Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1999, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1999, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1999 Jólasveinarnir eru íslenskir Leppalúða og árans jólakettinum - ásamt Grýlu, slensku jólasveinarnir eru sérkennilegir gaurar og öldungis óskyldir hinum al- þjóðlega rauðklædda Santa Claus sem er kominn af dýrlingnum Nikulási biskupi. Ekki þeysa þeir heldur um himin- inn á hreindýrasleða. Jólasveinar Is- lendinga eru mun jarðbundnari, enda hafa bæði íslensk böm og fullorðnir vitað allan tímann að hreindýr geta ekki flogið, hvað þá með þungan sleða í eftirdragi. Heimili jólasveinanna er heldur ekki, og hefur aldrei verið, annars staðar en á íslandi. Það vita allir hugsandi menn að jólasveinarnir eru íslendingar í húð og hár. Þeir em ekki frekar útlendingar en Leifur heppni og Jón Sigurðsson. Islensku jólasveinarnir eru af kyni trölia og vom upphaflega barnafælur. Á þessari öld hafa þeir mildast mikið og klæða sig stundum í rauð sparifot en geta samt verið þjófóttir og hrekkj- óttir. Fjöldi jólasveina var fyrr á öldum misjafn eftir landshlutum. Talan 13 sést fyrst í Grýlukvæði frá 18. öld en nöfn þeirra í Þjóðsögum Jóns Áma- sonar 1862. Um 60 önnur jólasveina- nöfn hafa fundist. Foreidrar þeirra eru Grýla og Leppalúði og árans jólakötturinn er húsdýr hjá þeim. En allt þetta lið þótti heldur varasamt fyrir lítil böm hér áður fyrr. Stekkjarstaur 12. desember byrja gömlu jóla- sveinarnir að koma til byggða. Sá fyrsti heitir Stekkjarstaur og hér áður fyrr reyndi hann oft að sjúga æmar í fjárhúsunum hjá bændum. Giljagaur 13. desember kemur Giljagaur. Áður en mjaltavélar komu til sög- unnar var hann vanur að laumast inn í fjós og stela froðu ofan af mjólkurfótunum. Stúfur Jólasveinninn sem kemur til byggða 14. desember heitir Stúfur og er heldur lágur til hnésins. Hann var líka kallaður Pönnuskefill því hann reyndi að hnupla matarögnum af steikarpönnunni. Þvörusleikir Þann 15. desember kemur Þvöru- sleikir ofan af fjölium. Hann stalst til þess að sleikja þvöruna sem hrært var með í pottunum. Pottasleikir Búast má við Pottasleiki í heim- sókn 16. desember. Hann sat um að komast í matarpotta sem ekki var búið að þvo og sleikja skófirnar inn- an úr þeim. Askasleikir Askasleikir kemur 17. desember. Hann faldi sig undir rúmi og ef fólk setti ask á gólfið þá greip hann askinn og sleikti allt innan úr hon- um. Huröaskellir Hurðaskellir kemur til byggða 18. desember. Hann gengur skelfing harkalega um og skellir hurðum svo fólk hefur varla svefnfrið. Skyrgámur Þann 19. desember er von á jóla- sveini sem heitir Skyrgámur af því að honum þótti skyr svo gott að hann stalst inn í búrið og hámaði í sig skyrið upp úr keraldi. Bjúgnakrækir Bjúgnakræki má búast við 20. desember. Honum þótti best að borða bjúgu og pylsur og stal þeim hvar sem hann komst i færi. Gluggagægir Þann 21. desember kemur hann Gluggagægir í heimsókn. Hann var ekki eins matgráðugur og sumir bræður hans en skelfmg forvitinn aö gægjast á glugga og jafnvel að stela leikfóngum sem honum leist vel á. Gáttaþefur Búast má við Gáttaþef þann 22. des- ember. Hann er með stórt nef og honum fmnst óskaplega góð laufabrauðs- og köku- lyktin þegar verið er að baka fyrir jólin. Og svo reynir hann að hnupla einni og einni köku. 22. des- ember var líka stund- um kallaður hlakk- andi því þá voru bömin farin að hlakka svo mikið til jólanna. Kertasníkir Heimild: Árni Björnsson Kertasníkir kemur á aðfangadag, 24. desember. I eldgamla daga voru -HKr Ketkrókur Á Þorláksmessu, 23. desember, kemur Ketkrókur sem er svo sólginn í ket. I gamla daga rak hann lang- an krókstaf niður um eldhússtromp- inn og krækti sér í hangiketslæri sem héngu uppi í rjáfrinu eða hangiketsbita upp úr pottinum, en þá var hangiketið soðið á Þorláks- messu. kertin skærustu ljós sem fólk gat fengið. En þau voru svo sjaldgæf og dýrmæt að mesta gleði barnanna á jólunum var að fá sitt eigið kerti. Og aumingja Kertasníki langaði líka til að eignast kerti. Miit; 1 * JfcT íTe f í • r* i M f __ 1 •"W * m /1 M^T'nliPNHÉ |MH / Á : IÁ m
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.