Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1999, Síða 3
meömæl i
g f n i
Tískubúðin One 0 One á
Laugavegi er farin að
selja þessi líka framúr-
stefnulegu úr. Úrið og
ólin eru eitt og ólin er
beygð um úlnliðinn. Úrin
heita Boa, hönnuðurinn
Nick Day og þetta er
framleitt hjá Strange
Days. Verðið er rúmlega
er ekki mikið, miðað við það hve rosalega kúl
þú ert með svona úr.
Ef þú vilt skreppa I mínísólarlandaferð þá er
Kokkteilbarinn í Miðbæjarmarkaðnum lausn-
in. Hann ervið hliðina á
sólbaðsstofunni Sól
og sælu og Ijósahita-
lyktin fyllir vitin. Þar að
auki eru veggirnir
skreyttir með
pálmatrjám og staðurinn
státar af sama kokk-
teillista og fimm stjörnu hót-
el á Kúbu. Kokkteilbarinn er
líka niðri í kjallara sem gefur
honum sjarmerandi og
létt púkó búllublæ. Byrj-
aðu helgina á Ijósum og
nuddi í Sóli og sælu og
tiplaðu svo á tánum yfir á Kokkteilbarinn. Þar
bíður svalandi Pina Colada með regnhlíf og
röri.
Sykursætur sjóari
ísfirskur sjóari stakk af með titilinn
herra ísland 99 í síðustu viku.
Það sérstaka við keppnina í ár
var það að hann var síður en
svo eini sjóarinn í hópi keppenda.
Niðurstaðan
Svona litur herra Island arið
.1999 út. Hann heitir Ægir Örn
Valgeirsson og er fallegasti
karlmaður landsins í dag.
Það er fullkominn unaður í dós fylla töskuna af
litlum Prlns Pólóum. Þau eru oft á tilboðum í
sjoppum og 2-3 tíkalla. Pólsku súkkulaöikexin
standa alltaf fyrir sínu og eru sérlega
heppileg fyrir fólk á
hlaupum. Svo er
líka hægt að
kaupa Prins
Póló í
græn-
um og
bláum um-
búðum og
eiga soldið
glaðlegt nesti í
farteskinu.
Ingvi Þór Kormáksson og Guðmundur S. Steinsson eru glaðbeittir yflr útgáfu Viskíbarnanna.
„Eru sjómenn ekki bara ahnepnt
myndarkarimenn,“ er svarið sem
Ægir örn Valgeirsson gefui* við
spumingunni. af bvetju það hafi
verið svona margir sjóarar sem tóku
þátt í feguröarsamkeppni karla sem
fram fór á Broadway í síöustu viku.
„Ætli sjávarloftið sé ekki svona
gott fyrir útlitiö,“ bætir Ægir við.
Sjávarloftið hefur allavega gert húð
Ægis sitt gagn því hann bar sigur úr
býtum i keppninni og getur nú með
stolti kallað sig fallegasta mann !s-
lands.
En finnst þér þú virkilega vera fal-
legasti maöur íslands?
„Það er nú ekki mitt að dæma um
það. Úrskurðurinn er kveðinn upp
og þá er bara að taka því,“ segir
Ægir með stillingu. TitiUinn herra
ísland er allavega nokkuð þungur að
bera því síðan Ægir hlaut hann hef-
ur hann svo að segja legið í rúminu
með flensu en var að skríða saman
þegar Fókus talaði við hann.
Lyftir í véiinni
Ægir er Isfirðingur í húð og hár
og bjó á ísafirði þar til hann var 19
ára gamall en þá hélt hann suður til
náms í Vélskólanum. Fyrir utan sjó-
mennskuna, en Ægir er yfirvélstjóri
á bátnum Erni, þá hefur hann mik-
inn áhuga á mótorsporti og fjalla-
ferðum. Sjálfur á hann jeppa og 400
hestafla sportbfl. Einnig á hann
spittbát og bregður sér gjaman á sjó-
skiði Ægir hefur einnig lengi haft
áhuga á líkamsrækt og þetta spengi-
lega útlit hans er ekid eitthvað sem
hann hefúr náð á vikunum fyrh'
Herra íslands-keppnina.
„Ég og einn íelagi minn, sem er að
vinna með mér á bátnum, erum bún-
ir að koma upp æfingabekk niörí
vélinni þannig að maður getur grip-
ið í lóöin á frívöktiun,“ segir Ægir
og telur ekki ferðalög upp sem sitt
aöaláhugmál eins og flestar fegurð-
ardrottningar gera. Hann á þó eftir
að ferðast nokkuð á næstunni og fer
hann m.a. til Kína á næsta ári þar
sem hann mun keppa við herra frá
öllmn löndum heims.
Aó taka þátt í feguröarsamkeppni
er nú kannski ekki svo karlmannlegt.
Hvað fannst eiginlega vinnufélögum
þinum um þessa ákvörðun þína?
„Þeir hlógu mikið að þessu og
fannst skrýtið að ég skildi ætla að
taka þátt í svona keppni. Þeir komu
nú samt að horfa á mig og hvöttu
mig óspart,“ svarar Ægir. Hann seg-
ir að framtíöaráformin séu óljós en
segist hafa fengiö ýmis tilboð í kjöl-
far keppninnar sem hann sé að
skoða í rólegheitum. Á sjónum ætlar
hann allavega ekki að vera enda-
laust. Og svona í lokin, stelpur, Ægir
er á fostu. -snæ
„Þetta er ævisaga Jacks Erd-
manns frá því að hann er pottormur
og þangað tfl hann fer í meðferð,"
segir Ingvi Þór Kormáksson, bóka-
safnsfræðingur og þýðandi bókar-
innar Viskíbömin. Þórarinn Tyrf-
ingsson læknir ritar formálann að
bókinni og minnist þar á fordóma
sem beinast gjaman að drykkjusjúk-
um. „Já, það er fullt af fólki sem vifl
ekki viðurkenna drykkjusýki sem
sjúkdóm eins og kvef, sykursýki eða
skjaldkirtilssjúkdóm," fullyrðir GuÓ-
mundur S. Steinsson sem gefur bók-
ina út og bætir við að slíkt fólk tali
gjaman um karakters- eða ístöðu-
leysi.
Hvernig spratt hugmyndin að þýð-
ingunni og útgáfunni?
„Það er ákveðinn lífsstíll að vera
edrú. Ég hef gengið í gegnum hlið-
stæða reynslu og þess vegna var
áhugi fyrir að gefa akkúrat þessa
bók út. Enda er hún raunsönn lýsing
á hvemig áfengissýkin nær smám
saman algemm tökum á manneskju.
Rauði þráðurinn er þessi sjúkdómur
og hvemig hann leiðir til glötunar. í
rauninni er þetta klassísk reynslu-
saga sjúklings," svarar Guðmundur.
„Ja, flestir þekkja einstaklinga
sem hafa lent í vandræðum með
vimu- og fíkniefni. Þess vegna er
gott að fá bók beint úr myrkviðun-
um. Það hefur ekki gerst síðan bók-
Ingvi Þór Kormáks-
son bókasafns>
fræðingur þýddi
bandarísku bókina
Vtskíbðrnin, Útgef-
^andi er Guðmundur
S, Steinsson, eig-
andi söluturnsins
Póló,
in „Ég græt að morgni" kom út fyrir
mörgum árum síðan. Þessi er
kannski sambærileg við hana að
mörgu leyti,“ segir Ingvi Þór.
Hemingway og
Islendingasögurnar
Jack Erdmann skrifaði
Viskibörnin ásamt ljóðskáldinu
Larry Keamey sem var fullur frá
¥59-¥81. Félagamir eru sammála
um að bókin sé sérstaklega vel skrif-
uð og það hafi vissulega kynnt und-
ir áhuga á þýðingu og útgáfu. „Það
er ekkert verið að velta sér upp úr
einhverjum ógurlegum harmi í frá-
sögninni. Þvert á móti byggist hún á
stuttum hnitmiðuðum setningum og
fáum lýsingarorðum. Það hefur
alltaf þótt góður siður á íslandi," út-
skýrir Ingvi Þór.
„Já, þetta er engin tiflinninga-
vella. Það er ákveðin karlmennska í
stílnum og hann minnir dálítið á
Hemingway," segir útgefandinn.
Er frásögnin sem sagt blanda af
Hemingway og íslendingasögunum?
Þeir yppa hlæjandi öxlum og ít-
reka gæði manndómsstilsins. Að
þeirra mati er hann kraftmestur í
sögulok. „Stíllinn er bestur og
magnaðastur í lokin þegar niðurrif-
ið er sem mest. Þá verður hann
ósjálfrátt súrrealískur, fáránleika-
kenndur og atburðarásin fullkom-
lega laus við viðjar vanans," segir
Guðmundur og Ingvi telur bókina
vera bókmenntalega ævisögu.
„Ekta“ alkóhólisti
„Þessi maður er bam síns tíma og
„ekta“ alkóhólisti sem drekkur bara
alkóhól. Það er lítil dópneysla, ekkert
kók eða heróín," segir Guðmundur.
„Hann tekur einu sinni róandi,“
skýtur þýðandinn að en útgefandinn
heldur ótrauður áfram: „Viskibömin
em vissulega annars eðlis en Dýra-
garðsbömin. Stelpan þar er í mikilli
neyslu og er orðin hrak fyrir tvítugt."
„En Jack drekkur vín í þrjátíu ár
og er mjög Ula farinn síðustu tíu árin.
Fer stöðugt inn og út af meðferðar-
stofnunum. Það er miklu lengra og
lúmskara ferli,“ segir Ingvi Þór.
Að sögn félaganna eiga Viskíbömin
erindi við marga. Þrátt fyrir að bókin
fjalli um karlmann sem háður er lög-
legum fíkniefnum höfðar hún til allra
sem lent hafa í álíka hremmingum.
Forfallnir netnotendur
meö áhuga á myndlist
ættu eindregið að heim-
sækja heimasíðu Zentr-
um fur Kunst und Medi- H
entechnologie,
http://www.zkm.de, sem
er í Karlsruhe í Þýsklandi.
í þessu mjög svo framúr-
stefnulega safni stendur
nú yfir sýningin net-condition, - bein leiö,
http://onl.zkm.de/netCondition.root/netcond
ition/start/language/default-e - sem er að
hluta til sett upp á sjálfu Netinu. 1 sýningunni
taka flölmargir þeirra listamanna þátt sem í
dag nota eingöngu tölvur og aðra hátækni til
að skapa listaverk. Af slóð sýningarinnar á
heimasíðu safnsins er hægt að komast inn á
heimasíður listamannanna sjálfra. Forvitniieg
sýning fyrir tæknisinnaða listáhugamenn sem
ættu ekki aö sleppa því að líta viö í leiöinni á
critical-art til að kynnast „Nýrri Evu“.
Börkur Gunnarsson :
„Það er ódýrt að lifa í
Prag“
Marta Nordal:
í erótísku
viðtali
Hin eina og
sanna Selma.
Verður á
Indlandi
um ára-
mótin
Strákarnir í
Quarashi:
„Góðærið er
spillandi“
Sjálfsrækt í
Reykjavík:
Háskólar
brjóta niður
guðdóminn
Bókarkáp-
ur og plötuumslög
skoðuð:
w Olafur Jó-
16
hann flott-
astur
Villti tryllti Villi:
Unglingaskemmti-
staður með kopar-
gólfi
Ótrúlegustu
hlutir til sölu:
Kauptu
rusl í
Reykjavík
Lífid eftir vmnu
f ókus
fylgir DV á
föstudögum
Forsíðumyndina
tók Hilmar Þór af Quarashl.
3. desember 1999 f Ó k U S
3