Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2000, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2000, Qupperneq 28
28 MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 2000 DV (UjjHgonn & Ummæli Þingmenn sem ekkert þykjast vita „Skattar hafa vísvitandi verið lækkaðir á hátekju- aðlinum og færðir á i lægstu launin. Síðan þegar þingmenn eru , spurðir um þessa , ósvinnu þykjast þeir ekkert vita eða reyna jafnvel að kenna öðrum um.“ Sigurður T. Sigurðsson verka- lýðsleiðtogi, í DV. Afrek Jeltsíns „Afrek Jeltsíns eru í raun og veru ekki svo mikil, önnur en þau að ekki kom til borgara- stríðs. En ferlinum lýkur með því að hann afhendir völdin í þjóðfélagi sem er í slíkri rúst að annað eins er óþekkt." Jón Ólafsson heimspekingur, í Morgunblaðinu. Aldrei að vita... „Það getur vel verið að ég fari í pólitík ef önnur úr- ræði þrýtur. Ég skora á alþingis- menn að taka til hendinni, annars mega þeir eiga von á því að ég birtist í þingsölum til að hressa þá við.“ Kolbrún Sverrisdóttir, Mað- ur ársins í þremur fjölmiðlum, ÍDV. Skrímslið „íslendingar, verum samtaka um að ganga aldrei til liðs við þetta skrímsli, sem i besta falli bara étur bömin sín og kallast Evrój)usamband.“ Óli Jóhann Pálsson, í Morgun- blaðinu. Stríðsástand á gamlárskvöld „Fari sem horfir þá endar þetta með því að friðsamt fólk verð- ur að flýja höfuð- borgarsvæðið á gamlárskvöld vegna stríðs- ástandsins sem þar skapast. Púð- urmagnið sem sprengt er jafnast á við meðal evrópska styrjöld.“ Magnús Skarphéðinsson, iDV. Glæsileg leikflétta „Það er líklega til marks um framfarasókn okkar þegar á allra síðustu dögum aldarinnar við fáum að verða vitni að jafn- glæsilegri leikfléttu í íslenskri pólitík og efnahagsstjómmálum og flótti Finns Ingólfssonar yfir í Seölabankann er merki um.“ lllugi Jökulsson, á Rás 2. „Árangurinn af þessu verkefni, að takast á við 2000-vandann, var eins og stefnt var að og björtustu vonir rættust. Það er að segja að það yrði truflanalaust eða truflana- lítið í tölvukerfum í upphafi árs 2000 og segja má að íslendingar, sem eru mjög tölvuvæddir, hafi náð góð- um árangri á þessu sviði. Þetta er fyrst og fremst því að þakka hvað fyrirtæki í landinu, stofnanir og sveitarfélög, voru samtaka um að taka á þessu vanda- _______________ máli og leysa það,“ segir Haukur Ingi- bergsson, formaður ~ 2000-nefndarinnar, sem hafði það verkefni á sinni könnu að koma í veg fyrir að tölvur yrðu óvirkar þeg- ar árið 2000 gengi í garð en um tíma var því haldið fram að mörg stór tölvukerfi yrðu óvirk eða gæfu rangar upplýsingar um áramót. Haukur segir nefndina hafa verið stofnaða 1998: „Það var ákveðið snemma árs 1998 að stjórnvöld og atvinnulífið tækju sameiginlega á málinu og var nefndin stofnuð í kjölfarið með fulltrúum frá báðum aðilum. Þetta samstarf ríkis og at- vinnulífs hefur tekist vel og leitt til mikillar og góðrar samstöðu um að- gerðir. Við vorum sjö í nefndinni og héldum þrjátíu fundi á því tímabili sem við störfuðum og alls staðar þar sem við leituðum var tekið á móti okkur af miklum skilningi og vel- vild.“ Haukur segir að nú sé ljóst að all- ar meiri háttar hættur séu að baki: „Það geta komið upp minni háttar truflanir i einstökum stofnunum eða fyrirtækjum, sem þá tengjast fyrst og fremst einni vél eða nokkrum vél- um en engar truflanir eiga að geta orðið héðan af í þjóðfélaginu út af 2000-vandanum. Þetta er góður ár- angur í ljósi þess að fyrir tveimur árum síðan spáðu menn að það yrðu mikil vandræði ef ekkert yrði gert. Þær kannanir og úttektir sem fóru fram á ýmsum kerfum og búnaði sýndu að það var rétt mat.“ Margir hafa orðið til þess á síðustu sólar- Maður dagsins hringum að efast um að vandinn væri jafnmikill og af var látið. „Vinir mínir hafa strítt mér á því að verk- efnið væri þess eðlis að 2000-nefndin yrði skömmuð hvemig sem færi. Ef allt tækist vel yrð- um við skamm- aðir fyrir það að of mikið hefði verið gert og ef mikilvæg kerfi hefðu hrim- ið þá værum við skammaðir fyrir að ekki hefði nægi- lega mikið verið gert. Þannig að hinn gullni meðalvegur er vandrataður í þessu eins og öðru. En hlut- verk nefndarinnar var að vinna að því að trufl- anir yrðu ekki hér á landi og það markmið náðist. Nú tekur við að fylgjast með því hvað gerist og í vikulokin tökum við stöðuna og sjáum til með framhaldið. Það gætu komið upp vandamál 29. febrúar en þá er óvanalegur hlaupársdagur og sumir telja að sá dagur gæti truflað einstök tölvukerfi." Haukur er skrifstofustjóri stjóm- sýslu og hagræðingamála í mennta- málaráðuneytinu: „Starf mitt í 2000- nefndinni hefur verið um það bil einn þriðji af mínu starfi síðast- liðið ár.“ Eiginkona Hauks er Birna Bjarnadóttir, framkvæmda- stjóri Heilsugæslustöðvarinn- ar í Kópavogi og bæjarfull- trúi i Kópavogi, og eiga þau sex böm -HK Gaukur á Stöng: Hammond- grúvband Tónlistarveisla verður á Gauki á Stöng í kvöld þegar saxófónsnillingurinn Óskar Guðjónsson mætir þangað ásamt félögum sínum í Hammond-grúvbandinu en þessi sveit hans er með ferska strauma í bland við Stevie Wonder prógramm. Meö Óskari eru Jóhann Ás- mundsson á bassa, Þórir Baldursson á hammond og Einar Scheving á trommur. Skemmtanir Óskar, sem staddur er hér á landi í jólafrii, hefur í nokkur ár verið einn vin- Óskar Guöjónsson leikur á Gauknum í kvöld. sælasti djassleikari okkar. Hann hefur verið valinn blásturshljóðfæraleikari ársins þrjú ár í röð en hann var einnig valinn djassleik- ari ársins 1998. Rúmheilagur Myndgátan hér aö ofan lýsir orötaki. Karlinn aö dauða kominn í Guilna hliðinu. Gullna hliðið Jólaleikrit Þjóðleikhússins er Gullna hliðið, eitt þekktasta leik- rit íslenskra bókmennta. Leikritið er nú sýnt í fimmta sinn í Þjóð- leikhúsinu á fimmtíu ára afmæli hússins. Sagan fjallar um kerling- una sem reynir að bjarga sálu manns síns og leggur á sig langt ferðalag til himna til að koma henni inn fyrir hlið himnaríkis. Að þessu sinni er leikstjórinn hinn vinsæli leikari Hilmir Snær Guðnason sem heyr frumraun sína sem leikstjóri með þessari sýningu og í helstu hlutverkum eru Edda Heiðrún Backman og . Pálmi Gestsson, sem leika kerling- una og karlinn Jón, Guðrún S. Gísladóttir leikur óvininn og aðr- ir leikarar eru meðal annars: Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Ólafur Darri Ólafsson, Randver Þorláksson, Tinna Gunnlaugsdótt- ir og Stefán Karl Stefánsson. Leikhús Gullna hliðið tekur á sig nýja mynd í uppfærslu Hilmis Snæs. Þar er það kvendjöfull sem gimist sálina hans Jóns míns og María mey og skækjan eru leiknar af sömu leikkonu. Englar, tónlist, töfrar og ævintýri, allt á sínum stað. Meira að segja var fenginn norskur töframaður til að kenna djöfsa nokkur góð brögð. Næsta sýning á Gullna hliðinu er í kvöld. Bridge Norðmennirnir Geir Helgemo og Tor Helness voru hinir öruggu sig- urvegarar á Macallan boðsmótinu í tvímenningi í janúar síðastliðnum. Þeir enduðu með 585 stig, en næsta para á eftir, ítalimir Lauria-Ver- sace, fengu 517 stig. Verðlaunin fyr- ir fyrsta sætið voru 5000 pund, eða sem svarar rúmum 600.000 krónum. Sextán sterkum pörum var boðið á mótið og spiluðu þau öll innbyrðis. Helgemo og Helness voru með svo góða stöðu, að þeir gátu leyft sér að tapa 2-58 fyrir Zia Mahmood og Andrew Robson. Zia og Robson græddu meðal annars vel á þessu spili í viðureign paranna: 4 875 * 54 ♦ KD2 4 K9874 ♦ 3 N ♦ KD10964 DG962 ■» 873 ♦ 874 ♦ 53 4 G1053 s 4 D2 4 ÁG2 4* ÁK10 4 ÁG1096 4 Á6 Sex tíglar er fyrirtaks samningur eftir hindrunaropnun austurs á spöðum (flestir austurspilaranna opnuðu á veikum tveimur spöðum). Slagir sagnhafa voru þá 6 á tromp (með því að trompa hjarta í blindum með háum tígli), 2 á lauf, 2 á hjarta og tveir á spaða vegna þess að austur ætti bæði háspilin í spaða. Algengast var að spilaður væri grandsamningur á hendur NS, ýmist þrjú, fjögur eða flmm grönd. Enginn sagði sig þó alla leið upp í 6 grönd, en þau má þó vinna í þessari legu. Hægt er að búa til slag á spaða og síðan lendir vest- ur í óverjandi kastþröng í hjarta og laufi. Þrjú pör náðu 6 tíglum í þessu spili. ísak Öm Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.