Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1999, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1999, Qupperneq 22
34 ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1999 Fókl í fréttum Ólafur Örn Haraldsson Ólafur Öm Haraldsson alþingimaö- ur, Frostaskjóli 97, Reykjavík, hefur verið í fréttum aö undanfómu vegna Fljótsdalsvirkjunar en hann er for- maður umhverfisnefndar Alþingis. Starfsferill Ólafur fæddist í Reykjavík 29.9. 1947 en ólst upp á Laugarvatni. Hann stundaði nám við Héraðsskólann á Laugarvatni, við Idrætshujskolen í Sunderborg í Danmörku 1963-94, var við þýskunám við Goethe Institut 1966, lauk stúdentsprófl frá ML 1968, B.Sc.-prófi í landafræði við HÍ 1972 og MA-prófl í byggða- og skipulagsfræði frá University of Sussex í Englandi 1973. Ólafur var fyrsti skálavörður í Hvítárnesi sumrin 1%7 og 1968, var stundakennari við Hagaskóla 1970-72, við MR 1971-72, ráðgjafi hjá Hagvangi hf. 1973-80, framkvæmdastjóri þar 1980-85, framkvæmdastjóri innan- landsdeildar Útsýnar 1986-87, fram- kvæmdastjóri og einn eigenda Gallups á íslandi 1987-93, starfrækti eigin ráðgjafarþjónustu 1993-94 og hefur verið alþm. Reykvíkinga frá 1995. Ólafur var framkvæmdastjóri fata- söfnunar RKÍ og Hjálparstofnunar kirkjunnar, framkvæmdastjóri um- dæmisnefndar um sameiningu sveit- arfélaga á Suðurlandi, var fram- kvæmdastjóri landsmóts UMFÍ 1994 og vann að sameiningu Stéttarsam- bands bænda og Búnaðar- félags Islands. Ólafur samdi gaman- þættina Jónas og fjöl- skylda fyrir Umferðarráð og áramótaskaup og fleiri útvarpsþætti fyrir ríkisút- varpið. Ólafur kleif Mont Blanc Í2 Ölpunum 1992, var leiðangursstjóri í fyrsta skíðaleiðangri íslendingar yfir Grænlandsjökul 1993, og í fyrsta leiðangri íslendinga á Suðurpólinn 1997-98. Hann lagðist snemma í ferðalög, íyrst með foreldrum sínum og kom þá fyrst á jökul, sjö ára, fór síðar yfir hálendi landsins á skellinöðru, fimmtán og sextán ára, hefur gengið á skíðum yfir þvert og endilangt hálendi íslands og yfir flesta stærstu jökla landsins og klifið fjölda fjalla hér á landi. Ólafur var formaður nemendasam- taka ML, sat í stjóm Landfræðifélags íslands, sat í stjórn og var formaður Félags íslenskra rekstrarráðgjafa 1981-85, sat í stjórn Rotaryklúbbsins Austurbær 1986-87 og hefur setið í stjóm Reykjavíkurdeildar RKÍ. Hann er formaður umhverfisnefndar Alþingis frá 1995, er varaformaður menntamálanefndar og félagsmálanefndar þingsins, situr í sendinefnd Alþingis í Evrópuráðinu í Strasborg, og hefur setið í fjölda nefnda á vegum Framsóknar- flokksins. Ólafur er höfundur bókarinnar Hvíti risinn, sem fjallar um skíða- ferðina yfir Grænlandsjök- ul og fleiri ferðir hans. Fjölskylda Eiginkona Ólafs er Sigrún Jakobsdóttir Richter, f. 29.6.1948, ritari, dóttir Jak- ÓlafurÖrn obs Helga Richter, skipa- Haraldsson. smiðs í Reykjavík, og Gyt- hu J.F. Richter húsmóður sem bæði eru látin. Böm Ólafs og Sigrúnar eru Harald- ur Örn, f. 8.11. 1971, lögmaður í Reykjavík, en unnusta hans er Una Björk Ómarsdóttir, lögfræðingur hjá Tryggingastofnun; Örvar Þór, f. 13.1. 1975, BA í viðskiptafræði og starfsmaður hjá Coldwater í Bandaríkjunum en unnusta hans er Guðrún Árdís Össurardóttir, fatahönnuður í New York; Haukur Steinn, f. 19.1.1983, nemi við VÍ. Systkini Ólafs: dr. Jóhanna Vil- borg, f. 9.7. 1946, sálfræðingur í Reykjavík; Matthías Bjöm, f. 24.4. 1949, d. 9.3.1981, háskólanemi; Þrúður Guðrún, f. 14.12. 1950, framkvæmdastjóri Félags íslenskra náttúrufræðinga. Foreldrar Ólafs era dr. phil. Har- aldur Matthíasson, f. 16.3. 1908, fyrrv. menntaskólakennari á Laugarvatni, og k.h., Kristín Sigríður Ólafsdóttir, f. 16.4.1912, fyrrv. kennari og húsmóðir. Ætt Meðal systkina Haralds má nefna Steinunni, móður Gests Steinþórsson- ar skattstjóra. Haraldur er sonur Matthíasar, b. á Fossi í Hrunamanna- hreppi, Jónssonar, b. á Skarði, Jóns- sonar, b. á Skarði, Gíslasonar, b. á Hæli, bróður Gests á Hæli, langafa Steinþórs Gestssonar, fyrrv. alþm. Móðir Matthíasar var Steinunn, syst- ir Rósu, langömmu Alfreðs Flóka. Steinunn var dóttir Matthíasar, b. á Miðfelli, Gíslasonar, af Kópsvatnsætt. Móðir Haralds var Jóhanna Bjarna- dóttir, b. í Glóra, Jónssonar, b. í Há- holti, Ámasonar, b. í Háholti, Eiríks- sonar. Móðir Árna var Sigríður Guð- mundsdóttir, systir Brynjólfs, langafa Þuríðar, móður Þorsteins Erlingsson- ar skálds. Móðir Jóhönnu var Guð- laug Loftsdóttir, b. í Austurhlíð, bróð- ur Ingunnar, ömmu Guðrúnar á Skarði, langömmu Guðlaugs Tryggva hestamanns. Loftur var sonur Eiríks, ættföður Reykjaættar, Vigfússonar. Bræður Kristínar: Ólafur, íslensku- kennari í MR, og Haraldur, Sigurður og Bragi, forstjórar Fálkans hf. Krist- in er dóttir Ólafs, stofnanda Fálkans Magnússonar, b. á Gili i Örlygshöfn, Sigurðssonar. Móðir Ólafs var Þórdís Jónsdóttir, smiðs í Miðhlíð, Bjarna- sonar, og Kristínar Jónsdóttur, systur Gísla, langafa Árna Friðrikssonar fiskifræðings. Móðir Kristínar var Þrúður, dóttir Jóns Borgfjörð, snikk- ara í Ingólfsbrekku í Reykjavík, Gísla- sonar, og Oddrúnar Samúelsdóttir. Afmæli Jón Gunnar Guðlaugsson Jón Gunnar Guðlaugs- son landmælingamaður, Fannafold 177, Reykjavík, er fimmtugur í dag. Starfsferill Jón Gunnar fæddist í Reykjavík en ólst upp á Fá- skrúðsfirði og í Suðursveit. Hann lauk búfræðiprófi frá Bændaskólanum á Hólum í Hjaltadal 1969, prófi sem garðyrkjufræöingur frá Garðyrkjuskóla Ríkisins 1974 og prófi f landmæling- um frá NKI-skólanum í Noregi 1978. dóttur, f. Jón Gunnar starfaði við garð- ingi. Hún Jón Gunnar Guðiaugsson. yrkju í Noregi jafn- framt því að stunda nám í landmælingum. Hann flutti aftur heim til íslands 1979, hóf þá störf hjá Verkfræðistof- unni Hnit og hefur starfað þar síðan. Jón Gunnar hefur gefið sig að félagsstörfum i þágu kirkjunnar. Fjölskylda Jón Gunnar kvæntist 24.6. 1978 Láru Jóns- 9.6. 1953, garðyrkjufræð- er dóttir Jóns Haraldsson- ar og Hildigunnar Valdimarsdóttur. Þau hjón bjuggu að Einarsstöðum í Hofsárdal í Vopnafirði. Jón lést þann 30.11.1998 en Hildigunnur býr i Fellabæ í Norður-Múlasýslu. Böm Jóns Gunnars og Láru eru Hjörleifur Snævar Jónsson, f. 11.9. 1978, nemi við Viðskiptaháskóla ís lands; Hildigunnur Jónsdóttir, 19.6. 1983, nemi við VÍ. Systkini Jóns Gunnars eru Sig urður Guðlaugsson, f. 7.2. 1940, vél stjóri, búsettur á Seltjarnamesi Þorbjörg Guðlaugsdóttir, f. 20.5. 1943, búsett í Reykjavík; Ingólfur Guðlaugsson, f. 18.9. 1944, fram- kvæmdastjóri, búsettur í Reykjavík; Bárður Guðlaugsson, f. 3.6.1955, fag- kennari, búsettur á Seltjamamesi. Foreldrar Jóns Gunnars: Guð- laugur Eyjólfsson, f. 5.8.1915, d. 16.9. 1992, kaupfélagsstjóri og verslunar- maður, og Valgerður Hjördís Sig- urðardóttir, f. 19.7.1916, d. 6.11.1988, heimilisstýra og afgreiðslukona. Þau bjuggu á Reykjavíkursvæð- inu að undanskildum árunum 1949-55 er þau bjuggu á Fáskrúðs- firði. Jón Gunnar tekur á móti gestum að kvöldi afmælisdagsins frá klukk- an 20.00 fram undir miðnætti í veit- ingasalnum Dúndur, Dugguvogi 12. Til hamingju með afmælið 7. desember 80 ára Valdimar Helgason, Gidlsmára 9, Kópavogi. 75 ára Arnkell B. Guðmundsson, Stórholti 47, Reykjavík. Bjarni Jónsson, Strandgötu 12, Hvammstanga. Bragi K. Norðdahl, Þinghólsbraut 66, Kópavogi. Hlín Axelsdóttir, Brekkuvegi 7, Seyðisfirði. Tryggvi Ólafsson, Skeiðflöt, Mýrdal. 70 ára Ingi Bjöm Halldórsson, Boðagranda 7, Reykjavík. Víglundur Elísson, Garðabraut 10, Akranesi. 60 ára Guðjón Bergsson, Hofi 1 Eystribæ, Fagurhólsmýri. Hrafnhildur G. Norðdahl, Háteigsvegi 50, Reykjavík. Jóhann Gunnar Jónsson, Skólavörðustíg 22, Reykjavík. 50 ára Guðbjartur Sigurðsson, Lundarbrekku 2, Kópavogi. Heiðrún Sverrisdóttir, Ásbraut 19, Kópavogi. Hugrún H. Sigurbjömsdóttir, Skarðshlíð 31a, Akureyri. Sigurður Ólafsson, Sandi 2, Húsavík. Torfi Einarsson, Skólavegi 7, Hnífsdal. Valdimar Snorrason, Svarfaðarbraut 15, Dalvik. 40 ára Egill Þór Ragnarsson, Logafold 35, Reykjavík. Guðrún Runólfsdóttir, Barkarstöðum, Hvolsvelli. Helga Bjamadóttir, Kirkjuteigi 23, Reykjavik. Ingvi Magnússon, Asparfelli 12, Reykjavík. Sigurður V. Gunnarsson Sigurður V. Gunnarsson, vélfræð- Starfsferill ingrn- og iðnrekandi, Sæviðarsundi 9, Reykjavik, er sjötugur í dag. Sigurður fæddist á Melhóli í Nes- kaupstað og ólst þar upp. Hann lærði vélvirkjun hjá Dráttarbraut- inni í Neskaupstað, stundaði nám við Vélskóla íslands og lauk þaðan prófum sem vélfræðingur 1955. Sigm-ður var vélstjóri við írafoss- virkjun við Sogn og stöðvarstjóri Grímsárvirkjunar austur á Héraði. Hann var síðar vélstjóri á togurum hjá Júpiter og Mars hf. Hann stofn- aði Vélsmiðju Sigurðar V. Gunnars- sonar að Súðavogi 16 í Reykjavík 1963 og hefur starfrækt hana síðan. Fjölskylda Sigurður kvæntist 24.12. 1954, Þýðrúnu Pálsdóttur, f. 19.1.1931, for- stöðukonu. Hún er dóttir Páls Jóns- sonar á Stóru-Völlum í Landsveit og Sigríðar Guðjónsdóttur. Böm Sigurður og Þýðrúnar eru Sigurvin Rúnar, f. 3.12. 1952, vél- tæknifræðingur og deildarstjóri hjá Samskipum hf. í Reykjavík, kvænt- ur Ólafiu G. Kristmundsdóttur og eiga þau tvö böm; Pétur Sigurður, f. 5.5. 1962, d. 11.3. 1984, vélfræðingur en unnusta hans var Ester Agnars- dóttir; Sveinn, f. 15.1. 1969, vélvirki og iðnrek- andi en sambýliskona hans er Sigurborg Hrönn Sigurbjömsdóttir og eiga þau tvö böm. Hálfsystir Sigurðar, sammæðra er Laufey Guðlaugsdóttir, f. 22.3. 1918, húsmóðir í Nes- kaupstað, var gift Svein- bimi Á. Sveinssyni út- gerðarmanni sem lést 1984. Fóstursystir Sigurðar er Guðrún Baldursdóttir, f. 5.6.1940, sjúkraliði, búsett í Kópavogi, gift Sveini Jóhannssyni skólastjóra. Foreldrar Sigurðar voru Gunnar Bjamason, f. 15.1. 1905, d. 1966, vél- stjóri, og Hermannía Sigurðardóttir, f. 4.9. 1896, d. 1989, húsmóðir. Ætt Gunnar var sonur Bjama, b. á Sveinsstöðum, Guðmundssonar, b. á Sveinsstöðum, Jónssonar, b. á Kirkjubóli, Vilhjálmsson- ar. Móðir Guðmundar var Þorbjörg Bjamadótt- ir frá Flögu í Breiðdal. Móðir Bjama var Gunn- hildur Ólafsdóttir, Pét- urssonar, og Mekkínar Erlendsdóttur frá Hellis- firði. Móðir Gunnars var Guð- rún Þorgrímsdóttir en móðir hennar var Oddný Ólafsdóttir, systir Jóns Ólafssonar, skrifara á Eskifirði, og Guðrúnar, konu Thomsens á Seyðisfirði. Hermannía var dóttir Sigurðar Stefánssonar og Vilhelmínu Her- mannsdóttur, b. á Brekku i Mjóa- firði, Vilhjálmssonar. Móðir Her- manns var Guðrún Konráðsdóttir. Móðir Vilhelmínu var Guðný Jóns- dóttir, pr. á Skorrastað og i Heydöl- um, Hávarðssonar, og Sólveigar Benediktsdóttur. Sigurður verður að heiman. Siguröur V. Gunnarsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.