Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1999, Síða 7
FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1999
7
x>v___________________________________________________________________________________________________Viðskipti
Þetta helst: •••Viðskipti á VÞÍ námu alls 1.745 m.kr. •••Þar af námu viðskipti með hlutabréf 151 m.kr. •••Mest
viðskipti með Baug hf., fyrir 72 m.kr. •••Með Össur hf. fyrir 22 m.kr. •••Mest hækkun Hraðfrystihúss Eskifjarðar, um
6% ••• Baugur hækkaði um 4,5% ••• Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,53% og er nú 1.412 stig.
Hagfræði- og fjármálakenningar bresta:
Verðbólga virðist lítil
áhrif hafa á hlutabréf
Samkvæmt helstu fjámála- og
hagfræðikenningum ætti verð á
hluta- og skuldabréfum að lækka
þegar verðbólga eykst og þegar vext-
ir eru hækkaðir. Svo virðist alls
ekki vera raunin hér á landi og sér-
fræðingar velta fyrir sér hver
ástæðan geti verið.
í Markaðsyfirliti Landshankans í
gær kemur fram að það veki athygli
að þær efnahagsaðstæður sem nú
ríkja í hagkerfinu virðist lítil sem
engin áhrif hafa haft á hlutabréfa-
markaðinn. Veltan hafi aukist
stöðugt og hlutabréfaverð hækkað á
siðustu mánuðum. Svo virðist sem
hlutabréf á íslandi séu hreinlega
ónæm fyrir ytri aðstæðum.
Á síðustu 3 mánuðum hefur Úr-
valsvísitala hlutabréfa hækkað um
tæp 15%. Að hluta til mætti að sögn
Landsbankans skýra það með al-
mennt jákvæðum milliuppgjörum
sem birtust í júlí og ágúst en þó hef-
ur Úrvalsvísitalan hækkað um tæp
8% frá því að síðustu milliuppgjör
birtust. Á sama tíma hefur verð-
bólga farið vaxandi og síðustu 3
mánuði hefur verðhólgan verið
8,3%. Seðlabankinn hefur hækkaö
vexti í þrígang á árinu nú síðast um
miðjan september en þær hækkanir
hafa engin merkjanleg áhrif haft á
verð hlutabréfa.
Bandarísk kaffihúsa-
keðja til íslands
Bandaríska kafiihúsakeðjan New
World Cofiee-Manhattan Bagel Inc. er á
leið til íslands en í lok næsta árs er von
á að fyrsti staðurinn verði opnaður á
Reykjavíkursvæðinu. New World á og
rekur kafiibari og „bagels“-bakarí í 28
ríkjum Bandaríkjanna og í löndum víða
um heim.
Það er Bandaríkjamaðurinn Sean
Maravich og islensk athafnakona, Eydis
Olsen, sem eru handhafar rekstrarleyfis
fyrir New World hérlendis. í frétt frá
New World kemur fram að síðustu ár
hafi Eydís starfað sem sérfræðingur á
alþjóðasviði hjá Core States/First Union
Bank i Bandaríkjunum.
„Alþjóðavæðingin styrkir okkar
stöðu sem leiðandi seljandi kafíivara,"
er haft eftir Rocco Fiorentino, varafor-
seta þróunarsviðs New World. „Við
hlökkum til að kynna margverðlaunaða
framleiðslu okkar íslendinguin." New
World Cofiee-Manhattan Bagel Inc.
(NWCI) er skráð á Nasdaq-hlutabréfa-
markaðinum í Bandarikjunum.
Erlendis er það vel þekkt að verð-
bólga og vaxtahækkanir, eins og
einkennt hafa íslenskt hagkerfl að
undanfórnu, hafa mjög neikvæð
áhrif á hlutabréfamarkaði. Undan-
Þrátt fyrir verðbólgu og vaxtahækkan-
ir eru hlutabréf enn á mikilli siglingu
Einar Sigurjónsson, fram-
kvæmdastjóri Verðbréfaskráningar,
segir í síðasta Viðskiptablaði að
ákveðiö sé að rafræn skráning verð-
bréfa muni hefjast fljótlega eftir ára-
mót. Það helgast m.a. af því að árið
2000 er i nánd og Fjármálaeftirlitið
hefúr mælst til þess að bankar og
verðbréfafyrirtæki breyti ekki sín-
um kerfum fyrir þau tímamót. Verð-
bréfaskráning verður að sögn Ein-
ars á meðan í svokölluðu prófunar-
umhverfi en búið er að koma á fót
tengingum inn í bankana.
Einar segir þó að ljóst sé að starf-
semi Verðbréfaskráningar hefjist
ekki fyrr en Fjármálaeftirlitið hefur
veitt samþykki sitt en Fjármálaeft-
irlitið hafi raunar mælst til þess að
bankar og verðbréfafyrirtæki
breyttu ekki kerfum sínum fyrr en
að febrúarmánuði loknum sökum
vandamála sem gætu skapast vegna
hlaupárs. Einar segir þó að Verð-
bréfaskráning hafi sóst eftir að
farið hafa hlutabréf í Bandaríkjun-
um verið að lækka, m.a. vegna
áhyggna fjárfesta af yfirvofandi
vaxtahækkunum og þenslu. Spyrja
má hvað það er í eðli íslenska hluta-
bréfamarkaðarins sem virðist gera
hann ónæman fyrir aðstæðum í
hagkerflnu.
Langt í 200 daga meðaitalið
Sérfræðingar FBA hafa líka velt
þessum undarlegu kringumstæðum
fyrir sér. í Morgunkomi FBA í gær
er þeirri spurningu velt upp hvers
vegna hlutabréfamarkaðurinn hafi
ekki gefið eftir vegna vaxtahækk-
ana og aukningar á verðbólgu. En
þróaðir hlutabréfamarkaðir sýna yf-
irleitt mikil viðbrögð við þess hátt-
ar breytingum.
Sérfræðingar FBA reyna í þessu
samhengi að skoða tæknigreiningu,
sem er allt annað sjónarhorn á
markaðinn. Einn af þeim tæknilegu
hefja starfsemi
sína í janúar og
stefnt sé að því
að taka upp raf-
ræn viðskipti
með ríkisvíxla til
að byrja með.
Verðbréfa-
skráning íslands
mun annast raf-
ræna eignar-
skráningu verð-
bréfa. Hlutverk félagsins verður að
taka verðbréf samkvæmt ósk útgef-
enda og skrá þau rafrænni skrán-
ingu inn á reikninga sem sérhver
eigandi verðbréfs mun fá í tölvu-
kerfi félagsins. Um leið og verðbréf
hefur verið skráð rafrænni skrán-
ingu verður samsvarandi pappírs-
verðbréf ógilt.
Framfaraspor
Ljóst er að rafræn skráning hluta-
mælikvörðum sem notaðir eru við
að meta stefnu markaðar er 200
daga meðaltal en það geta verið
merki um fallandi markað ef 200
daga meðaltalið er rofið ofan frá.
200 daga meðaltal Aðalvísitölunnar
er um 1.174 stig en vísitalan er í dag
um 1.340 stig. Hún þyrfti því aö
lækka allverulega eða um u.þ.b.
10% til þess að nálgast umrætt með-
altal eða sem næmi allri hækkun
vísitölunnar frá því í lok júlí. Það
virðist alls ekki vera sá gállinn á
markaðinum þessa stimdina, heldur
þvert á móti. Að undanfómu hafa
hækkanir jafnvel breiðst út og náð
til fleiri félaga og nú er svo komið
að örfá félög á Aðallista sýna lækk-
un frá áramótum. Það er ennfremur
athyglisvert að í júní var vísitalan
við það að brjóta 50 daga meðaltalið
ofanfrá, en náði ekki alveg í gegn.
Síðan þá hefur markaðurinn verið á
uppleið, þótt heldur hafl hægt á í
þessari viku.
bréfa mun verða stórt spor í fram-
faraátt á íslenskum hlutabréfamark-
aði og m.a. má í kjölfarið vænta
fyllri upplýsinga um viðskipti inn-
herja með bréf sín. Tryggvi Pálsson,
formaður stjómar VÞÍ, segir í sam-
tali við Viðskiptablaðið að e.t.v.
verði stundin til þess að breyta regl-
unum þar um þegar rafræn verð-
bréfaskráning kemur til fram-
kvæmda en hún muni hafa í fór
með sér að uppgjör fari fram eigi
síðar en innan eins dags frá við-
skiptum.
í Morgunpunktum Kaupþings í
gær kemur fram að gert sé ráð fyrir
að með rafrænni skráningu muni
viðskipti aukast, verðmyndun verði
raunhæfari og erlendum fjárfestum
verði gert auðveldara að eiga hér
viðskipti. Rafræn skráning færi VÞÍ
nær erlendum mörkuðum og kerfið
muni auðvelda tengingu við erlend-
ar kauphallir.
Rafræn skráning
verðbréfa í ársbyrjun
- dagar pappírsviöskipta taldir
IBM til samstarfs viö Íslandssíma
- þróa og markaössetja upplýsingakerfi fyrir simafyrirtæki
Fulltrúar Íslandssíma og alþjóð-
lega tölvu- og hugbúnaðarfyrirtæk-
isins IBM kynntu í dag samstarf um
þróun, markaðssetningu og sölu á
upplýsinga- og reikningakerfi fyrir
símafyrirtæki. í samstarfinu felst að
IBM þróar notendavænt upplýsinga-
kerfi fyrir og í samvinnu við ís-
landssíma.
Samkvæmt upplýsingum frá ís-
landssíma byggist kerfið á gagna-
grunni IBM en þróún þess byggist á
íslensku hugviti og markaðsstarfi.
„í þessu felst mikil viðurkenning en
Íslandssími fær ágóðahlutdeild í
sölu á hugbúnaðinum þegar hann
verður fullbúinn og fer í almenna
sölu. Forsvarsmenn IBM telja feng
að samstarfmu við Íslandssíma sem
varð fyrir valinu vegna framsæk-
innar starfsemi á íslenska markaðn-
um þar sem Intemet- og tölvunotk-
un er meiri en gerist annars stað-
ar,“ segir í frétt frá Íslandssíma.
Þá segir að í samstarfinu felist
það nýmæli að alþjóðlegur hugbún-
aðarrisi þrói, í samvinnu við is-
lenskt símafyrirtæki, hugbúnað
sem nýta á í starfsemi þess. „Til
þessa hafa íslensk símafyrirtæki
varið hundruðum og jafhvel millj-
örðum króna til samsvarandi hug-
búnaðargerðar. Af þessu má sjá að
ekki sparast einungis verulegir fjár-
munir heldur skilar þetta umtals-
verðum tekjumöguleikum fyrir ís-
landssíma og íslenskan hugbúnað-
ariðnað.
Víðtæk samvinna
Samstarfið kveður á um sam-
vinnu sérfræðinga Íslandssíma og
IBM í hugbúnaðarþróun. Við hug-
búnaðarþróunina verður notað San
Francisco-þróunarkerfi IBM, sem og
annar hugbúnaður IBM
SecureWay, WebSphere, VisualAge
og DB2.
Upplýsingakerfið auðyeldar þeim
sem nota sér þjónustu Íslandssíma
til muna að fylgjast með viðskiptum
sínum. I fyrstu útgáfu af hugbúnað-
inum verður á vefsíðu hægt að fá ít-
arlegt greiðslu- og notkunaryfirlit.
Á sama stað verður hægt að fá að-
gang að allri þjónustu Íslandssíma
og í sumum tilfellum geta notendur
afgreitt sig sjálfir. Þá verður þjón-
ustuver Íslandssíma tengt upplýs-
ingakerfinu. Á vefsíðunni verður
hægt að fylgjast með vandamálum
sem upp kunna að koma, stöðu
þeirra og fletta upp lausnum.
Baugur lækkað um 14,4%
frá skráningu
Gengi á hlutabréfum í Baugi
lækkaði um 5%_í gær og er gengið
nú aðeins 8,7. Útboðsgengi í apríl
var 9,95 og hafa
þau því lækkað
um 14,4% frá
skráningu. Mjög
margir fjárfestu þá
og miklar vænt-
ingar voru gerðar.
Frá þeim tíma sem
útboðið fór fram er gengistap
þeirra sem fjárfestu nokkuð mikið.
Hins vegar má segja sem svo að
langtímahorfur séu góðar og fjár-
festing góð til langs tíma litið en
framtíðin mun ein leiða það í ljós
hvort markaðurinn sé sama sinnis.
Hraðfrystihúsið-Gunnvör
með 4,4% í SH
Eignarhlutur og atkvæðisréttur
Hraðfrystihússins-Gmmvarar hf. í
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna hf.
er kominn niður í 4,4% eða kr.
66.683.427 en var 126.683.427 eða
8,5%. Seld hafa verið hlutabréf að
nafnvirði kr. 60.000.000.
Aukinn útflutningur frá Kína
Útflutningur frá Kína jókst um
2,1%, ef miöað er við heilt ár,
fyrstu fimm mánuði þessa árs. Það
sem verra er að innflutningur jókst
mun meira, eða um 19,3% sem þýð-
ir að viðskiptaafgangur fer minnk-
andi.
Verðbólguskot í Svíþjóð
Það er ekki bara á Islandi þar
sem vísitala neysluverðs hækkar
mikið. í Svíþjóð hækkaði vísitalan
um 0,7% í september sem þykir
nokkuð mikið þar á bæ. Hins vegar
er ekkert sem bendir til annars en
að um árstíðabundna hækkun hafi
verið að ræða og verðbólga yfir
árið verði ekki nema 1,5-1,8% sem
er mun minna en á íslandi. Þrátt
fyrir lága verðbólgu á árinu er talið
líklegt að Seðlabanki Svíþjóðar
muni bregðast við þessum fregnum
með vaxtahækkun fljótlega.
BT og Microsoft í samstarf
British Telecommunications og
bandariski hugbúnaðarrisinn
Microsoft tilkynntu í gær ætlun
þeirra að hefja víð-
tækt samstarf um
að framleiða og
þróa búnað til
þráðlausra inter-
netsamskipta. Sir
Peter Bonfield, for-
sfjóri BT, sagði að
samstarf þessara fyrirtækja myndi
þjóna viðskiptavinum um allan
heim með fyrsta flokks vörur og
auka enn á hraðann í þróun á þráð-
lausum internetsamskiptum.
Samrunaviðræður í Japan
Sumitomo Bank og Sakura Bank,
tveir af stærstu bönkum Japans,
tilkynntu í gær að þeir ættu í við-
ræðum um hugsanlega samein-
ingu. Ef af verður þá yrði sameigin-
legur banki næststærsti banki i
heimi með sameiginlegar eignir
upp á 925 milljarða dollara eða sem
svarar til 66 þúsund milljarða ís-
lenskra króna. Fréttir af þessu
styrktu hlutabréfamarkaði í Japan
og hækkaði nikkei-vísitalan nokk-
uð við þessar fregnir. í síðasta
mánuði sameinuðust þrír aðrir
stórir bankar í Japan, Industrial
Bank of Japan, Dai-Ichi Kangyo
Bank og Fuji Bank, en sá samruni
er minni en þessi. Þessar breyting-
ar í japanska bankakerfinu er tald-
ar styrkja veikar stoðir efnahags-
kerfisins í Japan.
Erlendar fréttir frá Financial
Times.