýddi: mjög
slök gæði.
Við bragðmatið voru gefnar ein-
kunnir fyrir einstaka bragðþætti,
s.s. einkennandi bragð, súrt, sætt og
aukabragð. Einkunnir yfir útlit og
bragðgæði voru síðan lagðar saman
og heildareinkunn gefin.
Mismunandi gæði
í útlitsmatinu kom fram mestur
breytileiki er jöklasalatið var skoð-
að. Kom salatið í Nýkaupi og í
Fjarðarkaupum mjög vel út útlits-
lega séð og fengu þau bæði hæstu
einkunn. Sýnið frá Fjarðarkaupum
fékk einnig hæstu einkunn fyrir
bragð ásamt sýnunum frá Nettó og
Samkaupum. f heildina voru jökla-
salatsýnin mjög misjöfn að gæðum
og virtist ekki vera tengsl á milli
gæða og verðs, þ.e. dýrari salötin
voru ekki betri.
Tölverður munur kom einnig
fram á útliti og bragði tómata eftir
verslunum. Tekið skal fram að gæta
verður þess að draga ekki tómata
niður fyrir að vera ekki nógu
þroskaðir. Sýnið var þó dregið nið-
ur ef tómatar voru mjög mis-
þroskaðir innan sýnisins og einnig
ef sami tómaturinn var mjög mis-
þroska. Tómatsýnin frá 10-11 og
Bónus komu best út útlitslega séð.
Nokkuð var um það í öðrum versl-
unum að tómatarnir væru mjög
misþroskaðir þannig að þroskaðir
tómatar voru famir að skemmast á
sama tíma og
aðrir tómatar í sama sýni vora
ekki orðnir nægilega þroskað-
ir.
Bragð tómatana virtist vera
í góðu lagi því sex verslanir af
tíu fengu hæstu einkunn fyrir
bragð og safa í tómötunum.
Hæstu heildareinkunn fyrir
tómata fengu síðan Hagkaup,
Samkaup og Fjarðarkaup.
Almennt komu paprikumar
vel út bæði útlit og bragð. Átta
af tíu verslunum í könnuninni
fengu hæstu eða næsthæstu
einkunn fyrir útlit og níu af
tíu verslunum fengu hæstu eða
næsthæstu einkunn fyrir
bragð. Ekki er því hægt að
segja annað en að paprikumar
séu yflrleitt í góðu ástandi.
Verð og gæði fara ekki
saman
Helstu niðurstöður könnun-
arinnar eru því þær að Hag-
kaup og Fjarðarkaup selja
besta grænmetið en lægstu
gæðaeinkunnin fær 11-11.
Einnig kemur fram að ekki
eru endilega tengsl á milli
verðs og gæða grænmetisins.
Dýrast er grænmetið í Nýkaupi
þar sem það kostar samtals
1494 krónur en Nýkaup lendir í
5.-6. sæti í gæðamatinu. Ódýr-
ast er grænmetið í Bónusi þar
sem það kostar samtals 977
krónur en Bónus lendir í þriðja
sæti í gæðamatinu.
Þaö er því rétt að vera vel á
verði þegar grænmetið er
keypt og bera saman verð og
gæði í hinum mismundi versl-
unum.
-GLM
Könnun Neytendasamtakanna og ASI sýnir að verð og gæði fara ekki alltaf saman þegar grænmeti er keypt.
Hagsýni barnanna
skera í bita, s.s. appelsínur og
epli, henta vel sem ódýrt
skólanesti. Skerið ávextina í
báta og leggið þá 1 plastpoka
svo barnið geti gengið beint
að þeim í skólanum.
Ódýr bókahilla
Hægt er að búa til bókahill-
ur úr kommóðuskúffu sem
átti að fleygja. Handfangið er
skrúfað af henni, kíttað í
skrúfu- og skráargöt, bætt inn
hillu og allt saman málað í fal-
legum lit.
Tvískipt barnaherbergi
Ef íbúðin er orðin of lítil er
ef til vill ekki nauðsynlegt að
flytja strax ef hægt er að
skipta barnaherberginu í
tvennt. Hægt er að skipta her-
berginu með bókahillu sem er
fest snyrtilega við vegg eða
gólf. Hillan skiptir herberginu
í tvennt en gefur bömunum
hófleg tækifæri til samskipta.
Ódýrt lím
Hrærðu saman hveiti og
vatni og búðu til grautarlím.
Það hentar vel til að líma
hvers kyns pappír, t.d. þegar
fóndrað er með bömunum eða
þegar hengja á myndir upp á
vegg.
Ódýrt leikfang
Auðvelt er að búa til litinn
vefstól sem er skemmtilegt og
ódýrt leikfang handa bömun-
um. Best er að nota pappa-
spjald eða lok af kassa, t.d skó-
kassa. Spjaldið má þó ekki
vera mjög stórt því þá stríkk-
ar smám saman á vefnum.
Klipptu 1 sm djúpar raufar
með 1/2 sm millibili í gagn-
stæðar brúnir spjaldsins. Síð-
an er bómullargami brugðið
fram og aftur yfir spjaldið í
raufarnar. Gamspottar eða
klipptar pjötlur era notuð í
ívaflð og þrædd með grófri nál
undir og yfir uppistöðuþræð-
ina til skiptis. Pjötlumar sem
úr þessu fást er hægt að nota
sem pottaleppa eða glasamott-
ur.
Ódýrt brúðuleikhús
Börn eru ekki kröfuhörð
um búnað þegar þau setja upp
brúðuleikhús. Sviðið má út-
búa með því að festa teppi í
dyr í hæfilegri fjarlægð frá
áhorfendunum. Þá geta börn-
in leynst á bak við teppið og
haldið höndunum fyrir ofan
það.
Handbrúðurnar má útbúa
úr gömlum vettlingum. Hárið
er saumað á með smáum og
stórum sporam til skiptis til
þess að það sýnist hrokkið. Ef
til era afgangar af loðskinni
eða gerviskinni má nota það í
feld og skegg á brúðumar.
Tölur era notaðar fyrir augu
en búningurinn búinn til úr
blúndum, bandi, filti og skinn-
pjötlum sem saumuð eru á.
Notaðu hugmyndaflugið og
láttu bömin hjálpa til. Hand-
rit er óþarft. Börnin fylgja
sjónvarpsþáttum sem þau
hafa séð eða ævintýrum sem
þau hafa heyrt. Kenndu börn-
unum líka að búa til aðgöngu-
miða og sýningarskrá.
-GLM
Hvítir strigaskór
halda sjaldan lit sínum
lengi á fótum athafna-
samra krakka. Þá er
ráð að mála skóna
með mattri
akrýlmáln-
ingu. Siðan
er strokiö
af þeim
með vot-
um klút
þegar
þarf að
hreinsa
þá.
rt nesti
Ýmiss
konar
ávextir
sem
hægt er
að