Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1999, Qupperneq 6
6
MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 1999
Fréttir___________________________________________pv
Mikil slysahætta á mörgum gatnamótum Reykjavíkur:
Hægri réttur á undanhaldi
- þekkist varla hjá fólki undir fertugu
„Þetta er vaxandi vandi í Reykjavík
og ætli þaö endi ekki með að bið-
skylda verði sett á öll gatnamót þar
sem hægri rétturinn hefur verið við
lýði,“ sagði Baldvin Baldvinsson, yfir-
verkfræðingur umferðardeildar Borg-
arverkfræðings, í viðtali við DV.
Töluverð slysahætta hefur verið á
gatnamótum Stórholts og Brautar-
holts annars vegar og Stórholts og
Skipholts hins vegar. Þeim öku-
Gatnakerfi borgarinnar nær ekki að
sinna öllum þessum bílafiota, segir
Sigurður Helgason, upplýsingafuli-
trúi Umferðarráðs. DV-mynd GVA
r ■
i tWMallí ílwkS
Framkvæmdir hafa staðið að undanförnu á Reykjanesbrautinni fyrir ofan Smárahverfið. Umferðaróhöpp hafa verið tíð síðastliðið en verið er að fjölga
akgreinum vegna umferðarþunga. DV-myndir GVA
wm
■Mælllii !1 '
||íf j 1 fr
*■ 1 1 w ^
Nýtt biðskyldumerki á gatnamótum Skipholts og Stórholts en óhappa- og slysatíðni hefur verið mikil á þessum
gatnamótum.
mönnum sem aka Þverholtið ber að
virða rétt fyrrgreindra hliðargatna en
því miður hefur raunin orðið önnur.
Birt var mynd af lögreglubíl í DV fyr-
ir skömmu af því tilefni þar sem öku-
maður lögreglubílsins virti ekki þann
rétt.
Gangandi og akandi vegfarendum
brá þá heldur í brún þegar biðskyldu-
merki hafði verið sett í liðinni viku
við fyrrgreind gatnamót við Skipholt-
ið. Að sögn Baldvins eru þetta gatna-
mót sem voru með mikla óhappa- og
slysatíðni en þetta var tillaga frá því í
fyrra sem gerð var að veruleika.
Starfsmaður að hreinsa úr ræsi á Hafnarfjarðarvegi í Gjánni í Kópavogi.
Umtalsverð hætta skapast fyrir starfsmenn sökum umferðarhraða en hann
getur oft verið mikill á Hafnarfjarðarvegi.
Ungt fólk virðir ekki
hægri rétt
Baldvin sagði að áberandi væri
að ungt fólk virti sjaldan hægri rétt
en eins og landsmönnum ér flestum
kunnugt tók hægri rétturinn við
samfara því þegar vinstri umferð
var aflétt. Gerð var athugun fyrir
nokkrum árum sem sýndi fram á aö
hægri rétturinn væri á undanhaldi
en aðspurður sagði Baldvin að það
tæki eflaust mörg ár að afmá hann.
Bæði er þetta kostnaðarsamt og
kannski ekki fagurt á að líta að hafa
umferðarmerki á hverju götuhomi.
Þá ber að geta þess að mikið
skrifræði fylgir slíkum breytingum
en lögreglustjóri verður að sam-
þykkja allar slikar breytingar. Þá
hefur hægri réttur haft þann kost
að umferðarhraði er talsvert minni
en það á sérstaklega við um íbúðar-
hverfi.
Chiropractic eru einu heilsudýnurnar sem eru þróaðar og viðurkenndar af
amerísku og kanadísku kírópraktorasamtökunum. Yfir 32 þúsund kírópraktorar
mæla því með ChÍWprOCtÍC þar
á meðal þeir íslensku. Gerðu vel
við þig og þína fyrir hátíðirnar.
Hjá okkurfærðu úrval vandaðra
og heilsusamlegra jólagjafa;^^^
- a
^AV/k - AKU*
CHIROPRACTIC eru einu heilsudýnumar sem
•ru þróaöar og viöurkenndar af amerfaku og kanaditku
kírópraktorasamtökunum
Listhusinu Laugardal, sími 581 2233
alsbraut 1, Akureyr
simi 461 115
www.svefnogheilsa.is