Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2000, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2000, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 2000 11 i>v Fréttir Árleg úthlutun úr Minningarsjóöi Gunnars Thoroddsens fór fram 29. desember við athöfn í Höföa. Paö var Margrét Jóhanna Pálmadóttir kórstjóri sem hlaut styrkinn aö þessu sinni en hann var nú veittur í fjórtánda sinn. Margrét hlaut styrkinn, kr. 250.000, fyrir framlag sitt til tónlistarlífs í borginni en sjóöurinn er í vörslu borgarstjórans í Reykjavík. Könnun á kælingu matvæla og þrifum í kjötvinnslum: Hafa gripið til aðgerða - nöfn fyrirtækja ekki gerö opinber, segir Hollustuvernd HEILSUGÆSLAN I REYKJAVIK Ný síma- og faxnúmer á eftirtöldum heilsugæslustöðvum í Reykjavík: Heilsugæslustöðin Árbæ, Hraunbæ 102D-102E, 110 Reykjavík, sfmi 585-7800, fax 585-7801. Heilsugæslustöð Miðbæjar, Vesturgötu 7, 101 Reykjavík, sími 585-2600, fax 585-2601. Heilsugæslustöð Hlíðasvæðis, Drápuhlíð 14-16, 105 Reykjavík, sími 585-2300, fax 585-2301. Heilsugæslustöðin Grafarvogi, Hverafold 1-3, 112 Reykjavík, sími 585-7600, fax 585-7601. 4. janúar 2000. Heilsugæslan í Reykjavík, stjórnsýsla www.visir.is Heilbrigðisfulltrúar hafa gripið tO aögerða í kjölfar könnunar heil- brigðiseftirlits sveitarfélaga og Hollustuvemdar ríkisins á hita- stigi kælivara i versluniun og þrif- um í veitingahúsum og kjötvinnsl- um. Niðurstöður könnunarinnar voru í stórum dráttum að kælingu væri víða mjög ábótavant og þrif í stórum hluta tilvika léleg eða með öllu ófulinægjandi. „Við létiun færa til I kælum, þar sem hitastig var of hátt. Síðan fengu menn frest til að lagfæra það sem miður hafði farið,“ sagði Helga Hreinsdóttir, heilbrigðiseft- irliti Austurlands. „Við létum gera við kæla, kalla á viðgerðarmenn og aðra sem sjá um viðhald á kælim- um.“ Heilbrigðiseftirlit Austur- lands benti einnig á æskOeg hreinsiefni og leiðbeindi varðandi þrif, þar sem þeim var ábótavant. Helga sagði, að ef vanræksla af þessu tagi gerðist ítrekað væri við- komandi fyrirtæki áminnt form- lega. Til þess hefði ekki komið enn sem komið væri. Jón Gíslason, forstöðumaður matvælasviðs Hollustuvemdar rík- isins, sagöi aö ákvörðun hefði ver- ið tekin um að birta ekki nafna- lista þeirra fyrirtækja sem könn- unin náði til. „Það er langt liðið frá sýnatöku þar sem könnunin hefur tekið langan tíma í vinnslu, eða frá því í apríl til október. Þá eru til- tölulega fá fyrirtæki, ef miðað er við landið í heild, með i könnun- inni. Niðurstöðumar hafa verið send- ar viðkomandi fyrirtækjum og sums staðar hefur verið gripið til aðgerða, þannig að það er búið að benda þessum aðilum á það sem betur má fara. Heilbrigðiseftirlitið á hverjum stað fylgist síðan með því að farið sé að tilmælum. Með því að birta heildarniðurstöðumar erum við fyrst og fremst að koma skilaboðum til allra fyrirtækja, einnig þeirra sem vom ekki með í könnuninni, að ástæða sé tU að kanna þrif og kælingu.“ -JSS KARATE ÞOP'SHAMAR Námskeið hefjast 6. janúar Byrjendanámskeið eru að hefjast hjá Karatefélaginu Þórshamri. Æft er í björtum og rúmgóðum sal sem er stærsti karatesalurinn hér á landi. Karate er öflug sjálfsvörn, eykur sjálfstraust, lipurð og líkamsstyrk. Karate er fyrir konur og karla á öllum aldri, óháð líkamlegu formi. Skipt er effir aldri í bama-, unglinga- og fullorðinsflokka. Upplýsingar eru veittar f sfma 551 4003 og á heimasíðu félagsins www.thorshamar.is Allir kennarar hjá félaginu eru með viðurkenndar gráður í karate. Karatefélagið Þórshamar er aðili að Karatesambandi íslands, ÍBR og ÍSÍ. Ókeypis kynningartími J. Karatefélagið Þórshamar, Brautarholti 22, 105 Reykjavík, sími 551 4003 www.thorshamar.is í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.