Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1999, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1999, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1999 Fréttir DV sandkorn Mæðrastyrksnefnd: Stanslaus straumur „í fyrra var svo mikið að gera hjá okkur að við þurftum að ganga á eig- in sjóði til að anna eftirspum. Ég sé ekki betur en það stefni í það sama í ár því hingað er stanslaus straumur fólks,“ sagði Unnur Jónasdóttir hjá Mæðrastyrksnefnd sem nú vinnur að því ásamt félögum sínum að taka á móti umsóknum um fjár- og matar- styrki frá almenningi fyrir jólin. „Við höfum látið fólk hafa matarmiða fyrir 5000 krónur sem það getur notað í ýmsum matvöruverslunum og t fyrra fengu 1100 heimili slíkan stuðning, mest einstæðar mæður,“ sagði Unnur. Þeir sem þurfa á matarstyrk að halda fyrir jólin verða að skrá sig á þar til gerö eyðublöð hjá Mæðra- styrksnefnd, Sólvallagötu 48, en þar er slo-ifstofan opin frá 14-17. „Við getum aðeins veitt það sem okkur er gefið og við ætlum að hefja úthlutun 15. desem- ber,“ sagði Unnur Jónasdóttir. -EIR Messubeiöni stuðningsmanna sr. Gunnars: Einkaathöfn - en ekki auglýst messa, segir prófastur „Það verður ekki auglýst almenn safnaðarmessa, en séra Gunnar get- ur verið með einkaathöfn ef hann vill,“ sagði Agnes M. Sigurðardóttir prófastur Vestfjarðaprófastsdæmis við DV Sigurður Hafberg íbúi á Flateyri hefur beðið séra Gunnar Björnsson prest í Holti í Önundarfirði að messa fyrir stuðningsmenn hans á Flateyri um miðjan mánuðinn. Sig- urður sagðist í samtali viö DV i gær hafa beðið Agnesi Sigurðardóttur prófast leyfis og hefði hún veitt það. Biskup hefur sett séra Gunnar af sem sóknarprest í þrjá mánuði, en skipað hann til sérþjónustu í þann tíma. Sr. Agnes Sr. Gunnar Siguröardóttir. Björnsson. Séra Agnes sagði, að sá prestur sem væri í sérþjónustu, en væri ekki þjónandi, hefði ekki aðgang að kirkjunni nema í gegnum sóknar- prest. Undir öllum venjulegmn kringumstæðum lánuðu sóknar- prestar sérþjónustuprestum kirkj- urnar sínar fyrir sérstakar athafnir. „Séra Gunnar getur farið fram á að fá kirkjuna lánaða og þá verð ég að meta það. Hins vegar verður þetta ekki auglýst messa fyrir söfnuðinn heldur privatþjónusta.“ Séra Agnes fór í bamamessuna til séra Gunnars á Flateyri sl. sunnu- dags . Hún talaði til bamanna og til- kynnti að hún myndi þjóna söfnuðn- um næstu þrjá mánuðina. Hún kvaðst í samtali við DV hafa til- kynnt séra Gunnari um starfsmörk hans sem sérþjónustuprests. -JSS Miðbæjarsamtökin á Akureyri vilja breytingar: Heimta bíla í göngugötuna DV, Akureyri: „Við gemm þá kröfu að umferð bifreiða verði að nýju hleypt á Hafn- arstrætið, þar sem nú er göngugata, og höfum nefnt það á öllum stöðum sem þarf að nefna það á, t.d. við bæj- arstjóm og bæjarstjóra, skipulags- nefnd og arkitektana sem eru að vinna að teikningum að breytingum á göngugötunni og Ráðhústorginu," segir Ingþór Ásgeirsson, formaður Miðbæjarsamtakanna á Akureyri. Ingþór segir það staðreynd sem ekki verði horft fram hjá að eftir að Hafnarstrætið var gert að göngu- götu hafi gegnumstreymi fólks um götuna minnkað verulega. Hann segir það algjöra nauðsyn í upp- byggingu miðbæjarins að opna göt- una fyrir bílaumferð en það eigi að gera á þann hátt að auðvelt sér að loka fyrir bílaumferðina, t.d. þegar eitthvað sérstakt er um að vera í götunni eða á Ráðhústorgi og t.d. í desember þegar mestur fjöldi fólks er að versla og einhverjar uppákom- ur eiga sér stað. Vilborg Gunnarsdóttir, formaöur skipulagsnefndar bæjarins, segir nefndina ekki hafa rætt það form- lega hvort ráðist verði i opnun göngugötunar fyrir bílaumferð. Göngugatan á Akureyri. Kaupmenn þar krefjast þess aö bifreiöaumferö veröi hleypt á götuna aö nýju. Kárí kemur við kaunin „Það hefur ekkert verið ákveðið í þessum efnum en þetta er vissulega ein af hug- myndunum sem uppi eru. Það er al- veg ljóst að krafan af hálfu kaupmanna um opnun götunnar er mjög sterk og við sem erum í skipu- lagsnefnd höfum heyrt þessar raddir. Við höfum einnig komið þeim skila- boðum til arkitekt- anna sem eru að vinna tillögur um breytingar á göngu- götunni og Ráðhús- torgi að í einhverj- um tillagna sinna geri þeir ráð fyrir bílaumferð á þessu svæði. Arkitektamir munu skila grófúm hugmyndum sínum 17. desember,“ segir Vilborg Gunnars- dóttir. -gk Kári Stefánsson, for- stjóri íslenskar erfða- greiningar, hefur nú um það bil vald yfir lif- andi sem dauöum. Kári er að kortleggja gen allra íslendinga í því skyni að selja erlendum lyfjarisum nákvæmar lýsingar á blóði, svita og tárum íslendinga svo hægt verði að stokka saman almennileg gen og skapa á næstu öld fyrirmyndarþjóð á norðurhjara. íslenska þjóðin er svo sem ágæt eins og hún er en það er fullt af erfðasjúkdómum sem grasserar frá einni kynslóð til annarrar. Með tækni Kára er von til þess að hægt verði að útrýma hinum gölluðu genum. Þetta færi allt fram á rannsóknarstofum og því engir mannlegir harmleikir að baki sköp- unar hinnar hreinu þjóðar. Aðrar tilraunir til hreinræktunar hafa verið grimmdarlegar og ekki samboðnar siðuðum samfélögum. Kári hefur komið við kaunin á einstöku lækn- um sem hafa verið með nagg og talið að hann sé að fara út fyrir mörk hins siðaða vísindasamfé- lags með tilraunum sínum. Þetta er auðvitað bá- bilja ein. Það að Kári megi ekki kaupa fyrirtæki á borð við Gagnalind sýnir ekki annað en fas- isma. Sjálfur hefur Kári marglofað að tryggja per- sónuleynd meö dulkóðun á sjúkrasögu einstak- linga. Gagnalind hefur gert forrit sem hjálpar læknum að fela slóð sjúklinga sinna áður en sjúkrasagan fer í gagnagrunn Kára. Sama Gagna- lind mun sinna viðhaldi á forritinu en eins og all- ir vita þarf tölvubúnaður viðhald. Það að Kári hefur nú eignast meirihluta í dulkóðunarfyrir- tækinu snýst ekki um annað en það að hann vill hafa yfirsýn yfir allt málið. Kári er sannur vís- indamaður sem vill að auki standa við orð sín og tryggja fulla leynd. Til að örugglega sé ekki upplýst hverjir sjúk- lingamir að baki dulkóðunni eru þarf Kári að sjálfsögðu að vita sjálfur hverjir þeir eru. Annars getur hann ekki vemdað þá. Þetta veit heilbrigð- isráðherrann sem tekið hefur að sér að tryggja að Kári fái sérleyfi á grunninum. Þess vegna lét hún aðstoðarmann sinn segja við DV um helgina að ráðuneytið hefði ekkert leyfi til að hafa skoðun á þvi að Kári ætti meirihluta í Gagnalind. Þetta eru eðlileg viðbrögð ráðherrans því ef Kára er ekki treystandi þá er ekki hægt að veita honum sér- leyfi á gagnagrunninum. Nær væri að selja Kára nokkra sérhæfða lækna svo hann vissi hvað þeir væru aö hugsa. Flokkur ráðherrans hefur verið að selja nokkrar jarðir að undanfomu og frekar en að agnúast út í yfirsýn Kára yfir sjúka væri nær að hann fengi forkaupsrétt að ríkisjörðum. Þannig fengju hollvinir Framsóknarflokksins ekki að kaupa jaröir nema Kári væri áður búinn að kanna hvort kirkjugarðar væru til staðar. Með því gæti hann útvíkkað enn yfirsýn yfir gen hinnar væntanlegu herraþjóðar í norðurhöfum. Lifandi sem dauðir veröa að leggjast á eitt til að tryggja að þjóð hinna hreinræktuðu komist á legg á nýrri öld. Dagfari Fátækrahjálpin Þeir eru ófáir sem gefa út hljóm- plötur nú fyrir jólin. Að venju eru margir útgefendur að leggja undir húsin sín i von um að plöturnar seljist. Stór kostnaðarliður eru auglýsingar og allt sem þeim fylgir. Stöð 2 er full ná- ungakærleika f jólamánuðinum og byrjar auðvitað á því að létta undir með Jóni „79 þúsund krónur á mánuði“ Ólafssyni í Skíf- unni. í síðustu viku var klukku- tima langur þáttur um Bubba Morthens og plötu hans og á fóstudag klukkutíma langur þáttur um plötu Björgvins Halldórs- sonar en báðir gefa þeir út hjá Skífunni. Miðað við gangverð aug- lýsinga hjá Stöö 2 útleggst þessi fá- tækrahjálp á kr. 15 milljónir. Auk þess þarf að búa þáttinn tO... Svakalega heppinn Hafi einhverjum þótt það mikil heppni að fá hjálp upp á 15 millj- ónir hjá Stöð 2 vegna útgáfu hljómplatna verður það að teljast góð viðbót sem Bylgjan leggur til. Síðasta helgi nóv- embermánaðar var Selmuhelgi og fyrsta helgi desem- bermánaðar var Bubbahelgi en þau gefa bæði út hjá Skífunni. Á rúmri viku er því líklegt að Jón Ólafsson hafi verið svo heppinn að vinna álíka háa fjárhæð í ógreiddum auglýsingum og hafnfirska konan í Vikingalottóinu. Það verður að teljast líklegt að þeir sem kallaðir hafa verið ljónheppnir munu hér eftir kallast alveg Jónheppnir... Heiður Þrátt fyrir að ekki sé konungs- dæmi á íslandi ber mikið á þeim er standa að forseta íslapds. Dæt- ur forsetans þykja einstaklega vel gerðar og vekja þjóðarathygli hvar sem þær fara. Þannig mun nokk- uð vera um að það sé tilkynnt í kall- kerfi véla Flug- leiða þegar þær ferðast til út- landa. „Okkur er heiður að til- kynna að Dalla Ólafsdóttir er um borð“ er viökvæöið þegar viðkom- andi tvíburi á í hlut. Nú munu bæði Dalla og Tinna vera famar að heiman svo sem gerist þegar fólk kemst til þroska. Bankaspilling Pólitísk spilling á íslandi birtist best í ráðningu manna í stól Seðlabankastjóra. Sá stólanna þriggja sem er laus í dag er í „eigu“ Framsóknar. Yfirlýsing Davíðs Oddssonar um að senn verði stóllinn auglýstur er talinn merkja að búið sé að velja mann í stöðuna. Skv. reglunni er það yfirleitt af- skrifaður póli- tíkus sem þvælist fyrir í ríkisstjóm. Augu manna hafa því beinst að Páll Péturssyni en ráðning hans myndi leysa kreppuna sem hann hefur spennt upp í Framsókn með því að neita að fara í Byggöastofn- un. Þó Páll hafi aldrei þótt sleipur í hagfræði er hann gamall bóndi og því vanur að telja rollur en margir fyrirrennarar hans hafa ekki einu sinni haft þann undir- búning fyrir jobbið... Umsjón Reynir Traustason Netfang: sandkom @ff. is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.