Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1999, Qupperneq 14
14
FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1999
útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stiórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÓLI BJÖRN KÁRASON
Aðstoðarritstjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON
Ritsýórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift: ÞVERHOLTI 11,105 RVÍK,
SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: augtysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Rlmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á mánuði 1950 kr. m. vsk. Lausasóluverð 180 kr. m. vsk., Helgarblað 250 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og i gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Hundeltir fá starfsfrið
Starfsmenn Heilbrigöiseftirlits Suðurlands, sem í sumar
unnu þjóðþrifaverk með skýrslu um ástandið í og við ali-
fuglabú Reykjagarðs að Ásmundarstöðum, eru loks lausir
frá þeim undarlega rannsóknarrétti sem settur var eftir að
sóðaskapurinn komst í hámæli, sem og sú hætta sem neyt-
endum var búin með dreifingu sýktra matvæla.
Starfsmenn heilbrigðiseftirlitsins sendu frá sér greinar-
gerð vegna skoðunar á umhverfisþáttum búsins í júlí
siðastliðnum. Þar var bent á, með stuðningi ljósmynda af
vettvangi, fjölbreytilega möguleika á alls konar sjúkdóma-
smiti af völdum skordýra, baktería og veira. Umhverfi bús-
ins var sagt með ólíkindum með tilliti til matvælafram-
leiðslu og það sagt skapa kjöraðstæður og gróðrarstíur fyr-
ir sjúkdómavaldandi bakteríur sem ekki eiga heima í mat-
vælum. Niðurstaða heilbrigðiseftirlitsins var að umræða
og fræðsla um salmonellu og campylobacter virtist ekki
hafa verið tekin alvarlega né valdið umbótum á staðnum.
Greinargerðin var send í afriti til Heilbrigðisnefndar
Suðurlands, sem yfir Heilbrigðiseftirlit Suðurlands er sett,
Hollustuvemdar ríkisins, landbúnaðarráðuneytisins, um-
hverfisráðuneytisins, héraðsdýralæknis Rangárvallasýslu,
Sláturhúss Reykjagarðs og til Ásmundarstaða.
Eftir að greinargerðin um sóðaskapinn í alifuglabúinu
og hættuna af sýkingu i afurðum komst í hámæli og til um-
fjöllunar hjá öllum fjölmiðlum, svo sem eðlilegt var, varð
mikið uppistand á búinu og innan Heilbrigðisnefndar Suð-
urlands. í stað þess að Heilbrigðisnefnd Suðurlands gripi
þegar til aðgerða gegn kjúklingabúinu og ástandinu þar
sneri hún sér að því að að finna aðra sökudólga en
búskussana og þá helst í líki undirmanna sinna, heilbrigð-
isfulltrúanna sem greindu frá viðbjóðnum í greinargerð
sinni. Heilbrigðisnefndin mat það svo að forgangsmál væri
að finna þann eða þá sem „láku“ upplýsingunum til fjöl-
miðla.
Heilbrigðisnefndin hefur síðan eytt tíma sínum, sem og
hinna ötulu starfsmanna heilbrigðiseftirlitsins, auk starfs-
manna umhverfisráðuneytisins, lögreglunnar á Hvolsvelli
og sýslumannsins á sama stað. Samt lá það fyrir í upphafi,
áður en fjölmiðlar sögðu frá málinu, að málið var á vitorði
margra innan stofhana og fyrirtækja á Suðurlandi og í
Reykjavík, auk ráðuneytanna tveggja. Þar gat því hver
sem er flutt tíðindin, sem raunar var bráðnauðsynlegt að
koma fyrir almenningssjónir.
Niðurstaða umhverfisráðuneytisins er fengin og þar
kemur fram að ekki sé sýnt að starfsmenn Heilbrigðiseftir-
litsins á Suðurlandi hafi sent fölmiðlum greinargerðina og
af þeirri ástæðu geti ráðuneytið ekki fallist á að þeir hafi
brotið lög. Þessi niðurstaða gefur þeim því starfsfrið. Um
leið ættu yfirmenn þeirra í Heilbrigðisnefnd Suðurlands
að hafa meiri tíma til að sinna raunverulegu hlutverki
sínu, og því sem skiptir máli, að séð sé til þess að neytend-
ur fái boðlega vöru í verslunum. Það hefði nefhdin átt að
gera strax í stað þess að skemmta skrattanum með mála-
tilbúnaði sínum. Auk þessarar niðurstöðu ráðuneytisins
er enn béðið niðurstöðu lögreglurannsóknar á hinum
meinta leka.
í ár er metár í sýkingum vegna campylobacter, einkum
vegna neyslu kjúklinga. Starfsmenn Heilbrigðiseftirlits
Suðurlands hafa varað við campylobacter-sýkingum frá ár-
inu 1995. Greinargerð eftirlitsins frá i sumar varð til þess
að menn vöknuðu loks til vitundar um ófremdarástandið.
Yfirmenn heilbrigðisfulltrúanna, í Heilbrigðisnefnd Suður-
lands, hefðu fremur átt að heiðra þá en hundelta.
Jónas Haraldsson
„Reyndar á það við um forystumenn innan Nató almennt að þeir virðast áhugalitlir um átökin í Tsjetsjeníu og
árásir Rússa á óbreytta borgara þar.“
Landamæri
samviskunnar
anum var í hven;i ís-
lenskri stofu meðan
átökin þar stóðu sem
hæst og vöktu skiljan-
lega mikil viðbrögð með
okkur ölium því ná-
lægðin við vandann var
fyrir bragðið mikil.
Það verður að segjast
eins og er, að hagsmun-
ir stórveldanna virðast
skipta nokkru máli þeg-
ar til fréttaflutnings
kemur. Þannig fer
minna fyrir því í frétt-
um en efni standa til að
stöðugt er haldið uppi
loftárásum á írak og
ekki hefur verið tiund-
að sem skyldi að síðan
loftárásum Nató á
Júgóslavíu lauk hafa
um tvö hundruð þúsund Serbar
fLúið Kosovo-hérað.
„Það er svo aftur umhugsunar-
efni fyrir okkur öll að í Stjórnar-
ráðinu okkar íslenska virðist
skipta máli hver það er sem beit-
ir ofbeldi. “
Kjallarinn
Ögmundur
Jónasson
alþingismaður
Að undanfórnu
hafa borist vofveif-
legar fréttir austan
úr Kákasusfjöllum.
Rússneski herinn
hefur haldið uppi
loftárásum á
Grosní, höfúðborg
Tsjetsjeníu og önn-
ur byggð ból þar í
landi hafa orðið
illa úti í árásum
rússneska hersins.
Eins og stundum
áður er hemaður-
inn rekinn í nafni
baráttu gegn
hryðjuverkum.
Fómarlömhin eru
hins vegar ekki
hryðjuverkamenn
heldur óbreyttir
borgarar og herma fregnir að bæði
íbúðahverfl og almenningsfarar-
tæki hafa orðið
fyrir sprengjuregni
vígvélanna.
Afleiðingar þess-
ara voðaatburða
birtast okkur í sí-
vaxandi straumi
flóttamanna frá
þeim svæðum sem
verst hafa orðið úti
og er ljóst af frétt-
um að stríðshrjáð
fólkið á um sárt að binda.
Fréttaflutningur og stór-
veldahagsmunir
Fréttaflutningurinn er þó um
margt óljós enda má líklegt heita
að fjölþjóðlegu fréttastofumar eigi
erfiðara um vik í fréttaöflun en í
sambærilegum átökum annars
staðar. Fólksflóttinn, ofsóknirnar
og sprengjuregnið á Balkanskag-
í yfirlýsingu sem þingflokkur
Vinstrihreyfingarinnar - græns
framboðs sendi frá sér er á því
vakin athygli að átökin i Tsjetsjen-
íu eru enn eitt dæmið um yfirgang
stórveldis sem leitast við að
tryggja eigin hagsmuni í krafti
hernaðarlegra yfirburða án tillits
til réttinda óbreyttra borgara. Það
er svo aftur umhugsunarefni fyrir
okkur öfl að í Stjórnarráöinu
okkar íslenska virðist skipta máli
hver það er sem beitir ofbeldi.
Hinir galvösku baráttumenn
mannréttinda, oddvitar ríkis-
stjómarflokkanna, þeir Davíð
Oddsson forsætisráðherra og Hall-
dór Ásgrímsson utanríkisráherra
virðast einhverra hluta vegna
hafa aðra og fjarrænni afstöðu
gagnvart fómarlömbum stríðs-
átakanna í Tsjetsjeníu en þeir
höföu gagnvart flóttamönnum frá
Kosovo.
Reyndar á það við um forystu-
menn innan Nató almennt að þeir
virðast áhugalitlir um átökin í
Tsjetsjeníu og árásir Rússa á
óbreytta borgara þar. Þeir lýsa að
vísu áhyggjum en við það láta þeir
sitja. Þaö er engu likara en þeir
fallist á að stórfelldar loftárásir á
borgir og bæi séu lögmæt leið til
að stöðva einstaka hryðjuverka-
menn eða samtök þeirra.
Gagnkvæmur skilningur
um afskiptaleysi
Auðvitað má hverju bami vera
ljóst hvað hér er á seyði. Á milli
stórveldanna rikir gagnkvæmur
skilingur um afskiptaleysi ef til
átaka kemur á yfirráðasvæði hins
aðilans. Þetta er ekkert nýtt. Þetta
hefur verið viðtekið um langan
aldur. Það er hins vegar ekki gott
hlutskipti fyrir eina smáþjóð eins
og okkar að vera svo kirfilega
bundin á klafa hemaðarstórveldis
eins og Bandaríkjanna og hemað-
arbandalagsins Nató að hún þurfi
alltaf í einu og öllu að laga skoðan-
ir sínar að hagsmunum þess. Engu
er líkara en markalína hagsmuna-
svæöis Nató falli saman við landa-
mæri samviskunnar hjá ríkis-
stjóm íslands.
Ögmundur Jónasson
Skoðanir annarra
Flugvöllur blívur, fólkiö víkur
„Núverandi stefna borgaryfirvalda í skipulagsmálum
þýðir í raun, að innan örfárra ára verða nýbyggingar-
svæði borgarinnar á Álfsnesi eða ofan Rauðavatns.
Byggð svo fjarri miðbænum, sem þrátt fyrir allt er lang-
fjölmennasti vinnustaður landsins, kallar á mikinn
akstur, fjármuni og ómældan tíma. Flugmálastjóri er að
leggja undir sig til framtíðar besta byggingarland borg-
arinnar, Vatnsmýrina, og hafnarstjóri það næstbesta,
Geldinganes. Reykvíkingum verður í staðinn boðið upp
á byggingarland í 15 til 25 km fjarlægð frá miðbænum."
Friðrik Hansen Guðmundsson í Mbl. 14. okt.
Sigríöi var aldrei hafnaö
„I helgarblaði Dags er birt opnuviðtal Kolbrúnar
Bergþórsdóttur við Sigríði Dúnu Kristmundsdóttur sem
var mjög í sviðsljósinu vegna ráðstefnunnar „Konur og
lýðræði við árþúsundamót“...Ef eitthvað er endurtekið
nógu oft tekur það smám saman á sig ímynd sannleik-
ans. Þannig er með síendurteknar fullyrðingar um að
konum eins og Sigríði hafi verið haldið niðri vegna þess
að aðrar Kvennalistakonur hafi ekki þolað að hún skar-
aði fram úr ... Almennt töldu Kvennalistakonur liðsinni
Sigríðar mikilvægt bæði fyrr og siðar og lögðu nokkuð
á sig til að tryggja það. Henni var aldrei hafnað vegna
eiginmanns síns né nokkurs annars. Hún réði sjálf
skilnaði sínum við Kvennalistann. Er nú ekki mál að
þessu píslarvætti linni og konur láti hver aðra njóta
sannmælis?“ Kristín Halldórsdóttir í Degi 14.10.
Nýr liösmaöur meö Reykjavíkurfiugvelli
„Eitt sinn var ég afar mótfallinn flugvelli í borginni.
Nú í hinni heiftúðugu umræðu um Reykavíkurflugvöll
hef ég hugsað málið upp á nýtt. Flugtæknin er að breyt-
ast, því fylgja hljóðlátari vélar er munu nota styttri
brautir. Nýting eldsneytis verður betri og loftmengun
verður minni. En hvað gerist ef flugvöllurinn verður
lagður niður? - Byggð verða háhýsi á svæðinu. - Gert
verður viðamikið gatnakerfi fyrir þá byggð og tenging-
ar til allra átta með tilheyrandi umferðartöfum og
mengun. - Gerð verða bílastæði fyrir þúsundir bíla. -
Vatnsmýrin endanlega þurrkuð upp og villt fuglalíf
hrakið brott...“ Björn Finnsson í Mbl. 14.10.