Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1999, Blaðsíða 32
*
%
Sölukössum er lokað
kl. 19.30
á laugardögum
og dregið
kl. 19.4S
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá I síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sém birtist eða er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fuilrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1999
Myrkrahöfðinginn:
Veldur ekki
svefnleysi
- segir leikstjórinn
„Þetta er ekkert sem veldur mér
svefnleysi. Ég á ekki von á öðru en
að þetta verði hið besta mál,“
sagði Hrafn
Gunnlaugsson,
leikstjóri
Myrkrahöfðingj-
ans, um frum-
sýningu mynd-
arinnar á ísa-
firði nk. sunnu-
dagskvöld.
Hrafn kvaðst
Hrafn Gunn- sjejna aQ þvj ag
laugsson. verða viðstadd-
ur frumsýninguna. Hann sagði
myndina fullfrágengna af sinni
hálfu.
„En það verður ekki auðvelt fyr-
ir mig að kjósa á milli þess hvor
eigi að keppa til óskarsverðlauna,
Myrkrahöfðinginn eða Ungfrúin
góða og Húsið. Systir mín leikur
aðalhlutverkið í Ungfrúnni og son-
ur hennar, Ólafur Egill Egilsson,
vinnur feiknalega stórt listrænt af-
rek í Myrkrahöfðingjanum, þar
sem hann gerði búningana."
-JSS
Spegill, spegill,
herm þú mér...
í Helgarblaði DV á morgun verða
kynntar niðurstöður úr skoðanakönn-
un þar sem spurt er hver sé kyn-
þokkafyllsta kona og karl á íslandi í
** dag.
Einnig verður birt viðtal við Evu
Klonowski sem hefur starfáð við að
grafa upp fjöldagrafir í Bosniu.
Myndir Þorvaldar Amar Kristmunds-
sonar sýna glöggt þann óhugnað sem
mætir Evu á hverjum starfsdegi.
Birtir eru kaflar úr bók Amórs
Hannibalssonar sem fjallar um sam-
skipti íslenskra sósialista og komm-
únista við skoðanabræður sína í Sov-
étríkjunum fyrr á öldinni. Þessi sam-
skipti voru meiri og nánari en áður
var vitað.
Einnig birtast kaflar úr bók Finn-
boga Hermannssonar um ævintýra-
legt lifshlaup Huldu Valdimarsdóttur
Ritchie, vestfirskrar kjamakonu.
*
Starfsfólk Flugleiða er nú í óðaönn að máta nýja einkennisbúninga sem kynntir verða með skrautsýningu 9. nóvem-
ber. Lesenda sinna vegna tekur DV forskot á sæluna og sýnir í dag hvernig til hefur tekist með hina nýju, frönsku
hönnun sem á að breyta útliti og yfirbragði Flugleiða. Sjá bls. 4. DV-mynd E.ÓI.
Lagt hald á ótrúlegt myndbandasafn á heimili:
Þúsundir klámspóla
sem vekja viðbjóð
Lögreglan í Reykjavík hefur lagt
hald á rúmlega tvö þúsund mynd-
bönd með sérlega grófú klámi, með-
al annars þar sem allt niður i 5 ára
böm eru bundin og þau eru barin
og beitt öðru ofbeldi. Myndböndin
fundust á heimili rúmlega sextugs
karlmanns í miðborginni.
„Þetta er það viðbjóðslegasta sem
maður hefur séð,“ sagði heimildar-
maður innan lögreglunnar við DV.
Lögreglan lagði einnig hald á tvö
þúsund myndbönd með fjölfólduðu
sjónvarpsefni. Maðurinn sem á öll
þessi myndbönd - um 4 þúsund tals-
ins - er sterklega grunaður um að
hafa leigt klámefnið út til annarra.
Klámið sem hér um ræðir vekur
mikinn óhug hjá lögreglumönnum.
Á meðal efnisins vora myndbönd
með litlum börnum. Þar var greini-
lega harðsvírað brotafólk sem stýrði
framleiðslunni. Á einni spólunni
hafði verið saumað fyrir kynfæri
bama. Annað efni var að mjög
miklu leyti í þeim dúr að það vekur
upp viðbjóð hjá fólki.
Lögreglunni bárust upplýsingar
um að umræddur maður hefði verið
að leigja út gróft klámefni. Um miðj-
an mánuðinn var ákveðið að láta til
skarar skríða og gera húsleit hjá
honum. Við leit á heimilinu kom í
ljös hvílíkt magn af myndbandsspól-
um að menn höfðu vart séð annað
eins.
Klámefnið hefur nú allt verið
skráð þar sem það liggur geymt í
stórri stæðu í tugum kassa á lög-
reglustöðinni í Reykjavik.
Maðurinn sem átti efnið sem
lagt hefur verið hald á hefur eftir
því sem DV kemst næst ekki verið
dæmdur fyrir hliðstæða háttsemi
og á ekki markverðan sakarferil að
baki þó lögreglan kannist vel við
hann. Mál hans verður sent
ákæruvaldi innan tíðar og maður-
inn svo væntanlega leiddur fyrir
dóm.
-Ótt
Norðurál:
Kerklandur
„Starfsmönnum var aldrei hætta
búin. Kerin eru niðurgrafin og álið
rennur beint ofan í kjallara þar sem
enginn er,“ sagði Willy Kristensen,
kerskálastjóri hjá Norðuráli, en þar
láku 6 tonn af áli úr einu keri án þess
að menn gætu rönd við reist. „Þetta
gerist 4-5 sinnum á ári í álverum en
er í fyrsta sinn hjá okkur hér í Norð-
uráli,“ sagði Willy.
Nú er beðið eftir því að kerið kólni
og þá verður það endurfóðrað. Sjálfur
lekinn verður hreinsaðir upp og reynt
að nýta hann eftir bestu getu.
-EIR/GAR
^ Akureyri:
Arekstrar
í snjónum
DV, Akureyri:
Snjókoma var víða á Norðurlandi
í nótt og í morgun og alhvítt niður
að sjó. Á Akureyri sagði varðstjóri
hjá lögreglunni að umferðin hefði
gengið þokkalega en þó virtist sem
einhver hrina árekstra væri að hefj-
ast um klukkan átta þegar umferðin
jókst. Ekki hafði þó verið tilkynnt
um alvarleg umferðaróhöpp.
Færð á fjallvegum var yfirleitt
sæmileg norðanlands en á Vest-
fjörðum hafði snjóað eitthvað meira
og á fjallvegum, t.d. á Klettshálsi,
var ófærð og þæfingsfærð í ísafjarð-
ardjúpi. -gk
Sprengja sprakk
í Langholtsskóla
Sprengja sprakk í skólastofu í
Langholtsskóla í nótt. Sprengjunni
hafði verið komið fyrir í spaðaviftu á
glugga utan við húsið Að sögn
slökkviliðsins var líklega um að ræða
heimatilbúna púðursprengju. Reyk-
hreinsa þurfti stofuna en nokkrar
skemmdir urðu á gólfefnum. Nokkur
hvellur var af sprengingunni en ná-
grannar skólans heyrðu hvellinn og
höfðu samband við lögregluna. -hól
Líkin fundin
Lík allra mannanna þriggja sem
fórast þegar bát þeirra hvolfdi á
Mývatni á þriðjudagskvöldið era
fundin. Kafarar fundu lík tveggja
mannanna í gær en þriðji maðurinn
fannst seint aðfaranótt miðviku-
dagsins. Hátt í tveir tugir kafara og
fjöldi annarra manna lögðu nótt við
dag við björgunarstörf. -Ótt
Veðrið á morgun:
Vægt frost
fyrir norðan
Á morgun verður norðan- og
norðaustan 10-15 m/s og slydda
suðaustanlands síðdegis. Vægt
frost norðan til en hiti 0 til 5 stig
sunnanlands.
Veðrið í dag er á bls. 29.
MERKILEGA MERKIVELIN
brother pt-i^l
islenskir stafir
5 leturstærðir
8 ieturgerðir
6, 9 og 12 mm prentborðar
Prentar I tvær línur
Verð kr. 6.603
Nýbýlavegi 14 Sími £