Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1999, Side 4
4
FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1999
Fréttir
sandkorn
Flugleiöir máta nýja búninga á allt starfsliðið:
Flugmennirnir
fá taugaáfall
- segir flugfreyja sem er í sjöunda himni með búninginn
Við misstum viðskiptin við
Flugleiðir í sumar. Þeir tóku
Balenchia i París fram yfir okk-
ur,“ sagði Ásbjörn Björnsson,
klæðskeri í Fasa, sem saumað hef-
ur einkennisbúninga fyrir starfs-
lið Flugleiða undanfarin ár en hef-
ur nú misst þann spón úr aski sín-
um. „Ég tel að við höfum staðið
okkur vel og þjónað fyrirtækinu af
kostgæfni. Flugleiðir voru með
lokað útboð vegna búninganna og
þar lutum við í lægra haldi,“ sagði
Ásbjörn, klæðskeri í Fasa.
Starfsfólk Flugleiða er þessa
dagana í óðaönn að máta nýju
búningana frá París og þeir sem
reynt hafa lýsa yfir mikilli ánægju
með árangurinn sem náðst hefur
hjá klæðskeranum i París. Eða
eins og ein flugfreyjan orðaði það:
„Þetta er smart og klæðilegt en ég
held að flugmennirnir eigi eftir að
fá sjokk eða taugaáfall. Búningarn-
ir þeirra eru dálítið framúrstefnu-
legir.“
Katla Steinsson, sem sér um
skipulagningu búningaskiptanna
hjá Flugleiðum, er þögul sem gröf-
in þegar spurt er um nýju ein-
kennisbúningana. Skilaboðin frá
Kötlu eru þess efnis að nýju bún-
ingamir verði kynntir almenningi
og fjölmiðlum 9. nóvember næst-
komandi. Þá er fyrirhugað að
fljúga skraut- og sýningarferðir til
Flugmenn mátuðu „framúrstefnu"
búninga sýna í gær. Ekki var að
merkja að þeir fengju áfall.
allra viðkomustaða Flugleiða og
kynna þar nýju línuna í útliti
starfsfólks Flug-
leiða. Verða
tvær áhafnir fé-
lagsins einvörð-
ungu í slíku
kynningarflugi
næstu vikurnar.
í höfuðstöðv-
um Flugleiða er
farið með bún-
ingaskiptin sem
hernaðarleynd-
armál enda
vænta stjórn-
endur fyrirtæk-
isins mikils af
útlitsbreyting-
unum. Enginn
utanaðkomandi
á að fá að sjá
nýju búningana
fyrr en skraut-
og sýningarflug-
in hefjast 9. nóv-
ember. Einar
Ólason, ljós-
myndari DV,
brá sér hins
vegar niður á
Hótel Loftleiðir
í gær og mátaði
nokkra búninga
með aðstoð ljós-
myndavélarinn-
ar.
-EIR
Flugfreyjurnar mættu í gær til að máta hina glæsilegu
búninga. Þær voru himinlifandi með fötin. DV-myndir E.ÓI
Fingraför
Ofurviðkæmt mál er í gangi í
Neskaupstað þar sem fingrafór
hafa verið tekin af obba starfs-
manna Síldarvinnslunnar hf.
Starfsmennirnir hafa mátt und-
irgangast þetta
vegna þjófnaðar á
tölvubúnaði sem
framinn var í fyr-
irtækinu. Mörg-
um þykir sem
niðurlæging
verkafólksins sé
mikil og óþörf.
Stella Steindórs-
dóttir trúnaðar-
maður sagði við DV að spurning
væri um lögmæti aðgerðanna.
Það þykir nokkuð skondið að
formaður verkalýðsfélagsins á
staðnum, Jón Ingi Kristjáns-
son, fæst ekki til að segja orð um
málið sínu fólki til vamar. Hann
er nefnilega lögga með for-
mannsdjobbinu ...
Úr boltanum
Skemmtistaðaflóran í Reykja-
vík tekur sífellt breytingum og
nýir staðir skjóta upp kollinum.
í desember murr verða opnaður
nýr skemmtistaður í grennd við
Gauk á Stöng í
Tryggvagötu. Aðal-
maðurinn á hin-
um nýja stað er
knattspyrnumað-
urinn og alþingis-
maðurinn fyrr-
verandi, Ingi
Björn Alberts-
son. Ingi Bjöm
sem þjálfaði Val á
síðustu knattspyrnuvertið mun
nú snúa sér í ríkari mæli að veit-
ingahúsarekstri sem hann er þó
ekki ókunnugur enda einn af eig-
endum Gauks á Stöng. Ekki er
vitað hvað staðurinn, sem á að
höfða til 25 ára og eldri, mun
heita en gárungi nokkur stakk
upp á Hættur í boltanum ...
íslenskar getraunir:
Metpottur í boði
- fyrsti vinningur allt að 65 milljónir
Á morgun veröur fyrsti vinningur í
getraunum hærri en nokkru sinni
fyrr. Enginn tippari náði 13 réttum um
síðustu helgi og því verður fyrsti vinn-
ingur tvöfaldur. Þær 27 miiljónir sem
voru í fyrsta vinningi síðastliðinn
laugardag verða lagðar við söluna í
þessari viku og býst Haraldur Haralds-
son, framkvæmdastjóri íslenskra get-
rauna, við því að fyrsti vinningur
verði allt að 65 milljónum króna.
„Þetta er i þriðja skipti sem fyrsti
vinningur verður tvöfaldur frá því að
sænska getraunafyrirtækið Svenska
Spel sameinaðist Islenskum getraun-
um árið 1991,“ segir Haraldur.
„Fyrst gerðist það 5. ágúst árið 1995.
Þá var enska knattspyrnan ekki hafln
og fyrsti vinningur varð aðeins 36,4
milljónir króna. Aftur gerðist það 3.
október 1998 og þá voru á seðlinum
landsleikir og leikir úr neðri deildum í
Svíþjóð og varð fyrsti vinningur 43,3
milljónir króna. Nú er fyrsti vinningur
tvöfaldur í þriðja sinn og salan hefur
verið stígandi. Á seðlinum eru enskir
leikir og má því búast við góðri sölu og
þar sem 27,2 milljónir króna færast
milli vikna má búast við því að fyrsti
vinningur nái nýju hámarki og er ég
að gæla við 65 mifljónir," segir Harald-
ur.
Hæsti vinningur sem hefur verið
Haraldur Haraldsson, framkvæmda-
stjóri íslenskra getrauna, býst við því
að fyrsti vinningur verði 65 milljónir í
tvöföldum potti. DV-mynd Teitur
greiddur út fyrir 13 rétta hjá íslensk-
um getraunum er 15,3 milljónir króna
og kom vinningurinn á 48 raða sjálf-
valsseðil sem kostaði 480 krónur. -E.J.
Warnerbros
Vegur rithöfúndarins Ólafs
Jóhanns Ólafssonar hefur ekki
í annan tíma verið meiri. Hann
hefur nú tekið við stjórnartaum-
um margmiðlunarþáttar Warner
Bros-samsteypunn-
ar sem veltir marg-
foldum flárlögum
íslands. Ölafur Jó-
hann mun þó
hvergi láta deig-
an síga í ritun
skáldsagna og
þjóðin mun
áfram fá að
njóta verka
hans. Ólafur Jóhann er að öllu
jöfnu brosmildur maður en nú
hefur bros hans enn breikkað.
Warnerbros heitir það núna ...
Sami maður varð í tvígang fyrir barðinu á þjófum:
Bíræfnir bílþjófar á Njálsgötunni
- stálu fyrst kerrunni en síðan jeppanum hálfum mánuði seinna
„Ætli þjófana hafi ekki vantað
bíl til að draga kerruna," segir
Þröstur Ottósson sölumaður sem
orðið hefur óþyrmilega fyrir barð-
inu á þjófum undanfarnar vikur.
Þröstur býr á Njálsgötu 31 og
varð fyrir því fyrir hálfum mánuði
að forláta kerru var stolið af lóð
hans.
„Það hefur þurft tvo fjleflda
menn í að ná kerrunni út í götu.
Hún var full af grjóti og níðþung.
Að auki voru ruðningar við lóða-
mörkin vegna framkvæmda í göt-
unni og því hafa þjófarnir þurft að
draga hana með handafli út á
götu,“ segir Þröstur.
Hann segir kerruna kosta hátt í
200 þúsund og út af fyrir sig sé það
tjón tilfinnanlegt. Hann segist hafa
svipast um eftir kerrunni en án ár-
angurs. Aðfaranótt mánudags
hafði enn ekkert bólað á kerrunni
þegar enn dró til tíðinda á sama
Kerran góða sem þjófarnir stálu fyr-
ir nokkrum vikum.
...og jeppann hirtu þeir aðfaranótt
mánudags.
vettvangi við Njálsgötuna.
„Þegar ég vaknaði á mánudags-
morguninn var hvarf kerrunnar
enn í huga mér enda hafði ég svip-
ast um eftir henni dögum saman. Ég
Þröstur Ottósson sölumaður er ráð-
þrota eftir að þjófar hafa í tvígang
stolið af honum. Fyrst kerrunni en
síðan jeppanum. DV-mynd Teitur
átti alls ekki von á þeim ósköpum
sem enn áttu eftir að dynja yfir mig.
Mig rak í rogastans þegar ég kom út
og sá að jeppinn minn var horfinn
úr innkeyrslunni. Þarna höfðu ver-
ið þjófar á ferð að nýju en nú var
tjónið tilfmnanlegra þar sem bíllinn
kostar um 1,5 milljón krónur. Und-
anfarna daga hef ég verið að svipast
um eftir bæði jeppanum og
kerrunni en hvorugt fundið. Þetta
er engu líkt sem ég hef áður lent í.
Ég veit ekki hverju þeir stela næst,“
segir Þröstur sem kært hefur báða
þjófnaðina til lögreglu án þess þó að
neitt hafi verið upplýst.
„Mér sýnist lögreglan vera algjör-
lega máttvana í málinu," segir
hann.
Þess má að lokum geta að bifreið-
in er af gerðinni Toyota Landcru-
iser, árgerð 1988, og ber einkenn-
istaflna LF-972. -rt
Flýgur Hrafninn?
Slagurinn um tilnefningar til
óskarsverðlauna er nú nánast
útkljáður. Myrkrahöfðinginn,
stórmynd Hrafns Gunnlaugs-
sonar leikstjóra, verður frum-
sýnd í bílabiói í
menningarbænum
ísaflrði á sunnu-
dagskvöldið. Öll-
um bæjarbúum
er boöið til frum-
sýningarinnar
en óljóst er
hvoi-t Hrafn
sjálfur verður
viðstaddur. Það þótti
mörgum skondið að framleið-
andinn, Friðrik Þór Friðriks-
son, mætti ásamt Ara Kristins-
syni, tökumanni á Skjá eitt, til
að kynna myndina en leikstjór-
inn var víðs fjarri. Það er túlkun
einhverra að ekki sé full sátt á
milli leikstjóra og framleiðanda.
Nú er spurt: Flýgur Hrafninn
vestur? ...
Umsjón: Reynir Traustason
Netfang: sandkom @íf. is