Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1999, Side 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 1999
Neytendur
Vítamín í vetur
Vítamín-
þarfir líkam-
ans eru ekki
alltaf þær
sömu og viss-
ar aðstæður
kreíjast sér-
stakrar fæðu
og bætiefna. Hér á eftir fer listi yfir
slíkar aðstæður, flestar þeirra tíma-
bundnar með uppástungum um
bætiefni.
Gelgjubólur
Reynt hefur verið að meðhöndla
gelgjubólur á ýmsan hátt, m.a. með
röntgengeislum og sýklalyfjum.
Náttúruleg meðhöndlun felst í því
aö taka:
1 fjölvítamín án steinefna á dag
1-2 E-vítamín á dag
1-2 A-vítamín (25000 a.e.,
vatnsleysið, ekki lýsi)
6 daga vikunnar.
1 talla þrisvar á dag af
50 mg húðuðu sinki
3-6 hylki á dag af
Acidophilus-töflum.
Fótsveppur
C-vítamínduft eða kristallar er
borið beint á sýkta svæðið. Haltu
fótum þínum þurrum og vertu skó-
laus eins oft og þér er mögulegt þar
til sýkingin líður hjá.
Andremma
Ásamt því að bursta rétt og nota
tannþráð má reyna:
1 chlorophyll-töflu eða hylki
1-3 sinnum á dag
3 acidophylus-hylki 3 sinnum
á dag
50 mg af sinki 1-3 sinnum á dag.
Beinbrot
Hafir þú beinbrotnað
einhvern tímann, veistu
hversu ergileg biöin er
eftir því að brotið grói.
Gott ráð við þessar að-
stæður er að auka neyslu
á kalki og D-vítamini.
1000 mg af kalki og 400 a.e.
af D-vítamíni eru góðir
dagskammtar. 5-10 bein-
mjölstöflur með D-vítamíni
gera sama gagn.
Frunsur
Fátt er eins ergilegt og að fá
frunsu. Besta bætiefnalækningin er
að taka:
1000 mg af C-kombíni kvölds
og morgna
3 hylki af acidophylus þrisvar
sinnum á dag
E-vítamínolía, 28.a.e. borin
beint á sýkta svæðið.
DV
Baunir eru
hollar og ódýrar
Baunir innihalda mikið af næringarefnum, s.s. kalki, járni, sinki og B-
vítamínum og eru því upplagt fæði nú þegar veturinn er genginn í garð og
margir þurfa á aukaorku að halda.
Baunir hafa í gegnum aldirnar ver-
ið mikilvægur hlekkur i fæðukeðju
margra þjóða. Baunir eru ódýrar,
hollar og innihalda mörg næringar-
efni og vítamín og henta vel í ýmsa
rétti í vetur þegar margir þurfa á
aukaorku að halda.
Baunir innihalda mikið af eggja-
hvítu og vegna þess hversu litla fitu
og kólesteról þær innihalda er betra
að fá eggjahvítu úr baunum heldur en
úr fæðu úr dýraríkinu.
Baunir innihalda einnig mikið af
trefjum, kalki, sinki, járni, kalíum,
fosfór og A, Bl, B2 og B3-vítamínum.
í þeim löndum þar sem baunir eru
stór hluti fæðunnar er algengt að nota
þær með komi. Réttir sem saman-
standa t.d. af linsubaunum og byggi,
maís og nýrnabaunum eða hrísgrjón-
um og aduki-baunum eru þekktir víða
um heim. Nútíma næringarrannsókn-
ir hafa leitt í ljós að eggjahvíta slíkra
rétta er heppileg því kornið inniheld-
ur þær amínósýrur sem baunirnar
skortir og öfugt. Baunir má annars
borða á margan hátt, með grænmeti,
núðlum, í súpum, sósum og með kjöti
og fiski.
í kulda og myrkri
Þótt baunir lífgi upp á eldhúsið þeg-
ar þær eru geymdar í glerkrukkum á
hillu eða borði er það ekki heppilegur
geymslustaður. Bragðgæði og næring-
argildi baunanna rýrna nefnilega til
muna ef þær eru geymdar þar sem
mikil birta er og ef sólin skín á þær.
Best er að geyma baunir í loftþéttum
umbúðum á köldum og dimmum stað.
Ef baunir eru keyptar í lausri vigt
verður að hreinsa burt hugsanlega
smásteina áður en þær eru settar í
geymslu.
Allar baunir verður að hreinsa og
skola mjög vel fyrir matreiðslu og síð-
an eru þær lagðar í bleyti í kalt vatn
þar sem þær tvöfalda eða þrefalda
rúmmál sitt. Fyrir 1/2 kíló af baunum
þarf 11/2 til 2 lítra af vatni. Baunirn-
ar eiga að liggja í bleyti í 8-12 klukku-
stundir. Áður en baunimar eru soðn-
ar er vatninu hellt af og þær skolaðar
úr köldu vatni.
Sumir kvarta yfir því að baunir
valdi þembu í maganum eða vind-
gangi. Hægt er að koma í veg fyrir
slíkt með því að bæta út vatniö sem
baunirnar eru soðnar í bita af
„kombu“ sem fæst í heilsubúðum.
Eitt kíló af baunum er soðið í 3-4
lítrum af vatni. Fyrstu 10 mínúturnar
eru baunimar látnar bullsjóða í pott-
inum án loks. Ef með þarf er fleytt
ofan af þeim og lokið sett á pottinn.
Baunimar eru síðan soðnar áfram í 45
mínútur til 2 klukkustundir, allt eftir
því um hvaða baunategund er að
ræða. Ekki er ráðlegt að salta baun-
irnar fyrr en u.þ.b. 15 mínútur era eft-
ir af suðutímanum.
Fjölbreyttar tegundir
Til eru að minnsta kosti 150 tegund-
ir af baunum í heiminum og eru þær
ólíkar að lit, bragði og lögun. Hér á
landi hefur úrval af baunum aukist
jafnt og þétt undanfarin ár og nú er
svo komið að hægt er að fá gott úrval
af alls kyns framandi baunum sem
hægt er að nota í nýstárlega rétti.
Fyrst er að nefna aduki-baunir, sem
era litlar og dökkrauðar á litinn. Þær
eru mjög eggjahvíturikar og hafa ver-
ið notaðar gegn nýrnakvillum og
meltingartruflunum. Suðutími þeirra
er 1-1 1/2 klukkstund. Aduki-baunir
eru notaðar í súpur, pottrétti, með
grænmeti eða soðnar með hrísgrjón-
um.
Augnbaunir eru ljósar með svört-
um „augum“ í miðjunni. Þær eru not-
aðar í súpur, sósur, salöt, pott- og
pönnurétti og sem meðlæti ásamt
grænmeti. Suðutími augnbaunanna er
um ein klukkustund.
Bóndabaunir og brúnar baun-
ir
Bóndabaunir eru stórar, brúnar og
flatar með þykku hýði sem oftast er
fjarlægt við neyslu. Ágætar í pottrétti.
Suðutími er 1-2 klukkustundir.
Brúnar baunir eru svipaðar og
nýrnabaunir en heldur mildari á
bragðið. Suðutími þeirra er 1-2
klukkustundir eftir stærð. Þær eru
notaðar í alls kyns pott- og pönnurétti,
blandaðar kjöti eða/ og grænmeti.
Brúnar baunir eru einnig vinsælar í
salöt.
Flagelot-baunir og gular
baunir
Flagelot-baunir eru skornar upp
áður en þær eru fullþroskaðar og eru
því fólgrænar á litinn. Suðutími er 1-2
klukkustundir eftir stærð. Flagelot-
baunir eru notaðar líkt og hvítar
baunir og mjög góðar í salöt.
Gular heilbaunir eru sömu baun-
irnar og gular hálfbaunir nema heU-
baunimar eru með hýðinu á. Bauna-
súpa úr heilbaunum þykir bragðmeiri
en úr hálíbaunum. Suðutími er ltil 1
1/2 klukkustund.
Hvítar baunir og kjúklinga-
baunir •
Hvitar baunir eru þekktastar sem
bakaðar baunir í tómatssósu. Suðu-
timi þeirra er um 11/2 klukkustund.
Hvítar baunir eru notaðar í salöt, sós-
ur og pott- og pönnurétti. Einnig má
nota þær sem meðlæti með öðrum
mat.
Kjúklingabaunir eru ljósdrapplitar
á litinn, með ójafnt yfirborð og hnetu-
keim. Suðutími er 1 til 1 1/2 klukku-
stund. Kjúklingabaunir eru góðar í
salöt og pott- og pönnurétti. Einnig er
hægt að mauka þær til að búa til
baunabuff. Hægt er að fá kjúklinga-
baunir ristaðar og kryddaðar og
borða þær sem snakk.
Linsubaunir og mung-baunir
Ótal tegundir eru tO af linsubaun-
um. Þeim er þó helst skipt i tvo meg-
inflokka. Annars vegar í stórar flatar,
oftast drapplitar, grænar eða brúnar.
Hins vegar eru litlar linsur sem eru
rauðar, gular, grænar og koma frá
Kína og víðar. Linsur má sjóða án
þess að leggja þær áður í bleyti. Þá
þurfa þær mn 2 tíma í suðu. Betra er
þó að leggja linsubaunirnar í bleyti í
um 1-2 klukkustundir því þá verður
suðutiminn styttri og baunimar auð-
meltari.
Linsubaunir henta vel í súpur,
salöt og ofnrétti.
Mung-baunir eru litlar og grænar
og eru stundum nefndar grænar soja-
baunir. Þær þurfa ekki að liggja jafn-
lengi í bleyti og aðrar baunir. Suðu-
tími þeirra er um 1 klukkustund. Þær
eru helst notaðar til spirunar og best
þekktar sem kínverskar baunaspírur.
Mung-spírur má borða bæði hráar og
soðnar.
Rýmum fyrir jóla-
)q áramótafatnaði
OXFORD
Nýrnabaunir og pinto-baunir
Nýmabaunir eru um 15 mm langar,
nýrnalaga og eru til í ótal litum, t.d.
svörtum, hvítum, bleikum, brúnum
og rauðum. Nýrnabaunir eru mjög
góðar í alls kyns pottrétti, með blönd-
uðu grænmeti og með kjöti og í salöt.
Þær er líka hægt að mauka og búa til
baunabuff. Suðutími nýmabaunanna
er um 1-2 klukkustundir.
Pinto-baunir eru brúnyrjóttar og
notaðar líkt og nýrnabaunir. Þessar
baunir eru mikið notaðar í mexíkóska
rétti. Suðutími er 1-2 klukkustundir.
Smjörbaunir og sojabaunir
Smjörbaunir eru hvítar, stórar, flat-
ar og bragðmildar. Þær eru vinsælar í
pottrétti, súpur og salöt. Suðutími er
1-2 klukkustundir.
Sojabaunir eru stundum nefndar
kjöt jarðar í Austurlöndum því úr
þeim hafa Austurlandabúar fengið að-
alnæringu sína í gegnum aldirnar.
Þær eru næringarríkastar allra bauna
og eru mjög eggjahvítu- og steinefna-
ríkar. Þær eru ekki mikið notaðar í
baunarétti sem slíkar heldur eru þær
maukaðar og gert úr þeim baunabuff.
Úr þeim eru líka framleidd ýmis mat-
væli, s.s. sojamjöl, sojakjöt, sojamjólk,
sojasósa, tofu, miso og ótal margt
fleira. Suðutími sojabauna er um 1
klukkustund.
-GLM