Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1999, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1999, Qupperneq 10
vikuna 25.11-2.12 1999 48. vika Fyrrverandi heimsmeistarinn í breikdansi, Jay Kay, og félagar hans í Jamiroquai eru á fullu spani með upp listann með lagið King ForA Day. Þetta er hið rólegasta lag sem fellur greinilega vel í fólk í huggulegheitum skammdegisins. Topp 20 (01) Sun Is Shining Bob Marley & Funkstar Deluxe Vikur 8 á lista O11 02 ) KingForADay Jamiroquai * 2 (03 ) The Dolphins Cry Live 3 04 The World Is Not Enouch Garbage (James Bond) X 1 05 Just My Imagination The Cranberries ‘t 6 06 Okkarnótt Sálin hans Jóns míns 4 2 07 Stick ‘Em Up Quarashi 'i' 5 08 ToBeFree Emiliana Torrini 4 11 (09) SatisfyYou PuffDaddy t 2 10 NewDay WyClefJean & Bono 4v 7 (l 1) Burning Down The House Tom Jones & The Cardigans 4- 13 12 Strengir Maus 4 9 (13) (You Drive Me) Crazy Britney Spears U 12 14 1 Learned From The Best Whitney Houston X 1 (75) Heartbreaker Mariah Carey 4 12 16 BugABoo Destiny’s Child 4 6 (17) Tungubrögð Ensími X 1 (18) ModelCitizen Quarashi X 1 (19) Flying Without Wings Westlife n 3 (20) Örmagna Land og synir X 1 Sætin 21 til 40 © topp/ag vikunnar 21. Alltáhreinu Land og synir L j, 8 22. If 1 could Turn Back The Hands Of Time /?. Kelly X 1 4 vikunnar 23. Ég er kominn Sálin hans Jóns míns j Á 10 24. WhatlAm Emma Bunton & Tin Tin Out + 2 X nýtt á /istanum 25 /A|J Selma t 2 joj stendur 1 stað 26. Hit Girl Selma * 4. 6 , hækkar sfg frá 21 Keep On Movin’ Five T 4 1 slðistuviku 28. AlltáÚtSÖIu Buttercup t 3 lækkar siq frá 29. Svífum sifljstu viku 30 Then The rvjorning C Skítamórall X 1 omes Smash Mouth 4- 3 ■f1 fallvikunnar 31. Lift Me Up Geri Halliwell t 2 * 32. Myndir Skítamórall " 4 9 33. Heyþú Stjórnin t 2 34. WÍII2K WillSmith 4, 4 35. That's The Way It Is Celine Dion 4, 4 36. Give It To You Jordan Knight 71 5 37. / Need To Know MarcAnthony t 3 38. Rhythm Devine Enrique Iglesias 4- 4 39. When We Are Together Texas 1 4, 3 40. Rise Gabrielle X 1 Ifókus „Maður er svona í þessu á milli húsverkanna," segir Ósk, „svona þegar maður hefur tíma til að setj- ast niður.“ Ósk notar heimilisfólk- ið í rokkið, dóttir hennar Anna Lucy syngur með mömmu sinni. Sonurinn Hunter er kominn í rappsmiðju í Miðbergi svo það hlýtur að fara að styttast í að hann taki lagið með mömmu. Ósk fílaði rappið í botn í gamla daga, bönd eins og Da Lynch Mob og Disposa- ble Heroes of Hiphoprisy, og kom krökkunum upp á rappið. Nú hef- ur tafLið snúist við og krakkamir fræða mömmu um nýjasta rappið. „Ég var líka löngum mikið fyrir David Bowie,“ segir Ósk, „og Steve Harley og Johnny „Guit- ar“ Watson. Nú fer klassísk tón- list ekki ósjaldan á fóninn." Hvert ertu ció þróast í músík- inni? „Nýjasta efnið mitt er rokkaðra en áður. Ég er ekki búin að fá mér tónlistarforrit í tölvuna enn þá, en stefni að því á nýrri öld. Þá gæti tónlistin breyst enn meira.“ Heimildin í botni Á „Draumi hjarðsveinsins" sem- ur Ósk að vanda lög við gömul ljóð, mest ljóð Jakobínu Johnson. Á nýja disknum eru sjö lög af ell- efu með textum eftir Jakobínu. Hvers vegna skyldu ljóö Jakobínu höfða svona rosalega til Óskar? „Æi, ég er bara ekki nógu dugleg við að fá mér fleiri ljóðabækur,“ játar söngkonan. „Þetta er allt úr sömu ljóðabókinni sem ég keypti fyrir nokkrum árum og mér fannst svona líka skemmtileg. En ég er svo sem búinn að fá mér nýjar ljóðabækur og yngri skáld eru líka alltaf að gauka að mér bókum.“ Hvernig gengur svo baráttan? „Þetta hreyfist nú hægt, skal ég segja þér. Ég er ekki góð sölukona og hef ekki nægt fjármagn til að auglýsa mig. Yfirdráttarheimildin er í botni en maður hefur samt alltaf salt i grautinn. Það er jú góð- æri.“ Ósk ætlar að kynna sig og plöt- una með því að spila á Sólón ís- landus 11. desember. Þá kemur dóttirin Anna Lucy fram, en hún var kölluð „senuþjófur plötunnar" í plötudómi nýverið. plötudómur Hljómsveitin Jagúar hefur skemmt gestum á krám í Reykjavík undanfarin misseri og talar fólk jafnan um dansiböllin með gleðitár í augunum. Sveitin kennir sig við fónk og fönk er jú algert æði ef vel tekst upp. Það var því óneitanlega spennandi að hlusta á þessa plötu. Fönkið var stæðileg tónlistar- stefna sem reis af souli og þegar hún var upp á sitt besta réðu sveittir svertingjar betri hluta hennar með ólgandi skælifótstig að vopni. Besta fonkið var sungið, menn eins og Sly Stone, James Brown, Isaac Hayes og Curtis Mayfield hefðu allir átt að fá nóbelinn í fonki á sínum tíma. Svo kom diskó og teknó og fónkið féll í dá. En það fór ekki langt, fönk er bara of flott til að fara á þjóöminja- safn og bönd eins og Beastie Boys hafa gramsað fönkinu upp á yfir- borðið aftur. Kannski væri Jagúar besta hljóm- sveit í heimi ef söngvari væri í bandinu. Einhver magnaður stuð- bolti sem hrópaði frasa og hristi tamborínu. Ósungið fönk á það nefnilega til að missa marks, að Booker T & The MG’s og The Meters auðvitað undanskyldum. Nýfönk Medeski, Martin & Wood getur t.d. verið ágætt, en á það allt of oft til að renna út í fjúsjón, og því verður fönk Jagúars strax vafasamt þvi bandið minnir mikið á áðurnefnda MM&W. Þó enginn hnykki barkakýli í Jagúar er tæplega helmingurinn á þessari frumraun sjömenninganna argasta gæðafönk sem höfðar til heilbrigðrar líkamsstarfssemi neð- anmittis. Spikfeitasti partur plöt- unnar hefst með öðru laginu og lík- ur með þvi fimmta. Þama eru fjögur lög sem verða að teljast toppurinn á íslenska fönkjakanum; glaðlega grúfí og fersk (“Bubba’s Song“), töffaraleg (“Watermelon Woman“), eldvirk og bullandi (“Theme for Miquel”) eða tryllt og eltingarleiks- leg á la Shaft (“Gustav Blomkvisf‘). Ef öll platan væri svona væri ís- lenska þjóðin í frábærum fönkmál- um, en því miður er sú ekki raunin. Nokkur önnur lög nálgast toppinn en restin nær ekki sama fluginu og þegar verst lætur minnir tónlistin á bönd eins og Spyro Gyro og Mezzof- orte; fjúsjón, skammstafað l.e.i.ð.i.n.d.i. í mörgum lögum eru þeir í Jagúar nýrakaðir og dannaðir eins og vísitöluþenkjandi skrifstofu- menn en villimennskuna, sukkið og svitann vantar og maður hugsar í mesta lagi: ,já, voða voru þeir dug- Jagúar ★★★ Tæplega helmingurinn er argasta gæðafönk sem höfðar til heilbrigðrar líkamsstarfs- semi neðanmittis. legir að læra sóló í F.Í.H“. Þau ná- bleiku lög þjóna ekki öðrum tilgangi en að vera undir í skjáauglýsingum og maður sér ekki aðra fyrir sér fíla þau en miðaldra pípureykjandi djas- spunga með hártopp. Ekki gott mál. En þó fordómar mínir og skortur á umburðarlyndi hindri mig í að fíla plötuna alla verður ekki annað sagt en að þetta sé besta íslenska fönk- platan til þessa (á íslandi ríkir að vísu fákeppni í fönki). Platan var tekin upp á sviði Borgarleikhússins og sándið er fínt, dálítið hart samt og mætti stundum vera meira „djú- sí“. Umbúðirnar eru full skandinav- ískar en aðalmálið hlýtur að vera að strákarnir spila vel og eru fagmann- legir fram i síðasta svitadropa. Svit- inn hefði bara mátt vera meiri og fagmennskan stundum letilegri. Dr. Gunni 10 f Ó k U S 3. desember 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.