Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1999, Síða 22
30
MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 1999
Fréttir
Aldraðir Strandamenn stofna félagsskap:
Kraftmikil kyn-
slóð vinnur af
miklum þrótti
dv Hóimavik- öðrum félögum af þessu tagi, að
—----'----------- gæta réttinda félagsmanna og fá
„Markmiðið er það sama og hjá bætta þjónustu þeim til handa og
Sigríöur Björnsdóttir, söngkona á níræöisaldri, skemmti gestum með fág-
uöum söng, en undirleikari var Elzbieta Kowalczyk. Til hægri á myndinni er
Engilbert Ingvarsson, formaöur Félags aldraöra á Ströndum.
Frá skemmtifundi eldri borgara á Ströndum. Helgi Hjálmsson, varaformaöur Landssambands eldri borgara, er lengst
til vinstri á myndinni. DV-myndir Guðfinnur.
verða aðili að Landssambandi eldri
borgara,“ segir Engilbert Ingvars-
son, nýkjörinn formaður Félags
eldri borgara í Strandasýslu, en
stofnfundur félagsins var haldinn
28. október síðastliðinn.
I félagið hafa nú þegar gengið 81
og fer félagið því af stað með mikl-
um þrótti enda er líklega kraft-
mesta kynslóð sem þetta land hefur
fóstrað innan vébanda félaga eldri
borgara þessa lands, kynslóð sem
hefur upplifað og tekið virkan þátt
í uppbygingu sem vart á sér hlið-
stæðu þótt skyggnst sé víða um
lönd.
Samstöðu sina sýndi þessi kraft-
mikli hópur með því að fjölmenna
til fyrsta fagnaðarins sem félagið
stendur fyrir og samanstóð af fjöl-
breyttum söng, bæði einsöng, tví-
söng og kórsöng, upplesturs í
bundnu máli, auk dansins, en sam-
koman hófst með fundi þar sem
mættur var Helgi Hjálmsson, vara-
formaður Landssambands eldri
borgara. Þegar hefur verið ákveðin
hópferð til Vestmannaeyja í júní
næsta sumar og farið að bollaleggja
aðra öllu lengri ferö árið 2001. Unn-
ið verður að einu og öðru milli
þessara ferða og það ekki síðar en
á næstu mánuðum. í stjóm auk
Engilberts eru Jóna Þórðardóttir
og Sverrir Guðbrandsson.
-Guðfinnur
Sementið rauk út fram
að kuldakasti
DV, Akranesi:
Semenstssala hjá Sementsverk-
smiðjunni hf. í nóvember var 11.063
tonn eða um 5,4 % yfir áætlun. Gríð-
arleg sala var allt fram til 20. nóv-
ember en þá hófst kuldakafli sem
stóð út mánuðinn og salan datt
verulega niður.
Heildarsalan á árinu er orðin
124.260 tonn eða um 2,4 % yfir gild-
andi söluáætlun en hún gerir ráð
fyrir að árssalan verði 128.800 tonn.
-DVÓ
Kristín Halla Birgisdóttir, Úlfhildur Ösp Indriöadóttir og Anna S. Þorvaldsdóttir skipa fiölusveitina Akva. Þær léku fyr-
ir viöskiptavini Hagkaups í Smáranum á dögunum. DV-mynd Sveinn
Klókar stúlkur í jólaösinni:
Gera út á fiðlurnar
„Verslunareigendur hafa tekið
okkur mjög vel og ráðið okkur í
vinnu. Við höfum haft mikið að
gera og áheyrendur hafa tekið þessu
framtaki okkar mjög vel. Við þurf-
um því ekki að kvarta," segja þær
Kristín Halla Birgisdóttir, Úlfhildur
Ösp Indriðadóttir og Anna S. Þor-
valdsdóttir sem skipa fiðlusveitina
Akva.
Þær stöllur gerðu samning við
stórmarkaði um að gleðja viðskipta-
vini á aðventunni með ómþýðum
fiöluleik. „Það má segja að við ger-
um út á fiðlumar okkar. Þetta er
skemmtilegt og ekki er verra að viö
fáum borgað fyrir,“ segja þær.
-rt
Bændur við
prófborð
DV, Vesturlandi:
Þann 6. desember hófust próf
við Landbúnaðarháskólann á
Hvanneyri og stóð prófatömin til
17. desember. Við skólann stunda
nám, auk nemenda á staðnum,
um 19 fjamámsnemendur. Á þess-
ari önn hafa átta fög verið kennd
í fjarnámi og eru það að stórum
hluta starfandi bændur sem læra
með þessum hætti. Nemamir
koma víða að af landinu og því er
ekki gerð krafa um að þeir mæti í
Landbúnaðarháskólann til að
taka próf heldur er þeim gert
kleift að taka prófin í heimahér-
aði, t.d. í næsta bama- eða fram-
haldsskóla. Próftökustaðimir eru
að þéssu sinni níu, viðs vegar um
landið. -DVÓ
Brunavarnir sjúkrahússins á Akranesi í lamasessi:
Ráðherra beðinn
að hjálpa spítala
í heimabyggð
DV, Akranesi:
Eins og DV hefur greint frá hef-
ur slökkviliðsstjórinn á Akranesi
krafist þess að brunavarnir á
Sjúkrahúsinu á Akranesi verði
komnar i lag, ems og lög og reglu-
gerðir gera ráð fyrir, strax á árinu
2000.
Á síðasta fundi stjórnar sjúkra-
hússins greindi Sigurður Ólafsson,
framkvæmdastjóri SHA, frá því að
óskað hefði verið eftir fjárveitingu
vegna framkvæmda við að koma
brunavömum stofnunarinnar í lag.
Áætlaður kostnaður vegna þessa er
um 16 milljónir króna. Kannski
það verði síðasta verk Ingibjargar
Pálmadóttur fyrir áramót að veita
sjúkrahúsinu í heimabyggð ráð-
herrans fjárframlag til brunavama.
-DVÓ