Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1999, Qupperneq 19
FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1999
19
DV
Fréttir'
Sauðárkrókur:
Loðskinn á lokasprettinum
DV, Akureyri:
Skinnaiðnaðarfyrirtækið
Loðskinn hf. á Sauðárkróki verður
nær örugglega tekið til gjaldþrota-
skipta á næstunni. Fyrirtækið hefur
átt í geysilegum erfiðleikum undan-
farin ár og stærstu eignaraðilarnir
hafa ausið i það fjármagni til að
halda því gangandi, en án árangurs.
Loðskinn hefur ekki farið var-
hluta af þeirri lægð sem markaðir
fyrir skinnavörur hafa verið í á
undanfornum árum, og má segja að
eigendur fyrirtækisins hafi róið líf-
róður til bjargar fyrirtækinu sem er
um 25 ára gamalt. Þegar starfsmenn
voru flestir hjá
Loðskinni voru þeir á
bilinu 60-70 en þeim
hefur farið fækkandi
hægt og bítandi og þar
hefur að undanförnu
ekki starfað nema rétt
á annan tug manns.
Sauðárkróksbær og
síðan sveitarfélagið
Skagafjörður eftir sam-
einingu sveitarfélag-
anna í Skagafirði er
stærsti eigandi Loð-
skinns ásamt Búnaðar-
bankanum, en hvor
þessara aðila á um
Úr vinnslusal Loðskinns hf. á Sauðárkróki.
þriðjung hlutafjár í fyr-
irtækinu. Sveitarfélag-
ið hefur nú ákveðið að
leggja ekki frekara fjár-
magn í fyrirtækið og
tilkynnti það á aðal-
fundi þess fyrir
skömmu. Það þýðir ein-
faldlega það að Búnað-
arbankinn mun fara
sömu leið, og fyrirtæk-
isins bíður ekkert ann-
að en gjaldþrot á næst-
unni.
Sem fyrr sagði hefur
starfsmönnum fyrir-
tækisins fækkað hægt
og bítandi á síðustu misserum og
árum. Það hefur þýtt að vinnumark-
aðurinn hefur ekki fengið skellinn
allan í einu eins og gerst hefði hefði
fyrirtækinu verið lokað skyndilega
þegar starfsemi þar var í meiri
blóma og um fór að þrengjast á
mörkuðum fyrir framleiðsluvörur
þess. Sveitarfélagið hefur þegar
óbeint afskrifað eign sína í
Loðskinni, en til björgunaraðgerða
þess hafa bæði sveitarfélagið og
Búnaðarbankinn varið hundruðum
milljóna króna á undanförnum
árum, sennilega allt að hálfum
milljarði. -gk
Fyrirspurnir eru þegar farnar að berast á vef lögreglunnar: logreglan.is og police.is. Einnig eru ýmsar vel þegnar
ábendingar farnar að berast lögregluembættunum víða um land. Að sögn Jónmundar Kjartanssonar hjá ríkislög-
reglustjóra er þess óskað að almenningur beini erindum sínum beint á viðkomandi embætti - ekki einungis til ríkis-
lögreglustjóra eins og talsvert hefur borið á. Að öðru leyti rfkir bjartsýni á hvernig til tekst með vefinn. í framtíðinni
er m.a. stefnt að því að hægt verði að leggja fram kærur og annað á vefnum - þó þannig að kærandi mæti síðar sjálf-
ur til að staðfesta. Öðrum erindum verður einnig hægt að sinna á vefnum. DV-mynd S
Norðurlandameistaramótið
/ Karate
The Nordic
Open Karate
Championship
1999
Danmörk
Finnland
Noregur
ísland
Svípjóð
Eistland
N-írland
Skotland
Þórshöfn:
Kúfiskvinnslan
senn í gang
DV, Akureyri:
„Það hefur verið undirrituð vilja-
yfirlýsing um samruna fyrirtækj-
anna og það er unnið samkvæmt
þeirri yfirlýsingu," segir Jóhann A.
Jónsson, forstjóri Hraðfrystistöðvar
Þórshafnar, um samruna Skelfisks
ehf. á Flateyri og kúfiskdeildar
hraðfrystistöðvarinnar á Þórshöfn.
Jóhann segir að reiknað sé með
að kúfiskveiðar við norðaustur-
hornið og vinnsla á Þórshöfn hefj-
ist væntanlega á næstu vikum en
við veiðamar verður til að byrja
með notast við skip Skelfisks sem
stundað hefur þessar veiðar
vestra. Þar er ástandið hins vegar
Tengist ekki
Slysavarnaskóla
Vegna fréttar í DV um björgunar-
sveitarmann sem slasaðist við æf-
ingar þar sem hann stökk frá borði
Sæbjargar sem hýsir Slysavarna-
skóla sjómanna vill Hilmar Snorra-
son skólastjóri taka fram að málið
tengist með engum hætti skólanum
eða námskeiðum hans.
orðið þannig að skelfiskurinn virð-
ist uppurinn en við norðaustur-
hornið er mikið af honum og lítið
hefur verið veitt.
Reiknað er með að stór hluti
starfsfólks Skelfisks ehf. muni
flytja sig austur til Þórshafnar en
Jóhann A. Jónsson segir að þegar
kúfiskvinnslan hefst þar verði
hægt að bæta við þeim mannskap
að vestan sem vill koma austur en
starfsmenn Skelfisks á Flateyri
voru að meginhluta til útlending-
ar. Jóhann segir að e.t.v. verði ein-
hver húsnæðisvandræði en það sé
þá mál sem taka verði á þegar þar
að kemur.
Hraðfrystistöð Þórshafnar er nú
með í smíðum í Kína fullkomið skel-
fiskveiðiskip sem reiknað e'r með að
komi til landsins í apríl á næsta ári.
Á Þórshöfn var fyrir nokkrum
árum byggð fullkomin skelfisk-
vinnsla í nýbyggingu við frystihús-
ið en byrjunarerfiðleikar sem upp
komu í vinnslunni þar og síðan það
að skelfiskveiðiskip fyrirtækisins
sökk hefur orðið til þess að húsnæð-
ið hefur lítið verið nýtt. Nú stendur
það til bóta og hjólin fara væntan-
lega að snúast í kúfiskvinnslunni á
Þórshöfn á næstunni. -gk
tyttufara vel umiþig
og þú ncerð betri árangri
Hvílir þig þegar mest á reynir.
Framlextt í USA
Margar tegundir. Verð frá kr. 35.9S0,
Áklæði & leður í miklu úrvali.
HUSGAGNAHOLLIN
VJSA
Bíldshöfði 20 - 112 Reykjavík Sími 510 8000
*
%