Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1999, Page 4
4
MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 1999
Fréttir
i>v
Halldór Ásgrímsson, formaöur Framsóknarflokksins:
Hrakti ekki Finn burt
- heldur óvægin gagnrýni og óvönduð fréttamennska
„Þaö er þannig í stjómmálum aö
menn koma og fara. Finnur hefur
tekið þessa ákvöröun og það mun
nýtt fólk taka við hans störfum.
Þaö eru tímamót í sögu flokksins
og í íslenskri stjómmálasögu að
þrjár konur og þrír karlar sitji í
ríkisstjóm fyrir Framsóknarflokk-
inn og aö einn þriðji þingflokksins
em konur. Ég tel að í þessu felist
sóknarfæri fyrir flokkinn og að við
höfum fulla burði til þess að ráða
við þau verkefni sem eru fram
undan,“ sagði Halldór Ásgrímsson
að afstöðnum þingflokksfundi
Framsóknarflokksins í gær. Á
fundinum var einróma samþykkt
sú tillaga Halldórs að Valgerður
Sverrisdóttir taki við embætti iðn-
aðar- og viðskiptaráðherra af Finni
Ingólfssyni sem sest í einn þriggja
bankastjórastóla Seðlabankans á
nýársdag.
Atgervisflótti ofsóttra
Halldór sagðist hafa trú á því
fólki sem starfar í Framsóknar-
flokknum og að innan hans finnist
arftaki Finns í varaformannsemb-
ætti.
„Hins vegar er það áhyggjuefni
hve mikið af ungum mönnum hef-
ur verið að hverfa út úr íslenskri
pólitík á undanförnum árum. Ég
nefni menn eins og Kjartan Jó-
hannsson, Eið Guðnason, Jón
Baldvin Hannibalsson, Svavar
Gestsson, Friðrik Sophusson, Þor-
Halldor Ásgrímsson: „Ég er viss um aö þaö hefur enginn framsóknarmaður látiö hafa þetta eftir sér.“ Frá
þingflokksfundi framsóknarmanna í gær.
stein Pálsson og nú Finn Ingólfs-
son,“ sagði Halldór.
„Þaö er vissulega áhyggjuefni
fyrir íslensk stjórnmál ef þessi
þróun heldur áfram en ég tel að
fyrir því séu ákveðnar ástæður,
meðal annars óvægin gagnrýni í
garð stjórnmálamanna, mikið álag
á þeirra heimili og óvönduð frétta-
mennska. Menn virðast ekki hika
við, ef vantar fréttir, að skálda inn
í það, eins og ég sá til dæmis í DV
í dag, að þegar menn eru að skrifa
fréttaskýringu þá er hluti af því
hreinn skáldskapur. Þetta virðist
mönnum, sumum hverjum, vera
eðlileg fréttamennska í íslensku
samfélagi,“ sagði Halldór.
Valgeröur Sverrisdóttir:
Ætla að liúka stóra málinu
„Það eru mörg spennandi verk-
efni sem heyra undir iðnaðar- og
viðskiptaráðuneytið sem á eftir að
leiða til lykta. Ég mun leggja mig
fram um það að ljúka stóra málinu
sem er Fljótsdalsvirkjun og upp-
bygging álvers í Reyðarfirði," seg-
ir Valgerður Sverrisdóttir sem tek-
ur við lyklavöldum af Finni Ing-
ólfssyni í iönaðar- og viðskipta-
ráðuneytinu á gamlársdag.
Forveri hennar hefur ýmist ver-
ið gagnrýndur fyrir að fara sér of
hægt eða of hratt í einkavæðingu
f*
Valgeröur
Sverrisdóttir.
ríkisfyrirtækja.
Valgerður boðar
enga stefnu-
breytingu í þeim
efnum.
„Ég tel að frá-
farandi iðnaðar-
og viðskiptaráð-
herra hafi verið
afar farsæfl í
starfi. Það liggur
fyrir stefna rík-
isstjómarinnar um öll mál sem
varða iðnað og viðskipti og mínar
skoðanir falla algjörlega að þeim
þannig að það er ekki að búast við
stefnubreytingum í þeim mála-
flokki frekar en öðrum en auðvit-
að koma Edltaf einverjir nýir siðir
með nýju fólki,“ segir Valgerður.
Sjálf telur hún stærstu fréttina við
skipan sína í ráðherraembætti
vera þá að þar með séu jafnmarg-
ar konur ráðherrar og karlar í ráð-
herraliði Framsóknarflokksins.
„Ég er óskaplega stolt yfir því,“
segir hún.
-GAR
DV-mynd E.OI.
Hrakti Finn ekki burtu
Stöð 2 hélt því fram að brotthvarf
Finns Ingólfssonar af vettvangi
stjórnmálanna ætti sér að hluta til
skýringu í óánægju hans með for-
ystu og stjómunarstíl formannsins
Halldórs.
„Þetta er eitt af því sem menn eru
að búa til. Við Finnur er búnir að
vera mjög nánir allar götur frá því
fljótlega eftir 1980. Hann var minn
aðstoðarmaður í sjávarútvegsráðu-
neytinu i fjögur ár. Og við höfum
líka veriö vinir. Við höfum gengið
saman á íjöll og eytt mörgum stund-
um saman. Þannig að maður skilur
nú ekki svona eða hvaða hvatir
liggja þar að baki. Ég er viss um að
það hefur enginn frámsóknarmaður
látið hafa þetta eftir sér. Þetta er
fráleitt, en maður er bara orðinn
svo vanur þessu að maður er hætt-
ur að vera undrandi á skáldskapar-
hæfileikunum," sagði Halldór.
Halldór sagði engar áætlanir um
frekari breytingar á ráðherraliði
Framsóknarflokksins og gaf lítið út
á vangaveltur um slíkt. „Menn eru
alltaf að velta einhverju fyrir sér.
Það er eins og gengur í lífinu," sagði
Halldór Ásgrímsson. -GAR
Blaðríð í Siv
Fræg urðu þau um-
mæli Ólafs Ragnars
Grímssonar að stærsta
efnahagsvandamál
vinstri stjómarinnar sem
sat 1988-1991 væri blaðrið
í Steingrími Hermanns-
syni. Hann gat, sem
kunnugt var, aldrei þag-
að ef blaðamaður var ná-
lægt og blaöraði jafhan
meiru en hann var spurð-
ur um. Þegar Jón Baldvin
og Ólafur Ragnar suðu
saman hvers kyns hókus-
pókusa í aðsteðjandi
kreppum varð gagnið
alltaf minna en efni stóðu
til þvi blaðurskjóðan í
forsætisráðuneytinu var
jafnan búin að blaðra öllu
í alla sem sist máttu vita.
Stjómlaust blaður er áberandi kvilli hjá for-
ystumönnum Framsóknar í Reykjanesi og ber öll
merki hæggengs veirusjúkdóms. Denni varð til
dæmis ekki blaöurskjóöa fyrr en hann varð for-
sætisráðherra og hjá arftaka hans í Reykjanesi,
Siv Friðleifsdóttur, lét stjómlaust blaður ekki á
sér kræla fyrr en í aðdraganda ráðherradóms
þegar hún slóst við Finn heitinn um varafor-
mennsku í Framsókn. Þá blaðraði hún því í
Moggann að gagnstætt Finni ræflinum vildi hún
endilega að Fljótsdalsvirkjun færi í umhverfis-
mat. Skömmu síðar varð Siv ráðherra og leiddi
þegar í stað gervallt fjölmiðlastóð landsins með
sér á Eyjabakka og blaðraði viðstöðulítið á með-
an. Meðal annars blaðraði hún því í sjónvarpiö
að þar sem Eyjabakkamir væru bara ferlega ljót-
ir mætti hennar vegna sökkva þeim án þess að
hafa fyrir einhverju leiöinda umhverfismati. En
þjóðin hafði ekki gleymt blaðri Sivjar við Mogg-
ann og á einni mínútu í Ríkissjónvarpinu fuðraði
pólitísk framtíð blaðurskjóðunnar af Nesinu upp
í skammlifum fjölmiðlaloga.
Á þessum tímapunkti var blaðrið í Siv orðið að
slíku vandamáli í Framsókn að Finnur heitinn og
Halldór bönnuðu henni að blaðra nema innan
ráðuneytisins. Það reyndust dýrkeypt mistök.
Þegar sendiherra Norðmanna skolaði þangað í
kurteisisheimsókn var blaðurskjóðan svo mál-
þola að hún kyrrsetti Halvorsen garminn. Lengi
dags blaðraði hún yfir honum um ámátlega stöðu
Halldórs Ásgrímssonar ef Norðmenn byggðu ekki
álver á Reyðarfirði og hótaði skrúfum og strafli
þegar sendiherra sýndi á sér fararsnið. Halvor-
sen sá sitt óvænna og skrifaði langa skýrslu um
blaður Sivjar til norska utanríkisráðuneytisins
þar sem menn sátu agndofa yfir blaðrinu þangað
til kontóristi benti á þá skelfilegu staðreynd að
blaðurskjóðan væri Norðmaður.
Nú er komið að því að borga fyrir allt blaðrið.
Finnur heitinn skilur eftir sig varaformannsstól
sem Siv hefði fyrir hálfu ári tekið með annarri
hendi. Nú á hún varla sjens. Kátlegir kaflar eins
og Guðni, sem enginn tók mark á til skamms
tíma, eru miklu sterkari kandídatar. Á örfáum
mánuðum tókst Siv Friðleifsdóttur að breyta
sjálfri sér úr leiðtogaefni Framsóknar í marklitla
blaðurskjóðu sem blaðraði sína eigin pólitísku
framtíð svo rækilega ofan í mýrina á Eyjabökk-
um að hennar hefur ekki orðið vart síðan. Stein-
grímur lifði af blaðrið í sjálfum sér en sama verð-
ur ekki sagt um núverandi umhverfisráðherra.
Dagfari
sandkorn
Klossalaus
Umsjónarmenn morgunþáttar
Bylgjunnar urðu að laga sig að
breyttmn aðstæðum með tilkomu
morgunsjónvarpsins. Höfðu þau á
orði að ekki gengi
lengur að mæta ' i
vinnuna krumpuð
og úfin heldur yrði
útlitið að vera tipp-
topp. Þorgeir Ást-
valdsson, hinn
gamalreyndi út-
varpsmaður, er
einn umsjónar-
manna morgun-
sjónvarpsins. Þorgeir er mikifl
klossamaður og þekktur fyrir
hvítu klossana sem hann hefur
haft á fótum í meira en tvo áratugi.
Þó klossarnir séu þægilegir munu
þeir hafa verið þymir í augum
framleiðenda morgunsjónvarpsins,
passað illa inn i settið. Þvi þarf
Þorgeir að klæðast reimuðum
skóm. Gamansömum vinum hans
finnst hann heldur blár í framan
eftir að herða tók aö fótunum en
eru ekki alveg vissir hvort um eigi
aö kenna hækkuðum blóðþrýstingi
eða áköfum Framstuðningi...
Messað á Netinu
Ófáum finnst stundum að ein-
ungis séu tveir prestar í Reykjavík,
Pálmi Matthíasson í Bústaða-
hverfi og Vigfús Þór Ámason í
Grafarvogi. Ekki er
nóg með að fjöldi
komi í kirkju til
þeirra og sækist eft-
ir þjónustu þeirra
heldur eru þeir
famir að láta á sér
kræla á fleiri svið-
um. Messuflutn-
ingur var víst
nokkur á Netinu
um jólin. Samkvæmt fréttum úr
Bústaðakirkju komu nokkur hund-
rað manns í netmessu. Þó um
nýlundu virðist að ræða vita færri
að þrjú ár era síðan messum í Dóm-
kirkjunni var varpað á Netið.
Menn era greinilega á undan tím-
anum í elstu kirkju borgarinnar ...
Vigdís varamaður
Heyrst hefur að Vigdis Finn-
bogadóttir hafi verið boöuð sem
varamaður Ólafs Ragnars Gríms-
sonar í gamlárshátiðina í Perlunni
sem aðalræðumaður
vegna menningar-
borgarinnar. Ólafur
Ragnar mun hafa
tjáð skipuleggjend-
um þessarar finu
veislu að hann
ætti ekki heiman-
gengt þetta kvöld.
Var þá farið til
Vigdísar sem þáði
boðið strax. Annars er töluvert
rætt um að fólk hafi sent afboð,
vilji vera heima hjá sér á gamlárs-
kvöld. Og enn fremur að nú gangi
miðar í veisluna mifli manna í
stjómkerfi borgarinnar ...
Stóla undir alla
Framsóknarmönnum tókst svo
sannarlega að stela senunni í lok
þessa ársþúsunds. Finnur Ingólfs-
son hljóp í Seðlabankann og Val-
gerður Sverris-
dóttir fær loks ráð-
herraósk sína upp-
fyllta. Hagyrðing-
ar, stórir og smáir,
fara gjarnan af
stað þegar eitt-
hvað er að gerast
í pólitíkinni og
eru tíðindin
Framsókn engin undantekning.
HV sendi þetta:
Halldór í krappan dans kominn
er enn,
konur á hásœti kalla.
Þeir eru ekkifleiri framsóknar
menn,
aöfá mœtti stóla undir alla.
Umsjón: Haukur L. Hauksson
Netfang: sandkorn @ff. is