Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1999, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1999, Blaðsíða 11
plötudómur Early Groovers-Happy New Ear ★ ★★★ Ruxpin-Radio ★★★ eins lengur yfir henni, en samt sem áður er þetta ágæt plata, sem á eru mörg fin stykki. Happy New Ear sem unnin er af Early Groovers, alias Örnólfi Thorlacius, er hinsvegar mjög fjölbreytt plata. Þetta er að upp- lagi einhvers konar trip-hop, en víða komið við. Þetta er plata Radio er unnin aflistamann- inum Ruxpin, sem er Jónas Þór Guðmundsson. Þetta er minimálískt teknó-breakbeat, þægileg tónlist sem lætur lítið yfir sér í fyrstu, en vinnur á við frekari hlustun. sem mundi sóma sér vel á Ninja Tune. Örnólfur virðist vera and- lega og menningarlega skyldur köppum eins og Amon Tobin og Funki Porcini. Lagið „Coffeetalk“ minnir t.d. sterklega á þann síð- arnefnda og platan er unnin á svipaðan hátt og margt frá Ninja Tune undanfarin ár. Þetta er lit- ríkt collage af bítum, lifandi hljóðfæraleik, sándum og sömpl- um (radd og hljóðbrotum). Ekki það að þetta sé einhver hermi- plata, því að hér má finna ýmis- legt óvænt og hugmyndaflugi stráksins virðast lítil takmörk sett. Þó að tónlistin sé mjög fjöl- breytt (það bregður fyrir jazzá- hrifum, hip hop, reggí, ambient og meira að segja blús svo eitt- hvað sé nefnt) þá tekst Örnólfi að búa til úr þessu sannfærandi heildarmynd. Þetta er hæggeng tónlist (downtempo) og það sem heldur plötunni saman er stemn- ingin sem er gegnumgangandi út hana alla. í gegnum allar bragð- tegundimar og sánd-breytingarn- ar (sándið er líka Qölbreytt; stundum viljandi lo-fi, stundum brakandi tært) er stemning sem skapast af einföldu og hægu Bragðmikið og hressandi frá Thule grúvi. Þetta er tónlist sem ætti að höfða til allra þeirra sem hafa áhuga á trip hoppi, hvort sem það er Bristol bylgjan (Tricky, Massi- ve Attack og Postishead), instrú- mental trip-hop á borð við afurð- ir Mo Wax og Ninja Tune eða verk Kruder og Dorfmeister. Ég mæli sérstaklega með þessari plötu. Báðar þessar útgáfur bera góðu heilsufari Thule-veldisins vitni. Ef að framhaldið verður jafn áhugavert þá eigum við spenn- andi tíma í vændum. Gerið sjálf- um ykkur greiða og tékkið á þess- um plötum. Trausti Júlíusson Sæti strákurinn George Michael gefur út nýja ellefu laga plötu á mánudaginn, sína fjórðu sólóplötu. George hugsar til framtíðar og kallar plötuna „Songs from the Last Century". Honum finnst því greinilega ekk- ert vafamál hvenær ný öld byrj- ar. Eins og lesa má úr titlunum er George að syngja gamla slagara frá þessari öld, lög eftir eldri snillinga eins og Cole Porter og Johnny Mercer yfir í yngra efni eftir Queen og U2. Elsta lagið er frá 1930, það yngsta frá 1995. Ge- orge hljóðvann plötuna með vön- um körlum og auðvitað hljómar þetta eins og dýrðlegasti eym- arjómi og George«syngur, eins og hunapgsfljáfur engill. Piátaif atti okki að koma út fyrr en á næsta ári. Öpþtökur liófusr í New York í lok ág®t en jþetta skotgekk svo útgáfunni var flýtt. Fyrsta smáskifan er gamla Police-lagið „Roxanne“. Það fjall- ar um gleðikonu og leikur ein slík í myndbandinu. George neit- aði nýlega að koma fram með Elton John. Uommafélag var búið að fá strákana aö ieika Ken pg Barbie á skemmtun en (ieorge hætti við á' siðustu stúndu. Þó George hafi neyðst til aö koma fir skápnura i löggútnálinu urn árið er honum ekkert of vel við að vera þekktur sem „a gay pop star“, Hann bendir réttilega á að kynhneigð sín sé aukaatriði. ar hér. Þær eru reyndar gefnar út á sitthvoru undirmerkinu; „Radio“ er á UNLFORM (ex- perimental raftónlist), en „Happy New Ear“ á DIZORDÉR (trip-hop, hip-hop & d&b). Radio er unnin af listamannin- um Ruxpin, sem er Jónas Þór Guðmundsson. Þetta er minimal- ískt teknó-breakbeat, þægileg tón- list sem lætur lítið yfir sér í fyrstu, en vinnur á við frekari hlustun. Þetta er frekar mjúk plata, bítin, sem oft eru jungle ættar, eru næstum notaleg og yfir þau setur Ruxpin einfalda, en hnitmiðaða músík. Styrkur hans liggur annars vegar í finu sándi og smekklegum útsetningum, hinsvegar í að hann hefur sterka tiifinningu fyrir því að ofgera ekki; - minna er meira, eins og sagt er. Þetta er gott byrjenda- verk, en það sem helst má finna að er að stundum er ekki nógu mikið að gerast í tónlistinni. Lög- in eru frekar einlit og það er því sérstaklega velkomið þegar Ruxp- in brýtur upp formúluna, t.d. í verkunum „Focus on the Sky“ og í lokalaginu „Broadcast Ends“. Radio hefði kannski orðið ennþá betri ef Jónas Þór hefði legið að- Happy New Ear sem unnin er afEarly Groovers, alias Örn- ólfi Thorlacius, er hinsvegar mjög fjölbreytt plata. Þetta er að upplagi einhvers konar trip-hop, en víða komið við. Þetta er plata sem mundi sóma sér vel á Ninja Tune. Plötuútgáfan Thule hefur vakið töluverða athygli undanfarin tvö ár eða svo. Hún fékk jú styrk úr Nýsköpunarsjóði, forsíðuviðtal í Undirtónum o.s.frv. Það hefur samt ekki borið mikið á afurðum hennar og verið vandræðalaust að þverfóta sig fyrir Thule-plöt- um í plötubúðum bæjarins, - helst að það hafi frést af einhverj- um tólftommum útí Þýskalandi og jú, ef vel er leitað hefur mátt finna vinylplötur djúpt í iðrum Þrumunnar. Hinn almenni plötu- kaupandi hefur hinsvegar hingað til lítið verið áreittur. Árið 1998 kom reyndar út safn- platan ágæta „Fishcake" og síðla árs hin frábæra minimal en fonkí teknóplata „Ooger“ með Oz Artists (besta íslenska teknóplat- an hingað til, ekki að samkeppn- in hafi verið mikil) en báðar fóru óþarflega leynt. En nú eru straumhvþrf, tvær plötur nýkomnar út og aðrar tvær væntanlegar fyrir áramótin. Þær tvær fyrstu, „Radio" með Ruxpin og „Happy New Ear“ með Early Groovers eru til umfjöllun- Útsölustaöir. Everest, Skeifunni Nanoq, Kringlunni Seglageröin Ægir, Eyjaslóð Sportbúö Óskars, Keflavík Sportver, Akureyri Útilíf, Glæsibæ h$itclv6!réUiR 3. desember 1999 f ÓkUS 11

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.