Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1999, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1999, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1999 Fréttir Hótuðu að koma með haglabyssu til ömmu fórnarlambs en lögreglan neitaði aðstoð: Höfuðpaurinn slapp - nítján ára með nýja handrukkara á hælunum „Ég bjóst við hinu versta," segir nítján ára piltur sem var numinn á brott í farangursrými bíls og ekið upp að Vatnsenda, þar sem þrir menn þjörmuðu að honum og óku loks með hann heim til höfuðpaursins í glæpaklíku með höfuðstöðvar á Soga- veginum í Reykjavík. Þar héldu ofbeld- ismennimir áfram barsmíðum sínum í drjúga stund áður en lögreglu bar að garði og handtók fautana. Atburðurinn varð nóttina eftir þrettánda dag jóla í byrjun þessa árs. Pilturinn var heima hjá sér þegar einn þremenninganna hringdi seint um kvöld og bað hann að finna sig en þeir þekktust lítiflega í gegnum fikniefna- neyslu piltsins. Pilturinn fór út og ók með mönnunum upp á Vatnsenda, þar sem sá er hringdi réðist á piltinn inni í bílnum og ásakaði hann um að hafa gefið lögreglu upplýsingar sem leiddu til þess að lögregla komst yflr landa sem höfuðpaurinn átti. Við þá hald- lagningu hafi brotnað rúða á heimili höfuðpaursins og var piltinum gert að greiða hana. Hann segir upphafið að misklíðinni hins vegar hafa verið þá að hann hafi neitað að selja landa og fiknieftii fyrir höfuðpaurinn. „Ég neitaði náttúrlega að hafa „skvílað" en þá tók hann mig út úr bílnum og lamdi meira. Annar dró homaboltakylfu upp úr skottinu en rétt á eftir keyrði bíll framhjá og þeir fóm aftur með mig inn í bíl. Þá heyrði ég hvert við vorum að fara. Þeir fóm Stjórnendur ÁTVR: Afhenda ekki tölvutækan verðlista Stjómendur ÁTyR hafa hafnað að afhenda verðlista ÁTVR á tölvutæku formi til birtingar á vef Veiga, veig- ar.is, sem fjallar um áfengi. Að því er kemur fram á veigum.is segir Höskuldur Jóns- son, forstjóri ÁTVR, að fyrir- tækið hafi ekki mótað stefnu í þessum málum, þ.e. varðandi það hverjum ÁTVR lætur í té þessar upplýsingar. Á meðan svo sé treysti fyrirtækið sér ekki til að láta verðlistann af hendi. Veigar.is benda á að á sínum tíma hafi Samkeppnisstofnun skikkað Landssímann til að láta símaskrána af hendi á tölvutæki formi, eftir að hafa hafnað beiðni einkaaðila um það. „Það er skoðun aðstandenda Veiga að þessi mál hafi hliðstæðu og þar sem ÁTVR falli undir samkeppnislög sé stjómend- um fyrirtækisins ekki stætt á öðra en að afhenda listann.“ -GAR Höskuldur Jónsson. Pilturinn sem fluttur var í bílskotti handrukkara og bjargað á síðustu stundu sést hér við sinn eiginn bíl í gærkvöldi. út með mig aftur og skipuðu mér ofan í skottið og keyrðu af stað. Ég var með síma með mér og rétt náði að hringja i pabba og segja honum hvert við vomm að fara áður en þeir stoppuðu bílinn og tóku símann af mér,“ segir pilturinn. Bjargað á elleftu stundu Mennimir héldu förinni áfram að heimili höfuðpaursins á Sogavegi. „Þeir fóm allir inn með mér og ég var settur í stól. Kylfú var haldið að háls- inum á mér og ég var sleginn í andlit- ið,“ segir pilturinn. Faðir fómarlambsins hafði gert lög- reglu viðvart en pilturinn telur hana hafa verið vonum seinni að bregðast við, t.d. hafi bróðir hans verið kominn á staðinn á undan lögreglumönnunum þar sem hann beið átekta i bíl sínum. „Það liðu 20 til 30 mínútur þar til lög- reglan kom og hefði hún komið tveim- ur mínútum seinna hefði ég fengið kylíúna í hausinn," fullyrðir hann. Þegar mennimir urðu varir lög- reglumanna utan við húsið létu þeir piltinn setjast í stól í stofunni og skip- uðu honum að láta líta svo út að hann væri að horfa með þeim á sjónvarp. Bragðið heppnaðist þó ekki. Drengur- inn kærði ofbeldismennina en aðeins einn manna sætti ákæm og var dæmd- ur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir fáum vikum. Hann segir hma, þar á meðal höfuðpaurinn, hafa slopp- ið og haft stöðu vitna í málinu. Á flótta með litlu bræður Dagana eftir atburðina í janúar ótt- aðist pilturinn um öryggi sitt. „Ég fór í felur hjá ömmu minni en var ekki búinn að vera hjá henni nema í tvo eða þrjá daga þegar hringt var í frænda minn og honum tilkynnt að menn væm á leið með haglabyssu til ömmu. Við hringdum og báðum um fylgd lögreglu í ömggt húsnæði en lög- reglan neitaði og það var sama vaktin og var á vakt nóttina sem þetta gerðist. Á endanum stoppaði pabbi lögreglubíl sem var í eftirliti og okkur var fylgt, í óþökk varðstjóranna, með litlu strák- ana, bræður mína, á ömggan stað. Pilturinn segist hafa sætt alls kyns hótunum frá mönnunum síðan en fór hins vegar að vinna við hesta úti á landi og losnaði undan ofsóknunum um skeið. Þegar hann kom til baka hafði hann hægt um sig en komst þó fljótlega í kynni við hóp fólks sem hélt vemdarhendi yfir honum allt þar til harrn sneri við því baki fyrir stuttu. Það hafi hópurinn tekið óstinnt upp og nú sé hann á höttunum eftir piltinum vegna meintra fikniefnaskulda. „En það er bara tilbúningur, því ég hef ver- ið „clean“ síðan þetta gerðist f janúar," segir pilturinn að endingu. Þess má geta að áðumefndur höfúð- paur situr nú í gæsluvarðhaldi vegna síendurtekinna brota. -GAR Unga stúlkan var að kynna nýjungar í háls- og höfuðböndum fyrir þessum tveimur jólasveinum sem þjófstörtuðu um helgina á jólasýningu í Laugardalshöll. DV-mynd Hilmar Þór Guðmundur Árni á fundi Alþýðuflokksmanna um helgina: Reiðarslag ef ekki er virkjað Frá súpufundi Guðmundar Árna með Rósarfólki um helgina. DV-mynd GTK „Það er búið að halda Austfirð- ingum volgum varðandi stróiðju í 20 ár. Ef ekki verður af virkjunar- framkvæmdum og fyrirhugaðri byggingu álvers á Reyðarfirði verð- ur það sálrænt reiðarslag, ekki að- eins fyrir Austfirðinga heldur þjóð- ina alla. Það er engan veginn verj- andi að menn kippi að sér höndum þegar þeir standa frammi fyrir stór- iðjukosti úti á landi,“ sagði Guð- mundur Árni Stefánsson, varafor- maður Alþýðuflokksins og þingmað- ur Samfylkingarinnar, við DV. Guðmundur reifaði virkjana- og stóriðjumál á súpufundi í Alþýðu- flokksfélaginu Rósinni um helgina. Þar ítrekaði hann þá skoð- un sina að halda ætti fram- kvæmdum vegna Fljóts- dalsvirkjunar áfram. Vitn- aði hann til funda sinna með sveitarstjórnarmönn- um eystra, þar sem viljinn var á einn veg. „Ég var á sínum tíma stuðningsmaður Fljótsdals- virkjunar en þá átti að reisa hana vegna fyrirhugaðrar kís- ilmálmverksmiðju á Reyðarfirði. Mín afstaða hefur ekkert breyst frá því ég var í framboði fyrir Alþýðu- flokkinn á Austurlandi 1984. Ég met meiri hagsmuni fyrir minni. Ég er umhverfissinni en líka fram- kvæmdasinni." Guðmundur Árni gagnrýnir að- ferðafræði og verklag ríkisstjómar- innar varðandi Fljótsdalsvirkjun. „Ríkisstjórnin hafði öll tök á því fyrir 1-2 árum, þegar kröfur um umhverfismat komu fram, að setja málið í þann farveg. Þá væri þvl lokið núna. Mér þykir súrt í broti ef menn ætla að hunsa þess- ar leikreglur. En það breytir hins vegar ekki þeirri grund- vallarafstöðu minni að halda eigi áfram virkjunarfram- kvæmdum." Hann segir krata ekki alla sam- mála um virkjunarframkvæmdir eystra en liins vegar séu þeir sam- mála um að virkjunin skuli í lög- formlegt umhverfismat. -hlh Stuttar fréttir r>v Forkastanlegt Jóhannes Gunnarsson, for- maður Neyt- endasamtak- anna, segir for- kastanlegt að kjúklingabænd- ur gefi í skyn að búið sé að upp- ræta campylobacter-mengun í kjúklingabúum. Reykjagarður sendi frá sér fréttatilkynningu þar sem tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum var látin gefa Reykja- garði vottorð um að engin campylobacter-mengun finnist í Ásmundarstaðabúunum. Vísinda- menn á rannsóknarstöðinni rengja þessa túlkun. Bylgjan sagði frá. Leifs heppna mynt 500 þúsund eins dala silfurpen- ingar verða slegnir á næsta ári í Bandaríkjunum til minningar um Leif Eiriksson. Öldungadeild Bandaríkjaþings hefur samþykkt frumlagið um myntsláttinn. Ágóð- inn af sölu silfurpeninganna mun renna til Stofnunar Leifs Eiríks- sonar. Rúmlega 20 athugasemdir Frestur til að koma athugasemd- um til skipulagsstjóra við frum- matsskýrslu um álver í Reyðarfirði rann út á fóstudag og höfðu rúm- lega 20 athugasemdir borist. Úr- skurður skipulagsstjóra verður kveðinn upp eigi síðar en 10. des. Norræna í Þýskalandi SmyrU Line hefur skrifað undir samning um smíði á nýrri farþega- ferju sem mun leysa Norrænu af hólmi. Skipið mun taka 1500 manns í koju, verða um 30.000 hest- öfl, 161 metri á lengd og 30 metra breitt. Nýjan saksóknara Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður Magn- úsar Leópolds- sonar, hefur sent Sólveigu Pétursdóttur dómsmálaráð- herra erindi, þar sem óskað er eftir því að ráð- herra felli úr gUdi ákvörðun ríkis- saksóknara um að hafna beiðni Jóns Steinars um opinbera rann- sókn á tUdrögum þess að Magnús var gmnaður um aðUd að hvarfi Geirfinns Einarssonar. Jón Steinar óskar þess að settur verði sérstak- ur saksóknari tU að fara með rann- sóknina. Kanadískt svindl Opinber rannsókn er hafin í Kanada á peningasvindli sem m.a. hefur teygt arma sína tU íslands. Fyrir skömmu barst fjölmörgum íslendingum bréf frá Canadian Fundings í Ontario, þar sem reynt er að nálgast reikninganúmer þeirra á fólskum forsendum. Fréttastofa Stöðvar 2 greindi frá. List í grunnskólum Þrjátíu listamenn hafa verið ráðnir til að vinna að listsköpun með nemendum og kennurum í grunnskólum Reykjavíkur i tUefni þess að Reykjavík verður menning- arborg Evrópu á næsta ári. Þeir verða í tvær tU fjórar vikur i hverj- um skóla þar sem þeir vinna með nemendum að mörgum ólíkum verkefnum. 7 milljarða jól Samtök verslunar og þjónustu áætla að Islendingar eyði aukalega rúmum sjö mUljörðum króna fyrir jólin í verslunum innanlands. RÚV greindi frá. Láglaunafólk illa statt Láglaunafólk á íslandi hefur mun minna mUli handanna en láglaunafólk á Finnlandi, þrátt fyrir lágar þjóðartekjur þar, skv. bók Stefáns Ólafssonar, íslenska leiðin. Þetta veldur því að ójöfnuður er meiri hér en almennt. Stöð 2 greindi frá. -HVS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.