Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1999, Síða 32
44
MÁNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1999
nn
Ummæli
Deilur við
dómarann
„Það er dálítið merkilegt að
sá lögmaður sem
i átti mestan þátt í
, því að menn létu
yíirleitt hvarfla i
i að sér að leyfi- f
; legt væri að
, deila við dómar-1
ann er nú
einmitt sá sem * *
gagnrýnir menn
harðlega fyrir að leyfa sér að
hafa skoðun á margfrægri
dómsniðurstöðu Hæstaréttar.“
lliugi Jökulsson, á Rás 2.
Sykurrokk
»Ef Kolrössur ætla að halda
áfram að sykra rokkið sitt
svona ofhoðslega verða þær
allar orðnar tannlausar eftir
ár.“
Dr. Gunni, í hljómplötugagn-
rýni, í Fókus.
Þegar sjómenn verða
leiðinlegir
„Mér leiðist þegar forystu-
menn sjómanna-
samtakanna
henda striðs-
hönskum í allar
áttir.“
Bjarni Hafþór
Helgason, fram-
kvæmdastj. Út-
vegsmannafé-
lags Akureyrar,
ÍDV.
Misjöín gæðin
„Stundum gerist það að
menn gera eitthvað og þeim er
umbunað fyrir. En í þessum
heimi er mönnum misjafnlega
umbunað fyrir hluti og ég
skrifa ekki upp á að það sé í
réttu hlutfalli við mikilvægið."
Ólafur Jóhann Ólafsson rit-
höfundur, í Fókus.
Rithöfundar sem
skipta máli
„Höfundur sem uppsker hat-
ur fyrir skrif sín
skiptir að i
minnsta kosti
máli. Ef enginn
nennir að leggja
fæð á rithöfund
þá eru bók-
menntir komn-
ar ískyggilega
langt út á jaðar okkar
sjónarsviðs."
Árni Bergmann rithöfundur, í
DV.
(
íslenska kvikmynda-
sumarið
„Nú er komið sumar og ég
vona að það verði langt og gott.
íslensk kvikmyndagerð er ung og
henni liggur ekkert á að eldast."
Indriði G. Þorsteinsson rit-
höfundur.
Helga Sigrún Harðardóttir, atvinnumálaráðgjafi Reykjanesbæjar:
Eins og að taka við forsetaembætti
DV, Suðurnesjum:
„Fyrstu dagarnir í þessari nýju
vinnu hafa aðallega farið í það að
kynnast starfinu sem mér líst mjög
vel á og ég hlakka til að takast á við
þetta verkefni,“ segir nýráðinn at-
vinnumálaráðgjafi Reykjanesbæjar,
Helga Sigrún _______________________________
Harðardóttir. ■■ x , _ .
„stamð er Maður dagsms
margþætt og
fyrir störf sín í útvarpi. „Fjölmiðlaá-
huginn byrjaði þegar ég var þátttak-
andi í skólaútvarpi Fjölbrautaskóla
Suðumesja sem siðan varð að svæðis-
útvarpinu Brosinu, þaðan fór ég til
útvarps Umferðarráðs
og var á Aðal-
stöðinni
fjölbreytt en helstu hlutverk eru að
stuðla að atvinnuþróun á starfssvæð-
inu með ráðgjöf til forsvarsmanna
fyrirtækja varðandi þau vandamál
sem þeir eiga við að etja. Við aðstoð-
um einnig einstaklinga sem áhuga
hafa á stofnun fyrirtækja, stöndum
fyrir námskeiðahaldi ásamt því að
vinna að undirbúningi ýmiss konar
atvinnuþróunarverkefna og eram
sveitarfélögum til ráðuneytis."
Helga Sigrún sagði það líka vera
í verkahring atvinnuráðgjafa að
aðstoða ýmsa aðila við undirbún-
ing umsókna um hvers kyns fyr-
irgreiðslu. Þá sagði hún eitt af
þeim sérverkefnum sem nú
væru í vinnslu vera Evrópu-
verkefni sem styrkt er af Leon-
ardo-áætluninni í samvinnu við
Portúgali og Dani sem miðar að
því að styrkja tengsl og sam-
vinnu atvinnulífs og skóla.
Helga Sigrún er með BEd-próf
frá Kennaraháskóla íslands og »
útskrifaðist náms- og starfsráð- .
gjafi frá Háskólanum. Hún hefur
starfað við kennslu bæði í grunn-
skóla og ökuskóla en er senni-
lega
þekktust DV-mynd Arnheiður
Gulli 909.
Mér hefur
yfirleitt
fundist gam-
an í öllum
þeim störfum
sem ég hef
tekið
mér fyrir hendur. Það var gaman að
kenna og það er ofsalega gaman að
starfa við útvarp en það var kominn
tími til að snúa sér að einhverju
öðru.“
Helga Sigrún er Njarðvíkingur en
hefur undanfarin sex ár búið í
Reykjavík. „Nú er ég aftur komin
heim og ég hef fengið svo ótrúleg-
ar móttökur að það er engu lík-
ara en að ég sé að taka við for-
setaembætti. Það er ótrúlegasta
fólk sem hefur boðið mig vel-
komna og það yljar mér óneitan-
lega um hjartarætur." Helga Sig-
rún segist líka njóta þess að vera
nálægt fjölskyldu sinni en hún er
ein fjögurra glæsisystra. Tvær syst-
ur hennar, þær Harpa Lind og
Brynja Björk, hafa báðar orðið feg-
urðardrottningar Suðumesja auk
þess sem Harpa varð
einnig fegurðardrottning
Islands fyrir tveimur
árum.
Helga Sigrún segir
helstu áhugamál sín
vera fatasaum og
lestur. „Ég hef mjög
gaman af því' að
sauma og hanna föt
og hef gert nokkuð
af því og síðan les
ég mikið þá helst
góðar skáldsögur
og ýmislegt rnn
lífið og tilver-
una.“
Helga Sigrún á
eina dóttur, írisi
Ösp, sem er þrett-
án ára gömul.
-AG
Ein mynda Brynju sem hún
nefnir Konur.
%
Pennateikn-
ingar
Brynja Ámadóttir hefur
opnað sýningu á penna-
teikningum í kaffihúsinu
Við árbakkann á Blönduósi.
u Þetta er tólfta einkasýning
Brynju og hefur hún sýnt
víða um land. Sýningin er
opin á afgreiðslutíma húss-
ins og stendur til 4. desem-
ber.
Klippimyndir
og málverk
Þessa dagana sýnir Sigur-
borg Stefánsdóttir klippi-
myndir og málverk í Lista-
sal Man, Skólavörðustíg.
Sigurborg stundaöi listnám
í Kaup---------------
manna-
hofn og Sýnmgar
lauk prófi
úr teikni- og graflkdeild
Skolen for Brugskunst 1987.
Þetta er áttunda einkasýn-
ing Sigurhorgar. Sigurborg
starfar sem kennari við
MHÍ. Sýningin stendur til 3.
desember.
Myndgátan
Lausn á gátu nr. 2560:
Þolfall
Myndgátan hér að ofan lýsir athöfn.
Katrín Þorkelsdóttir og Eggert
Kaaber í hlutverkum sínum í Rósu
frænku.
Rósa frænka
Frá og með deginum í dag verð-
ur Stoppleikhópurinn í leikfor um
Norður- og Vesturland meö kyn-
fræðsluleikritið Rósu frænku eftir
Valgeir Skagfjörð. Leiksýningin,
sem frumsýnd var 29. september
síðastliðinn, hefur fengið góðar
viðtökur og eru sýningar orðnar
um sextíu talsins. Sýnt er fyrir 9.
og 10. bekk grunnskólans.
í dag verður sýnt í Grundar-
skóla á Akranesi, kl. 9.40, og kl.
11.00 í Heiðarskóla í Leirársveit.
Á morgun verður sýnt í Brekku-
bæjarskóla á------------------
Akranesi, kl. LeíkHÚS
10.25, og kl. _______________
13.00 í Grunnskólanum Borgar-
nesi. Á fimmtudaginn verður svo
leikhópurinn í Varmahlíð, á
Siglufirði og á Sauðárkróki og á
föstudag á Hvammstanga og
Blönduósi.
Leikarar í Rósu frænku eru
Eggert Kaaber og Katrín Þorkels-
dóttir. Leikstjóri er Jón Stefán
Kristjánsson, hljóðmynd vann
Hjörtur Howser, tæknimaður er
Yngvi Reimarsson og leikmynd og
búninga hannaði leikhópurinn.
Bridge
Nú er lokið 7 kvölda hausttvímenn-
ingi Bridgefélags Reykjavikur með
sigri heimsmeistaranna Guðlaugs R.
Jóhannssonar og Amar Arnþórsson-
ar. Alveg fram á síðustu stundu var
mikil keppni um efsta sætið. Bræð-
urnir Anton og Sigurbjöm Haralds-
synir og Hrólfur og Oddur Hjaltasyn-
ir voru allan tímann í baráttunni um
efsta sætið en urðu á endanum að láta
í minni pokann. Næsta keppni félags-
ins er hraðsveitakeppni sem hefst 24.
nóvember næstkomandi. Hér er eitt
spil frá síðasta spilakvöldinu i tví-
menningnum. Fjögurra spaða samn-
ingur er vænlegur á hendur n-s enda
var hann spilaður á 7 borðum af 11 í
A-riðlinum. Á einu borðanna þróuð-
ust sagnir n-s á þann veg að vömin
gat hagnýtt sér upplýsingarnar í sína
þágu. Norður gjafari og NS á hættu:
* KD10762
-
-f K832
* G75
♦ ÁG
* 96543
♦ 95
* K432
* 953
* KDG17
* D6
* ÁD86
* 84
Á1082
* ÁG1074
* 109
Norður austur suður vestur
2 ♦ pass 2 grönd pass
3 ♦ dobl 4 ♦ p/h
Tveir tíglar var multi-sagnvenja,
lýsti veikri opnun með 6 spil í öðr-
um hvorum hálitanna. Tvö grönd
var spurnarsögn og þrír tíglar lýstu
hámarkshendi með spaðalit. Það gaf
austri færi á að dobla sem lagði
grunninn að vöm-
inni. Útspil vesturs
var tígulnían og
austur kallaði með
fjarkanum. Sagn-
hafi átti slaginn á
drottninguna og
spilaði strax spaða.
Vestur rauk upp
með ás og spilaði meiri tígli og aust-
ur átti slaginn á tíuna. Hann ákvað
að spila næst tígulgosanum (til að
benda á hjartastyrk) og suður
reyndi í örvæntingu sinni að
trompa með spaðaníu. Spaðagosinn
var þriðji slagur varnarinnar og
vestur spilaði síðan hjarta. Sagnhafi
hafði ekkert annað að gera en
henda laufi í blindum og hjartaás-
inn varð fjórði slagur vamarinnar.
Að hnekkja fjórum spöðum gaf 19
stig af 20 mögulegum.
Isak Öm Sigurðsson