Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2000, Síða 4
Pólitíkusar tala óspart um framtíðarsýn og nauðsyn þess
að horfa til framtíðar. Bæði vinstri- og hægrimenn þyrstir
í að sitja við völd næstu árin og takast á við upphaf nýrrar
aldar. Fókus lagði spurningar um komandi framtíð fyrir
tvo unga pólitíkusa, sinn af hvorum meiðinum.
Fimm spurningar
um framtíðina
Johan van Oord sýna saman málverk
á Kjarvalsstööum. Nina Roos frá
Finnlandi var ekki á staðnum þegar
myndin var tekin og er þess vegna
ekki með.
Fjögur
saman
í fókus
Rauövik - Málverk inn og út úr fókus er yfirskrift
samsýningar fjögurra myndlistarmanna frá fjór-
um löndum sem opnuö verður á Kjarvalsstöðum
á morgun, laugardag. Myndlistarmennirnir heita
Claus Egemos frá Danmörku, Johan van Oord
frá Hollandi, Tuml Magnússonfrá íslandi og Nina
Roos frá Finnlandi. Sýningin var upphaflega sett
upp í Trapholtsafninu i Kolding í Danmörku af
Evu Bræmer-Jensen, forstöðumanni safnsins, og
fór þaðan til Rnnlands.
„Mér var boðið að sýna þarna og stakk þá upp á
því að fengnir væru fleiri listamenn sem hafa
svipuð viðhorf og ég til málverksins," segir
Claus. „Ég komst í samband við Johan í gegnum
sýningarstjóra í Stedelijksafninu í Amsterdam,
það er oft auðveldara að ná sambandi við fólk í
gegnum þriðja aðila. En ég heföi haft samband
við hann sarnt," segir hann og horfir á Johan.
„Við eigum alveg jafn margt sameiginlegt og
ekki," segir Hollendingurinn. „Ég segi sögu með
litnum í mínum verkum en ég lít á frásögnina
sem grundvallarmerkingu málverksins." Johan
var lengi að fikra sig í átt að málverkinu og hafði
fengist við ýmislegt áður en það sigraði hann.
„Það er spurning hvort það var ég sem sigraði
málverkið eða málverkið mig.“ Johan segist
vinna afskaplega skipulega og hann ákveður fyr-
irfram hvernig verkin eiga að virka. Claus hins
vegar ákveöur ekki hvernig verkin eiga líta út
heldur þreifar sig áfram út frá litnum. Málverkin
hans eru ólík, þótt uppbyggingin sé alltaf stórir
samfelldir litafletir. Johan vinnur hins vegar með
geómetrísk form.
Verk Tuma Magnússonar eru íslenskum listunn-
endum vel kunn en á Kjarvalsstöðum ætlar Tumi
að sýna röð átta málverka sem mynda eitt verk.
Það ber titilinn Kaffi og hland, en ysta málverkið
öðrumegin við röðina er kaffibrúnt. Á hinum end-
anum blasir viö hlandgulur litur en á milli þeirra
má fylgjast með brúna litnum færast yfir í gult.
„Þetta er leið kaffisins í gegnum meltingarveginn
frá því það er drukkið og þangað til að kemur út
aftur í formi hlands," segir Tumi alveg grafalvar-
legur en titilinn vísar beint til þeirra efna sem
hann notar. Tumi ætlar að halda svolítið fram hjá
málverkinu á þessari sýningu, því hann mun líka
setja upp Ijósmyndir á gaflana á milliveggjum
Vestursals. -MEÓ
GRIM
Hvernig sérðu íslenskt þjóð-
félag fyrir þér árið 2030?
Illugi: „Það er fátt eins algengt
og misheppnaðar framtíðarspár.
Eitt er, svona með sjálfum sér eða
á prívat fundum, að þykjast sjá fyr-
ir um hið óorðna. Annað er að láta
narrast til að gera slíkar hugleið-
ingar að opinberu plaggi. Margur
ágætur maðurinn hefur vakið
óverðskuldaða athygli fyrir hörmu-
lega glámskyggni við slíkar æfing-
ar. Ekki er ýkjalangt síðan þáver-
andi forstjóri IBM sagði t.d. að það
væri ekki markaður fyrir nema
nokkrar einkatölvur í öllum heim-
inum. Og seint gleymast þeir menn
sem sögðu við síðustu aldamót að
allar helstu uppfinningar mann-
kyns hefðu þá þegar komið fram og
einungis biði okkar að vinna úr
þeim. Það er því nauðsynlegt að
ganga hægt um gleðinnar dyr þeg-
ar reyna á að sjá fyrir hið óorðna.
Rosi Eiríksson, bæjarfulltrúi í
Kópavogi og samfylkingarsinni.
En ætli ég spái því ekki að við
höldum áfram á þeirri braut sem
mörkuð hefur verið á síðasta ára-
tug.“
Flosi: „Vonandi víðsýnna og um-
burðarlyndara. Pólitísk umræða á
málefnalegra plani. Byggðaþróun
hefur að eitthverju leyti snúist við
og með betri samskiptatækni og
samgöngum sjá fleiri kosti þess að
búa úti á landi. Einfaldara banka-
kerfi með alþjóðlegum tóni. Seðla-
bankastjórar eru ráðnir eftir hæfi-
leikum en ekki flokksskírteini.
Breiðablik verður enn og aftur Is-
landsmeistari í karla- og kvenna-
flokki í knattspyrnu. Stjómin hætt-
ir að spila saman.“
Hefur hugtakið árþúsundamót
sérstaka þýðingu fyrir þér?
Illugi: „Ég get ekki sagt það.
Þetta eru fyrst og fremst kristin
tímamót. Stór hluti heimsbyggðar-
innar hefur ekki sama tímatal og
við og mér finnst satt best að segja
sérkennileg þessi manía vegna
komandi áramóta. Hitt er síðan að
aldamótin eru ekki fyrr en á næstu
áramótum og bráðræðið núna
kannski tímanna tákn.“
Flosi: „Nei. Þetta er bara ártal.“
Hvaða breytingar vilt þú sjá
í komandi framtíð?
Illugi: „Skömmu eftir stríð bað
blaðamaður einn erlenda sendi-
herra í Washington að svara svip-
aðri spumingu. Franski sendiherr-
ann ræddi um frið og alþjóðlega
samvinnu, sá rússneski um frelsun
nýlenda o.s.frv. Breski sendiherr-
ann, Sir Oliver Franks, sagðist að-
spurður ekki geta ímyndað sér
neitt mikilvægara en krukku með
ávaxtabrjóstsykri. Almennt er ég
þó fylgjandi umbótum.
Flosi: „Vá. Stórt er spurt. Nýja rík-
isstjórn sem ber hagsmuni allra Is-
lendinga fyrir brjósti og til þess þarf
Samfylkingin að leiða hana. Öflugra
og fjölbreyttara atvinnulíf þar sem
allir geta fengið vinnu við hæfi og
laun til að lifa af. Fjölmiðlakerfi þar
sem umræðan er hreinskiptin og mál-
efnaleg og Sjálfstæðisflokkurinn hef-
ur ekki varðhunda sína á svo til
hverri fréttastofu. Skóla- og mennta-
kerfi sem býður upp á menntun fyrir
alla, alla ævina. Þannig að íslending-
ar framtíðarinnar séu vel útbúnir til
að nota þau tækifæri sem í framtíð-
inni búa.“
Hvernig sérðu flokkaskipu-
lagið fyrir þér árið 2100?
Illugi: „Þetta er skemmtileg
spuming. Ég hef þá sannfæringu
að pólitísk hugmyndafræði og hug-
sjónir muni verða mikilvægari eft-
ir því sem árin líða (kannski er
þetta óskhyggja). Þess vegna sé ég
fyrir mér að eftir hundrað ár verði
hér sæmilega öflugur vinstri flokk-
ur, svipaður og vinstri-grænir eru
orðnir núna. Þó ég sé af öllu mínu
hjarta ósammála skoðunum þessa
fólks þá stendur sá flokkur fyrir
ákveðna hugsjón. Sama gildir um
Sjálfstæðisflokkinn. Sá flokkur hef-
ur betur en aðrir flokkar á þessari
öld sýnt hversu miklu skiptir að
stjómmálaflokkar séu grundvallað-
ir á hugsjón. Þau gildi sem Sjálf-
stæðisflokkurinn stendur fyrir i
samfélaginu okkar hafa alltaf átt
erindi við þjóðina og munu halda
áfram að gera svo. I ljósi þessa
verður það að segjast eins og er að
ég tel að flokkur eins og Samfylk-
ingin muni verða áhugaverð neð-
anmálsgrein í sögubókum. Það
kann ekki góðri lukku að stýra að
búa til stjómmálaafl sem hefur það
eitt á stefnuskránni að verða stór
flokkur og mótvægi við aðra
flokka. Til þess að svo mætti verða
voru öll mál útþynnt þannig að úr
varð litlaus samsuða sem þá sem
dreymdi um stóran flokk mátti
fylkja um, vandinn var bara sá að
kjósendur dreymir aðra drauma.
Það er því ekki séð fyrir endann á
þrautagöngu vinstrimanna á ís-
landi. Það er þó vonandi, svona
þeirra vegna, að innan hundrað
ára hafi þeir náð að mynda það
mótvægi sem þá dreymir um við
Sjálfstæðisflokkinn."
Flosi: „Samfylkingin verður enn
stærsti flokkurinn eins og hún hef-
ur þá verið í 80 til 90 ár. Sjálfstæð-
isflokkurinn hefur sífellt færst til
hægri eftir því sem heiðvirðum
sjálfstæöismönnum af gamla skól-
anum hefur fækkað. Framsóknar-
flokkurinn verður litill hagsmuna-
flokkur, ótengdur sveitum landsins
að mestu - en gætir hagsmuna
ákveðinna fyrirtækja og eigenda-
hópa. Allir vinstrimenn eru loks-
ins saman í einum stórum, víðsýn-
um flokki.“
lllugi Gunnarsson, fyrrverandi for-
maöur Heimdallar og nemi í London
Business School.
Hvernig verður Davíðs Odds-
sonar minnst árið 2200?
Illugi: „Davíö Oddsson þarf ekki
að óttast dóm sögunnar. Hann tók
við ríkisstjómartaumunum þegar
íslenska hagkerfið var að ganga í
gegnum eina dýpstu lægð sögunn-
ar. Það tókst að yflrvinna þá erfið-
leika og á sama tíma leggja grunn
að einni mestu framfarasókn þjóð-
arinnar. Þetta er mikið pólitískt af-
rek - íslenskt þjóðfélag hefur tekið
stakkaskiptum á þessum áratug.
Einnig held ég að sagan muni
geyma sérstæðan persónuleika og
stíl Davíðs Oddssonar. Fáum
mönnum hefur forysta verið jafn
eiginleg og honum. Auðvitað er
Davíð umdeildur, hann á að vera
það og besti vitnisburður um hæfni
Davíðs er óþol margra vinstri
manna gegn honum.“
Flosi: „Ef hans verður minnst er
það sem forsætisráðherrans sem
ákvað af ótrúlegri skammsýni að
sökkva Eyjabökkum og var ráð-
herra byggðamála á timum mestu
byggðaröskunar íslandssögunnar.
Einnig verður í öllum spuminga-
leikjum spurt: „Hvaða forsætisráð-
herra fékk „orðu“ frá bandarísku
stúdentapartífélagi fyrir að
segja fimmaurabrand-
ara?“
f Ó k U S 14. janúar 2000