Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2000, Qupperneq 8
ísland er lítið land en samt státar það af óhemjumörgum útvarpsstöðvum. Á næstu dögum, eða um ieið
og einhver sendir kemur til landsins, fer enn ein útvarpsstöðin í loftið. Hún hefur fengið nafnið Radíó og
verður á 103.7. Stöðin mun skarta mikiu af fallegu fólki og aðaltromp hennar verður án nokkurs vafa
piltarnir í Tvíhöfða. En Tvíhöfði verður ekki eina númer stöðvarinnar, sem ætluð er fólki á aldrinum
15-35 ára, heldur mun fyndnasti maður íslands, Pétur Jóhann Sigfússon, einnig skemmta hlustendum
með eigin þætti. Fókus hitti þessa nýjustu útvarpsstjörnu íslands.
Líf Péturs, 27 ára Hafnfirðings,
hefur breyst mikið síðustu misseri.
Hann starfaði sem óbreyttur starfs-
maður, í vinnu frá níu til fimm, en
svo tók hann þátt í keppninni
fyndnasti maður íslands og þá var
ekki aftur snúið. Hann sigraði og í
framhaldinu var honum boðið að
taka þátt í uppistandi og stjóma
sínum eigin útvarpsþætti.
Þú ert fyndnasti maður íslands
en samt veit fólk voðalega lítið um
þig. Segðu eitthvaö frá sjálfum þér.
„Ég er fyrrverandi starfsmaður
BYKO og hef bara eiginlega verið
að vinna þar frá því aö ég man eft-
ir mér. Þetta er í rauninni það eina
sem ég get sagt. Ég er eiginlega
bara einn af öllum. Ég veit ekki al-
veg hvað ég á að segja, ég bara
dreif mig í þessa keppni og það hef-
ur eiginlega allt snúist við hjá mér
í framhaldi af henni," svarar Pétur
geispandi þannig að varla er hægt
að skilja það sem hann er að segja.
BYKO stendur þér greinilega
nœrri. Er mikill söknuður?
„Hjá þeim, örugglega. Jú, jú, það
var fint að vinna þar en það er líka
mjög gaman að takast á við eitt-
hvað nýtt,“ svarar Pétur og geispar
meira.
Margir af okkar bestu grínurum
áttu erfiða œsku. Áttir þú erfiöa
œsku?
„Nei, nei. Ég held að ég hafi ekk-
ert átt erfiðari æsku en svona geng-
ur og gerist. Ég held að ég hafi ekk-
ert verið mikið öðrúvísi en aðrir,
samt var jú svolítið erfitt að fá mig
til að læra en er það ekki þannig
með öll börn? Ég var mjög dreymið
barn og hef alltaf verið. Ég hef
alltaf verið að láta mig dreyma um
að gera eitthvað allt annað en ég er
að gera þá og þá stundina. En nú er
ég kominn í það sem ég vil vera að
gera, orðinn grínari í útvarpi og á
sviði.“
Þannig aö þú hefur upplifað
drauminn?
„Já, ég hef upplifað drauminn og
ætla að reyna að njóta þess á með-
an ég get.“
Varstu fyndinn sem krakki eða
byrjaöi þessi árátta við að segja
brandara síðar?
„Þetta byrjaði í sjálfu sér ekki á
einum degi,“ svarar Pétur og bætir
því síðan við að hann hafi í raun
alltaf verið vinnustaðafíflið og allir
hafi alltaf verið að bíða eftir því að
hann segði eitthvað sniðugt.
Brjálað kynsvall
Eftir keppnina um fyndnasta
mann íslands hafði Jón Gnarr sam-
band við Pétur og bauð honum að
vera með í uppstandi hans í Loft-
kastalanum. Pétur var ekki lengi
að segja já.
Hvernig hefur þér gengið meö
uppistandið?
„Bara mjög vel. Það er búið að
vera alveg rosalega gaman. Þetta er
alvöru og allt öðruvísi en það sem
ég hef gert því þetta er ekkert frá-
brugðið leiksýningu þar sem fólk
kemur og situr i sínum sætum og
gerir ekkert annað en að horfa á
þig. Maður þarf að hafa svolítið fyr-
ir þessu og „meika sens“,“ svarar
Pétur og viðurkennir að stundum
fái hann smá sviðskrekk en svo
gleymist það fljótlega eftir að hann
byrji að blaðra.
Sumir sem hafa séð þig í Loftkast-
alanum segja að þú sért svolítió
klúr. Er það rétt?
„Ég held að ég sé nú ekkert með
svo mikið af neðanmittisbröndur-
um. Þetta eru aðallega lífspælingar
hjá mér. Stundum kem ég þó með
einn og einn klúran brandara en
það er þó misjafnt eftir kvöldmn.
Stundum gerðist eitthvað um dag-
inn, eða kvöldið áður, sem ég verð
bara að segja frá í uppistandinu."
Þú ert þá aö segja að ef þú hefur
lent í einhverju brjálœöu kynsvalli
kvöldiö áöur þá sértu klúr í uppi-
standinu daginn eftir?
„Það gæti verið,“ svarar Pétur
hlæjandi en bætir svo við aö hann
hafi reynt að sleppa við klúra
húmorinn því hann verði svo fljótt
þreyttur.
Hœttur í BYKO, œtlar þú að
verða atvinnugrínari?
„Já, það er draumurinn," svarar
Pétur og segir að keppnin um
fyndnasta mann íslands hafí komið
hontun á kortið.
Tvíhöfði hitar upp
Og svo hélt draumur Péturs
áfram að rætast. Eftir að hafa stað-
ið sig vel á sviði Loftkastalans var
honum boðið að stjórna sínum eig-
in útvarpsþætti.
„Útvarpsstarfið leggst að flestu
leyti vel í mig en þó ekki öllu. Ég
get alveg viðurkennt að ég er pínu-
lítið hræddur um að fólki líki ekki
það sem ég kem til með að gera,“
svarar Pétur sem mun einoka Rad-
íó alla virka daga frá 11 til 15 í
þætti sem enn hefur ekki fengið
nafn.
Hvernig þáttur verður þetta?
„Þetta verður spjall og svo verð-
ur tónlist."
Vinsœldarpopp?
„Nei, það hugsa ég nú ekki,“
svarar Pétur geispandi.
Fólki finnst nú oft að þessir út-
varpsmenn séu allir eins. Veröur þú
eins og allir hinir eða fœr maður aó
heyra eitthvað nýtt?
„Vonandi verð ég nú ekki eins og
allir hinir. Þetta verður mikið grín.
Ég ætla að reyna að gera eitthvað
mjög sniðugt og eitthvað sem hefur
ekki verið gert,“ svarar Pétur en
viðurkennir þó að það sé meira en
að segja það.
Er ekki bara dans á rósum að
vera útvarpsmaóur, vinna bara
fjóra tíma á dagfrá ellefu til þrjú?
„Þetta er búið að vera mjög mik-
0 vinna og kannski sérstaklega fyr-
ir mig af því að ég hef aldrei gert
þetta áður og er því að fara út í eitt-
hvað sem ég þekki ekki. Svo reyn-
ir maður líka að vanda undirbún-
inginn vel af því að maður heyrir
alveg að væntingarnar eru mjög
miklar. Þannig að fyrstu dagamir
og mánuðumir verða erfiðir, sér-
staklega kannski vegna þess að al-
menningur er mjög snöggur að
fella dóma og því verður maður að
koma vel undirbúinn til leiks. En
Tvihöfði þarf vitanlega ekki að
hafa neinar áhyggjur, þeir eru bara
með sinn morgunþátt á imdan mér
og allir hlusta."
Þeir eru á undan þér, má kannski
segja að þeir séu að hita upp fyrir
þig?
„Já, þeir em bara upphitarar.
Þeir svona vekja fólkið og koma
því í gang fyrir mig,“ svarar Pétur
og geispar enn.
Fyndnasti maður íslands og verð-
andi útvarpsstjarna hlýtur aö njóta
kvenhylli.
„Nei, ég nýt ekki kvenhylli."
Þú lýgur því, þú hlýtur aó vaða í
kvenfólki?
„Nei, ég fer lítið því ég er með
eina konu. Það hefur því lítið reynt
á þessa kvenhylli sem þú ert að
tala um en það kemur kannski að
því. Nei, nei, málið er bara að ég er
með mína konu og því alltaf
heima.“
Pétur, þú ert búinn aö geispa allt
viötalið, ertu þreyttur?
„Já, maður er búinn að vinna
mikið síðustu daga og er því lítið
sofinn," svarar Pétur að lokum.
-tgv
f Ó k U S 14. janúar 2000