Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2000, Qupperneq 4
4
MIÐVTKUDAGUR 5. JANÚAR 2000
Préttir
sandkorn
Fyrsti heyrnarlausi íslendingurinn sem lýkur háskólaprófi:
Væri hægt hér líka
- segir Hildur Ýrr Jóhannsdóttir sem útskrifaðist frá skóla í Bandaríkjunum
Hildur Ýrr Jóhannsdóttir: „Mér gekk mjög vel þótt sum fögin væru erfiðari en önnur. Pá reyndi ég bara að leggja
harðar að mér.“
Hildur Ýrr Jóhannsdóttir mun
vera fyrsti heyrnarlausi íslending-
urinn sem lýkur háskólaprófi en
hún útskrifaðist með BA-gráðu i
hagfræði frá háskóla í Washington í
Bandaríkjunum þar sem hún býr.
Þangað fluttist Hildur Ýrr, sem er
25 ára gömul, ásamt foreldrum sín-
um, Jóhanni Jónssyni og Sigur-
veigu Víðisdóttur, og tveimur yngri
systkinum fyrir ellefu árum. Hún
útskrifaðist 16. desember sl. en mik-
il útskriftarveisla var haldin hér
heima á íslandi milli jóla og nýárs.
Hildur Ýrr, sem hefur verið
heyrnarlaus frá fæðingu, segir að
þótt þjónusta við heymarlausa á ís-
landi standi langt að baki því sem
gerist í Bandaríkjunum hafl hún
farið nokkuð batnandi. „Staðan var
miklu verri í gamla daga. Þess
vegna var það svo miklu betra fyrir
mig að flytjast til Bandaríkjanna.
Það þýddi að ég gat síðar klárað
þetta háskólanám," segir hún.
Að sögn Hildar Ýrar hefur hún
mikinn áhuga á listum en valdi að
endingu hagfræðina, meöal annars
vegna þess að hún tryggir henni
breiðari menntunargrunn vilji hún
enn bæta við námsgráður sínar.
„Ég get alltaf haft listina sem
hobbí,“ segir hún. „Ég var fyrst að
hugsa um að læra ensku og prófaði
nokkur fög en endaði á hagfræð-
inni. Mig langaði að prófa eitthvaö
sem ég hefði ekki reynt áður og sem
væri öðruvísi. Mér gekk mjög vel
þótt sum fögin væru erfiðari en
önnur. Þá reyndi ég bara að leggja
harðar að mér.“
Hvernig veröur ísland
framtíöarinnar?
Skólinn sem Hildur Ýrr gekk í er
fyrir heyrandi en sér til aðstoðar í
skólanum hafði hún túlk og fékk
glósur hjá öðrum. Fleiri heyrnar-
lausir voru í skólanum að læra þau
fög sem þeir höfðu áhuga á. Sú þjón-
usta sem Hildur og aðrir heymar-
lausir námsmenn nutu er lögboðin í
Bandaríkjunum.
„Ef heymarlausir vilja fara í há-
skóla eiga þeir rétt á að fá túlk með
sér. Ný lög, sem sett voru 1990,
höfðu í för með sér mikla breytingu
og þjónustan fer enn batnandi. Það
verður gaman að sjá hvemig staðið
verður að þessum hlutum hér á ís-
landi í framtíðinni. Ég er fyrsta ís-
lenska heymarlausa manneskjan til
að klára háskólanám. Það eru engir
heymarlausir við nám í Háskóla Is-
lands í dag en tveir heyrnarlausir
eru fluttir til Bandarikjanna og em
í háskóla þar og annar þeirra held
ég klári í vor,“ segir Hildur Ýrr.
„Eins og ég sagði áðan þá gat ég
klárað þetta vegna þess að það er
svo góð þjónusta í Bandaríkjunum
og ég á því mest að þakka. Ef það
væri svona góð þjónusta á íslandi
gæti það sama orðið hér. Ég hef
komið hingað í heimsóknir á und-
anfömum árum og ég sé auðvitað
að þjónustan fer smátt og smátt
batnandi en það má vera meira,"
segir hún.
Að sögn Hildar Ýrar er óákveðið
hvort hún fer í frekara nám og í
augnablikinu hefur hún hug á að
leita sér að vinnu úti í Bandaríkjun-
um. Hún útilokar þó ekki aö starfa
hér heima fái hún starf sem hæfir
menntun hennar. „Það getur vel
verið aö mig langi aftur í skóla en
ég veit það ekki alveg í dag,“ segir
hún að lokum.
-GAR
Eldhúsin iða af lífi
JJnjlfiifJ
urlands voru ekki ákærðir fyrir aðför sína
sem er miður þar sem nú hafa aðrar heil-
brigðisstofnanir tekið upp sömu hætti.
Hollustuvernd rikisins er nú á útopnuðu á
eftir veitingahúsaeigendum sem hafa unn-
ið það eitt til saka að elda ofan í gesti og
gangandi með þeim afleiöingum að örfáar
örverur hafa náð að mynda samfélög í glu-
fum skurðbretta og á milli samskeyta
borðplatna. Öfgar og ofstæki Hollustu-
verndar er slíkt að farið var i 79 matvæla-
fyrirtæki þar sem leitað var með smásjá að
einhverju misjöfnu.
Algjört skilningsleysi ríkir á því að á
misjöfnu þrífast börnin best. Sem betur fer
hefur Hollustuvernd ekki enn þá upplýst í
hvaða eldhúsum hinar skaðlitlu örverur
hafa numið land enda yrði slíkt bara til að
skemma viðskiptin fyrir vertunum. Það er
skynsamlegt að hafa öll veitingahús undir
sama hatti og vera ekki að ala á ótta með-
al viðskiptavina. Miklu nær er að viðhalda
spennunni þannig að veitingahúsagestir
spili í eins konar lottói og viti innan sólar-
hrings hvort þeir hafa snætt á ósýktum
stað. Líkurnar á að sneiða hjá örverueld-
húsunum eru talsverðar eða sem nemur 1
á móti 10. Kerfið verður að læra af reynsl-
unni og til þess eru Ásmundarstaðavítin að var-
ast þau. Haldi ofsóknirnar áfram verður að kæra
starfsmenn Hollustuverndar til lögreglu.
Dagfari
Hollustuvemd ríkisins tók sig til á
dögunum og kannaði þrif í eldhúsum
veitingahúsa. Það var eftir öðru hjá
hinum opinberu starfsmönnum að í
stað þess að fagna því að þrif reynd-
ust fullnægjandi i 7 fyrirtækjum þá
skammaðist stofnunin yfir þvi að illa
var þrifið í 27 eldhúsum. Svo er að sjá
sem heilbrigðisstofnunum sé fyrir-
munað að sjá björtu hliðarnar. Þess
er skemmst að minnast að ofstækis-
fullir heilbrigðisstarfsmenn á Suður-
landi lögðu kjúklingabúið að Ás-
mundarstöðum i einelti vegna þess aö
80 prósent af kjúklingunum voru und-
irlögð af kamfýlu sem að sögn átti
það til að gera fólk veikt.
Hinum sunnlensku eftirlitsaðilum
var fyrirmunað að líta á þær björtu
hliðar að 20 prósent Ásmundarstaða-
kjúklinganna voru ósýkt. Það fór líka
svo að hinir svartsýnu heilbrigðis-
starfsmenn voru kærðir til lögreglu
fyrir að nota röng gleraugu þar sem
þeir skoðuðu viðkvæman matvæla-
iðnað. Svo langt gengu ofsóknir á
hendur aumingja kjúklingabændun-
um að sjálft Landlæknisembættið
auglýsti að eldhús landsmanna iðuðu af lifí. Allt
kerflð lagðist á eitt um að rægja kjúklingabænd-
ur sem ekkert gátu gert að því þótt kamfýlan
legði undir sig kjúklinga þeirra. Ekki var skiln-
ingur á því að almenningur gat sjálfur forðast
magakveisu með því að þurrsteikja kjúklingana
við 250 gráða ofnhita.
Ofstækismennimir hjá Heilbrigðiseftirliti Suð-
Borgarstjóri áhugalaus
Niðurtalning Samfylkingarinn-
ar er á fullu ef marka má skoð-
anakönnun DV. Flokkurinn er
nú minni en Vinstri grænir
Steingrlms J. Sigfússonar.
Ákveðin örvænting
er innan raða sam-
fylkingarmanna og
krafan um trausta
og ákveðna for-
ystu er háværari
en áður. Mjög er
þrýst á Ingi-
björgu Sólrúnu
Gísladóttur að
taka við foryst-
unni. Borgarstjórinn er sagður
lítt ginnkeyptur fyrir aö yfirgefa
borgina enda telji hún víst að
vinna næstu kosningar með stæl
þar. Borgarstjórinn mun þess
fullviss að Inga Jóna Þórðar-
dóttir verði áfram í forystu sjálf-
stæðismanna og þar með telur
hún eftirleikinn auðveldan...
Rauður
Á Ströndum voru allt aðrir
jólasveinar á ferðinni í gamla
daga en.á öðrum stöðum lands-
ins. Þeir voru að vísu 13 en höfðu
önnur sérkenni. Eftir á að hyggja
er merkilegt að
skoða nöfnin. Einn
hét nefnilega Stein-
grímur (eins og
þingmaður þeirra
Hermannsson síð-
ar), annar heitir
Redda, þriðji
Rauður, eins og
Steingrímur
Hermannsson
var kallaður í Bandaríkjunum.
Aðrir jólasveinar Strandamanna:
Tífall, Tútur, Baggi, Lútur,
Sledda, Lækjaræsir, Bjálminn
sjálfur, Bjálmans bamið og Örva-
drumbur...
Hvalavinir í síma
Nýtt símafyrirtæki, Frjáls íjar-
skipti, kvaddi sér hljóðs um ára-
mótin og lofar lægstu símagjöld-
um á landinu. Þama eru á ferð
hinnu kunni talsmaður Keikós,
HaUur Hallsson,
og annar hvalavin-
ur, PáU Þór
Jónsson. PáU Þór
rak umsvifamikla
ferðaþjónustu á
Húsavík og var
öflugur talsmað-
ur hvalaskoðun-
ar þar til hann
flutti suður. Þeir fé-
lagar hyggjast ásamt samstarfs-
mönnum velgja Landsímanum og
Íslandssíma undir uggum. Víst er
að einhver verður atgangurinn ef
marka má frammistöðu þeirra í
hvalamálum...
Icelandair
Fyrir skaupið á gamlárskvöld
var mikið um langar auglýsingar
frá óskabömum þjóðarinnar og
fleiri fyrirtækjum. Flugleiðir
voru með auglýsingu þar sem
nýja útlitið var í
aðalhlutverki og
sosum ekki mikið
um það að segja.
Hins vegar féll
það mönnum
misjafnlega í geð,
á þessum tima-
mótum þar sem
íslenskan á í
vök að verjast, að aldrei var
talað um Flugleiðir í auglýsing-
unni heldur Icelandair. Davíð
Oddsson virtist blessa þetta
framtak Flugleiða fyrir fram í
Mogga, sagði í áramótahugvekju
að tungan væri ágæt svo langt
sem hún næði. „Að svo miklu
leyti sem hún þvælist fyrir mik-
ilvægum markmiðum í lífinu
verði hún að víkja og muni hvort
sem er gera það, hvað sem allri
viðspyrnu líður...“
Umsjón Reynir Traustason
Netfang: sandkom @ff. is