Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2000, Qupperneq 14
14
MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 2000
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjómarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÓLI BJÖRN KÁRASON
Aöstoðarritstjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVÍK,
SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Vtsir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á mánuði 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverð 180 kr. m. vsk., Helgarblað 250 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiðir ekki viðmælendum tyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Sterk staða Sjálfstæðisflokks
Skoðanakönnun DV, sem birt var hér í blaðinu í gær,
sýnir enn og aftur sterka stöðu Sjálfstæðisflokksins. Yfir
helmingur þeirra sem afstöðu tóku segjast kjósa Sjálf-
stæðisflokkinn ef gengið yrði að kjörborði nú og er þetta
í annað skiptið í röð sem könnun DV bendir til meiri-
hlutafylgis flokksins.
Sterk staða Sjálfstæðisflokksins kemur engum, sem
fylgist með íslenskum stjórnmálum, á óvart. Flokknum
gengur flest í haginn. Staða efnahagsmála er góð, þó ýms-
ar blikur séu á lofti. Davíð Oddsson, forsætisráðherra og
formaður Sjálfstæðisflokksins, er að öðrum ólöstuðum
sterkasti stjórnmálamaður samtímans og þess njóta fé-
lagar hans. Ólíkt því sem verið hefur hjá samstarfs-
flokknum í ríkisstjórn hefur yfirleitt verið góður friður
um störf ráðherra sjálfstæðismanna en það gæti breyst á
nýju ári.
Sjálfstæðisflokknum hefur fram að þessu tekist að
sigla lygnan sjó - hann hefur notið góðs af góðærinu og
sundurþykkju stjórnarandstöðunnar. Hið sama verður
ekki sagt um Framsóknarflokkinn sem hefur fengið á sig
hvern brotsjóinn á fætur öðrum. Könnun DV undirstrik-
ar þá pólitísku kreppu sem framsóknarmenn glíma við,
ekki síst vegna hremminga sem ráðherrar flokksins hafa
lent í á undanfornum mánuðum og misserum. Brott-
hvarf Finns Ingólfssonar úr ríkisstjórn í skjól Seðlabank-
ans mun ekki hjálpa Halldóri Ásgrímssyni, formanni
Framsóknarflokksins, að ná vopnum og styrkja stöðuna.
Hans helsta von virðist liggja í því að á komandi mánuð-
um mun kastljós fjölmiðla og almennings fremur beinast
að ráðherrum Sjálfstæðisflokksins og þá sérstaklega að
forsætisráðherra sem yfirmanni efnahagsmála og fjár-
málaráðherra sem ábyrgðarmanni ríkisfjármála. Það
mun reyna verulega á Davíð Oddsson og Geir H. Haarde
í komandi kjarasamningum.
Samfylkingin heldur áfram eyðimerkurgöngu sinni.
Könnun DV sýnir að enn sígur á ógæfuhliðina hjá því
fólki sem ætlaði að sameina vinstri menn í eina öfluga
hreyfingu - aðeins 15,5% þeirra sem afstöðu tóku segjast
styðja Samfylkinguna en í október sýndi sambærileg
könnun blaðsins 17,7% stuðning. Ef gengið yrði til kosn-
inga nú yrði Samfylkingin ekki svipur hjá sjón, með að-
eins 10 þingmenn, miðað við úrslit alþingiskosninga á
liðnu vori þegar hún fékk 17 þingmenn kjörna. Niður-
stöður könnunar DV eru gríðarlegt áfall, ekki síst þegar
haft er í huga að það er innan við eitt ár síðan forráða-
menn Samfylkingarinnar töluðu keikir um að sameinað-
ir vinstri menn yrðu jafnstór stjómmálaflokkur og Sjálf-
stæðisflokkurinn - þeir bjartsýnustu töluðu jafnvel um
hreinan meirihluta á Alþingi. Allt stefnir því í að Sam-
fylkingin verði nafnið eitt - Alþýðuflokkurinn lifir.
Steingrími J. Sigfússsyni, foringja vinstri-grænna, hef-
ur tekist það sem margir töldu að væri útilokað. Alþýðu-
bandalagið er endurfætt á nýjum grunni - hugmynda-
fræði sósíalista með kryddi frá umhverfissinnum.
Vinstri-grænir njóta þess að hafa öflugan foringja með
skýra stefnu og ekki skemmir mátt- og stefnuleysi Sam-
fylkingarinnar fyrir.
Fjórflokkakerfið lifir því ágætu lífi þó tveir flokkar
hafi skipt um nafn og pólitískt heilsufar flokkanna sé
mismunandi gott.
Óli Björn Kárason
Umhverfismerking-
ar sjávarafurða
Kjallarinn
Pétur Bjarnason
formaður stjórnar
Fiskifélags íslands
til hvaða umhverfis-
þátta eigi að líta, skil-
greiningar á skilyrðum,
hvernig eigi að standa
að málum og hvernig
eigi að bregðast við
breyttum aðstæðum. Þá
þarf að vita að eitt eru
reglur um umhverfis-
merkingar og annað
sjálf umhverflsmerkin.
Margir kallaðir
Æðimargir aðilar ætla
sér hlutverk á þessu
sviöi en þeim er misvel
treyst. Þetta er viðhorf-
ið alls staðar. Því er
verið að vinna að regl-
um m.a. á vegum Evr-
ópusambandsins sem
„Það er skoðun flestra að í fram-
tíðinni verði umhverfismerki
notuð til að staðfesta að sjávar-
fang sé unnið í samræmi við góð-
ar umgengnisvenjur við náttúr-
una. íslenskur sjávarútvegur
fagnar auknum kröfum á þessu
sviði.u
í leiðara DV fyrir
nokkru er fjallað um
umhverfls- og gæða-
merkingar sjávaraf-
urða og umræður
um þau mál á Fiski-
þingi. Þessi flóknu
mál eru sett upp á
einfaldan hátt sem
ekki dugir til þess að
skýra viðfangsefnið
til fulls. Ályktunin
sem í lokin er dregin
af umfjölluninni er
því a.m.k. ónákvæm.
Umhverfis- og
gæðamerkingar
Munurinn á um-
hverfis- og gæða-
merkingum er að
umhverflsmerkingar
eiga að tryggja að
þeirrar vöru sem
neytandanum stend-
ur til boða hafi verið
aflað og hún unnin á
forsvaranlegan hátt
gagnvart umhverf-
inu samkvæmt nán-
ari skilgreiningu.
Gæðamerkingar
sjávarafurða tryggja
að varan standist
ákveðnar gæðakröf-
ur samkvæmt nánari skilgreining-
um. Skilgreiningin er því lykilat-
riðið.
Vörumerki sem hafa unnið sér
sess og hafa ákveðna ímynd eru i
raun gæðamerki. Gæðamerki er í
raun samningur á miUi framleið-
anda og kaupanda og þurfa ekki
aðrir að koma þar að.
Kröfur skilgreindar
Umhverfismerkingar eru annars
eðlis. Það þarf viðtækari samstöðu
til þess að móta reglur og skilgrein-
ingar vegna umhverfismerkja en
oft er gefið í skyn. Umhverflsmerk-
ingar eru af mörgum þjóðum tor-
tryggðar sem vísvitandi viðskipta-
hindranir. Ágreiningur er uppi um
gilda eiga um umhverfismerkingar
sjávarafurða og sem allir þeir er
ætla sér að bjóða vottun á slikar af-
urðir þurfa að fylgja. Þessar reglur
eiga að vera gegnsæjar þannig að
öllum sé ljóst hvaða kröfur eru sett-
ar og I þeim eiga að vera ákvæði
um til hvaða aðgerða eigi að grípa
ef eitthvað fer aflaga.
íslenskur sjávarútvegur
sammála
Það er skoðun flestra að í fram-
tíðinni verði umhverfismerki notuð
til að staðfesta að sjávarfang sé
unnið í samræmi við góðar um-
gengnisvenjur við náttúruna. ís-
lenskur sjávarútvegur fagnar aukn-
um kröfum á þessu sviði. Auknar
kröfur auka möguleika þeirra sem
hest standa sig.
íslenskur sjávarútvegur hefur
því um nokkurra missera skeið
unniþ að framgangi þessara mála
og eina ástæðan fyrir því að sú
vinna er ekki sýnilegri en raun ber
vitni er að þetta er mikið verk.
Marine Stewardship Council, sem
nefnt er í leiðaranum, hefur á sín-
um vettvangi einnig lagt í mikla
vinnu vegna þessa verkefnis en á
einnig langt í land.
Á þeim bæ hafa menn því ekki
enn klárað sín mál og eru því ekki
orðnir sá áhrifaaðili sem þeir ætla
sér að verða. Þess utan eiga þeir eft-
ir að sannfæra aðila um að það sé
eðlilegt að félagsskapur, sem er lok-
aður einsleitur hópur manna, geti
ákveðið reglur um umhverfismerki
- og breytt þeim eftir sínu höfði -
valið vottunaraðila og faggilt þá,
ákveðið gjald fyrir notkun merkis
tO eigin tekjuöflunar en jafnframt
haldið trúverðugleika. Það hefur
vafist fyrir framleiðendum og út-
flytjendum í öllum löndum að
styðja við starfsemi af slíku tagi og
lái þeim hver sem vill.
Helgi og Orri í sama liði
í leiðaranum er fjallað um Orra
Vigfússon og Helga Laxdal sem full-
trúa mismunandi sjónarmiða varð-
andi umhverfismál. Þeir eru notað-
ir sem tákn mismunandi tima og
horft fram hjá því að hugmynd
Orra var þess eðlis að leggja þarf í
verulega og timafreka vinnu við að
koma henni i framkvæmd og að
sjávarútvegurinn hefur verið að
vinna að slíku.
Það eru engar forsendur til þess
að draga þá félaga i mismunandi
dilka að þessu leyti. Báðir leggja
þeir hönd á plóg á þessu sviði, eins
og tillaga Orra á sínum tíma og
ræða Helga á Fiskiþingi bera glöggt
vitni. Þeir eru því báðir í sama liði.
Pétur Bjarnason
(Ath.: Tekið skal fram að grein
þessi hefur beðið birtingar þar til
nú.)
Skoðanir annarra
Spádómsáþján
„Hvemig er þetta eiginlega með okkur, má aldrei
koma okkur á óvart? Aldrei nokkurn tíma? Nei,
takk, Helst ekki. Ómögulega takk. Við erum nefni-
lega haldin spádómsflkn og við slíku er fátítt að
lækning flnnist. Kannski tímabundnar sprautur, en
aldrrei lækning...Mörg dæmi um þetta má sjá þegar
dagblöðum er flett og hlustað á ljósvakamiðla...Eru
ekki Völuspá, Biblian og önnur grunnrit fljótandi
full af framtíðarspám sem enn er vitnað til?...Það er
eðlilegt að hið sama skuli vera uppi á teningnum nú,
þúsund árum síðar, enda þjóðin þekkt fyrir að varð-
veita forna hætti með sérstökum bravúr.“
Sigurbjörg Þrastardóttir í Mbl. 4. janúar.
Ákall til samgönguráðherra
„Nú á dögum er vinsælt að láta ríkið gera samn-
inga við hina ýmsu aðila um að það fái að greiða
þeim fé. Eitt dæmi um slíkan samning er búvöru-
samningurinn um niðurgreiðslur til landbúnaðar og
annað er samningur um að ríkið niðurgreiöi kvik-
myndir...Og nú eru uppi hugmyndir um að taka
þetta fyrirkomulag upp við almenningssamgöngur á
landsbyggðinni en hætta þess í stað að endurgreiða
þungaskattinn. í skýrslu sem samgönguráðherra
hefur látið taka saman kemur fram að auka þurfi út-
gjöld ríkisins til þessa málaflokks. Samgönguráð-
herra mun varla svara þessu kalli, enda mun boð
dagsins frekar vera samdráttur hins opinbera en
aukin útgjöld og þensla."
Ur Vef-Þjóðviljanum 4. janúar
Snobbveisla aldarinnar
„Ný öld rennur ekki upp fyrr en um næstu áramót
en þó ætti að vera ljóst að snobbveisla aldarinnar
var haldin í Perlunni sl. gamlárskvöld. í Perluna
mætti hópur fólks sem hæst hefur talað um mikil-
vægi fjölskyldustefnu og þess að foreldrar sinni
bömum sínum. Þessu fólki fannst helst við hæfi að
fagna árinu 2000 með því að dvelja sem fjærst börn-
um sínum...Einhverjir hneyksluðust á því að forseti
og forsætisráðherra skyldu ekki blanda sér í gleðina
heldur eyða gamlárskvöldi með sínum nán-
ustu...Mér finnst samt að forseti og forætisráðherra
hafi sýnt að þeir séu með það sæmilega á hreinu
hvað það er sem skipti máli í þessu lífl. Þess vegna
geta þeir á þessu ári talað kinnroðalaust um mikil-
vægi fjölskyldustefnu meðan ýmsir í borgarkerflnu
ættu að skvaldra aðeins minna um þau mál öll.“
Kolbrún Bergþórsdóttir í Degi 4. janúar.