Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1999, Side 32
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú Sbendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá I síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
i hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 1999
Þessir tveir frísku menn nýta síð-
ustu haustdagana til að ganga frá
málningarvinnunni áður en veturinn
^■gengur í garð. Myndin er tekin við
Flókagötuna. DV-mynd Pjetur
Tölvunefnd að semja um einn þátt vinnslu gagnagrunns:
Erlendir ráðgjafar
komi til hjálpar
Tölvunefnd er að ganga til samn-
inga við erlenda ráðgjafa varðandi
gerð öryggisskilmála um gerð og
vinnslu gagnagrunns á heilbrigðis-
sviði. Páll Hreinsson, formaður
nefndarinnar, sagði við DV í morg-
un að fyrirtækið sem hér um ræðir
sé traust og sérhæfi sig í öryggis-
málum og hafi víðtæka reynslu á
því sviði.
„Lögin um gagnagrunn gera ráð
fyrir að gera verði mjög strangar ör-
yggiskröfur um verndun per-
sónuuplýsinga. Til að fá slíka þekk-
ingu þarf að leita til erlends fyrir-
tækis. Við erum ekki búnir að
ganga frá samningnum en það verð-
ur vonandi gert í þessari viku,“
sagði Páll.
Erlenda ráðgjafarfyrirtækið er að
leggja fram ákveðnar tillögur sem
Tölvunefnd vinnur úr. Það er hins
vegar á valdi heilbrigðis- og trygg-
ingaráðuneytisins að gefa út leyfi til
gerðar og starfrækslu gagnagrunns á
heilbrigðissviði.
Páll segist ekki vilja gefa upp hvaða
ráðgjafarfyrirtæki um er að ræða fyrr
en gengið hefði verið frá samningum
við fyrirtækið - það skýrist alveg á
næstunni. Hann segir að verkefnið
verði þannig framsett að það hafi
skýra skírskotun til öryggiskrafna
þess lagatexta sem á við um gagna-
grunn um persónuuplýsingar.
„Hjá þessu fyrirtæki er þekking, erfðasviðið eða hemaðargrunn,"
hvort sem um er að ræða að búa til sagði Páll Hreinsson.
heilbrigðisgagnagrunn varðandi -Ótt
Kári Stefánsson bfður eftir starfsleyfinu.
Sofnuðu út frá kertum:
Símhringing
bjargaði
fjölskyldu
- þrennt með eitrun
Fjölskylda í Breiðholti slapp
naumlega eftir að hafa sofnað út
frá logandi kertum í nótt. Mildi
var að fjölskyldan vaknaði en
símhringing frá foreldrum kon-
unnar kom þeim til bjargar. Þeg-
ar þau vöknuðu var mikiil reykur
í íbúðinni en borðplata úr plasti
hafði bráðnað sem olli slæmum
reyk. Þau voru flutt á slysadeild
til frekari athugunar. Samkvæmt
vakthafandi lækni varð þeim ekki
meint af en fylgst er með tveggja
ára dóttur hjónanna.
-hól
Myndin er frá snjóflóðinu sem féll milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur.
DV-mynd Helgi
Fyrsta snjóflóð vetrarins fallið:
Þriggja metra djúpt
DV, Ólafsfiröi:
Snjóflóð féll við Sauðanes, milli
Ólafsfjarðar og Dalvíkur, aðfara-
nótt mánudags. Þetta vakti fúrðu
margra sem komust ekki á milli
bæjanna á mánudagsmorgun, þar
sem frekar lítinn snjó var að sjá á
báðum stöðum. En fLóðið reyndist
vera um það bil þriggja metra
djúpt þar sem það var dýpst. Um-
ferð hófst aftur um tíuleytiö. Þar
með er fallið fyrsta snjóflóð vetr-
arins. -HJ
SIÐBLINDA I GLER-
AUGNAVERSLUN!
Veðrið á morgun:
Rigning
sunnan til
Á morgun verður vaxandi aust-
an- og norðaustanátt og rigning
sunnan til en slydda norðan til,
einkum síðdegis.
Heldur hlýnandi veður í bili.
Veðrið í dag er á bls. 37.
Gleraugna-
fiársvik
Tveir karlmenn hafa verið úrskurð-
aðir i sjö daga gæsluvarðhald að kröfu
lögreglunnar í Reykjavík vegna gruns
um 7 milljóna króna fjársvik. Menn-
irnir, sem eru á fertugsaldri, sáu um
rekstur gleraugnaverslunar i Hag-
kaupi í Skeifunni. Talið er að meint
fjársvik hafi staðið yfir um nokkurt
skeið, m.a. með þeim hætti að hag-
ræða bókhaldi, draga sér fé og taka
vörur verslunarinnar sem sagðar
voru skemmdar og tryggingafélög
höfðu greitt fyrir. Jafnframt rekstri
verslunarinnar í Hagkaupi hafa þeir
rekið eigin gleraugnaverslun á Lauga-
vegi._______________-hlh
Ríkissjónvarpið:
Bogi fékk
hjartaáfall
Bogi Ágústsson, fréttastjóri Ríkis-
sjónvarpsins, fékk hjartaáfall á heim-
ili sínu síðastliðið fóstudagskvöld og
var fluttur með
hraði á sjúkrahús.
„Ég var að
horfa á Goldie
Hawn í sjónvarp-
inu þegar ég fékk
verk. Konan min
hringdi í lækni og
í kjölfarið var ég
fluttur umsvifa-
laust á sjúkra-
hús,“ sagði Bogi
sem nú liggur á Sjúkrahúsi Reykja-
víkur og er á batavegi. Ráðgera lækn-
ar að blása úr einni æð fréttastjórans
og að lokinni hefðbundinni hvíld ætti
Bogi að verða jafngóður.
-EIR
Grafarholt:
Lóðirá
uppboði
- til byggingarfélaga
Hugmyndir eru uppi hjá borgar-
yfirvöldum um að bjóða upp nýjar
lóðir í Grafarholti til byggingarfé-
laga en úthluta til einstaklinga eins
og gert hefur verið. Að sögn Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur hefur
málið ekki verið afgreitt í borgarr-
ráði. Það verður væntanlega gert í
næstu viku.
„Við myndum í öllum tilvikum
selja byggingaréttinn," sagði borg-
arstjóri, „en bjóða út lóðimar sem
eru fyrir byggingarfélögin og bygg-
ingameistarana. Með þessu
komumst við hjá því að vera að
velja á milli byggingarverktaka,
byggingarmeistara og félaga og gera
þannig upp á milli þeirra. Þeir
kaupa bara þessa vöru, bjóða í hana
og það ræður úrslitum um það hver
fær. Þeir eru að framleiða vöru til
að selja.“
-JSS
Bogi Ágústsson.
Jólakort
Sími 569 4000
Hafnarbraut 23, Kóp.
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i